Tíminn - 16.10.1972, Qupperneq 1
GOÐI
.jó&'m*
JO/tn w£g/t A/
RAFTÆKJADEILD
Hafnarslræti 23
Símar 18395 & 86500
-
Skyldi skákeinvíg
ið skila hagnaði ?
—Það eru hreint ekki litlir fjár-
munir, sem runnið hafa i gegnum
hendur okkar vegna skákcin-
vigisins i sumar, sagði Hilmar
Viggósson, gjaldkeri Skáksam-
bands tsiands, við Timann —
veltan verður einhvers staðar á
milli sextiu og áttatiu miiijónir.
Það nálgast, að viö förum að
sjá fyrir endann á þessu, sagði
Hilmar ennfremur. Þó vantar enn
nokkuð upp á, að við getum sagt,
hver niðurstaðan verður. Við
lögðum þrettán hundruð þúsund
krónur i bók um einvigiö, er koma
átti út i Bandarikjunum þrjátiu
dögum eftir að þvi lauk, I
kringum 3. október. Sú áætlun
hefur ekki staðizt, þvi aö bókin er
ókomin enn, svo aö ekki verður i
það ráöið, hvað til okkar kann aö
renna þaðan. Þar aö auki er enn
verið að vitja minnispeninga,
sem búið var að panta, svo eigum
við eftir að auglýsa það af þeim,
er afgangs kann að verða.
Fénist okkur til einhverra
muna á bókinni til dæmis, gæti
svo farið, að einvigið skilaði
hagnaði, en það getur lika eins vel
orðið dálitill halli, þótt tæpast
nemi hann sérlega háum fjár-
hæðum. En sem sagt: Það fer að
sjást fyrir endann á þessu innan
mjög langs tima.
Til vinstri: Jóhann Svarfdælingur og blaðamaður Tfmans I gistiherbergi á Hótei Borg. Að ofan: Jóhann
skoðar svefnból sitt, sem vitaskuld verður aö vera ilengra lagi. Timamynd: GE.
JÓHANN SVARFDÆL-
INGUR ( HEIMSÓKN
Stp—Reykjavík
Jóhann Pétursson frá Brekku-
koti i Svarfaðardal, sem löngum
hefur veriö kaiiaður Jóhann
Svarfdælingur kom til landsins i
gærmorgun frá Bandarikjunum.
Frettamaður hitti hann
snöggvast að máli á herbergi
hans á Hótei Borg i gærkvöldi.
Eins og meðfylgjandi myndir
bera meö sér ber Jóhann vöxtu-
legt hæruskotið skegg. Ósjálfrátt
dettur manni I hug heljarmennið
annálaða, Skugga-Sveinn. Þó er
það alveg i hött, þvi aö Jóhann er*
að sögn þeirra, sem hann þekkja,
hið mesta prúðmenni i öllum
háttum. Jóhann virðist fylla
alveg út i litið herbergið, og aö
sjálfsögðu var venjulegt rúm allt
of litið, svo að nauðsynlegt hafði
verið að tengja tvö saman.
Hann var að sjálfsögöu
þreyttur eftir margra tima flug
yfir hafið og vildi þvi helzt
komast hjá löngum viðræðum.
Það eru nú orðin tæp 25 ár siðan
Jóhann fór vestur til Banda-
ríkjanna (fór þangað i marz 1948)
og hefur hann aldrei komið til
landsins á þeim tima. Samt
sem áður talaði hann lýtalausa
islenzku, eðlilega þó með
nokkrum erlendum hreim.
Kvaöst Jóhann hafa lesið islenzku
blöðin við og við, og þannig getaö
fylgzt með gangi helztu mála hér
heima. Nefndi hann þar sérstak-
lega stjórnmálin.
Þegar Jóhann fór vestur, hafði
hann haft samband við hring-
leikahús i Flórida, þar sem hann
starfaði i tvö ár. Hefur hann
siðan talið sér heimili á Flórida.
Þennan tæpa aldarfjórðung i
Bandarikjunum hefur hann
starfað hjá ýmsum fjölleika- og
hringleikahúsum og ferðast með
þeim um öll Bandarikin. Starf-
semi þessa skemmtiiðnaðar er
einkum á sumrin en á vetrum
hefur Jóhann litils háttar starfað
við kvikmyndaleik.
Við spurðum hann, hvort hann
væri ekki orðinn vel efnaður, þá
kimdi Jóhann og vitnaði i gamla
brandara frá Kanada, en lengi
var sú trú hér heima, að þeir
Islendingar, sem fluttust héðan
vestur um haf, yrðu allir mill-
jónamæringar.
—Jú, ég er svo sem byrjaöur að
safna annarri milljóninni. Hitt er
svo annaö mál, að ég hef ekki
safnaö þeirri fyrstu ennþá.
Ekki kvaðst Jóhann vera al-
kominn heim, og ekki hefði hann
ákveðið, hve len'gi hann dveldi
hér að sinni. Sagðist hann hafa
látið undan þrábeiðni systkina
sinna og annarra ættmenna að
koma heim til ættlandsins og
heilsa upp á þá fjölmörgu vini,
sem hann á hér frá þvi i gamla
daga. Akveðinn var hann að fara
norður i heimahagana i Svarf-
aðardal, norður i Brekkukot, þar
sem hann ólst upp og ber enn
hlýjan hug til.
Jóhann fæddist á Akureyri 9.
febrúar 1913 og er þvi kominn
hátt á sextugasta árið. Margir
muna eflaust eftir Jóhanni, er
Framhald á bls. 13
,,Handa
að leika
I gær kom upp um það kvitt-
ur, að með ólikindum væru
ferðir litiilar Beachcraft-flug-
vélar, sem lent hefur eitthvaö
þrisvar eða fjórum sinnum á
Rey kjavikurflugvelli og
staldrað var við stutta stund.
Þessi flugvél kom á Reykja-
víkurflugvöll igær frá Kanada
og sögð hafa innan borðs
sprcngiefni, er fara ætti til
oliuborunarstöðva á llollandi
eða við Hollandsstrendur. Var
hún af þeim sökum látin
standa afsiðis á flugveliinum
á meðan hún var hér, svo að
ekki stafaði af henni hætta.
Farmur flugvélarinnar sem
átti að millilenda i Skotlandi
var ekki kannaður, en hitt
fékk Timinn staðfest, að yfir-
r
Irunum
sér að?"
völdum væri tortryggni á ferð-
um hennar og flutningi þeim,
er hún hefði meðferðis. Kom á
daginn, að getum er að þvi
leitt, að ferðir hennar kunni að
standa i einhverju sambandi
við rósturnar á Norður-ír-
landi. Þykir einkum harla
ósennilegt að oliuleitarfélag
noti slika smáflugvél til
sprengiefnisflutninga yfir
Atlantshafið.
Það er með öðrum orðum
grunur um vopna- eða
sprengiefnasmygl, er upp
gaus. Að svo komnu máli veit
þó enginn, hvort þessi kvittur
hefur við rök að styðjast —
„kannski eitthvað handa trun-
um að leika sér að”, sögðu
menn.
Hvað var innan borðs? Það vitum við ekki en þannig var þar umhorfs. Tlmamynd: Gunnar.