Tíminn - 03.11.1972, Side 1
A
V
GOÐI
ffjrir
gooan mat
IGNIS
KÆLISKÁPAR
RAFTORG
SÍMI: 26660
RAFIÐJAN
SIMI: 19294
V
/
Endurheimta
gönguseiða
- stórmál, þegar fiskeldisstöðvum hraðfjölgar
Þessi mynd var tekin i gær i Miöbæ við Háaleitisbraut, þar sem skátar höfðu gestaboö á þeim degi, er
skátahreyfingin islenzka er sextiu ára. Þar var margt gesta, og hér sést forseti Sameinaðs alþingis,
Eysteinn Jónsson, skera fagurlega skreytta rjómatertu, en kertaljósin blakta fyrir framan Gunnar
Thoroddsen. — Timamynd. Gunnar.
„Fríðsamleg bráðabirgða-
lausn eindregin ósk mín"
— sagði forsætisráðherra í umræðum um landhelgisdeiluna i gær
Stp—Reykjavík
A Alþingi i gær sagði Ólafur Jó
hannesson forsætisráðherra, að
það væri eindregin ósk sin, að
takast mætti að leysa landhelgis-
deiluna með friðsamlegum hætti
og bráðabirgðasamkomulagi en
eins og kunnugt væri, hefði
náðst samkomulag við Breta
að taka upp samningavið-
ræður á næstunni. Forsætisráð-
herra sagði þaðsannfæringu sina,
að bráðabirgðasamkomulag væri
báðum aðilum deilunnar fyrir
beztu, enda þótt báðir yrðu að
slaka nokkuð til frá þvi, sem þeir
kysu helzt.
Hann kvað það ekki á sinu valdi
að fullyrða neitt um það, hvort
takast myndi nú i þeim viðræð-
um, er fram undan væru, að kom-
ast að sliku samkomulagi i land-
helgisdeilunni. Það væri skoðun
sin, að við ættum mikið á okkur
að leggja til þess að reyna að
komast að samkomulagi. En það
skyldum við gera okkur alveg
ljóst, að við fengjum aldrei með
samkomulagi þá lausn i þessari
deilu, sem við gætum verið alger-
lega ánægðir með. Þá yrðum við
einnig að vera við þvi búnir að sjá
af einhverju þvi, sem við hefðum
talið æskilegt og raunar ótviræð-
an rétt okkar. Hins vegar heföum
við jafnan sagt, að við vildum
sýna þá sanngirni að taka nokk-
urt tillit til hagsmuna þeirra fisk-
veiðiborga, sem hafa stundað
veiðar hér um ákveðinn tima að
undanförnu.
Forsætisráðherra tók það skýrt
fram, að auðvitað gæti aldrei orð-
ið um neitt samkomulag til
bráðabirgða að ræða i fiskveiði-
deilunni, nema það sýndi ótvi-
rætt, að það fæli i sér verulega
takmarkaðar fiskveiðar þeirra
þjóða, er Islendingar ættu i deilu
við Það hljóta þessar þjóðir að
gera sér ljóst, og án sliks þjónar
samkomulag ekki neinum til-
gangi.
Forsætisráðherra gat þess og i
ræðu sinni, að ánægjulegt væri til
þess að vita, að við siðustu taln-
Fiskeldisstöðvar á landinu eru
nú orðnar átta, að meðtöldum
l.árósi, er hefur talsverða sér-
stöðu, en auk þess eru þrjár i upp-
siglingu og sumar þeirra að
komast i gagnið. Mikið cr i húfi,
að sem mest endurheimtist af
seiðunum, sem klekjast út og ala
aldur sinn fyrstu misserin i
þessum eldisstöövum. Þetta mál
var einmitt eitt af þvi, sem var til
umræðu á fundi áhugamanna
um fiskirækt á þriðjudaginn
var.
Á þessum fundi fluttu þeir Þór
Guðjónsson veiðimálastjóri og
Arni tsaksson fiskifræðingur er-
indi um laxeldi og endurheimtu
gönguseiða og röktu tilraunir þær
og athuganir, sem gerðar hafa
ingu á brezkum skipum að ólög-
legum veiðum innan 50 mílnanna,
er fram heföi fariö fyrir tveimur
til þremur dögum, hefði komið i
ljós, að þau væru miklu færri en
áður, eftir að landhelgin var færð
út i 50 milur, alls aöeins 16, sem
vitað hefði verið um með fullri
vissu. Kvaðst forsætisráðherra
fyrir sitt leyti eindregið vona, að
Bretar hefðu tekið eitthvert tillit
til þeirra ábendinga af hálfu Is-
lendinga, að fátt eða ekkert
myndi greiða betur fyrir friðsam-
legu bráöabirgðasamkomulagi i
fiskveiðideilunni en það, að Bret-
ar kölluðu skip sin út fyrir land-
helgismörkin á meðan á samn-
ingaviðræðum stæði.
verið i stöðinni i Kollafirði. En
mjög margt er enn á huldu, bæði
um erfðaeiginleika laxins og
hvernigbezt er að haga uppeldi
seiða, svo að þau verði sem bezt á
sig komin, þegar þau fara i sjó.
— Af tilraununum i Kollafirði er
það að segja i stuttu máli, sagði
veiðimálastjóri, erTiminn átti tal
við hann eftir fundinn, að endur-
heimta merktra laxaseiða eins
árs hefur ekki verið góð, og
tveggja ára seiði, sem verið hafa
inni allan timann, hafa ekki
skilað sér. Af þeim, sem verið
hafa inni eitt ár og úti annað ár,
skilar sér um 4%. En þar er mikill
munur á einstökum hópum, og
hafa endurheimzt bezt seiði, sem
sleppt var 1960 - 10,5%.
Við höfum mikinn hug á þvi að
finna úrræði, sem tryggja góða
endurheimtu eins árs seiða. t
Kollafirði eru á döfinni tilraunir,
sem beinast að þvi að stytta klak-
timann með þvi aö ylja vatnið,
byrja fyrr að vorinu að fóðra
seiðin og ná þeim i göngustærð
fyrir haustiö. Hér kemur einnig
til, hversu haga skal fóðrun. Við
skiptum fóðri i feitt fóður og þurr-
fóður. Dr. Jónas Bjarnason
læknir hefur sett saman þurr-
fóðurblöndu, sem miklar vonir
eru bundnar við. Með þetta allt
verðum við að þreifa okkur
áfram, en með aukinni tækni og
viðtækari þekkingu getum við
vissulega vænzt þess aö finna að-
ferðir, sem stuðla að þvi aö
gönguseiði skili sér betur en áður.
Þar sem náttúran er ein að
verki, nær eKthvað um 2% seiöa
þriggja áTa aldri, miðað við
hrogn, en i eldisstöðvum allt að
65%. En þegar seiðin eru komin i
sjó, veltur að sjálfsögðu á ýmsu,
hvernig þeim farnast, og kemur
þar vitaskuld margt til. Hin
siðustu ár virðist afkoman þar
hafa veriö góð eins og ráöa má af
þvi, að þrjú metveiðiár hafa
rekið hvert annað — 1970 1971, og
1972, sagði veiðimálastjóri að
lokum.
Viðurkennir
nú í reynd,
— að hann hafi mikilvægari
málefnum að sinna, sagði
Kristján Benediktsson
t upphafi borgarstjórnar-
fundar i gær las borgarstjóri
upp bréf til borgarstjórnar,
þarsem hann fór fram á lausn
frá embætti frá fyrsta desem-
ber n.k. að telja. Segir i bréf-
inu, að hlaðizt hafi á hann ým-
is konar störf við landsmál al-
mennt og jafnframt hafi hann
verið kjörinn varaformaður
Sjálfstæðisflokksins. Sagði
hann, að hann teldi borgar-
stjóraembættið þarfnast meiri
tima en hann hefði yfir að ráða
og þvi tæki hann þessa
ákvörðun nú.
Kristján Benediktsson borg-
arfulltrúi Framsóknarflokks-
ins tók næstur til máls og sagði
m.a.:
„Borgarstjóri Geir Hall-
grimsson hefur óskað eftir
lausn frá starfi sinu sem borg-
arstjóri frá 1. desember nk.
Aðalástæðuna fyrir þessari
ákvörðun telur borgarstjóri
i bréfi sinu til borgar-
stjórnar vera þá, að frá þvi
hann var siðast kjörinn borg-
arstjóri til fjögurra ára i júni-
mánuði 1970, hafi hlaðizt á
Framhald á bls. 19
Við borgarstjóraskipti á borgarstjórnarfundi i gær
— Timamynd: Róbert.