Tíminn - 03.10.1972, Page 8

Tíminn - 03.10.1972, Page 8
8 TÍMINN Þriðjudagur 3. október 1972. Hverri smáþjóð er áríðandi að kynna sín lífshagsmunamál á réttan hátt á réttum stað Sextugasti fundur Alþjóöaþing- mannasambandsins var haldinn i Róm dagana 21.-29. sept. s.l. Af hálfu Alþingis sóttu eftirtaldir þingmenn fundinn: Jón Skafta- son, sem var formaður sendi- nefndarinnar, Magnús Jónsson, Eggert G. Þorsteinsson og Garð- ar Sigurðsson. Einnig sat fundinn Friðjón Sigurðsson, skrifstofu- stjóri Alþingis. Timinn snéri sér til Jóns Skaftasonar til þess að leita frétta af þinginu. Fyrst langar mig til þess að spyrja þig Jón um eöli þessara samtaka og tilgang. Samtök þessi eru stofnuð 1892, ef ég man rétt og hafa eflzt og vaxiðfram á þennan dag. Nú eiga aöild að þeim 71 þjóð, þ.á.m. öll stórveldin utan Kina, sem vænt- anlega bætist brátt i hópinn. Tilgangur samtakanna er að efla kynni meðal þingmanna af ólikum þjóðum, kynna hags- munamál landanna, efla frið og bætta sambúð ólikra þjóða. Uppbygging samtakanna er i fáum orðum þessi: Þingið, sem kemur jafnaðarlega saman einu sinni á ári til skiptis i aðildarlöndunum, og er nú setið af 800-900 þingmönnum auk full- trúa frá St>, E vrópuráðinu, GATT, UNESCO og FAO o.fl. stofnunum. Háðið, sem skipað er 2 fulltrú- um frá hverju aðildarlandi og kemur saman tvisvar á ári. Framkvæmdanefndin, sem skipuð er 11 meðlimum og sér um daglega stjórn þingmannasam- bandsins i umboði ráðsins ásamt framkvæmdastjóra þess og skrif- stoíu, sem er i Geni'. Hver voru helztu umræðuefni á þessu siðasta þingi i Róm? Hver voru helztu umræðuefni á þessu siðasta þingi i Róm? Nú, sem fyrr, fóru fram al- mennar umræður um skýrslu framkvæmdastjórans um atburði liðins árs i heiminum og starf sambandsins. Kenndi þar margra grasa og voru mörg mál rædd i þvi sambandi. Má þar til nefna ófriðarástandið i Austurlöndum nær og i SA-Asiu. Voru margar tilfinningarikar ræður 'haldnar um þau efni. Þá fór mikill timi þinghaldsins i að ræða vaxandi ógnir af flugvélaránum, sprengjutilræðum og mannrán- um og leiðir til úrbóta. Fundar- staðurinn, þinghúsið i Róm, bar þessu vaxandi vandamáli glöggt vitni meðan þingið stóð yfir, þvi NTB—Blackpool Formaður brezka verk- amannaflokksins, Anthony Wedgwood Benn, krafðist þess i gær, að almenningur á Bretlandi fengi tækifæri til að segja álit sitt á inngöngu Breta i EBE, annað- livort með þjóðaratkvæða- greiðslu, eða mcð nýjum kosning- um, áður en aðildin vcrður stað- reynd um áramótin. Benn sagði þetta i ræðu við setningu 71. landsþings flokksins. þess var vandlega gætt af hundr- uðum her- og lögreglumanna. Umhverfismál, eiturlyfjamál og málefni þróunarlandanna tóku lika sinn tima og einnig alþjóðleg viðskipti. Auk þessa ræddu fulltrúar sér- hagsmunamál landa sinna og tal- aði ég fyrir hönd okkar Islending- anna um landhelgismálið. 1 þetta skiptið var ég heppinn með ræðu- tima, talaði kl. 4,30 á öðrum degi þinghaldsins og voru margir i salnum. Morgunblaðið segir i leiðara s.l. fimmtudag, að þú hafir talað meira sem Framsóknarmaður en Hann sagði, að verkamanna- flokkurinn visaði á bug þeim skil- málum fyrir aðildinni, sem Heath og stjórn hans hafi komizt að með samningaviðræðum sinum. — Það er óþolandi, að trar, Norðmenn, Frakkar og Danir skuli fá að segja sitt álit, á meðan brezka stjórnin, utanrikisráðu- neytið og fjölmiðlar reyna að heilaþvo brezkan almenning, sagði Benn. — Við verðum að krefjast kosninga og þingrofs tslendingur á þessu þingi. Hvað vilt þú um það segja? Já, ég sá þetta eftir heimkom- una, er ég fór yfir blöðin. En áður en ég svara þér vil ég geta þess, að ég las lika i Staksteinum, að búið væri að setja mig til hliðar i þingflokki Framsóknarmanna, af þvi ég þætti óþægur og lélegur flokksmaður! Ræða min hefur birzt og getur hver sem vill dæmt um sannleik- ann i fyrirsögn Morgunblaðsleið- arans. Til viðbótar vil ég upplýsa, að ég samdi ræðuna, áður en farið var að heiman og fengu allir i sendinefndinni eintak hennar til athugunar, hvort i henni væri fyrir miðnætti 31. desember. Forsætisráðherrann talar eins og Bretland sé hans persónuleg eign, og hann heldur, að almenningur sé eitthvað, sem hægt er að hringla með eftir geðþótta. Almenningur vill ekki una þvi, sagði Benn. Á miðvikudaginn verða á landsþinginu umræður um mark- aðsmálin, sem leitt hafa til klofn- ings innan flokksins. eitthvað, sem óheppilegt mætti telja og gæti valdið ágreiningi okkar i milli á erlendum vett- vangi, en það vildi ég forðast. Enginn óskaði breytinga, þannig að ef ég hef verið meiri Fram- sóknarmaður i Róm en Islending- ur, þá hlýt ég að álykta, að hið sama megi um þá félaga mina Magnús, Garðar og Eggert. En ekki er ég viss um, að þeir samþykki þennan málflutning Mogga. Ég skil hins vegar þörf stjórn- málaritstjóra Morgunblaðsins á að hampa þvi ,,skrautblómi”, sem þeir telja þá yfirlýsingu Við- reisnarstjórnarinnar á nótuskipt- unum við Breta 1961 vera, þar sem segir að unnið verði áfram að útfærslu fiskveiðilandhelginnar og tilvitnun i minnihlutaálit Padilla Nervos, i þvi sambandi. Staðreynd er, að allur mál- flutningur Breta á alþjóðavett- vangi um, að okkur sé skylt að hlita lögsögn dómstólsins i þessu máli byggist á þessum samningi. Það er einnig staðreynd, að vegna þessa samkomulags komast Bretar upp með að halda þvi fram, að við virðum ekki gerða samninga. Ég bendi bara á þetta af gefnu tilefni og við heyrðum þessu haldið fram i Róm. Telur þú, að málstaður okkar hafi átt samúð margra þingfull- trúa? Vafalitið,.sumt sannreyndi ég i samtölum við ýmsa þeirra. Eyðing auðlinda er að verða alþjóðlegt áhyggjuefni og vax- andi skilningur á þvi, að þegar hús nágrannans brennur er þitt eigið i hættu. 1 það óendanlega geta veiðiflotar stóru fiskveiði- þjóðanna ekki fundið ný fiskimið og hvar standa þessar þjóðir þá? Barátta þróunarlandanna fyrir auknum rétti til nýtingar eigin landgæða fellur i sama farveg og landhelgisbarátta okkar. Það vantar svo sem ekki.að stórveldin þykjast hafa „bréf” upp á að mega nýta þessar auðlindir i krafti sögulegrar hefðar e.þ.l. Við þekkjum það lika. Telur þú gagn af svona þing- haldi fyrir Islendinga? Já vissulega. Þrátt fyrir að rétt sé að margt, sem þar fer fram snerti okkur litið, þá er það stað- reynd, að þegar við höfum fyrir lifshagsmunamáli að berjast, þá er aðalatriðið að velja sér réttan vettvang og réttan vopnaburð. A þingum sem þessum sitja áhrifamenn hver i sinu landi. Ómetanlegt getur orðið að ná eyr- um þeirra með mál okkar og reyna að öðlast samúð þeirra og skilning á lifshagsmunamálum okkar. 1 þessu liggur aðalgildi slikra þinga fyrir okkur. Er það nokkuð sérstakt að sið- ustu? Já, mér finnstað i æ rikari mæli sé þörf á alvarlegri endurskoðun á okkar eigin veiðiskap á miðun- um umhverfis landið. Saga sið- ustu þriggja ára um minnkandi aflamagn talar skýru máli. Við munum með festu og þraut- seigju vinna 50 milna striðið og fá þá fiskveiðilandhelgi fyrir okkur eina. En eru Islendingar reiðubúnir til að nýta þann ávinning svo að ekki verði að tjóni i næstu fram- tið? Álagið á fiskistofnana er þegar of mikið og verður að minnka um sinn. Veiðiskapur með tækjum, sem aðeins taka stórfiskinn, svo sem lina og handfæri, svo að dæmi séu nefnd, eru hættulaus. En þau veiðarfæri, sem drepa mikið af smáfiski verða að fara gegnum nákvæma endurskoð- unarsiu okkar fyrr en siðar. Wegdwood Benn, formaður verkamannaflokksins: Reynt að heilaþvo brezkan almenning

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.