Tíminn - 07.11.1972, Síða 17

Tíminn - 07.11.1972, Síða 17
Þriðjudagur 7. nóvember 1972 TÍMINN 17 Hér á myndinni, sést ,,Pop” Robson, hinn markagráðugi leikmaður, West Ham. senda knöttinn fram hjá Stepney, markverði Maii. Utd. „Pop” skoraði á laugardaginn hjá Phil Parkes, markverði Úlfanna. sjálfsmark kostaði Leeds, dýr- mætt stig, i baráttunni um toppinn. Hitt markið fyrir heimamenn skoraði Whymark, en mörk Leeds, skoruðu J. Charlton og Lorimer. West Ham bjargaði stigi á heimavelli sinum Upton Park, á siðustu stundu. Það voru nokkrar min. til leiks- loka, þegar Brooking sendi knöttin framhjá markverði Úlfanna,Parkers og jafntefli 2:2, varð staðreynd. „Pop” Robson skoraði fyrsta mark leiksins, fyrir heimamenn. En Úlfunum tókst að jafna og komast yfir 1:2, mörk liösins, skoraöi Kindon. Þá leitút um tima að Man. Utd. tækist að krækja sér i tvö stig á heimavelli Leicester — Filbert Street. En draumurinn um sigur rættist ekki, það var Farrington, sem sá um það, þegar hann jafnaði 2:2. Man. Utd. náði forustu i leiknum, þegar bezti maður liðsins, Best, skoraði. Sammels (hann kom hingað með Arsenal um árið og lék á Laugar- dalsvellinum), jafnaði fyrir Leicester, en Davies náði forustunni aftur fyrir gestina, sem voru ekki langt frá sigri. Enska knattspyrnan: Don Rogers skoraði í sínum fyrsta leik með Crystal Palace - hann var keyptur frá Swindon, fyrir 150 þús. pund - Liverpool hefur tekið örugga forustu Þá kom að því að Crystal Palace með alla sina dýru leik- menn tókst að vinna leik — liðið sigraði Everton 1:0 á heimavelli sinum Selhurst Park. Það var Don Rogcrs, sem skoraði markið við geysilegan fögnuð áhorfenda, sem voru farnir að þrá að sjá lið sitt sigra og koma sér af botninum. Don Rogers var keyptur til Palace i siðustu viku frá Swindon á 150 þús. pund. ltogers þessi vann sér nafn i enskri knnttspyrnu árið 1968, þegar :i. deildarliðið Swindon sigraði Arsenal i úrslitaleiknum i deildarbikarnum á Wemblcy. Rogers skoraði þá tvö inörk og var maðurinn á bak vð sigur Swindon. Rogers cr ekki fyrr koinin i búning Paiace, en hann er farinn aö skora mörk — nú getur f ra mk væm da st jóri Palace, Bertie Head, andað léttara þvi að hann var kominn i mikla klipu. En áður en við höldum lengra, þá skulum við lita a getraunaseðil nr. 32. 2 Arsenal-Coventry 0:2 x Birmingham-Tottenham 0:0 1 C. Palace-Everton 1:0 x Ipswich-Leeds 2:2 x Leicester-Man. Utd. 2:2 1 Liverpool-Chelsea 3:1 1 Man. City-Derby 4:0 x Sheff. Utd.-Stoke 0: 0 1. Southamton-Norwich 1: 0 2 WBA-Newcastle 2: 3 x West Ham-Wolves 2: 2 1 Huddersfilde-Sheff W. 1 :0 Liverpool náði öruggri forustu deildinni, eftir að liðið sigraði lamað lið Chelsea. Liverpool átti leikinn og Toshack sýndi frá- bæran leik, hann sendi knöttinn, tvisvar i netið og átti stóran þátt i marki, sem Kevin Keegan, skoraði Fyrir Chelsea skoraði Tommy Baldvin, sem kom inn i liðið fvrir Osgood. Leeds var óheppið að missa stig á Portman Road, þegar liðið gerði jafntefli gegn Ipswich 2:2 Madeley varð fyrir þvi óhappi, að senda knöttinn i sitt mark — þetta Tottenham var heppið að ná jafntefli á heimavelli Birming- ham. Annað Lundúnarlið var ekki eins heppið — Arsenal tapaði fyrir Coventry á heimavelli sinum Highbury. Leikmenn Ar- senal sóttu nær stanzlaust allan leikinn, en þeim tókst ekki að koma knettinum i netið. Aftur á móti skoruðu leikmennirnir Hurtchinson og Carr, fyrir Coventry, sem átti mjög fá upp- hlaup i leiknum. Man. City lék sér að meisturunum frá Derby, þegar liðin mættust á Maine Road. Mörkin létu ekki á sér standa — Bell, Marsh og ungur nýliði skoruðu mörkin, þá skoraði Todd sjálfsmark. WBA hafði yfir 2:1 gegn Newcastle — undir lokin fór Newcastle-vélin i gang, jafnaði og skoraði sigurmarkið. Mörk liðsins, skoruðu Tuder (2) og J. Smith. Deildarbikarinn: Liverpool og Leeds gerðu jafntefli 2:2 Flest sterkustu liðin i ensku knattspyrnuiini, eru komin i átta- liða úrslitin i dcildarbikarnum — i siðustu viku voru leiknir leikirnir i 16-liða úrslitunum og voru fáir óvæntir sigrar. Leikurinn, sem vakti mesta athygli, var leikur toppliðanna i 1. deild I.iverpool og Leeds, sem lauk með jafntefli 2:2. Leikurinn fór fram á heimavelli Liverpool — Anfield Road, var nokkuð skemmtilegur og hefði meö réttu átt að Ijúka með sigri heimamanna. Heimamenn réðu gangi leiksins i fyrri hálfleik og voru klaufar að skora ekki fjögur mörk. Callag- han, Cormack, Keegan og Heigh- way, fór mjög illa með góða marksénsa. Fyrsta mark leiks- ins, skoraði „litli karlinn” Kevin Keegan, með skalla, eftir að Mick Jones,sem sést hér á myndinni vara að „klippa" aftur fyrir sig, kom Leeds á bragðið gegn Liverpool. Liðin þurfa að leika aukaleik um það, hvort liðið mætir Tottenham i 8-liða úrslitum i deildarbikarnum - aukaleik þarf til að mætir Tottenham í Heighwayhafði leikið á Clarke og sent fyrir markið. Rétt fyrir leikshlé jafnaði Leeds, með marki frá Jones — skot hans var eina skotið sem kom á mark Liverpool i fyrri hálfleik. Eftir markið snýst leikurinn við — Bates og Bremner, finna sig á miðjunni. Leeds tekur forustuna 2:1 á fyrstu minútum siðari hálf- leiks — það var Lorimer, sem skoraði með sinu frægu langskot- um. Tiu min. fyrir leikslok jafnar Toshack, hann fær góða sendingu frá Hughes og notfærði sér hana, með þvi að senda knöttinn i netið. Toshack, lék sinn fyrsta leik með Liverpool, eftir langa fjarveru. Annars voru liðið skipuð þessum mönnum: LIVERPÖOL: Clemence, Lawler, Lindsay, Smith, Lloyd, Hughes, Keegan, Cormack, Heighway, Toshack og Calla- ghan. LEEDS: Harvey, Madsley, Cherry, Bremner, Ellam, Hunter, Lorimer, Clarke, Jones, Bates og Gray. Leikmenn Arsenal unnu sætan sigur, þegar þeir léku á Bramall Lane, gegn Sheffield Utd. En Arsenal hefur ekki gengið vel gegn Sheff. Utd. sem hefur aðeins tapað einu sinni gegn Arsenal i siðustu fimm leikjum. Arsenal fékk uppreisn, með að sigra á Bramall, þvi að það var einmitt þar,sem Sheff. Utd. slógu Arsenal út I 16-liða úrslitunum i deildar- bikarnum i fyrra.. Arsenal tók for- ustuna i leiknum á 17. min. með marki sem C. Georgs, skoraði. Fyrir leikshlé bættu leikmenn Arsenal, öðru marki við, eftir gifurlega hraðsókn. Varnarmenn skera úr, hvort liðið 8-liða úrslitum Arsenal, björguðu skoti frá Stani- forth, á linu — knötturinn hrökk til George, sem gaf fram á Rad- ford og hann átti ekki i i erfiðleik- um, með að senda knöttinn fram hjá McAlister. Sheffield sóttu meira i siðari hálfleik og skoraði þá Hemsley, eina mark liðsins. Bezti maður Arsenal i leiknum var Simpson, en hann hefur leikið með liðinu i siðustu tiu leikjum — var settur út, þegar Arsenal keypti Blockley. Sá leikmaður, sem bar höfuð og heröar yfir alla leikmennina á vellinum, var Currie hjá Sheff. Utd. — hann lék mjög vel og hugsaði og reyndi með dugnaði sinum að blása eld i leikmenn Sheff. Utd. sem hafa ekki leikið eins illa i langan tima. En áður en við höldum lengra, þá skulum við lita á útslitin i 16- liða úrslitunum: Blackpool—Birmingham 2:0 Bury—Chelsea 0:1 Liverpool—Leeds 2:2 Notts.Co.—Stoke 3:1 Wolves—BristolR. 4:0 Sheff.Utd.—Arsenal 1:2 Tottenham— Millwall 2:0 Stockport—Norwich 1:5 Bury lék á heimavelli sinum Gigg Lane gegn Chelsea og átti mun meira i leiknum framan af. T.d. átti Bury skot i þverslá og skot sem rétt strauk stöng, i fyrri hálfleik. 1 siðari hálfleik (8. min.) varð landsliðsmarkmaðurinn hjá Chelsea, Peter Bonetti, fyrir þvi óhappi, að lenda i árekstri við John Connelly, en þessi Connelly er fyrrverandi lands- liðsmaður, lék með Man. Utd. og Framhald á bls. 19

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.