Tíminn - 07.10.1972, Side 16

Tíminn - 07.10.1972, Side 16
Búið að semja um Víetnam — segir Times, en N-Víetnamar segja það ósatt MTB—Washington Talsniaftur llvita hússins vildi ekki i gær segja neitt um þá frétt hre/.ka blahsins Tirnes, að Banda- rikjamenn og N-Vietnamar hefðu komið scr saman um lausn Vietnam-deilunnar. Samkvæmt frétt Times er margt, sem bendir til þess að Kissinger, ráðgjafi Nixons og fulltrúar N-Vietnama hafi komið sér saman um lausnina á fundum sinum i Paris og Moskvu. Times, sem gatengra heimilda, sagði að þetta yrði ekki gert opin- bert fyrr en eftir forsetakosning- arnar 7. nóvember. Pólitisk lausn deilunnar hefur það i för með sér, að komið verð- ur á samsteypustjórn i S-Vietnam með þátttöku kommúnista. Að sjálfsögðu verður þá stjórn Thieus að fara frá völdum. Times sagði, að ef bandariskir kjósend- ur kæmust á snoöir um þetta, væri hætta á minni kosningaþátt- töku. Sendinefnd N-Vietnam i Paris mótmælti i gær, að nokkuð væri hæft i frétt Times. Þær sögusagn- ir, sem kunna að ganga i Bret- landi um að samið hafi verið um lausn Vietnamdeilunnar, eiga ekki við nein rök aö styöjast sagði i yfirlýsingu frá sendinefndinni. Verður Bondevik forsætis- ráðherra i Noregi? NTB—Oslo Talið er að Kjell Bondevik.fyrr- um kirkju- og menntamálaráð- herra, verði forsætisráðherraefni kristilega þjóðarflokksins i Noregi, í viöræðum flokksins við miðflokkinn og hluta vinstri flokksins um stjórnarmyndun . Landsstjórn kristilega þjóöar- flokksins samþykkti meö naum- um meirihluta, sex atkvæöum gegn fimm, að taka þátt i slfkum viðræðum. ^Laugardagur^7^októbeiM972^ Forvitið fólk tafði störf lögreglunnar Klp—Reykjavik. — Þetta var ein ljótasta aðkoma á árekstrarstað, sem ég hef séö i langan tima, sagði rann- sóknarlögreglumaöurinn, sem sendur var i gærríiorgun til að rannsaka árekstur á Bústaða- vegi, rétt fyrir austan Bústaða- kirkju. Þar höfðu tvær bifreiðir, Cortina og Benz, skollið saman með framendann og slösuðust báðir ökumennirnir mikið. Annar þeirra var fastur i flakinu, þegar að var komið og voru báðir fætur hans brotnir, svo og annar hand- leggurinn auk þess sem hann var skorinn á fleiri stöðum. Fjöldi fólks þyrptist að slysstaðnum, sumir með logandi vindlinga i munninum, þrátt fyrir að öll gatan flóði i bensini. Átti lögreglan i hinum mestu vand- ræðum við að komast að bil- flökunum og ná manninum út fyrir fólkinu. Var aðgangur þess svo harður, að nær öll verksum merki voru ma’ð af götunni, en þó var hægt að greina, að annarri bifreiðinni hafi Verið ekið hálfri yfir miðlinu vegarins. Rannsóknarlögreglan biður vitni að árekstrinum að hafa samband við sig, en hópur fólks mun hafa verið rétt hjá staðnum, þar sem það beið eftir strætis- vagni. Onnur alda sprengju- bréfa NRB-Dusserdorf , Sendingar sprengja i brefum eru hafnar á nýjan leik og hafa Gyðingar og Gyöingasamtök viða um heim fengið sprengjubréf undanfarna þrjá daga. Engin sprengjan hefur þó sprungið. Eitt sprengjubréf kom i gær til elliheimilis Gyðinga i Diisseldorf og var það stilað á mann, sem lézt i janúar sl. Kona, sem ætlaði aö opna bréfiö, heyrði eitthvert tor- kennilegt hljóð frá því og kallaöi á lögregluna. Hjálparstofnun Gyðinga i Róm barst sprengjubréf á miðviku- daginn. Sprengiefniðí bréfinu var blandað Kurare, eitri þvi, sem Indiánar i S-Ameriku nota til að bera á örvarodda sina.t bréfinu var einnig kveðja frá Svarta september. Þá fannst sprengjubréf i Sidney i Astraliuigær, Þetta er Wichmann vélin, sem fara á I skuttogarann hjá Stálvlk, og hjá vélinni eru þeir Einar Farestveit og .Fón Sveinsson i Stálvik. Wichmann vél í Stálvíkurtogarann: Stærsta og þyngsta vélin um 40% við að skrúfuspyrna var sett á togskip. Umboðsmaður Wichmann hér á landi, Einar Farestveit, sagði blaðamanni Timans, að öll tog- skip i Noregi væru nú búin» skrúfuspyrnum og segðu út- gerðarmenn, að spyrnurnar spöruðu eldsneyti fyrir um spyrnan er stór og mikill hringur, sem settur er utan um skrúfuna og veit viðari endinn fram. Hring urinn er fylltur oliu, og á hún að auka endingu hans, en einkum þó að minnka hristing um borö i skipunum. Áætlað er, að skuttogaranum verði hleypt af stokkunum um mánaöarmótin marz/april ’73. Þetta verður þá fyrsti islenzk- byggði skuttogarinn. Stærð hans er 400-500 tonn. Mesta lengd 46.5 m. Breidd 9 m og dýpt af efra þil- fari miðskips 6.35 m. Stálvik HF vinnur nú að stækk- un á húsnæði sinu. Með fullum af- köstum skipasmiðastöðvarinnar i bættu húsnæði má áætla að skipa- smiðastöðin geti lokið við smiði slikra skuttogara raðsmiöaöra á ca 10-12 mánuðum frá þvi að kjöl- ur hefur verið lagður. Stálvik hefur nú i pöntun smiði á 2 skuttogurum við viðbótar og verða þeir búnir samskonar vél- um. Smiði þessara togara svo og annarra,sem á döfinni eru,er þó háð þvi að fyrirgreiðsla fáist fyrir smiðinni hjá banka og rikissjóöi. KJ—Reykjavik 1 gær var skipað upp úr Rangá aðalvél ásamt fylgihlutum, sem fara á i skuttogarann,sem er i smiðum hjá Stálvik i Garða- hreppi. Vélin sjálf vegur 27 tonn, en hún er frá Wichmann verksmiöjunum norsku, og sömuleiðis skrúfan, sem er skiptiskrúfa og skrúfu- spyrnan. Vél þessi er sú stærsta og þyngsta, sem sett hefur verið i nýtt skip hér á landi, og á hún að skila 1.750 hestöflum viö 375 snúninga á minútu. Skrúfuspyrna verður umhverf- is skiptiskrúfuna, en spyrnan ger- ir það að verkum að togkraftur skipsins eykst um a.m.k. fjórð- ung, og dæmi eru til þess hér á landi, að togkrafturinn hafi aukizt Skrúfuspyrnan er ekkert smáverkfæri, sem sjá má á myndinni. „Vatnið hreina, vatnið heima - vatn, sem lagzt er hjá og þambað" __orðið munaðarvara, sem selst nú háu verði í mengunarlöndum JGK—Reykjavik. Norska skáldið Nordahl Grieg var eitt sinn staddur i Shanghai og orti þar frægt kvæði um fjaliavatnið heima i Noregi og „úldið, þræsiö" skólpið, sem hann neyddist til að drekka i Shanghai. Þeir gerast nú æði margir, sem geta tekiö undir með skáldinu, þvi að ferskt vatn er að veröa viðlika sjaldséð i hinum stóru iönaðarlöndum og glóandi gullið. Norðmenn og Sviar flytja nú þegar út vatn, og svo kann að fara, að islendingar fari nú brátt að dæmi þeirra. Rolf Johansen stórkaup- maður, sem haft hefur for- göngu um þetta mál, sagöi blaðinu, að nú væru vætan- legar umbúðir frá Sviþjóð, sérstaklega geröar til að geyma vatn. Verða þá send fjögur tonn af vatni utan sem sýnishorn. Rolf sagðist hafa fengið áhuga á þessu máli, er hann frétti um útlfutning Svía og Norömanna. Hann hefur haft samvinnu við Mjólkursam- söluna, sem mun sjá um pökkunina. Vatnið veröur flutt i tveggja litra fernum, sem klæddar eru innan með álpappir, sem er nauðsyn- legur til að það fúlni ekki. Rolf kvaðst hafa náð sambandi við fyrirtæki i Hollandi, Þýzka- landi og Belgiu, sem hefðu sýnt áhuga á þessu, og ætti nú að dreifa þessu magni til reynslu. Sagöi hann, að vatniö væri selt á 34-44 krónur fernan i búðum i Þýzkalandi. Þeir, sem þvi eru vanastir, að vatn kosti ekki neitt, kunna að reka upp stór augu. En það er heimalningsháttur, sem við megum venja okkur af. Hreint vatn er mikill munaður. Rolf lét þess að lokum getið, að kostnaöarsamast væri að flytja vatniö milli landa. En hann kvaðst vera vongóður um, að Eimskipafélagið tæki það að sér fyrir sanngjarnt gjald. Þess vegna vænti hann þess, að útflutningur vatns gæfi góða raun, og væru gæði vatnsins haldbezta tryggingin. Viö ættum sennilega völ á ómenguðustu vatni, sem til er i gjörvöllu jarðriki. Áfyllingarstöö, sem af- kastar 10.000 fernum á sólar- hring, kostar um 25-27 milljónir króna.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.