Tíminn - 06.10.1972, Page 20

Tíminn - 06.10.1972, Page 20
Jörgensen vill fá vinnufrið NTB—Kaupmannahöfn Anker Jörgensen tók í gær formlega yið embætti forsætis- ráðherra Danmerkur. Eftir eið- tökuna gekk hann út á tröppur Amaliuborgarhallar ásamt Krag og K.B, Andersen. Um 100 manns höfðu safnazt þar saman og fögnuðu nýja forsætisráöherran- um. Jörgensen sagði að rikisstjórn jafnaðarmanna, sem er i minni- hluta á þinginu og nýtur stuðnings sósialska þjóðarflokksins, yrði að tefla á tæpasta vaðiö á næstunni, Þá lét Jörgensen i ljós þá von, aö friöur yrði i stjórnmálunum i bráðina og aö stjórnin fengi vinnufrið til næstu kosninga 1974. A þinginu hefur Jörgensen eins og Krag og stjórn hans aðeins eins þingsætis meirhluta. Hann upplýsti, að hann mundi siðar i mánuðinum taka þátt i fundi for- sætisráðherra EBE-landanna i Paris. NTB—Róm ttalskur hóteleigandi hefur ákveöið að forða italiu frá þeirri vansæmd, að selja Colloseum erl- endum manni. Bandarískur milljónamæringur bauðst nýlega til að kaupa Colosseum fyrir milljón dollara, en hóteleigandinn ætlar að borga meira. Báðir segjast auðkýfingarnir ætla að láta gera við Colosseum og opna þaö almenningi á ný. " ; ■■ •: ......... ' Eins og hver heilvita manneskja hlýtur aðskilja, fylgir þvi mikil hætta aðlúta yfir vélar þegar maður er hárprúöur. Bæði hér á landi og erlendis hafa orðið alvarleg slys, jafnvel dauðaslys, þegar hárið hefur lent í vél. Sums staðar er slðhæröum piltum vfsað frá vinnu, ef þeir neita aö láta skera lokkana, en annars staðar er þeim gert aö skyldu aö nota hárnet. Þessi mynd er tekin i Iðnskólanum I Reykjavik, þar sem hárnetaskylda er i giidi. Varla finnst okkur þetta þó nægilegt. Lokkarnir sem lafa gætu hæglega villzt inn í eitthvert apparatið. ( Timamynd Gunnar) "'Il t Föstudagur 6. október 1972. j ísland vann Kúbu og heldur enn forystunni ÞÓ—Reykjavik islenzka skáksveitin á Olympiumótinu sigraði sve’it Kúbu i áttundu umferð með 2.5 vinningum gegn 1.5. tsland heldur þvi enn forystunni i B-flokki með 22 vinninga, en i 2.-3. sæti eru Noregur og Israel með 20 vinninga, i 4.sæti er England með 19.5 vinninga og 1 biðskák. Júgóslavia er enn efst i A-flokki með 23 vinninga, Ungverjaland hefur 20.5 vinninga og Sovétrikin eru með 18.5 vinning og 4 biðskák- ir. Eldsvoði i Flfótshverfí i gær kom upp eldur i bænum Hruna i Fljótshverfi i Vestur- Skaftafellssýslu. Var kallað á slökkviliðið frá Kirkjubæjar- klaustri og tókst þvi að slökkva eldinn eftir nær þriggja stunda viöureign. Tókst að bjarga mestu úr húsinu, en vesturálma þess mun hafa skemmzt. Hrollvekjandi Víetnam-tölur frá Pentagon: Sprengjumagnið á við margar heimsstyrjaldir NTB—Washington A fyrstu niu mánuðum ársins hefur verið varpað meira sprengjumagni yfir SA- Asiu, en allt árið i fyrra. Þetta kemur fram i skýrslum frá bandariska varnarmálaráðu- neytinu. Talsmenn Pentagon segja að þetta sé aðallega vegna aukins stuönings bandarfskra flugvéla eftir að N-Vietnamar hófu sókn sina suöur- á bóginn 30. marz sl. Frá 1. janúar til 30. septem- ber hafa verið notuð yfir 800 þúsund tonn af sprengiefni yfir Norður- og Suður- Vietnam, Laos og Kambódiu, en allt árið i fyrra voru þaö 763 þúsund tonn. Heimildir bandarisku leyni- þjónustunnar segja, að flug- vélastuöningurinn hafi verið nauðsynlegur til að halda herjum N-Vietnama i skefjum Sprengjuárásirnar á N- Vietnam hafa þó ekki megnaö að stöðva straum hermanna og vista suður á við. Opinberar tölur sýna, að undanfariö hálft áttunda ár hefur verið varpað hvorki meira né minna en 7,5 milljónum lesta af ýmis konar sprengiefni yfir Indó-Kina. Þetta er um það bil þrisvar og hálfu sinnum meira en Banda- menn notuðu á öllum sinum herstöðvum i siðari heims- styrjöldinni. A 21 mánuði hefur verið varpað fleiri sprengjum á SA-Asiu en á Þýzkaland allt á árunum 1940- 1945. Að sögn New York Times, sem hefur tölurnar frá þing- nefndarheimild, hefur fleiri sprengjum verið varpað yfir Indó-Kina á þeim 44 mánuðum, sem Nixon hefur setið við völd, heldur en var þau fjögur ár, sem Johnson var forseti. Samkvæmt heimildum sömu þingnefndar, sem er undir forystu Teds Kennedy, hafa bandarisku flugvélarnar einnig varpað flisasprengjum yfir starfsmenn loftvarna- stöðva N-Vietnama. Ekki fylgir þó sögunni, i hversu rikum mæli slikt hefur verið gert. Líffæri fjarlægð til viðgerðar NTB—San Fransisco Bandariskur skurðlæknir kvaðst í gær hafa fjarlægt liffæri úr sjúklingi sinum, flutt það á annað skuröarborö, gert við það og sett siðan aftur á sinn staö. Þessi aðferð hefur fram til þessa aðeins verið notuð viö nýrnaaðgerðir, en læknirinn Russell L. Lawson segir, að vel megi gera þetta einnig við hjarta- og lifraaðgerðir. A fundi skurðlækna i San Fransisco skýrði Lawson, hvernig hann hefði tvisvar tekið nýra úr sjúklingi og gert við það á ööru borði. Nýrað var i bæði skiptin kælt og sett á sinn stað aftur allt aö sex klst. siðar. Lawson er þeirrar skoðunar að þessi aðferö sé mun hagkvæmari en liffæraflutningar. „Þurfum nýjar leiðir í norrænni samvinnu" NTB—Stokkhólmi Sænska stjórnin ætlar að vinna aö þvi að finna nýjar leiðir i norrænni samvinnu og gefa henni nýtt inntak, sagði verzlunarmála- ráðherra Svia, Kjell-Olof Feldt á landsþingi ja f na öa r m a nna - flokksins i gær. — Um þessar mundir erum við i þann veginn að stiga skref fram á viö i norrænni samvinnu, sagði Feldt. — Fjögur af Norður- löndunum fimm munu fá svipaða verzlunarsamninga við EBE, en Danmörk verður aðili. Sú markaðsaðstaða, sem nú hefur skapazt i Evrópu hefur ekki ' dregið úr, heldur aukið þörfina á náinni samvinnu landa, sem standa hvert öðru nær landfræði- lega, efnhagslega og menningar- lega. Það er mikilvægt, að þessi samvinna grundvallist framvegis á öllum fimm Norðurlöndunum, sagði Feldt. Fyrsti þjóðgarður■ inn á Austurlandi SB—Reykjavik — Það eru nokkur svæöi hér á Austurlandi, sem okkur finnst vel þcss virði, að verði friðlýst sem þjóðgaröar, sagði Hjörleifur Guttormsson i Neskaupstað, en hann er formaður Náttúruvernd- arsamtaka Austuriands. Samtök- in halda aðalfund sinn á Djúpa- vogi um helgina og verða þar m.a. lögð fram drög að náttúru - minjaskrá fyrir Austurland. Ekki vildi Hjörleifur láta upp- skátt, hvað væri að finna i þessari skrá, en sagði, aö fjöldi staöa og stærri svæða á Austurlandi ættu skilið friðun. Samtökin hafa áður lagt fram tillögu um friðun Hólmaness i Reyðarfirði, Papeyjar og Hvannalinda og halda áfram að vinna að þeim málum. Gögnum aðalfundarins verður visað til Náttúruverndarráðs, sem siðan kemur sinum ábendingum á framfæri við rétta aðila, er það hefur metið tillögurnar. Náttúruverndarsamtök Austurlands eru nú réttra tveggja ára, og eru félagar á þriöja hundrað og styrktarfélagar um 30. A aðalfundinum á Djúpavogi verður meðal annars rætt um landnýtingu og vegagerð og um- hverfi, og flytja Eysteinn Jónsson alþingismaður og Snæbjörn Jón- asson yfirverkfræðingur fram- söguerindi um þessi mál. Skrúfan úr Þór elzta komin heim á hlað hjá húnvetnskum froskmönnum — Við höfum bara veriö að þessu að gamni okkar, sagði Karl Berndsen, vélsmiða- meistari i Höföakaupstaö, viö Timann i gær. En það er samt alveg hárrétt: Viö náðum skrúfunni af Þór elzta, sem legið hefur I sjó fram af Sölva- bakka á Refasveit i hér um bii fjörutiu og þrjú ár. En þaö var ekki feitan gölt að flá, þvi aö hún reyndist vera úr steypu- járni, en ekki kopar. Það eru mörg skip, sem oröið hafa til á þessum slóöum, og meðal þeirra eru elzta varöskip islendinga, Þór sem Björgunarfélag Vest- mannaeyja keypti upphaflega árið 1920, og millilandaskipið Lára, sem strandaði árið 1910, rétt utan við Spákonufells- höfða. Þeir Karl Berndsen og félagi hans, Sigurjón Haralds- son, sem nú á heima á Blöndu- ósi, eru báðir froskmenn, og þeir hafa að undanförnu veriö að huga þvi, sem eftir er af þessum skipum tveim. Þeir höfðu farið þrisvar niður að flakinu af Þór, er þeir nú fyrir um það bil viku náðu skrúf- unni, ásamt öxli og stefnisröri. Niður að hinu flakinu hafa þeir farið, nokkrum sinnum, og fundið ketil, vél og milli- öxul, sem er fastur við hana, tiu til tólf metra langan og sex til átta þumlunga gildan. Skrúfuna úr Láru hafa þeir aftur á móti ekki fundið enn, og engu hafa þeir náð á land úr þessu flaki. Þegar Lára strandaði, voru á henni i kringum fjörutiu far- þegar, sem allir björguðust á land, ásamt skipverjum. Þór rak i stórviðri upp á Sölva- bakkasker rétt fyrir jólin 1929, og björguðust allir af honum með aðstoð báts úr landi: Þá var Eirikur Kristófersson skipherra á Þór. - JH.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.