Tíminn - 07.11.1972, Síða 1
IGNIS
KÆLISKÁPAR
RAFTORG
SÍMI: 26660
RAFIÐJAN
SIMI: 19294
254. tölubl. — Þriðjudagur 7. nóv. —56. árg.
kæli-
skápar
PytcMte/tycfg/t A/
RAFTÆKJADEILD
Hafnarsiræti 23
Símar 18395 & 86500
HOLSKEFLURNAR GINU
YFIR GRINDAVÍKURHÖFN
Svona litu brimskaflarnir f Grindavík ílt um hádegisbilið f gær. Brotsjórinn, sem við sjáum á myndinni, er svona 4-5 metra hár, en
heimamenn sögðu, að þegar brimið var sem mest hafi bortsjóirnir komist upp i eina 12 metra. Timamynd Gí
Tveggja ára og vann 356 þúsund krónur:
Pabbi smíðaði tening
banda stúlkunni sinni
- svo að hún gæti tekið þátt í getraunakeppninni eins og hinir
Þau fiuttust búferium úr kaup-
staðúti við sjó fyrir sem næst ein-
um mánuði og settust að i fjalia-
sveit, langt inni i landi. Litla telp-
an þeirra er ekki nema tveggja
ára, og þegar hún iagðist til
svefns á sunnudagskvöldið, vissi
enginn, að til neinna stórtíðinda
hefði dregið. En það var ekki
langt liðið á daginn i gær, er það
vitnaðist, að hún var orðin forrik.
Hún hafði unnið 356.500 krónur i
knattspyrnugetraun.
Þessi litla stúlka heitir Maria
Jensdóttir og á nú heima á Hellu
hrauni 7 i Mývatnssveit, For-
eldrar hennar, Kristin Eggerts-
dóttir og Jens Gislason, fluttust
þangað frá Siglufirði i haust,
þegar Jens fékk vinnu i Kisiliðj-
unni.
— Við keyptum að gamni okkar
fjóra getraunaseðla, sagði Kristin
i gær, er Timinn átti tal við hana.
Við erum fjögur i fjölskyldunni,
og það fyllti hver út sinn seöil —
Maria litla lika. Pabbi hennar
telgdi handa henni tening, sem
hún kastar upp i loftið, og svo er
fyllt út eftir þvi, hvaða tala
kemur upp.
Miðinn hennar var fylltur út i
fjórða sinn á laugardag — sjálf
kastaði hún teningnum, en ég
skrifaði fyrir hana tölurnar. Svo
var þetta sent, og við vissum ekki
neitt fyrr en við fréttum, að hún
hafi verið með ellefu rétta og
unnið meira en hálft fjórða
hundrað þúsund krónur.
Maria litla Jensdóttir
botnaði ekkert i, af hverju var
svona mikil kæti i kringum hana i
gær. Peningar eru ekki fyrir-
ferðarmikill þáttur i lifi hennar
enn sem komið er. Hún veit bara,
að mamma er glöö, þegar hún er
væn stúlka, og það hefur stundum
verið glatt á hjalla, þegar hún
hefur verið að kasta teningnum
sinum.
— En þvi er ekki að leyna,
sagði móðir hennar, að þetta
kemur sér vel fyrir okkur. Við
ætluðum ekki að setjast að fyrir
fullt og allt hér i Mývatnssveit,
heldur flytjast aftur til Siglu-
fjarðar. Þess vegna vorum við
búin að kaupa þar hús, og nú
eignast Maria litla hlut i húsinu,
og allt verður léttara en annars
hefði orðið.
Bátur upp á
hafnargarð
í Grindavík
- trilla sökk
á Stokkseyri
ÞÓ—SB—Reykjavik.
i óveðrinu, sem geysaði I fyrri-
nótt, var foráttubrim viöa viö
suöurströndina. Á Stokkseyri
sökk tiu lesta trillubátur viö
bryggju, og iGrindavik gekk sjór
liátt á land og olli þar talsveröum
usla.Þar kastaöist vélbátur upp á
bryggjuhaus, en sogaöist svo út
aftur, og fiskverkunarhús laskaö-
ist.
t Grindavik var sjógangur
mestur frá klukkan sex til átta i
gærmorgun, og er hætt við, að
verr hefði farið, ef sjóvarnar-
garðarnir, sem gerðir voru þar i
sumar, hefðu ekki verið komnir.
Grindvikingar, sem við hittum að
máli þar syðra i gærmorgun,
sögðu okkur, að ölduhæðin hefði
sennilega verið um tólf metrar,
þegar verst lét, og gengu hol-
skeflurnar þá óbrotnar alveg inn
á garðana. Röskuðust þeir litil-
lega og stórgrýti hentist upp á
gamla hafnarbakkann.
Það var fiskverkunarhús Hóps
h.f., sem laskaðist, enda gekk
sjórinn alveg upp að þvi og fisk-
verkunarhúsi Þorbjarnar h.f.
Þarna voru einnig sildarsöltunar-
plön og lágu tómar sildartunnur á
við og dreif um allt, innan um
grjót og þang, sem sjórinn hafði
borið á land.
Verkinu ekki lokið
— og þá fór svona.
Fyrstan manna i Grindavik
hittum við Guðmund Þorsteins-
son, framkvæmdastjóra Hóps, og
var hann að vinna við fisk i hús-
inu, ásamt starfsfólki sinu. Hann
sagði að meira en litið hefði geng-
ið á, er sjórinn skall á framhlið
hússins á flóðinu um morguninn.
Búið var að steypa hluta af fram-
hliðinni, en þar sem bárujárnið
Framhald á bls. 13
Heilsuhæli í Skjaldarvík
Eins og kunnugt er, þá getur
heilsuhælið i Hveragerði ekki
tekiö á móti nema hluta af þvi
fólki, sem sækir þar um vist. Þörf
er á nýrri svipaðri stofnun. Af
þessari ástæöu ákvað Náttúru-
lækningaféiag Akureyrar á
siðastliðnu ári að beita sér fyrir
byggingu heilsuhæiis á Norður-
landi og hóf þegar fjársöfnun i þvi
skyni.
Nokkuð hefur verið rætt um
staðarval fyrir hælið og komu
einkum til greina þrir staðir:
Skjaldavik við Eyjafjörð, Mý
vatnssveit og Laugarbakki i Mið-
firði. Hafði bæjarstjórn Akur-
eyrar boðið land undir hælið i
Skjaldarvlk og að gefa eina mill-
jón til byggingarinnar, ef hún yrði
reist i Eyjafirði. Þá hafði og verið
boðið land undir bygginguna á
hinum stöðunum.
Fjölmennur fundur var haldinn
i NLKA. i Amaróhúsinu þann 3.
nóv. s.l. Formaður félagsins,
Framhald á bls. 19
Staöarberg GK 350 hentist upp á bryggjuna f Grindavik f óveörinu f
gærmorgun. Báturinn er 70 smálestir aö stærð, og mun hann vera
nokkuð skemmdur eftir. Staöarberg hét áöur Arnfiröingur. — Tfma-
mynd GE.