Fréttablaðið - 24.05.2004, Síða 1
● meistararnir lágu, 3-0
Landsbankadeild kvenna:
▲
SÍÐA 24
Fyrsti sigur Vals
á KR í sex ár
● er 45 ára
Kristján Franklín Magnús:
▲
SÍÐA 18
Æfir nýtt leikrit
í dag
● eftir sunnlenskar konur
Guðrún Ingibjörg
Hálfdanardóttir:
▲
SÍÐA 35
Leitar að
hugverkum
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
MÁNUDAGUR
ELDHÚSDAGUR Almennar stjórn-
málaumræður verða á Alþingi í kvöld.
Búast má við athyglisverðri ræðu forsæt-
isráðherra en nú eru fjórir mánuðir þar til
stólaskipti verða í stjórnarráðinu. Umræð-
urnar hefjast klukkan 19.50 og verður
þeim útvarpað og sjónvarpað.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
BLÍÐSKAPARVEÐUR Já og það víðast
hvar á landinu ef fer sem horfir. Þykknar
upp vestan til síðdegis eða í kvöld. Milt
veður. Sjá síðu 6.
24. maí 2004 – 141. tölublað – 4. árgangur
ÞAKIÐ HRUNDI Allt að sex manns fór-
ust í slysi á Charles de Gaulle-flugvelli í
París í gærmorgun. Talið er að hönnunar-
galli hafi valdið slysinu. Byggingin var opn-
uð fyrir tæpu ári. Sjá síðu 2
MORÐHÓTANIR Sambýlisfólki hefur
verið hótað lífláti og kveikt var í íbúð þeirra
á fimmtudagskvöld. Fólkið óttast um líf sitt
og barna sinna og hefur kært til lögreglu.
Vernd fæst hins vegar ekki. Sjá síðu 4
SKÓLINN RÍS Fjölbrautaskóli Snæfell-
inga tekur til starfa í lok ágúst. Skólinn er í
byggingu og ganga framkvæmdir vel. Búið
er að ráða í flestar stöður. Áætlaður nem-
andafjöldi er í kringum fimmtíu til sextíu
manns. Sjá síðu 10
KLAMYDÍA Klamydíusýkingum fækkaði
um tæplega 500 milli síðustu ára. Fækkun-
in heldur áfram samkvæmt upplýsingum
landlæknisembættis. Þó smitast um tíu
ungabörn af klamydíu á ári. Sjá síðu 14
Sa
m
kv
æ
m
t f
jö
lm
i›l
ak
ön
nu
n
Ga
llu
ps
m
ar
s
'0
4
48%65%
Kvikmyndir 30
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 32
Margrét Ákadóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Vill helst eyða öllum
stundum í garðinum
● fasteignir ● hús
HJÁLPARSTARF Þörf er á mikilli að-
stoð alþjóðlegra hjálparstofnanna
ef takast á að afstýra hung-
ursneyð í Súdan sem við blasir
innan þriggja mánaða. Þúsundir
gætu soltið til bana í héraðinu
Darfur þar sem skortur á fersku
vatni og fæðu er orðinn hættulega
mikill. Yfirvöld í Súdan tilkynntu
á föstudag að þau hefðu aflétt tak-
mörkunum á alþjóðleg hjálpar-
samtök um að veita hjálp í Darfur.
Stríð hefur geysað í meira en ár í
héraðinu og yfir milljón manns
hafa þurft að flýja heimili sín af
þeim sökum. Um níuhundruð þús-
und eru taldir heimilislausir í
Darfur en hundrað þúsund eru
taldir hafa flúið til Tsjad.
Þúsundir eru taldir hafa látið
lífið síðan snemma árs í fyrra
þegar uppreisnarmenn hófu að
berjast fyrir sjálfstjórn og frekari
fjárstuðningi frá ríkinu.
Hjálparstofnanir saka stjórnvöld
í Súdan um að vera á bandi þjóð-
varðsliðs araba og styðja þannig til-
raunir til þjóðarmorða á afrískum
ættbálkum. Forseti Súdan, Omar el-
Bashir, neitar því alfarið. ■
Þörf á alþjóðlegri hjálp:
Hætta á hungursneyð í Súdan
Sjálfstæðismenn vildu
hemja vöxt Baugs
Sjálfstæðisflokkurinn ræddi í janúar hvernig bregðast ætti við vaxandi styrk Baugs. Ekki væri
lengur hægt að ráða við fyrirtækið. Þetta sagði Pétur Blöndal. Hann segist ekki taka mark á
skoðanakönnunum Fréttablaðsins.
FJÖLMIÐLALÖG Þingmenn Sjálfstæð-
isflokksins ræddu um það sín á
milli í janúar að bregðast þyrfti
við styrk Baugs. „Menn ræddu
um að þessi sterki aðili, eigandi
þessara mörgu fjölmiðla, væri
orðinn svo sterkur að bráðum
gætu menn ekki ráðið við hann.
Hann hefði svo skoðanamyndandi
áhrif að það hreinlega myndi ekki
vera hægt að gera neitt á móti
honum,“ sagði Pétur Blöndal,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í
viðtali á Bylgjunni í gær.
Í samtali við Fréttablaðið sagð-
ist Pétur geta fært stoðir undir
þetta með vísun í umfjöllun fjöl-
miðla um fjölmiðlafrumvarpið.
„Þeim sem eru fylgjandi frum-
varpinu finnst umræðan vera
mjög skökk. Dag eftir dag eru nei-
kvæðar forsíðufréttir, það er
aldrei neitt jákvætt og er mjög lít-
ið talað við fylgjendur frumvarps-
ins.“ Hann sagði að þetta skýrðist
af ótta fréttamanna við að missa
störf sín ef leysa þyrfti Norður-
ljósasamsteypuna upp, en eigend-
ur Norðurljósa hefðu haft uppi
hræðsluáróður.
Hann sagðist ekki taka mark á
skoðanakönnunum Fréttablaðsins
því blaðið sé ekki hlutlaust. „Ég
hefði tilhneigingu til að trúa skoð-
anakönnun frá Gallup, en ég veit
ekki hver fylgist með skoðana-
könnun sem Fréttablaðið gerir
sjálft um þessi mál. Þeir eru þar
að fjalla um eigendur sína,“ sagði
hann.
Skarphéðinn Berg Steinarsson,
stjórnarformaður Norðurljósa,
sagði ummæli Péturs vera enn
eina staðfestinguna á því að lög
um eignarhald á fjölmiðlum séu
sértæk lög og beinist eingöngu að
Norðurljósum.
Hjálmar Árnason, þingflokks-
formaður Framsóknarflokksins,
túlkar ummæli Péturs þannig að
hann sé að segja frá vangaveltum
manna um stöðu á fjölmiðlamark-
aði, sem sjálfstæðismenn hafa
ekki einir verið að velta fyrir sér.
sda@frettabladid.is
Sjá nánar síður 6 og 8.
GULLIN SIGURSTUND Í STOKKHÓLMI Ísland eignaðist þrjá Norðurlandameistaratitla unglinga í körfubolta í Stokkhólmi í gær og hér
má sjá allan hópinn samankominn með bikarana þrjá en Ísland hafði aðeins einu sinni unnið Norðurlandameistaratitil í körfubolta. Ís-
lensku krakkarnir tóku þrjá af fjórum bikurum í boði og heimamenn í Svíþjóð náðu aðeins í einn. Finnar, Danir og Norðmenn fóru hins-
vegar tómhentir heim. Nánar um úrslitaleikina á síðu 22.
Bush datt á fjallahjóli:
Slapp með
skrámur
BANDARÍKIN, AP Bush Bandaríkja-
forseti virtist ekki hafa hlotið var-
anlegan skaða eft-
ir að hafa dottið af
fjallahjóli sínu á
laugardaginn. Sjá-
anlegar eru aðeins
skrámur á höku,
vör, nefi og hægri
hendi. Að því er
Hvíta húsið skýrði
frá meiddist hann einnig lítillega
á hné.
Bush-fjölskyldan naut sam-
vista um helgina í tilefni þess að
tvíburadæturnar Barbara og
Jenna eru að útskrifast úr há-
skóla. Bush veifaði til mótmæl-
enda gegn Íraksstríðinu sem kom-
ið höfðu saman við Yale-háskól-
ann í New Haven í tilefni af komu
forsetans. ■
ARABÍSKIR OG AFRÍSKIR HESTA-
MENN Í SÚDAN
Forseta Súdan, Omar El-Bashir, er sýndur
virðingarvottur í Nyala, höfuðborg Darfur-
héraðs.
01 23.5.2004 23:21 Page 1