Tíminn - 15.10.1972, Blaðsíða 13
Sunnudagur 15. október 19J2
TÍMINN
13
MEGAS
Magnús Þór Jónsson
LP - stereo
isl. stúdentar i Osló,
MGAB 720601
baö sem er tvimælalaust
athyglisverðast við þessa
plötu er, hvernig i ósköpunum
islenzkir námsmenn i Osió
hafa farið að þvi að raka
saman kapitali til að gefa
hana út. fslenzkir námsmenn,
undirritaður þar meðtalinn,
látast vera blönkustu menn i
heimi og hafa gert miklar og
háværar kröfur á hendur yfir-
völdum til námsstyrkja, og
lána og svo allt i einu slá þeir
um sig i Osló og gefa út plötu.
Slikt fyrirtæki er yfirleitt ekki
talið kosta undir milljón. Nú
stendur að visu á plötuum-
slagi, að platan sé tekin upp i
Oslo Tekniske Skole og má af
þvi draga þá ályktun að um
einskonar áhugamannaupp-
töku sé að ræða, en engu að
siður hefur það kostað
eitthvað. Pressun platna
kostar og dágóðan skilding,
meö öllu sem þvi fylgir og
prentun umslags kostar einnig*
sitt Halldór S. Blöndal, sem
tók ljósmyndir, mun aö visu
vera prentari eöa prent-
myndagerðarmaður, en harla
óliklegt er að hann eigi sjálfur
prentmaskinu og fleiri nauð-
synleg tæki.
Ofan á þetta er platan hund-
ieiðinleg. Ekki einu sinni
fyndin, þó það sé áreiðanlega
ætlun aðstandenda. Þrátt fyrir
mjög góðan vilja og allgóðan
tima hefur mér aðeins tekist
að hlusta á hana þrisvar — og
Þegar ég hlustaði á seinni
hliðina i þriöja skiptið leiddist
mér svo, að ég fór að gera
leikfimisæfingar. Til sliks
brúks er platan svo sem ágæt.
bessi óskaplegu leiðindi geta
mjög liklega verið ástæðan
fyrir upphafi þessarar „gagn-
rýni”.
Aðeins einu sinni minnist ég
þess að hafa heyrt Megasar,
alias Magnúsar Þórs Jóns-
sonar, getið áður og var það á
ljóða- og visnakvöldi i
Norræna húsinu fyrir
nokkrum misserum siðan.
Komu þar fram nokkuð mörg
ungmenni, ljóða- og visna-
gerðafólk, róttæk mjög og
nokkur fjandanum frumlegri.
Þá þótti mér og kunningja
minum.Megas frumlegastur
allra og var ástæðan einfald-
lega sú, að við skildum ekki
hætishót af þvi, sem maðurinn
hafði fram að færa. Þó þótti
okkur — og reyndar flestum
þetta kvöld — „Vertu mér
samferða inní blómalandið
amma” skemmtilegt. Það
mun vera einskonar guð-
leysisyfirlvsing og er, eins og
allt annað efni plötunnar,
ákaflega neikvæð og nöldur-
kennd.
1 öðrum textum gerir Megas
illkvittið grin að landi og þjóð,
svo ekki sé talað um það, sem
löngum hefur verið heilagt
talið og helzt ekki notað nema
i minningargreinum og 17.
júni ræðum, svo sem Jóni
Sigurðssyni, (einattgekk hann
nakinn i rauðum slopp... og
brúkaði gylltan kopp) og
Jónasi Hallgrimssyni, sem
Megas ákærir fyrir að hafa
verið drykkjurútur með sýfils.
Alls eru á plötunni 15 „lög”, öll
svo svipuð að i augnablikinu
man ég ekki eftir nema einu,
blómalandsferð ömmu.
Um músikina á plötunni er
eiginlega ekkert að segja, þvi
þar fyrirfinnst varla nokkur
músik. Megas er ekki söngvari
fyrir fimm aura, og virðist að
auki vera alvarlega blæstur á
máli — nema hann sé að gera
grin að amerikanséringu ís-
lendinga með þessu óskaplega
flámæli. Lögin eru eiginlega
ekki lög og Megas hvæsir
textunum ekki i takt. Aftur á
móti bregður fyrir laglegum
hljóðfæraleik, til dæmis er
flautuleikur Inge Rolland
smekklegur. Útsetningar
gerðu Tore Tambs-Lyche,
sem jafnframt leikur á gitar
og kontrabassa og Öivind
Ekman Jensen, sem einnig
leikur á gitar. Hvort þessir
menn eru til veit ég ekki.
Upptakan er sæmileg að
undanskildu „Spáöu i mig”,
en fyrir þvi finnst sú ástæða,
að upprunalega segulbands-
spólan var villandi og kom
upptakan mun verr út i
pressun en áður og var þá of
seint að gera nokkuð i málinu.
Pressun er gerö i stærsta og
skásta stúdiói Norðmanna,
Arne Bendiksen i Osló, og
hefur að öðru leyti lukkast
allvel. Textar fylgja allir með
plötunni á griðarstórri örk, og
þykir mér það illa fariö meö
góðan pappir.
Eftir þvi sem ég bezt veit,
hefur þessi plata litið sem
ekkert selzt og þykir mér það
ekki undalegt. Og þar sem is-
lénzkir stúdentar i ósló eru
varla það margir, aö þeir hafi
lyst á að kaupa allt upplagið,
legg ég til að Lánasjóöur is-
lenzkra námsmanna geri það
— og úthluti þvi siðan aftur við
næstu lánveitingu til islenzkra
námsmanna i Osló.
Ó. Vald.
MENN 0G MÁLEFNI Framhald af bls. 8
misserum. Niðurstaða hans var
þessi:
Frá ársbyrjun 1970 til fyrsta
ársfjóröungs 1971 nam kaupmátt-
araukning timakaupsins 12,7%,
en frá ársbyrjun 1970 til þessa
dags hefur hún numið 43%.
Kaupmáttaraukning vikukaups-
ins nam 12,7% frá ársbyrjun 1970
til fyrsta ársf jórðungs 1971, en frá
ársbyrjun 1970 til þessa dags
hefur hún numið 30,6%.
Samkvæmt þessu hefur kaup-
máttur timakaups verkafólks
aukizt um meira en 20% i valdatið
núverandi rikisstjórnar, en kaup-
máttaraukning vikukaupsins
hefur orðið nokkru minni.
Þá hefur lifeyrir gamalmenna
og öryrkja verið stóraukinn á
þessum tima. Hann var kr.
4.900,00, þegar núverandi rikis-
stjórn kom til valda, en er nú kr.
7.214.00 oe kr. 11.200,00 hjá
þeim sem ekki hafa aðrar tekjur.
Hann hefur m.ö.o. meira en tvö-
faldazt hjá þeim tekjulægstu.
Traust samstaða
Þvi er ekk'i að, leyna, að
talsverður vandi er framundan og
veldur þar mestu aflabresturinn
á siðari hluta þessa árs.
Óhjákvæmilegt er þvi að gera
verulegar efnahagsráöstafanir til
að forða vandræöum, þegar
bráðabirgðaverðstöðvuninni
lýkur. En sá vandi er minni en oft
áður og ætti þvi að vera auðvelt
að leysa hann, ef rétt verður á
málum haldið.
Það styrkir þá trú, að vandinn
verði farsællega leystur, að sam-
staða hefur verið góð h já ráðherr-
unum. Stjórnarandstöðublöðin
reyna að gripa hin minnstu tilefni
til að gera úlfalda úr mýflugu, ef
einhver ágreiningur ris milli
stjórnarsinna, eins og oft vill
verða. Slik æsiskrif styrkja
stjórnarsamstarfið frekar en hið
gagnstæða. Ef foringjar stjórnar-
andstöðunnar binda vonir um
fall rikisstjórnarinnar við öll
þau tilefni, sem þeir nota til
slikra skrifa, þá er eðlilegt að
vonbrigði þeirra séu mörg og sár,
enda gætir þess orðið mjög i mál-
flutningi þeirra.
Stjórn SUF fagnar ófanga
í sameiningarmálinu
EJ-Reykjavik
Á siðasta fundi stjórnar Sam-
bands ungra framsóknarmanna
var einróma samþykkt eftir-
farandi ályktun:
„Stjórn SUF fagnar þeim
áfanga i baráttunni fyrir sam-
einingu jafnaðar og samvinnu-
manna, sem náðst hefur með
sameiginlegri yfirlýsingu Al-
þýðuflokksins og Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna,
þar sem þessir flokkar lýsa vilja
sinum til að gerast aðilar að
sameiningu þeirra stjórnmála-
samtaka og einstaklinga, sem
aðhyllast stefnu jafnaðar, sam-
vinnu og lýðræðis, fyrir næstu ai-
mennu kosningar i landinu.
Kvenfélag Áspresta-
kalls
heldur
Flóamarkað
sunnudaginn 22. okt. Konur i
sókninni eru vinsamlega
beðnar að gefa muni. verður
þeim veitt móttaka i As-
heimilinu Hólsvegi 17,
þriðjudaga milli kl. 10-12 og
fimmtudaga kl. 2-4. Sótt
heim ef óskað er. Uppl. hjá
Stefaniu simi 33256. Kristinu
simi 32503.
Jafnframt vill stjórnin minna á
samþykkt siöasta þings SUF, þar
sem viðræöunefndir ■ vinstri
flokkanna eru hvattartil að vinna
ötullega aö mótun sameiginlegs
stjórnmálaafls allra þeirra, sem
aðhyllast hugsjónir jafnaðar,
samvinnu og lýðræðis, og itrekar
þá skoðun SUF, að viðræðu-
nefndirnar eigi að einbeita sér að
þeirri könnun á málefnastöðu
Tillitssemi
Hann er tillitssamur maður,
Björn þessi Matthiasson. 1 Mbl.
4. okt. kveðst hann ekki vera
þeirrar skoðunar að „tafarlaust”
beri að „segja..fjölda bænda upp
störfum" (auðk. hér G.M.) Hins
vegar þykir honum sem hreinn
óþarfi sé að hirða nokkuð um
„þarfafullnægingarsjónar-
miðið”, er hann svo nefnir
(haglega smiöað nýyrði hjá hag-
fræðingnum), og þvi einsætt að
flytja inn landbúnaðarvörur. „Þá
slyppum við við að greiða þús.
milljóna i niðurgreiðslur og
fengjum þó ódýrari vörur ofan i
kaupið”, segir hagfræðingurinn,
þessi nýi spámaður Morgun-
blaösins.
1 Vestur-Þýzkalandi kostar
mjólkurlitrinn 30 krónur is-
lenzkar, að sögn Matthiasar rit-
stjóra i Morgunblaðinu 3. okt.
G.M.
vinstri flokkanna, sem þær hafa
þegar hafið. Hvetur stjórnin við-
ræðunefndirnar til aö hraða
þessari málefnakönnun eftir
föngum.”
Athugasemd:
Vegna viðtals við frú Mariu
Dalberg, er birtist i dagbl. Visi,
þ. 25. sept. s.l. óska stjórnir
F.Í.S.S. og F.l.F.S. að leiðrétta
eftirfarandi:
Starfsstúlkur er afgreiða i
snyrtivöruverzlunum eiga kost á
námskeiöum i meðferð og sölu á
flestum algengustu snyrtivöru-
tegundum sem seldar eru hér á
landi, auk þess að einn eða fleiri
snyrti- eða fegrunarsérfræðingar
afgreiða i flestum snyrtivöru-
verzlunum.
Okkur er ekki kunnugt um
annað, en að heilbrigðiseftirlitið
sé starfi sinu vaxið enda hljóti
hver stofnun að sjá sóma sinn i
þvi að gæta fyllsta hreinlætis.
Ekki er hægt að fordæma eina
eöa fleiri snyrtivörutegundir án
undanfarandi sérfræöilegra
rannsókna.
Stjórn Kélags islenzkra
snyrtisérfræöinga.
Stjórn Sambands islenzkra
fegrunarsérfræðinga.
Greiöasta
leiöin
eriiofti
Flugfélagið tengir alla landshluta með tíðum
áætlunarferðum fyrir farþega og vörur.
Það er fljótt, þægilegt og ódýrt að ferðast með
hinum vinsælu Fokker Friendship skrúfuþotum
félagsins innanlands og það er fyrir
farþegann og vöruflytjandann sem við högum
áætlunarferðum okkar, flugvélakosti og
þjónustu á öllum sviðum.
35 ára reynsla Flugfélagsins og landsmanna
sýnir, að greiðar samgöngur í lofti eru
þjóðarnauðsyn.
Þ.Þ.