Tíminn - 09.11.1972, Side 1
—---------
KÆLISKÁPAR
RAFTORG
SÍMI: 26660
RAFIÐ JAN
SÍMI: 19294
v
257. tölublað — Fimmtudagur 9. nóvember — 56. árgangur.
jOAW fÍM/MAAéjícLfl' Á/
RAFTÆKJADEILD
Hafnarslræti 23
Simar 18395 & 86500
Yfir-
gangur
Brefa
á Vestfjarða-
miðum
ÞÖ—Kovkjavik.
I.inubátar, sein voru á sjó frá
Veslfjörðuni i gær, kvörtuðu und-
an yfirgangi bre/.kra togara inn-
an 50 sjóniílna fiskveiðimarkanna
út af l.átrabjargi,
Bátarnir kvörtuðu við Land-
helgisgæzluna, sem sendi varð-
skip á vettvang. begar varðskipið
kom á staðinn og togararnir urðu
þess varir, drógu þeir upp vörp-
urnar og sigldu til hafs. Að sögn
I.andhelgisgæzlunnar var um að
ræða þrjá brezka togara, en ekki
var vitað um nöfnin á þeim. ís-
lenzku linuveiðararnir munu allir
hafa orðið fyrir einhverju veiðar-
færatjóni.
Hörður Jónsson, skipstjóri á
Gylfa frá Patreksfirði, sagði i
viðtali við Timann i gærkvöldi, að
þeir á Gylfa hefðu verið á þeim
slóðum, þar sem togararnir tog-
uðu yfir lóðirnar.
„Við sluppum alveg á Gylfa”,
sagði Hörður, ,,en Þrymur frá
Patreksfirði, Tungufell frá
Tálknafirði, Kristján Guð-
mundsson og Ólafur Friðbertsson
lrá Súgandaf. misstu allar lóðir.
En ekki veit ég>hvað þeir misstu
mörg bjóð”.
Hörður sagði, að þegar bátarn-
ir hefðu komið út i fyrrakvöld, þá
hefðu togararnir haldið sig
norðan við bátana. Siðan breyttu
togararnir um togstefnu. „Einn
togaranna tók strax stefnu á
ljósabauju frá"Þrymi og fór þar
yfir lóðir bátsins, og á þessu sést
bezt, að hér var ekki um neitt
óviljaverk að ræða”, sagði Hörð-
ur.
Siðan sagði Hörður, að þeir á
Frh. á bls. 15
Horft yfir hluta Breiðholtshverfis úr lofti. — Timamynd: Gunnar.
Lengsta íbúðarhús landsins
A vegum Framkvæmda-
nefndar byggingaráætlunar er
verið að vinna að byggingu fjöl-
býlishúss i Breiðholti, sem full-
gert mun hafa að geyma 200
ibúðir,og má þvi reikna með, að
þar búi i framtiðinni viðlika
fólksfjöldi og f meðal kauptúni
við sjávarsiðuna. Það sem
vekur þó mesta athygli i sam-
bandi við þetta hús, er lengd
þess, — en fullgert mun þetta
verða lengsta ibúðarhúsasam-
stæða á landinu,322 metrar.
Bygging hússins hófst fyrir
tæpu ári, og áætlað er, að fyrstu
20 ibúðirnar verði teknar i notk-
un ijanúar n.k.,og siðan 20 ibúðir
i hverjum mánuði upp frá þvi.
fbúðirnar verða seldar fullfrá-
gengnar með dúkum á gólfum
og teppum á stigagöngum. Hús-
næðismálastofnunin sér að
mestu um sölu ibúðanna, en
Reykjavikurborg á einnig nokk-
urn hlut að máli.
Ekki er fjarri lagi, að i þessari
húsalengju verði viðlika margir
úbúar og i vænu kauptúni, þegar
fólk er komið i allar ibúðirnar —
liklega svona einhvers staðar
mitt á milli Búðakauptúns i Fá-
skrúðsfirði og Sandgerðis. Má
þá segja, að fullnýttur sé sá
bletturinn, og megi kannski ekki
öllu þröngbýlla vera.
Byggingin sést á miðri mynd-
inni hér að ofan, og eins og hún
ber með sér, eru hlutar
hennar misjafnlega langt á veg
komnir — fjærstu húsin komin
undir þak, en aðeins búið að
gera grunn þeirra, sem neðst
eru á myndinni.
Yfir 70 hross nætur-
| langt á flugvellinum
I - á meðan umbúnaður í flugvélinni var lagfærður
Stp—Reykjavík.
Fimm stórir bilar stóðu i
alla fyrrinótt úti á Reykjavik-
urflugvelli, fullir af sunnlenzk-
um hrossum, sem senda átti
úr landi flugleiöis til Saar-
briicken i Þýzkalandi. i þeim
vor sextiu og tvö folöld og tólf
liross fulloröin. Orsök þess,
aö töf varð á brottför var sú,
aö Páll Pálsson yfirdýralækn-
ir vildi ekki veita heimild
þess, aöhrossin yrðu flutt með
flugvélinni eins og umbúnaði
hennar var háttaö.
Flugvélin átti að leggja af
stað beint i fyrrakvöld, og var
fyrst ekið með hrossin út á
Granda, þar sem þau voru
vigtuð. Siðan var haldið með
þau suður á flugvöll. Þegar
yfirdýralæknirinn kom á vett-
vang, kvað hann upp úr með
það, að hrossin yrðu ekki send
með flugvélinni með sinu
samþykki fyrr en lagfærður
hefði veriðumbúnaður i henni.
— Ég sagði þeim, að þeir
fengju ekki vottorð frá mér til
flutninganna fyrr en umbúnað
urinn hefði verið lagfærður til
samræmis við ákvæði reglu-
gerðar um slika flutninga,
sagði Páll i gær i simtali við
fréttamann. En auðvitað gátu
þeir farið samt — ég hafði
ekkert vald til þess að stöðva
flugvélina.
Þess ber einnig að geta, að
Páll tók það fram, er
fréttamaðurinn ræddi við
hann, að gripaflutningar um-
rædds flugfélags á undanförn-
um árum hefðu gengið vel og
alveg slysalaust.
Sjónarvottur hefur sagt
blaðinu, að i skilrúmunum i
flugvélinni hefðu verið aðeins
einnar tommu þykk borö, sem
boltuð voru saman, en bolt-
arnir hefðu sýnilega sums
staðar rifnað út úr borðunum i
fyrri ferðum. Hann taldi einn-
ig, að átta til niu folöldum
hefði verið ætlað að vera i
hverri stiu.
Skemmst er af þvi að segja,
að unnið var i alla nótt að
endurbótum á þessum umbún-
aði i flugvélinni, og klukkan
rúmlega hálftiu i gærmorgun
lagði hún loks af stað.