Tíminn - 07.11.1972, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 7. nóvember 1972
TÍMINN
13
FORÁTTUBRIM
Framhald af bls. 1.
var eitt lét allt undan. Á lögnum
kafla hafði bárujárnið losnað og
veggurinn gengið inn. Sem betur
fór komst ekki sjór að ráði i hús-
ið þvi að tréþil, sem var innan
undir bárujárninu stóðst átökin.
Guðmundur sagði, að sjór hefði
nú náð að skella á húsi Hóps
vegna þess, að nýi varnargarður-
inn vestan við gamla hafnargarð-
inn, er rétt framan við fiskverk-
unarstöðina, og þvingar hann sjó-
inn upp i krikann, þar sem húsið
stendur, þegar brimið fer ham-
förum i sliku aftaka sunnanveðri.
— Það verður að bæta við
varnargarðinn hér fram með hús-
inu, ef ekki á illa að fara, sagði
Guðmundur. Hann gat þess lika,
að hann væri hræddur við kvöld-
flóðið, ef vindur gengi ekki til
vesturs, þegar liði á daginn.
Að lokum sagði Guðmundur, að
flóðið i gærmorgun hefði fyllilega
jafnast á við flóðið, sem kom i
Grindavik fyrr á þessu ári.
11 stakkar af saltfiski
undir urð.
Niðri i fjörukambinum hittum
við Tómas Þorvaldsson,
framkvæmdastjóra Þorbjarnar
h.f. Ekki vildi hann fullyrða, að
þetta væri mesta brim, sem hann
myndi eftir. Það væri oftast svo,
að menn segðu siðasta brimið
mest, er komið hefði.
— Árið 1954 kom gifurlegt brim
i Grindavik, sagði Tómas. Þá
gekk sjórinn inn i hús Þorbjarnar,
og þangað kastaðist keila með
einni holskeflunni, er lenti á hús-
inu. Sennilega hefur fiskurinn
rotazt hér fyrir utan og hafrótið
svo fleygt honum upp.
Þegar þetta gerðist átti Tómas
ellefu stakka af saltfiski á fjöru-
kambinum, og þegar veðrið,
lægði voru þeir allir komnir á kaf
i grjót.
Einnig sagðist Tómas muna
eftir gifurlegu hafróti árið 1924,
og lét þá illa fyrir framan Járn-
gerðarstaði, og þar átti Tómas
heima.
Eins og fyrr segir var ljótt um-
horfs á sildarplani Þorbjarnar.
Sildartunnur lágu á við og dreif
og grjót, þang og spýtnabrak
þakti algjörlega sildarplanið.
Sagði Tómas, að oft hefðu 5-6 þús-
und sildartunnur legið þarna i
stöflum, og hefði nú farið illa, ef
sildarsöltun hefði verið á þessu
hausti. Annars urðu engar veru-
legar skemmdir hjá Þorbirni.
Næturvaka
hafnarstjórans.
Ingólfur Karlsson, hafnarstjóri
Grindvikinga, hafði i mörgu að
snúast, þegar við hittum hann á
nýju hafnaruppfyllingunni, þar
sem menn voru i óðaönn að binda
báta sina, sem rammlegast fyrir
kvöldflóðið og bjarga veiðarfær-
um, sem lágu á bryggjunum.
Ingólfur sagðist aldrei hafa séð
annað eins brim i Grindavik. —
Það hefði illa farið, ef þess hefði
ekki notið, sem gert var i sumar
— nýja garðsins vestan við höfn-
ina og endurbótanna á austur-
garðinum, sem skemmdist nokk-
uð i siðasta stórbrimi.
Ingólfur kvaðst hafa verið niðri
við höfn frá þvi klukkan fjögur i
fyrrinótt, og mestu lætin hefðu
verið um sexleytið og á sjöunda
timanum, þegar Staðarbergið,
sjötiu lesta stálbátur, kastaðist
upp á bryggjuna. Þetta gerðist
allt i einni svipan. Ein báran hratt
bátnum, að miklum krafti upp á
bryggjuna. Báturinn hélzt þar
unz útsogið kom, en þá féll hann
fram af bryggjunni. Staðarbergið
lá vestast i vesturhöfninni, en
þegar veðrið fór að lægja á fjör-
unni, þá var báturinn færður yfir
á annan og öruggari stað.
Ingólfur sagði, þegar við
kvöddum hann, að hann væri
mjög hræddur um, að skemmdir
myndu hljótast á kvöldflóðinu,
það eina, sem gæti bjargað þeim,
væri að veðrið lægði og áttin snér-
ist meira i vestur. En annars
sagöist hann vera hræddur um að
brimið yrði enn meira en i morg-
un, þar sem straumur væri
stækkandi og brimið hefði haldið
áfram að grafa sig i allan dag.
Sem betur fór gekk hann i
vestrið. Um háflóð i gærkvöldi
kom þó svo mikill sjór inn á höfn-
ina, að hann jaðraði við
bryggjubrúnir. Þá voru fjörtiu
bátar þar inni, en ekki var þeim
talin hætta búin.
12 tonna bátur sökk
á Stokkseyri.
Foráttubrim var i Sandgerði
þessa sömu nótt, en siðdegis i gær
hafði vind lægt mikið og áttin
breytzt. Engar skemmdir urðu af
veðrinu i Sandgerði.
Mjög flóðhátt var i Þorlákshöfn
um klukkan sex i gærmorgun og
gaf yfir allar bryggjur. Brimið
skildi eftir sig mikið af þangi og
þara, en engar skemmdir urðu.
Hafnarnesið veitir vernd i þessari
átt, en hefði áttin verið suðaust-
læg, er hætt við að verr hefði far-
ið.
Á Eyrarbakka varð brimið eitt
þaö mesta, sem menn hafa séð.
Afspyrnurok var og skvettist sjór
inn um hlið á sjógarðinum. Eng-
inn bátur var i höfninni og
bryggjan er i vari, svo ekkert
skemmdist, en þari er á við og
dreif um allt.
Öveðrið var mikið á Stokkseyri
og sökk þar 12 lesta trilla við
bryggju. Ekki er vitað um
skemmdir á henni, en reynt verð-
ur að ná henni upp við fyrsta
tækifæri. Hafrótið var geysilegt
og gekk sjór upp úr sjógarðshlið-
um. Er þetta mesta brim, sem
komið hefur á Stokkseyri um
langan tima.
Orðsending frá happ-
drætti Framsóknarflokksins
Happdrættisskrifstofan Hring-
braut 30 er opin til kl. 6.30 í kvöld
og næstu kvöld. Þeir.sem fengið
hafa heimsenda miða eru vin-
samlega hvattir til að nota tæki-
færið og gera skil.
Á afgreiðslu Timans, Banka-
stræti 7 er einnig tekið á móti
uppgjöri á afgreiðslutima blaðs-
ins svo og hjá trúnaðar og um-
boðsmönnum happdrættisins úti á
landi.
Einnig hefur happdrættið giró-
reikning nr. 34444, við Samvinnu-
banka islands og má greiða inn á
það númer I bönkum, sparisjóð-
um og pósthúsum um allt land.
Snæfellsnes
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn að Lýsuhóli,
Staðarsveit, sunnudaginn 13. nóv. kl. 15.00.
Frummælendur Eysteinn Jónsson, alþingismaður, Hall-
dóra Sveinbjörnsdóttir, húsfrú og Alexander Stefánsson, odd-
viti.
Stór björg köstuðust inn á hafnarbryggjuna í Grindavik, sum björgin voru i kringum hálft tonn að
þyngd, og hér sjáum við tvær ungar stúlkur, sem hafa fengið sér sæti á einu bjarginu.
Framhlið fiskverkunarhúss Hóps, h.f. var illa farin. Bárujárnið á hliðinni og þaki hússins var laust,
og ekki þarf mikið til að verr fari.
Óskar Guðmundsson á hafnarbakkanum i Grindavik.
Grjót og þang var um allar götur i nágrenni hafnarinnar i Grindavik. Tímamyndir GE.