Tíminn - 21.10.1972, Blaðsíða 13
Laugardagur 21. október 1972
TÍMINN
13
Agúst við eitt verka sinna, Maður með blað. Timamynd Róbert
Ég mála bara eins og
mér er eðlilegasf
- málverkasýning Ágústs Petersen í Bogasalnum
Stp—Reykjavík
t dag hefst málverkasýning
Ágústs F. Petersens i Bogasal
Þjóðminjasafnsins, og stendur
hún til 29. okt. Sýndar eru þrjátiu
myndir og eru allar til sölu nema
fjórar, sem eru i eiknaeign. ódýr-
asta myndin er á 2000 krónur, en
sú dýrasta Gömlu krærnar, á
65.000.00 kr.
Agúst er Vestmannaeyingur að
ætt og uppruna og eru allmargar
myndir einmitt þaðan. Þá er hann
þarna meö óvenjumikið af
mannamyndum, portrett-mynd-
um, að eigin sögn. Lætur nærri,
að það sé helmingur myndanna.
Agúst kveðst hafa byrjað að
mála um fermingu með vatnslit-
um heima i Vestmannaeyjum. —
Ég pantaði liti og pensla eftir
frönskum pöntunarlista. Siðan
labbaði ég bara niður á pósthús
og leysti það út með islenzkum
krónum sagði Ágúst. 1946 byrjaði
Agústaö læra hjá Þorvaldi Skúla-
syni listmálara en hann lærði hjá
honum i fjóra vetur. Sagðist
Ágúst hins vegar ekki vera undir
nokkrum áhrifum frá honum i
túlkun sinni.
— Eg mála bara, eins og mér er
eðlilegt, þetta er minn tjáningar-
máti og hefur alltaf verið. Það má
segja, að þetta sé naturalismi.-
Dýrasta myndin, Gömlu krærn-
ar, er frá Vestmannaeyjum, en
þar voru fiskverkunarhúsin alltaf
kallaðar krær, segir Agúst. Það
var alltaf talað um að fara niður i
krána eða króna. Þessir kofar
stóðu á súlum frammi i sjó, en eru
nú allir horfnir.
Agúst hefur haldið áður einka-
sýningar, og auk þess tekið þátt i
fjölda samsýninga bæði heima og
erlendis. Siðast hélt hann einka-
sýningu i Keflavik i fyrra, en sið-
ast i Reykjavik árið 1970. Mynd-
irnar á sýningunni nú eru allar
nýjar og hafa ekki verið sýndar
áður.
Það má geta þess i lokin, að
Agúst var á listamannalaunum
siðastliðin þrjú ár, en i ár hlaut
hann starfslaun til hálfs árs
(38.000.00 á mánuði.)
Kennslubók
um
umferðarmál
Komin er út hjá Rikisútgáfu
námsbóka ný bók um umferðar-
mál, eftir Sigurð Pálsson kenn-
ara, og nefnist hún Vegfarandinn.
Bókin er einkum ætluð 10-12 ára
börnum.
Efni bókarinnar er tviþætt.
Annars vegar eru fróðleiksmolar
úr sögu umferðarinnar og ýmissa
farartækja. Hins vegar er fjallað
um ýmis atriði úr umferðarlögum
og reglum. Hinir sögulegu þættir
eru vel til þess fallnir að vekja
áhuga og umræður, áður en fjall-
að er um hið eiginlega námsefni.
Af einstökum köflum má
nefna: Hjólið, Frá barnavagni til
bifreiðar, Aukin umferð, A gangi,
Löggæzla, Úr umferðarlögunum,
Hver á réttinn?, Reiðhjólið, Slys
og Fyrsta bifreiðin. Enn fremur
eru i bókinni myndir af umferðar-
merkjunum i litum, og aftast eru
nokkrar hjólreiðaþrautir. 1 bók-
inni er fjöldi teikninga eftir Sig
fús Halldórsson. Setningu annað-
ist Prentsmiðja Jóns Helgasonar,
en prentun Litbrá hf.
Bifreiða-
viðgerðir
— Fljótt og vel af hendi
leyst.
— Reynið viðskiptin. —
BIFREIÐASTLLINGIN
Síðumúla 23. Sími 81330.
Unglings
piltur óskast
á reglusamt sveita-
heimili i vetur.
Upplýsingar i sima 12001
siðdegis.
Electroniskar myndagerðarvélar
frá Rudolf Hell í Þýzkalandi
Ned-vélar:
Klischograph K 150 m / einu neti 26 rasta.
Klischograph K 151 2. neta (Dual sereen)
24 og 32 rasta ásamt sogi (Vacuum
Device) til að halda plötunni sléttri á
meðan hún grefur.
Strikavél:
Line Klischograph S 240 ásamt 16 filtur-
um til I itagreiningar. Fj. lína
183—244—344 Lines / in.
Varahlutir og etni er til í allar vélarnar.
Skurðhnífur góður m / sænsku blaði.
Fræsari frá Binswanger c/o Kienle (BKI)
mjög góður, má fræsa litmyndir.
Afstillingaborð.
Tilboð óskast í framangreinda hluti, sem seldir verða í
einu lagi eða hver fyrir sig.
Nánari upplýsingar gefur Guðjón Einarsson hjá
myndagerð Tímans, Sölvhólsgötu 12, sími 10295.
BIIMMII'MHl®
nbmmiaðOA
Hnannar r-nnilásar
I I I ICfl I* |#ll I Nylonrennilásar
“ ■ opnir.
Má I mrenni lása r
lokaðir og opnir.
Allar stærðir og litir.
Sími 15583
Frá B.S.A.B.
Verötilboð óskast í miðstöðvarketil 30. ferm., með
brennara og þrýstikút. Til sýnis aö Asparfelli 2-12 (tala við
Einar Jónsson). Tilboðum sé skilaö á skrifstofu B.S.A.B.,
Siðumúla 34.
B.S.A.B.
Tilkynning til
bifreiðaeigenda
Nú þegar vetur gengur i garð og reikna
má með að hálka myndist á vegum, vill
Bifreiðaeftirlit rikisins minna á eftir-
farandi:
Hafið góða hjólbarða undir bifreiðinni og
vel búna i hálku.
Þegar notaðir eru negldir hjólbarðar,
eykst öryggi, ef allir hjólbarðarnir eru vel
negldir.
Hafið alla hjólbarða bifreiðarinnar af
sömu gerð.
Sérstaklega er hættulegt að hafa hjól-
barða með þverböndum (radial dekk) á
framási, en meðskábönduim(cross ply) á
afturási.
Reykjavik, 21. okt. 1972.
Bifreiðaeftiriit rikisins.
:4<'
4:1
VjU.
• ",
í ,-;r *
■ t c ■
;V,r‘.
'• rs
>w*
r Ú
Kf,
Orðsending
frd Hitaveitu Reykjavíkur
tii löggiltra
pípulagningameistara
í Reykjavík
Að gefnu tilefni eru pipulagninga-
meistarar minntir á, að samkvæmt
reglugerð um hitalagnir i Reykjavik,
ber að tilkynna til Hitaveitu Reykjavik-
ur jafnóðum allar breytingar, sem gera
skal á hitakerfum húsa i borginni.
Ilitaveita Reykjavikur.
i'4
M
I
4-
Vr
p-Ú
u
sy-
•IV't
í
I
y-’
Vh
%
15