Tíminn - 25.10.1972, Blaðsíða 11
Miftvikudagur 25. október 1972
TÍMINN
11
Umsjón Alfreð'Þorsteinsson:
mttm
■
.■
...
dL: ■:
■ ■ .
■■
mm
■
Svona á að gera það, segir Karl Benediktsson, þjálfari Fram, en þessi inynd var lekin á hádegisæfingu lijá Fram nvlega, Karl BeiL var cinn af
leikinuiiiiuiii Frani, seni þátt tóku í fyrstu Kvrópubikarleiknuni árið 19112.
Danir skammaðir fyrir að
selia heimaleik til Islands
- en það eykur sigurlíkur Fram í Evrópubikarkeppninni, að báðir
leikirnir skulu háðir í Laugardalshöllinni
Golf í hagl-
éli og roki
f vitlausa veðrinu, sem var hér
á suðurlandi á laugardaginn,
voru haldin tvö golfmót. Var ann-
að þeirra á Grafarholtsvelli en
hitt á Hólmsvelli i Leiru, og bæði
voru punktamút — þ.e.a.s. gefnir
eru 2 punktar fyrir par, 3 fyrir
einn undir par og 1 fyrir einn yfir
par á hverri holu, og siðan var
forgjöf dregin frá.
i þessi mót mættu nokkrir
..golfsjúklingar” en svo má
áreiðanlega nefna þá menn, sem
láta sig hafa það að leika goif i 8
til 10 vindstigum og haglél eins og
var á laugardaginn. En það er nú
svo með marga, sem taka þátt i
þessari iþrótt, að þeir vilja ekki
viðurkenna að golfárinu sé lokið
og svo lengi sem vellirnir eru ekki
horfnir undir snjó.
1 mótinu hjá GR voru leiknar 12
holur og urðu úrslit þau, að Einar
Guðnason, GR fór með .sigur af
hólmi, fékk 19 punkta, sem telja
má gott i svona veðri og hann ekki
með forgjöf nema á tveim holum
af tólf. Annar varð Kristján Ást-
ráðsson, GR með 13 punkta og
þriðji Hreinn M. Jóhannsson, GN
með 12 punkta.
Þó það hafi verið gott hjá Ein-
ari að fá 19 punkta á 12 hoiur, var
það frábært hjá Þorbirni Kjærbo
að fá 31 punkt á 18 holur i móti GS
og GK á laugardaginn, en veðrið
á Hólmsvelli var þá mun verra en
á Grafarholtsvellinum. 1 mótinu
þar mættu samt yfir 20 keppendur
og fór Kjærbo að sjálfsögðu með
sigur af hólmi. Annar varð Sig-
urður Albertsson með 28 punkta
og þriðji. Björn V. Skúlason með
26 punkta.
Á sunnudaginn, i mun skap-
legra veðri, var haldið mót á
Nessvellinum. Var það hið árlega
Húsmót KB, sem er sérmót og
haldið i lok hvers keppnistima-
bils. Þar mætast menn, sem eru
svipaðir að getu úr GR-GK og KN
og voru þeir 20 að þessu sinni.
Leiknar voru 18 holur og urðu úr-
slit þessi:
Kjartan L. Pálss., GN 40:38 = 78
Jón Thorlacius, GN 41:40 = 81
Gunnar Péturss. GR 39:45 = 84
Guðm. S. Guðmundss.
GR 39:45 = 84
Kristinn Bergþórss. GR 47:39 = 86
Ef veður leifir n.k. laugardag,
er okkur kunnugt um að tveir
klúbbar hafa áhuga á að halda
mót, sem verði opið öllum er
óska, eru það Golfklúbbur
Reykjavikur og Golfklúbburinn
Keilir.
í ritstjórnargrein, scm Sigurð-
ur Magniisson, ritstjóri iþrótta-
blaðsins, skrifar i nýútkomnu
iþróttablaði, skýrir hami frá þvi,
að nú sé ákveðið að fjölga sér-
samböndum ÍSÍ úr 10 i 14.
Sigurður segir m.a.:
,,Á Iþróttaþingi 1S1 sl. sumar
Tckst Fram aö sigra
Danmerkurmeistarana i
h a n d k n a 111 e i k o g
trygg.ja sér sæti i 2. um-
íerö Fvrópukeppninn-
ar? Þvi læst svaraö um
næstu helgi, þegar Fram
leikur gegn Stadion i
Faugardalshöllinni,
l'yrst á t'östudaginn og
siöan á sunnudaginn, en
eins og kunnugt er, tók-
ust samningar milli
Fram og Stadion um að
báöir leikirnir yröu
leiknir á íslandi.
Hefur Stadion, af eðlilegum
ástæðum, hlotið mikla gagnrýni i
dönskum blöðum fyrir að selja
var gerð breyting á lögum 1S1
varðandi stofnun nýrra sérsam-
banda. Segir þar m.a., að skylt sé
að stofna sérsamband i íþrótta-
grein, ef 6 héraðssambönd (eða
sérráð) æskja þess svo og ef
iþróttaþing eða Sambandsráð 1S1
geri samþykkt þar um.
heimaleik sinn úr landi — og
minnir þetta mál um margt á sölu
landsleikjanna í knattspyrnu til
Belgíu og Hollands.
En samningarnir við Danina
eru hagstæðir fyrir okkur — og
það skiptir mestu máli. Leikur
enginn vafi á þvi, að sigurmögu-
leikar Fram aukast lil muna fyrir
þá sök, að báðir leikirnir lara
fram i Reykjavik.
Á blaðamannafundi, sem hand-
knattleiksdeild Fram el'ndi til i
gær, upplýsti Ólafur A. Jónsson,
formaður deildarinnar, að þetta
væri i fimmta sinn á tiu árum,
sem Fram tekur þátt i Evrópu-
keppninni. Varð Fram fyrst is-
lenzkra félaga tii að taka þátt i
Evrópukeppninni árið 1962 og lék
gégn þáverandi Danmerkur-
meisturum, Skovbakken. Varð sá
leikur allsögulegur og lyktaði
með naumum sigri Dana eftir
íramlengingu.
Næst tók Kram þátt i Evrópu-
Þá er og heimilt að stofna sér-
samband, ef Framkvæmdastjórn
1S1 gerir um það samþykkt, enda
sé viðkomandi iþróttagrein iðkuð
i'nnan vébanda a.m.k. þriggja
iþróttafélaga.
Nú eru 10 sérsambönd innan
ISl. — Framkvæmdastjórnin hef-
ur nú þegar ákveðið að notfæra
sér íramangreinda lagaheimild
og beita sér fyrir stofnun fjögurra
sérsambanda i þessum iþrótta-
greinum: blaki, borötennis, judo
og lyftingum.
Mikil gróska er i öllum þessum
greinum og iðkendum þar hefur
fjölgað mjög ört og svo mun vafa-
laust verða áfram. Stjórn 1S1 er
það íyllilega Ijóst, að starfsemi
sérsambandanna er ein aðal for-
sendan fyrir þvi að viðkomandi
iþróttagreinar nái að byggjast
upp og þróast með eðlilegum
hætti. Má raunar segja, að hér sé
keppni 1964 og lék þá gegn sænsku
meisturunum, Redbergslid. Fór
leikurinn fram i Gautaborg og
lyktaði með öruggum sigri Svia.
Na'st tók Fram þátl i Evrópu-
keppni árið 1967 og lék þá gegn
júgóslavnesku meisturununi
Partizan Bjelovar. Lék Fram nú i
fyrsta skipli heima og heiman.
P’yrri leiknum, sem leikinn var i
Laugardalshöllinni, lauk með
jafntefli, 17:17, en siðari leikinn
unnu Júgóslavar með talsverðum
yfirburðum.
Fyrir tveimur árum lék Fram
svo gegn lranska liðinu Ivry,
vann fyrri leikinn, en lapaði þeim
siðari með meiri mun en búizt
hafði verið við og lauk þátttöku
Fram i keppninni þar með.
En nú er komið að þáttlöku i
fimmta sinn. Og óhætt er að
segja.enda þótt Danir hal'i jafnan
þótt erfiðir mótherjar, að mögu-
leikar Fram séu meiri á þvi að
komast i 2. umferð en nokkru
sjálls höndin hollust eins og svo
viða annars staðar.
Með ISÍ og hinum ýmsu sér-
samböndum hefur verið hin bezta
samvinna og er enginn vafi á, að
svo muni einnig verða með til-
komu fleiri sérsambanda.”
sinni lyrr. Stafar það lyrst og
fremst af þvi, að báðir leikirnir
verða leiknir i Laugardalshöll-
inni, heimavelli Fram.
i liði Stadion eru nokkrir þekkt-
ir leikmenn, en þeirra þekktastur
hér á landi, er Jörgen Frandsen,
sem leikið helur oftar en einu
sinni með danska landsliðinu hér-
lendis. Þá má og geta þess, að
þjálfari liðsins er Gerl Andersen,
iyrrurn lyrirliði danska landsliðs-
ins, en hann er íslendingum að
góðu kunnur.
Eins og fyrr segir, fer fyrri
leikurinn Iram á föstudaginn og
hefsl kl. 20.30. Siðari leikurinn l'er
fram á sunnudag og hefst á sama
lima. Danir munu leika einn
aukaleik, gegn FH, á mánudags-
kviild.
t'ess má að lokum geta, að
finnskir dómarar munu dæma
Evrópubikarleikina.
Sigurður
spreytir
sig með
Karli Jóh.
Dómarar á leik FH og Stadi-
on á mánudagskvöld verða
Karl Jóhannsson og Sigurður
Hannesson (Sigurðssonar), en
Sigurður er nýliði i dómara-
stétt, en hefur engu að siður
vakið mikia athygli. Verður
fróölegt að sjá hvernig honum
og Karli tekst til i leiknum á
mánudag.
„Grátlegt"
- segir Óli B. um tap íslenzku unglinganna
Óli B. Jónsson, þjálfari
Vals, var meðal áhorfenda að
unglingalandsleik tslands og
Luxemborgar. 1 örstuttu við-
tali við Timann sagði Óli, að
það hefði verið grátlegt að
tapa þessum leik, þvi að is-
lenzku unglingarnir hefðu ver-
ið mun sterkari aðilinn i þess-
um leik.
Al' sérstökum ástæðum liöfum við til sölu
Saxbay lyftara
(licsel, tvcggja tonna. — I.citið nánari upplýsinga.
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
0 Véladeild
ÁDMIIII A O DCVI/ IA\/ÍtZ OÍHill OQ ODn
ARMULA 3 REYKJAVIK, SIMI 38900
Sérsambönd í lyftingum, borð-
tennis, judó og blaki stofnuð
— áður en langt um líður, segir íþróttablaðið