Tíminn - 07.11.1972, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 7. nóvember 1972
TÍMINN
15
Umsjón Alfreð Þorsteinsson
Reykjavíkurmótið í handknattleik:
Góður loka-
spretturVals
varð Fram
að falli....
- aukaleik þarf því um Reykjavíkurmeistaratitilinn
Valsmenn settu heldur betur
strik i reikninginn ó sunnudags-
kvöidiö, þegar þeir sigruðu Fram
i siðasta leik Reykjavíkurmóts-
ins. Framliðið hafði yfir framan
af, en undir lokin jöfnuöu Va 1 s-
menn og komust yfir. Með þess-
um sigri tryggði Valur sér auka-
leik um Reykjavikurmeistarati-
tilinn og mætir Viking, sem sigr-
aði Armann, fyrr um kvöldiö. Það
var mikil stemming i Laugar-
dalshöllinni, þegar Fram og Val-
ur mættust. Ahorfendur skiptust i
tvo hópa — annar söng „Við erum
beztir”, en það voru áhangendur
Fram, sem sungu það. Ahangend-
ur Vals, klöppuðu i takt og kölluð
Valur, þegar það átti við.
Valsmenn gættu Alxels Axels-
sonar vel i leiknum og fylgdi Jón
Karlsson, honum eins og skuggi.
Ahorfendur kunnu ekki að meta
þessa leikaðferð Vals — þeir baul-
uðu alltaf þegar Jón fékk knött-
inn. Björgvin Björgvinsson opn-
aði leikinn með góðu makri, en
hann stökk glæsilega inn úr horni.
Jón Karlsson jafnaði fyrir Val
1:1, þegar hann brauzt i gegnum
vörn Fram. Næsta mark leiksins,
skoraði gamla kempan, Ingólfur
Óskarsson, með skoti niður við
gólf. Stefán Gunnarsson jafnaði
2:2, með gegnumbroti. A 9. min.
tók Ingólfur, aftur forustuna fyrir
Fram. En hún dugði ekki lengi,
þvi að fyrirliði Vals, Gunnsteinn
Skúlason, kastaði sér inn úr horni
og sendi knöttinn i netið. Þegar
fyrri hálfleikur er hálfnaður,
kemur inn á hjá Fram stórefni-
legur nýliði — Sveinn Sveinsson,
svipuð manngerð og Axel Axels-
son. Sveinn var ekki búinn að vera
lengi inn á, þegar hann vatt sér
upp og sendi knöttinn i netið.
Stuttu siðar átti hann gott skot,
sem lenti i þverslá. Sigurbergur
Sigsteinsson, skorðaði svo fimmta
mark Fram, en Bergur Guðna-
son, minnkaði muninn í 5:4 úr
vitakasti. Rétt fyrir leikshlé, fór
Axel illa af ráði sinu — hann mis-
notaði þá vitakast.
Sveinn Sveinsson, skoraði
fyrsta markið i siðari hálfleik og
Sigurbergur bætti svo sjöunda
marki Fram við og staðan er þá
orðin 7:4 fyrir Fram og útlit fyrir
Framsigur. En Adam var ekki
lengi i paradis — um miðjan sið-
ari hálfleik jafnaði Stefán Gunn-
arsson fyrir Val 9:9 og Valsmenn
bættu siðan við þremur ,örkum —
Ólafur Jónsson (15. min.) Gunn-
steinn Skúlason (16. min.) og
Torfi, 30 sek. fyrir leikslok. Sið-
asta mark leiksins, skoraði Sigur-
bergur fyrir Fram og lokatölur
urðu 12:10 fyrir Val.
Valsliðið lék sinn bezta leik i
Reykjavikurmótinu — leikmenn
liðsins eru mjög jafnir. Ólafur
Benediktsson og Jón Karlsson,
voru beztir og er Jón sá maður,
sem sóknarleikur liðsins byggist á
— hann lætur kvöttinn ganga og
ógnar stöðugt með uppstökkum.
Varnarleikur Vals, er sterkasta
hlið liðsins.
Framliðið lét brjóta sig niður, i
siðari hálfleik og einkenndist leik-
ur liðsins, á feilsendingum og
ónákvæmu spili. Axel Axelsson
gekk ekki heill til skógar, og hafði
það sin áhrif — einnig að hann var
tekinn úr meðferð. Þorsteinn
Björnsson átti góðan leik i mark-
inu. Sveinn Sveinsson, hinn ungi
nýliði liðsins, kom mjög vel frá
sinum fyrsta leik — það er greini-
legt að þarna er mjög gott efni á
ferðinni og framtiðarleikmaður.
Þeir sem skoruðu i leiknum
voru þessir:
VALUR: Ólafur Jónsson 3, Jón
Karlsson, Gunnsteinn, Stefán og
Sigurbergur Sigsteinsson, sést hér kasta sér inn á linu i leik FramogVals — á siðustu stundu,
sló varnarmaöur i hendina á Sigurbergi, sem fékk dæmt viti. (Timamynd Gunnar.)
Torfi tvö mörk hver og Bergur
Guðnason 'eitt.
FRAM: Sveinn og Sigurbergur,
þrjú hvor, Ingólfur 2, Björgvin og
Andrés Bridde eitt hvor.
Lokasprettur Ármanns
kom of seint.
Vikingur sigraði Armann 15:13
og með þeim sigri tryggði liðið sér
réttindi, til að leika aukaleikinn
um Reykjavikurmeistartitilinn.
Leikur liðanna var nokkuð jafn
framan af, en i siðari hálfleik náði
Vikingur góðu forskoti, sem Ar-
mannsliðið réði ekki við, þó að
það hafi tekið góðan endasprett.
Fyrri hálfleikur var nokkuð
jafn — Vikingsliðið hafði alltaf
forustu, en Armanni tókst að
jafna 1:1, 2:2, 3:3 og 6:6. Tvö sið-
ustu mörkin i fyrri hálfleik, komu
frá Vikingunum Guðjóni Magnús-
syni og Jóni Sigurðssyni. 1 siðari
hálfleik, auka Vikingar forskotið
og var Einar Magnússon, mark-
hæsti leikmaður Reykjavikur-
mótsins, kominn i ham og sendi
knöttinn fjórum sinnum i netið,
hann skoraði alls sjö mörk i leikn-
um og skauzt upp fyrir Axel
Axelsson, Fram, á listanum yfir
markhæstu menn mótsins. Þegar
staðan var orðin 15:9 fyrir Viking,
sækja Ármenningar i sig veðrið
og minnka muninn i 15:13. Bezti
maður Ármanns, var hinn frábæri
linuspilari Vilberg Sigtryggsson.
Hann skoraði sex mörk af linu og
vitaköstum i leiknum. Vilberg á
tvær systur i handknattleik og
leika þær með meistaraflokki
Vals og KR — það eru þær Svala
Sigtryggsdóttir úr Val og Sigrún,
sem leikur með KR. En nokkuö
einkennilegt, að ekkert systkin-
anna leika með sama félagi.
i R og Þróttur skiptu
meö sér stigum.
Þriðji leikurinn á sunnudags-
kvöldiö, var leikur IR og Þróttar,
sem lauk með jafntefli 13:13.
Þróttarar fengu gott tækifæri, til
að gera út um leikinn, á siðustu
minútunni — þá var dæmt vita-
kast á 1R. Trausti Þorgrimsson
tók vitakastiö, en markvörður IR,
Geir Thorsteinsson varði. Þróttur
tók fljótlega forustuna i leiknum
og liöið komst i 10:6 i byrjum siö-
ari hálfleiks. Þá tók IR-liðið góð-
an sprett og jafnaði 10:10 og á 14.
min. kom Ólafur Tómasson, IR
yfir 11:12, en á 18. min tókst Þrótti
aftur að jafna 13:13, sem urðu
lokatölur leiksins.
— sos.
Jón Sigurðsson, slorar mark gegn Armanni. Skafti markvörður gerir góða tilraun til að verja. Armenningarnir Jón Hermannsson og Hörður
Kristinsson, fylgjast spenntir með. (Timamynd Gunnar)
Víkingur
meistari
án auka-
leiks?
Verða Vikingar Reykja-
vikurmeistarar i handknatt-
leik án aukaleiks við Val?
Þessari spurningu veltu hand-
knattleiksunnendur fyrir sér i
Laugardalshöllinni i gær-
kvöldi eftir leik Vals og Fram,
en þá hafði kvisazt út, að
Vikingar ætluðu að kæra leik
1R og Vikings, sem lauk með
jafntelfi, á þeirri forsendu, að
markvörður ÍR i þessum leik
Geir Thors teinsson, hefði
verið ólöglegur. Eins og
kunnugt er, skipti Geir um
félag i haust. Hann var mark-
vöröur Gróttu, en ákvaö að
ganga i raöir IR-inga . Fyrir
einhvern klaufaskap gengu
iR-ingar ekki nógu tryggilega
frá þessum félagaskiptum
Geirs, að þvi að haidið er, og
ætla Víkingar að krefjast þess,
að þeim verði dæmd bæði
stigin i leiknum. Fallist dóm-
stólar ha n dk n a 11 leiks-
hreyfingarinnar á það sjónar-
mið, hafa Vikingar hlotið einu
stigi meira en Valur - og jafn-
framt Reykjavikurmeistara-
titilinn í handknattleik 1972.