Tíminn - 07.11.1972, Qupperneq 6
6
TÍMINN
Þriðjudagur 7. nóvember 1972
Nú standa yfir hausthreingcrningar á vegum borgarinnar. Blómin, sem verið hafa vegfarendum til
augnayndis i sumar, eru fölnuð, og starfsmenn borgarinnar hreinsa nú tii i beðunum og búa þau undir
næsta sumar. iiannes Ilafstein horfir hér á tiltektirnar við Stjórnarráðið.
Tímamynd Gunnar.
VETRARSTARFSEMI PÓLY-
FÓNSKÓRSINS AD HEFJAST
Mörgum Ileykviking-
um mun i fersku minni
flulningur Fólýfónkórs-
ins á Mattheusarpassiu
liaehs i Háskólabiói um
siðustu páska. Var verk-
ið ílutt þrisvar við hús-
fylli, og hlutu flytjendur
mikið lof, en þeir voru
um 200 talsins. Allmarg-
ir söngvaranna voru
nemendur Kórskóla
Pólýfónkórsins, sem
helur nú starfað i tvo
vetur með ágætum
árangri og um 200
tnanns stundað þar nám
i söng, nótnalestri og
kórsöng.
Nýtt námsskeið hefst hjá
Kórskólanum næstkomandi
mánudagskvöld og stendur i 10
vikur. Kennslan fer fram i Voga-
skólanum eins og æfingar kórs-
ins, og er kennt 2 stundir i senn á
mánudagskvöldum. Kennslan er
fólgin i að læra rétta öndun og
undirstöðu réttrar raddbeitíngar,
kennd eru undirstöðuatriði tón-
listar, taktæfingar, heyrnarþjálf-
un, nótnalestur og nótnaskrift, en
mjög heíur þótt skorta á að fólk,
sem áhuga hefur á söng, hafi hlot-
ið slika undirbúningsmenntun.
Inntökuskilyrði eru engin, enda
er kennslan i upphafi miðuð við
byrjendur, þótt þeir, sem talsvert
hafa lært, telji sig hafa haft henn-
ar mikil not á þeim námskeiðum,
sem haldin hafa verið til þessa.
Kennarar verða hinir sömu og i
fyrra, Ingólfur Guðbrandsson,
söngstjóri, Ruth 'Magnússon,
Einar Sturluson og Lena Rist.
Þarna gefst almenningi tækifæri
til að búa sig undir þátttöku i kór-
starfi, og þannig hefur t.d. mörg-
um opnazt leið inn i Pólýfónkór-
inn. Gert er ráð fyrir að nemend-
ur Kórskólans séu á aldrinum 16-
40 ára.
Krægir einsöngvarar á jólaora-
loriu Hachs.
Nýlega hófust æfingar á
jólaóratoriu Bachs, sem flutt
verður af Pólýfónkórnum, ein-
söngvurum og hljómsveit milli
jóla og nýárs. Mikil eftirvænting
rikir vegna þessar hljómleika, en
þá fær kórinn til liðsvið sig fræga
erlenda einsöngvara, þau Neil
Jenkins, tenor og Söndru Wilkes,
sópran, sem sungu hér i
Austurbæjarbiói i september og
hlutu frábærar undirtektir áheyr-
enda og gagnrýnenda. Mun það
mörgum tilhlökkunarefni að
heyra Neil Jenkins i hlutverki
guðspjallamannsins, en hann er
nú af mörgum talinn fremsti
órtoriutenór Breta og arftaki Pet-
er Pears. Kórinn mun gefa út sér-
stakt jólakort, sem verður jafn-
framt aðgöngumiði að hljómleik-
unum og er hin ákjósanlegasta
jólagjöf. Hefst sala þeirra i byrj-
um desember.
Sönglör til útlanda að sumri og
plötuúlgáfa.
Pólýfónkórinn hefur þrisvar
fariði söngferðir til Evrópulanda,
siðast 1970 til Austurrikis. Enn
hefur kórnum verið boðin þátt-
taka i stærsta söngmóti Evrópu,
Europa Cantat, sem haldið er
þriðja hvert ár og fer næst fram i
Frakklandi. Jafnframt hefur kór-
inn i huga að syngja á hljómplötu
i utanferðinni, en margir sakna
þess, að söngur þess kórs, sem
haldið hefur upp einna umfangs-
mestu söngstarfi hér á landi,
skulu ekki enn fást á hljómplötu
og sjaldan heyrast i útvarpi.
Jafnvel girðingar-
staurarnir málaðir
tima, þegar unglingar höfðu litið
að gera, að þeir máluðu þessa
girðingarstaura. og svo hefur
flogið fiskisagan og þetta ein-
hvernveginn komist ihámæli.En
það má áreiðanlega finna eitt-
hvað áþekkt annars staðar. Þar
eru bara notuð nýju fúavarn-
arefnin, sem eru i rauninni betri,
þótt þau vekji kannski ekki eins
mikla athygli við fyrstu sýn —
málningin vill flagna af trénu eins
og allir vita.
Þess vegna væri það ranglátt
að hampa mér sérstaklega, sagði
bóndi, og þess vegna bið ég ykkur
að sleppa að minnsta kosti nöfn-
um.
Eindregnar óksir hógværra
manna verður að virða. Bær
þessa manns talar eftir sem áður
sinu máli.
— J.H.
Kyrir nálega heilli öld orti eitt
þjóðskáldanna um bændabýlin
þckktu, sem stóðu undir hliðar-
brckkum með livit stofuþil og likt
og buðu gestum heim. Þessi hvitu
stofuþil voru vitnisburður þess
Handy (er til)
pappírs
HANDÞURRKUR
á alla vinnustaði
Á. A. PÁLMASON
Simi 11517
tima um hýbýlaprýði og ræktar-
seini við heimilið.
Þessi geðþekkta mynd hefur
varðveitzt i huga landsmanna og I
söng á vörum þeirra. En svo er
fyrir að þakka, að einnig nú eru
til sveitabæir, þar sem svo er um
allt höndum farið, að samtiðar-
skáldin ættu að festa það i minni
óborinna kynslóða.
Einn þeirra bæja, sem dregur
að sér auga vegfarandans, er i
Hvitársiðu. Þar hafa jafnvel girð-
ingarstaurarnir meðfram ak-
brautinni heim að bænum verið
málaðir. En þegar við töluðum
við bóndann á þessum bæ, svar-
aði hann aðeins:
— Ég vil ekki, að það sé verið
að nafngreina mig i blöðum af
þessu tilefni. Það var einhvern
íslenzkt slökkvilið
hlaut 1. verðlaun f
alþjóðlegri keppni
Klp-Reykjavik
Á föstudaginn var i 250 manna
hófi á Kefla vikurf lugvelli,
slökkviliði Keflavikurflugvallar
afhent fyrstu verðlaun i keppni á
vegum alþjóölegu brunamála-
stofnunarinnar. Eru þessi verð-
laun veitt fyrir þjálfun og störf
slökkviliðs, svo og cftirlit og
kynningu brunavarna.
Þetta er ekki i fyrsta sinn sem
slökkviliðið á Keflavikurflugvelli
fær verðlaun i þeim flokki, sem
það telst til. Hefur það áður
fengið ýmislegar viðurkenningar
fyrir eldvarnir, þjálfun liðsins og
annað. En þetta er i fyrsta sinn,
sem það hlýtur þessi eftirsóttu
verðlaun, sem um 60 stöðvar
viðsvegar um heim kepptu um.
Afhending verðlaunanna, fór
fram i slökkvistöðinni, sem var
fagurlega skreytt i tilefni
dagsins. Voru þar staddir starfs-
menn stöðvarinnar ásamt eigin-
konum svo og aðrir islenzkir og
bandariskir gestir. Ræður fluttu
capt. McDonald yfirmaður flota-
stöðvarinnar Páll Ásgeir
Tryggvason, formaður vara-
málanefndar og Bealing
aðmiráll, sem afhenti Sveini
Eirikssyni, slökkviliðsstjóra
verðlaunin, sem er fagur
áletraður skjöldur. Allir ræðu-
mennirnir báru lofsorð á slökkvi-
liðið og þökkuðu þvi frábær störf
á liðnum árum. Sveinn slökkvi-
liðsstjóri þakkaði hólið og beindi
siðan orðum sinum til sinna
manna og þakkaði þeim fyrir
góða samvinnu og dugnað i starfi.
Það kom fram hjá ræðu-
mönnum, að tjón af völdum elds-
voða á Keflavikurflugvelli á
árunum 1951 til 1961 hefði numið
árlega um 75 þúsund Bandarikja-
dölum. Þegar sjóherinn hefði svo
tekið við yfirstjórn á Keflavikur-
flugvelli árið 1961 hefði hann fljót-
lega stofnað slökkvilið, sem aðal-
lega hefði verið skipað ís-
lendingum og undir stjórn Sveins
Eirikssonar. Hafði það unnið vel
og skipulega að eldvarnareftirliti
á vellinum og verið sérstaklega
vel þjálfað af yfirmönnum þess.
Sem dæmi mætti nefna, að á
árunum 1961 til 1971 hefði tjón af
eldsvoðum hrapaðniður i um 5000
dali á ári, og á siðasta ári hefði
tjónið aðeins numið 200 Banda-
rikjadölum. Væri varla hægt að
ætlast til minna á jafn umsvifa-
miklu svæði og Keflavikurflug-
völlur væri.
Að lokinni afhendingu verðiauna til slökkviliðsins á Keflavikurflug-
velli. Talið frá vinstri: Capt. McDonald, Sveinn Eiríksson siökkviliðs-
stjóri og aðmir. Bealing með verðlaunaskjöldinn á milli sin og Páll
Ásgeir Tryggvason, formaður varnamálanefndar.
Nýr blaðafull-
trúi hjá Menn-
ingarstofnun
Bandaríkjanna
ÞÓ—Reykjavik
Hörður H. Bjarnason, hefur
verið ráðinn blaðafulltrúi við
Menningarstofnun Banda-
rikjanna i stað Ólafs Sigurðs-
sonar, sem tekið hefur við
störfum hjá F.t.L.
Hörður er fæddur i Reykjavik
1944, og lauk hann stúdentsprófi
árið 1965 frá Menntaskólanum i
Reykjavik. Hörður hóf siðan nám
við Macalester College, St. Paul,
Minnesota i ársbyrjun 1968 og
lauk þaðan BA-prófi 1970.Fram-
haldsnám i alþjóðasamskiptum
og alþjóðalögum lagði Hörður
stund á við Minnesotaháskóla frá
1970, og lauk hann M.A. prófi
þaðan i september s.l. Þar tók
hann blaðamennsku sem aukafag
jafnframt aðalfögum.
Með námi sinu við Minnesota-
háskóla stundaði Hörður rann-
sóknir á alþjóðasamskiptum og á
vegum Midwestern Universities
Consortium og var ráðinn sem
aðstoðarkennari við háskólann.
liörður H. Bjarnason.
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
S6NDIBIL ASTOÐIM Hf
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR