Tíminn - 09.11.1972, Síða 1

Tíminn - 09.11.1972, Síða 1
—--------- KÆLISKÁPAR RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐ JAN SÍMI: 19294 v 257. tölublað — Fimmtudagur 9. nóvember — 56. árgangur. jOAW fÍM/MAAéjícLfl' Á/ RAFTÆKJADEILD Hafnarslræti 23 Simar 18395 & 86500 Yfir- gangur Brefa á Vestfjarða- miðum ÞÖ—Kovkjavik. I.inubátar, sein voru á sjó frá Veslfjörðuni i gær, kvörtuðu und- an yfirgangi bre/.kra togara inn- an 50 sjóniílna fiskveiðimarkanna út af l.átrabjargi, Bátarnir kvörtuðu við Land- helgisgæzluna, sem sendi varð- skip á vettvang. begar varðskipið kom á staðinn og togararnir urðu þess varir, drógu þeir upp vörp- urnar og sigldu til hafs. Að sögn I.andhelgisgæzlunnar var um að ræða þrjá brezka togara, en ekki var vitað um nöfnin á þeim. ís- lenzku linuveiðararnir munu allir hafa orðið fyrir einhverju veiðar- færatjóni. Hörður Jónsson, skipstjóri á Gylfa frá Patreksfirði, sagði i viðtali við Timann i gærkvöldi, að þeir á Gylfa hefðu verið á þeim slóðum, þar sem togararnir tog- uðu yfir lóðirnar. „Við sluppum alveg á Gylfa”, sagði Hörður, ,,en Þrymur frá Patreksfirði, Tungufell frá Tálknafirði, Kristján Guð- mundsson og Ólafur Friðbertsson lrá Súgandaf. misstu allar lóðir. En ekki veit ég>hvað þeir misstu mörg bjóð”. Hörður sagði, að þegar bátarn- ir hefðu komið út i fyrrakvöld, þá hefðu togararnir haldið sig norðan við bátana. Siðan breyttu togararnir um togstefnu. „Einn togaranna tók strax stefnu á ljósabauju frá"Þrymi og fór þar yfir lóðir bátsins, og á þessu sést bezt, að hér var ekki um neitt óviljaverk að ræða”, sagði Hörð- ur. Siðan sagði Hörður, að þeir á Frh. á bls. 15 Horft yfir hluta Breiðholtshverfis úr lofti. — Timamynd: Gunnar. Lengsta íbúðarhús landsins A vegum Framkvæmda- nefndar byggingaráætlunar er verið að vinna að byggingu fjöl- býlishúss i Breiðholti, sem full- gert mun hafa að geyma 200 ibúðir,og má þvi reikna með, að þar búi i framtiðinni viðlika fólksfjöldi og f meðal kauptúni við sjávarsiðuna. Það sem vekur þó mesta athygli i sam- bandi við þetta hús, er lengd þess, — en fullgert mun þetta verða lengsta ibúðarhúsasam- stæða á landinu,322 metrar. Bygging hússins hófst fyrir tæpu ári, og áætlað er, að fyrstu 20 ibúðirnar verði teknar i notk- un ijanúar n.k.,og siðan 20 ibúðir i hverjum mánuði upp frá þvi. fbúðirnar verða seldar fullfrá- gengnar með dúkum á gólfum og teppum á stigagöngum. Hús- næðismálastofnunin sér að mestu um sölu ibúðanna, en Reykjavikurborg á einnig nokk- urn hlut að máli. Ekki er fjarri lagi, að i þessari húsalengju verði viðlika margir úbúar og i vænu kauptúni, þegar fólk er komið i allar ibúðirnar — liklega svona einhvers staðar mitt á milli Búðakauptúns i Fá- skrúðsfirði og Sandgerðis. Má þá segja, að fullnýttur sé sá bletturinn, og megi kannski ekki öllu þröngbýlla vera. Byggingin sést á miðri mynd- inni hér að ofan, og eins og hún ber með sér, eru hlutar hennar misjafnlega langt á veg komnir — fjærstu húsin komin undir þak, en aðeins búið að gera grunn þeirra, sem neðst eru á myndinni. Yfir 70 hross nætur- | langt á flugvellinum I - á meðan umbúnaður í flugvélinni var lagfærður Stp—Reykjavík. Fimm stórir bilar stóðu i alla fyrrinótt úti á Reykjavik- urflugvelli, fullir af sunnlenzk- um hrossum, sem senda átti úr landi flugleiöis til Saar- briicken i Þýzkalandi. i þeim vor sextiu og tvö folöld og tólf liross fulloröin. Orsök þess, aö töf varð á brottför var sú, aö Páll Pálsson yfirdýralækn- ir vildi ekki veita heimild þess, aöhrossin yrðu flutt með flugvélinni eins og umbúnaði hennar var háttaö. Flugvélin átti að leggja af stað beint i fyrrakvöld, og var fyrst ekið með hrossin út á Granda, þar sem þau voru vigtuð. Siðan var haldið með þau suður á flugvöll. Þegar yfirdýralæknirinn kom á vett- vang, kvað hann upp úr með það, að hrossin yrðu ekki send með flugvélinni með sinu samþykki fyrr en lagfærður hefði veriðumbúnaður i henni. — Ég sagði þeim, að þeir fengju ekki vottorð frá mér til flutninganna fyrr en umbúnað urinn hefði verið lagfærður til samræmis við ákvæði reglu- gerðar um slika flutninga, sagði Páll i gær i simtali við fréttamann. En auðvitað gátu þeir farið samt — ég hafði ekkert vald til þess að stöðva flugvélina. Þess ber einnig að geta, að Páll tók það fram, er fréttamaðurinn ræddi við hann, að gripaflutningar um- rædds flugfélags á undanförn- um árum hefðu gengið vel og alveg slysalaust. Sjónarvottur hefur sagt blaðinu, að i skilrúmunum i flugvélinni hefðu verið aðeins einnar tommu þykk borö, sem boltuð voru saman, en bolt- arnir hefðu sýnilega sums staðar rifnað út úr borðunum i fyrri ferðum. Hann taldi einn- ig, að átta til niu folöldum hefði verið ætlað að vera i hverri stiu. Skemmst er af þvi að segja, að unnið var i alla nótt að endurbótum á þessum umbún- aði i flugvélinni, og klukkan rúmlega hálftiu i gærmorgun lagði hún loks af stað.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.