Tíminn - 02.11.1972, Blaðsíða 16
165 föng■
KÍNA VILL HJÁLPA
SÞ FJÁRHAGSLEGA
um sleppt
til V-
og Frakkland hafa annaðhvort al-
veg eða að einhverju leyti neitað
að greiða framlög sin til friðar-
sveita SÞ, á þeim forsendum, að
þau séu ekki hlynnt starfsemi
þeirra.
Heimildirnar sögðu, að SÞ-am-
bassador Kina hafi snúið sér til
Ole Algárd, formanns nefndar,
sem hefur það verkefni að fást við
fjárhagsvandræðin, og skýrt hon-
um frá, að Kina hefði áhuga á að
hjálpa til við lausn vandans.
AlgSrd er sérlegur vinur Kinverj-
anna hjá SÞ, þar sem hann var
um árabil ambassador Noregs i
Peking.
Ekki vildu heimildirnar skýra
nánar frá tilboði Kinverja, en létu
i l.íósi ánægju sina yfir þessu, sem
fordæmi, sem ef til vill gæti
orðið til.að fleiri þjóðir byðust til
að leggja fram frjáls framlög.
Klukkan f jögur i gær var hestur leiddur heim i garð að Ægisiiðu 74
og færður Hjalta Pálssyni framkvæmdastjóra sem afmælisgjöf.
Hesturinn er bleikur að lit, sex vetra og heitir Kóngur, kynjaður frá
Prestshúsum i Mýrdal, undan þekktum, sunnlenzkum kynbóta-
hesti, Skýfaxa. Myndin er tekin, er Hjalti veitti afmælisgjöfinni við-
töku. (Timamynd Róbert)
NEB—New York
Kinverjar eru sagðir hafa látið
að þvi liggja, að Kina vilji hjáipa
Sameinuðu þjóðunum út úr fjár-
hagsvandræðum þeirra með
frjálsum framlögum. Það eru
heimildir innan SÞ, sem sögðu frá
þessu i gær.
Fjárhagsvandamál SÞ eru m.a.
til komin vegna þess að fjöldi
aðildarlanda m.a. Sovétrikin
Fimmtudagur
2. nóvember 1972
Berlínar
NTB—Berlin
1 Austur-Þýzkalandi var i gær
þyrjað að láta lausa mörg þúsund
pólitiska fanga,og er það liður i
sáttmálanum um að koma sam-
bandi Austur- og 'Vestur-Þýzka-
lands i eðlilegra horf. Alls 165
föngum var i gær sleppt vestur
yfir múrinn, en 19 þeirra voru
þegar handteknir vestan megin
fyrir gömul afbrot þar.
Síldarsöltun
á Stöðvarfirði
B.K. — Stöðvarfirði:
1 siðustu viku söltuðu Stöðfirð-
ingar 370 tunnur af sild, sem Or-
firisey RE 14kom með úr Norður-
sjó. Fyrir nokkrum árum hefði
þetta ekki þótt fréttnæmt austan-
lands, en þar sem plönin iðuðu áð-
ur af lifi, rikir nú þögn, og máf-
arnir muna betri daga. Sildin
var isuð i kassa og óskemmd með
öllu.
Haustið hefir fram til þessa
verið einstaklega gott á Stöðvar-
firði, eins og annars staöar aust-
anlands og þvi taka menn áhlaup-
inu um siöustu helgi með jafnað-
argeði. Undanfarið hefur þó ekki
gefið vel i sjó, en afli hefur verið
ágætur, er gefið hefur. Það eru
litlir þilfarsbátar, sem veiðarnar
stunda og geta þeir skiljanlega
ekki sótt eins fast og aðrir stærri.
Heilsufar hjá fólki og fénaði
hefur veriö i algeru samræmi við
góðviðrin i haust.
Nýtt leiðbeiningarmerki um aö þungir og hægfara bilar skuli flytja sig yfir á klifurreinina upp brekkuna.
Nýi Hellisheiðarvegurinn opnaður:
Sérstök akrein fyrir
þunga og hægfara bíla
SB—Reykjavik
Niu km kafli hins nýja Suður-
landsvegar á Hellishciði var tek-
inn i notkun i gær. Er það eystri
hluti heiðarinnar frá Smiðjulaut,
niður Kamba i Ölfus. Austustu 5
km.cr linnuiaus brekka þar sem
halli er inestur um 8%. Vegurinn
er þar þrjár akreinar, tvær fyrir
uppaksturjOg er önnur þeirra ætl-
uð fyrir stóra og þunga bila, sem
annars myndu tefja fyrir umferð-
inni.
Til að gefa vegfarendum til
kynna, hvernig aka beri á þessum
bratta þriggja akreina vegi, hafa
BANDARIKIN RAÐA
MÓTÞRÓA THIEUS
— segir Chou En-Lai í Peking
NTB—Peking, Saigon
Chou cn-Lai, forsætisráöherra
Kina, sagði i gær, að hann væri
þeirrar skoöunar, að Bandarikja-
menn hefðu fengiö Thieu forseta
S-Vietnam til aö vera mótfaliinn
friöarsáttmála þeim, sem gerður
var milli Bandarikjanna og N-
Vietnam.
Ilaft er eftir talsmanni Hvita
hússins í gær, að óvist sé, að sátt-
málinn verði undirritaöur fyrir
forsetakosningarnar.
Chou sagði fréttamönnum i
Peking i gær, aö hann hefði haft
samband við N-Vietnam og
Bandarikin vegna friðarsátt-
málans. Þá sagði hann.aö frétt-
irnar um sáttmálann væru ekki
lengur stórkostlegar, fyrst
ímmfm
Bandarikin hefðu ekki staðið við
að undirrita hann á tilsettum
tima.
Thieu forseti S-Vietnam hélt
ræðu i gær I tilefni þjóðhátiðar-
dags landsins. Gagnrýndi hann
þar friðarsáttmálann harðlega,
þannig að ljóst er, að andstaða
hans hefur ekki minnkað. Tals-
maður sendinefndar N-Vietnam i
Paris sagði i gær, að ræða Thieus
sýndi ljóslega, að það væri for-
setinn sjálfur, sem stæði i vegi
fyrir þvi,aö friður gæti orðið I
Vietnam. Vietnamar og Banda-
rikjamenn væru enn að láta lif sitt
i Víetnam, en sjálfur hugsaöi
Thieu aðeins um að auðgast.
1 gær kom til harðra átaka lög-
reglu og mótmælenda, sem
safnazt höfðu saman utan við
fundarsal i Boston, er kosninga-
fundur repúblikanaflokksins stóð
þar yfir. Mótmælendur voru um
7500 talsins og voru að mótmæla
striöinu i Vietnam.
verið sett upp nokkur leiðbeining-
armerkijOg nafa sum þeirra ekki
sézt hérlendis áður.
Við Kambabrún ,er nýtt merki
með tölunni 8%, og gefur það til
kynna brattann. Nokkru austar
eru merki, sem gefa til kynna
hættulegar beygjur næstu 3 km.
Ekki eru þessar beygjur þó
krappari en svo,að aka má þær
með 60 km hraða i góðu færi.
Ef lagt er á brattann austan
frá, er fyrst komið að nýju leið-
beiningarmerki, sem táknar,að
framundan sé vegur með klifur-
rein,og að þungir bilar eða hæg-
fara skuli færa sig yfir á hana. A
tveimur stöðum á leiðinni upp er
svo minnt á, að sömu bilar skuli
halda sig á klifurreininni. Siðan
kemur merki, sem gefur til kynna
að klifurreinin sé brátt á enda, en
þá er brekkan búin og allir bilar
hafa náð eölilegum hraða.
Til frekari leiðbeininga eru
málaðar nýjar varúðarlinur á
milli akreina, og gefa þær til
kynna^ hvort heimilt sé eða
óheimilt að skipta um akrein á
hverjum stað og þá hvernig. Þess
má geta, aö leiðbeiningarmerk-
in um klifurrein, bráttamerkið og
aðvörunarmerkið um enda klifur-
reinar eru ekki i reglugerð um
umferðamerki.
Kísilgúrinn
á land í
Ipswich
í stað
Goole
ÞÓ—Reykjavik
Hafnarverkamenn i Ipswich i
Englandi samþykktu á fundi i
gærmorgun, að afgreiða öll skip
og allar vörur sem færu til
Islands.
Það eru einkum skip Hafskips
hf., sem koma til Ipswich, og
Halldór Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Hafskips tjáði
okkur, að Langá væri væntanleg
til Ipswich n.k. þriðjudag, og
siðan fermir skip frá Hafskip i
Ipswich á 10 daga fresti.
Halldór, sagði að Hafskip flytti
allan kisilgúr út frá tslandi og
mikið af honum færi til Englands.
Kisilgúrnum hefur ávallt verið
skipað upp i Gool, en það er lítil
hafnarborg fyrir ofan Hull. Ekki
er reiknað með, að hafnbanninu
verði aflétt við Humberfljót fyrr
en búið er að leysa landhelgis-
deiluna við Breta. Sagði Halldór,
að nú væri verið að athuga hvort
ekki væri unnt að skipa kisil-
gúrnum á land i Ipswich i stað
Goole. Að öllu jöfnu fara skip
Hafskips þrjár til fjórar ferðir i
mánuði til Englands með kisil-
gúr.
Fékk 28 kr. fyrir
síldarkílóið
ÞÓ—Reykjavik.
Islenzku sildveiðiskipin, sem
stunda veiðar i Norðursjó seldu
alls 20 sinnum i Danmörku frá
timabilinu frá 23.-28. október.
Skipin seldu að þessu sinni alls
965 lestir fyrir 20.3 milljónir
króna og meðalverð var mjög
gott eða 21.09 krónur.
Hæstu heildarsölu fékk Helga
Guðmundsdóttir BA, en skipið
seldi 73.5 lestir 27. október fyrir
1.543.491 krónur. Hæsta meðal-
verðið fékk Óskar Magnússon
AK. Óskar seldi 38.7 lestir 24.
október fyrir 1.085.628 krónur og
meðalveröið var 28.05 krónur, og
er þetta jafnframt hæsta meðal-
verð sem islenzkt sildveiðiskip
hefur fengið á þessu ári i Dan-
mörku.
DRENGUR HLJOP
FYRIR BÍL
Klp—Reykjavik
Um kl. 17,30 i gær varö 5 ára
gamall drengur fyrir bil á mótum
Ármúla og Háaleitisbrautar. Mun
drengurinn hafa hlaupiö úr á
götuna og I veg fyrir bifreiðina,
sem mun þó ekki hafa verið á
mikilli ferð.
Drengurinn var þegar fluttur á
Slysavarðstofuna, en hann mun
hafa verið nokkuð mikið meiddur
á höföi.