Tíminn - 09.11.1972, Page 3
Fimmtudagur 9. nóvember 1972
TÍMINN
3
Gunnar Marmundsson, verkstjóri i vélsmiðju K.R. á HvolsvelIi,stendur hér hjá einum mykjusniglinum,
sem vélsmiðjan framleiðir ásamt fleiri landbúnaðartækjum. (Timamynd Róbert)
Innlend smíði
landbúnaðarvéla
Erl—Reykjavik
Vélsmiðja K.R. á Hvolsvelli
stundar smiði á ýmiss konar
landbúnaðartækjum, sem annars
yrði að flytja inn og greiða með
ærnum gjaldeyri. Þannig smiðaði
vélsmiðjan á siðasta ári 43 hey-
blásara, sem flestir fóru til sölu
hjá SÍS.
ÞÓ-Reykjavik
Þing Rafiðnaðarsambands ís-
lands, sem haldið var i Reykjavik
dagana 4. og 5. nóvember s.l. lýsti
óánægju sinni yfir þeim töfum,
sem orðið hafa á nýtingu fall-
vatna, þ.e. virkjanagerð. Þingið
JE—Borgarnesi
Sauðf járslátrun hófst hjá
Kaupfélagi Borgfirðinga i Borg-
arnesi 13. sept sl. og lauk 30. okt.
Alls var slátrað um 65.000 fjár,
og er það rúmlega 7.000 kindum
fleira en haustið 1971. Meðal-
kroppþungi dilka var 13,81 kg,en
var 14,15 haustið 1971.
Vegna rúmleysis i frystihúsi
Kaupfélagsins i Borgarnesi voru
um 250 tonn af kjöti flutt til
Reykjavikur i sláturtið, en hinn
hlutinn af óselda kjötinu, um 650
tonn, er geymdur i Borgarnesi —
þó var litils háttar flutt út af kjöti
Næstkomandi laugardag 11.
nóvember efnir Skagfirzka Söng-
sveitin til Flóamarkaðar i and-
dyri Breiðholtsskóla, og verður
þar á boðstólum fjölbreytt úrval
af hverskyns vörum auk köku-
basars.
Skagfirzka söngsveitin var
stofnuð fyrir tveim árum af Skag-
firðingum i Reykjavik og ná-
grenni. Hún hefur haldið söng-
skemmtanir allviða m.a. i Mið-
garði i Skagafirði, Bifröst á Sauð-
árkróki og Félagsheimili Sel-
tjarnarness og á útiskemmtun á
Þá hóf smiðjan framleiðslu á
baggafæriböndum, sem aðeins
eru smiðuð eftir pöntunum og fást
i þrem lengdum, 10, 12 1/2 og 15
metra. Hafa þau aðeins verið seld
á félagssvæðinu, en n(i hafa fyrir-
spurnir um þau borizt viða að.
Loks má svo geta mykjusnigla og
dreifara, sem vélsmiðjan hefur
krefst þess, að flýtt verði
áætlunum um virkjanagerð og
bendir á, að hagnýting ísl. fall
vatna og ijarðhita tilorkufram
leiðslu sé undirstaða isl. iðnþró
unar, sem aftur sé forsenda þess,
að þjóðin geti tryggt sér til
og innylfum i sláturtið.
Af gæruframleiðslu ársins
munu um 36.000 stk. verða seld til
Póllands, og fara þau i næsta
mánuði, en afgangurinn fer til
innlendra sútunarverksmiðja.
1 haust framleiddi kjötmjöls-
verksmiðja sláturhússins mjöl og
feiti, og mun framleiðslan verða
notuð i fóður innan lands, en að
nokkru fara til útflutnings.
Þegar sauðfjárslátrun stóð yfir,
unnu um 200 manns við slátur- og
frystihús kaupfélagsins.
Nú stendur yfir stórgripaslátr-
un hjá kaupfélaginu i Borgarnesi.
Sauðárkróki i tilefni aldarafmæl-
is bæjarins 3. júli 1971. Hefur hún
ávallt lagt áherzlu á að kynna
skagfirzk ljóð og lög, og hefur ný-
lega sungið inn á fimmtán laga
hljómplötu lög skagfirzkra tón-
skálda. Hefur söngsveitin þannig
aukið mjög myndarlega starf
Skagfirðingafélagsins i Reykja-
vik.
Fé það, sem safnast á Flóa-
markaðinum á laugardaginn,
verður notað til kaupa á hljóðfæri
til undirleiks á æfingum söng-
sveitarinnar.
smiðað nokkra.
Þá hefur vélsmiðjan einnig
smiðað fjölmargar vegristar og
annast pipulagnir á félagssvæði
kaupfélagsins.
Þetta kom fram i viðtali, sem
fréttamenn Timans áttu við
Bjarna Helgason, sem veitt hefur
verkstæðinu forstöðu, fyrir
stuttu. Bjarni var þá að vinna að
teikningu geymis fyrir laust korn,
sem vélsmiðjan ætlar að fara að
framleiða á næstunni fyrir bænd-
ur i nágrenninu.
lengdar þau iifskjör, sem sam-
bærileg eru við nálægar þjóðir. I
þessu sambandi leggur þingið
' áherzlu á þá meginstefnu, að
nýta raforku i auknum mæli til
upphitunar ibúðarhúsa og
uppbyggingar innlends stór-
iðnaðar. Telur þingið, að með þvi
að halda öllum arði af okkar
vinnu innan landsteina sé bezt
tryggt atvinnuöryggi.
Þá fagnaði þingið þeirri al-
mennu samstöðu landsmanna um
útfærslu landhelginnar i 50 milur
og verndun fiskimiðana, sem
renna máttarstoðum undir is-
lenzkan sjávarútveg.
Formaður Rafiðnaðarsam-
bands íslands er Magnús Geirs-
son.
Stp—Reykjavik.
Á kvöldvöku Ferðafélags Is-
lands i Sigtúni i kvöld verða
frumsýndar tvær nýjar kvik-
myndir eftir 'Osvald Knudsen.
Mun dr. Sigurður Þórarinsson,
jarðfræðingur, flytja inngangsorð
að myndunum. Má i leiðinni geta
þess, að á dagskrá kvöldvökunn-
ar er auk þess myndagetraun og
dans.
Fréttamaður hafði samb. við
Osvald Knudsen i gær og spurði
hann eftir nýju myndunum. Kom
fram i viðtalinu,að önnur myndin
er frá gosinu i Heklu 1970, Við
Hekluelda, en henni fylgir tezti
(eða tal) samið og flutt af Sigurði
Þórarinssyni, og tónlist eftir
Magnús Blöndal Jóhannsson. Hin
myndin kallast Með sjó fram og
var gerð i fyrra. Er hún um fjör-
ur landsins, fulgalifið þar og
fleira. Texta með henni hefur
Óskar Ingimarsson samið og
Magnús Blöndal tónlistina.
Aðspurður, hvort hann hefði
ekki eitthvað i bigerð, sagði
Ósvaldur, að svo gæti vart heitið,
Snjóalög
að loka
fjallvegum
vestra
GS—tsafirði.
Vetur er sýnilega að leggjast að
hér á Vestfjörðum, og fjallvegir
hafa þegar teppzt. Tveir flutn-
ingabilar hafa verið suður við
Mjólkárvirkjun og ekki komizt
norður yfir.
Breiðadalsheiði og Botnsheiði
hafa nú verið ruddar, en það
getur orðið skammgóður vermir,
ef veður harðnar.
Á vetrum fara menn á vélsleð-
um á milli Isafjarðar og Súg-
andafjarðar, og hefur oft borið
við, að Botnsheiði hefur verið far-
in svo til daglega. Yfir Breiða-
dalsheiði komast vélsleðar ekki
sökum þess, hvernig til hagar, og
hefur dregizt bagalega úr hömlu
hjá vegagerðinni að ryðja þar
vetrarveg, svo að sleðum verði
þar við komið.
Mannabein
áður fundist
í Skarfanesi
Það er ekki í fyrsta skipti nú, að
vart vcrður mannabeina á þeim
stað i Landsveit, er linu-
lagningarmennirnir fundu beina-
grindurnár i haust.
A nitjándu öld komu einnig
mannabein fram i dagsljósið, þar
sem Skarfanes hið elzta hafði
verið, og ef til vill hefur það borið
við oftar. A nitjándu öld sótti
sandurinn mjög á, og blésu þá
upp leifar bæjarrústanna i
Skarfanesi elzta, sem og kirkju-
garðinn að nokkru leyti. Það er
grjótið, sem eftir lá, er hefur
varnað þvi, að allur jarðvegur
hyrfi burt úr hinum gamla graf-
reit.
Sá Skarfanesbær, sem reistur
var, þegar sandur lagði Skarfa-
nes elzta i eyði endur fyrir löngu,
var yfirgefinn árið 1864, einnig
vegna sandágangs og býlið þá
endurreist þar, sem það var fram
á daga núlifandi manna.
SB-Reykjavik
Rafmagn fór af Mosfellssveit
og Kjalarnesi um kl. 14.45 i gær.
Rafmagn komst aftur á
linuna að dælustöð við Reyki um
kl. 16.40, en áfram var unnið að
þvi að koma ljósinu á Kjalar-
nesið.
þessu væri öllu nýlokið. En þó
kom það ótvirætt fram i svari
hans, að einhverju bjó hann yfir,
þótt ekki vildi hann gefa neitt upp
um það.
Þær munu nú vera orðnar á
milli 30 og 40 myndirnar, sem
Ósvaldur Knudsen hefur gert
gegnum árin og sýndar hafa ver-
ið. Þeir eru án efa fáir hérlendis,
sem ekki hafa séð einhverjar af
myndum hans, en margar þeirra
eru frábærar og hafa átt sinn þátt
i að opna augu fyrir fegurð lands
okkar og nauðsyn þess, að halda
henni óspilltri.
1 viðtalinu bar á góma tjón, sem
Ósvaldur varð fyrir i fyrra, er
hann missti kvikmyndatökuvél,
gamla en góða, sem hann hafði
áður notað meðst, ofan i Grims-
vötn, er hann var þar á ferð, þeg-
ar hlaupin urðu á þessum slóðum.
Fór þar taska og vél á bólakaf og
,,kom hvorugt upp siðan”, eins og
geta má nærri. Vélin var ótryggð
með öllu, svo tjónið var all tilfinn-
anlegt. Þá eru tilfinningatengslin
við slika gamalreynda gripi ætið
sterk.
Sameiningarmál í
Alþýðuflokknum
Tveir af ieiðtogum Alþýðu-
llokksins, Benedikt Gröndal,
varaformaður, og Eggert G.
Þorsteinsson, ritari, hafa
byrjað nóvembermánuð með
greinum i Alþýðublaðið um
saneiningarmálið.
Skoðanir þeirra virðast tals-
vert skiptar um afstöðuna til
málsins. Benedikt Gröndai
hefur tröllatrú á kosninga-
bandalagi við Samtök frjáls-
lyndra og vinstri mann.
Eggert G. Þorsteinsson hefur
liins vegar litla trú á sam-
einingartalinu og telur að
kjósendur Alþýðuflokksins
verði ekki færðir milli dilka
forspurðir. Um citt virðast
þeir þó sammála og tala um
það i fyllstu alvöru, að hluti
Framsóknarflokksins, þ.e.
Samband ungra Framsóknar-
mann muni kjúfa sig frá
flokknum til að taka þátt i
hinum nýja „Jafnaðarmanna-
flokki islands."
Benedikt Gröndal setur
skipulag hins nýja kosninga-
bandalags upp i táknmynd og
telur að liinn nýi flokkur eigi
að hafa Verkainannaflokkinn
brezka að skipulagsfyrir-
mynd. Um þá aðila, aðra en
Alþýðuflokkinn og Samtök
frjálslyndra og vinstri manna,
scm gerast vildu aðilar að
nýju kosningabandalagi segir
Benedikt m.a.:
„önnur sambönd, sem
kynnu að vilja taka þátt i
stofnun Jafnaðarmanna-
flokksins, svo scm Samband
ungra framsóknarmanna, er
hefur gert ályktanir i þá átt.”
3 hópar
Eggert G. Þorsteinsson
segir að uppi scu þrjár
skoðanir i Alþýðuflokknum
um afstöðu til sameiningar-
málsins. Ilann segir þær
þessar:
„1. Þá, sem vilja sam-
einingu við Frjálslynda og
vinstri menn og e.t.v. unga
framsóknarmenn eða hluta
þeirra.
2. Þá, sem vilja alls ekki
neinar frekari viðræður um
sameiningu við einn eða neinn
og að allar frekari viðræður
vcrði stöðvaðar.
3. Þá, sem eru tortryggnir á
að viðræðurnar beri nokkurn
árangur, annan en neikvæðan,
en telja þó framhaldsviðræður
óhjákvæmilegar.”
Af grein Eggerts verður það
grcinilega ráðið, að hann er
málsvari hóps nr. 3.
i niðurlagi greinar sinnar
segir hann m.a.:
,,Á siðasta flokksþingi okkar
urðu því ekki teknar neinar
ákvarðanir með eða móti
samvinnu við einn eða neinn —
Spurningin, sem viðsvöruðum
var sú, — að við að frekari
viðræður um sameiningu eigi
sér stað, eða að þær verði
stiiðvaðar nú þegar?
Meðan jafnmargir hlutir I
þessu hugsanlega samstarfi
eru óþekktir, — eða eins og
sjómenn segja gjarnan — of
margir endar lausir, — þá tel
cg og taldi óskynsamlegt að
stöðva viðræður nú. Það
verður að fá fram niðurstöður
viðræðnannaog bera þær siðan
undir það fólk, sem með okkur
hefur staðið i gegn um öll áföll
og hræðist ekki að mæta fleiri.
Hvað stoðar okkur að taka
ákvarðanir um samvinnu og
samstarf i þessa átt eða hina,
ef okkar traustasta stuðnings-
fólk fylgir okkur ekki?
ekki?
Sameinaður og einhuga Al-
þýðuflokkur er það eina, sem
getur orðið grundvöllur þess
að allir islenzkir jafnaðar-
menn sameinist i einum
flokki.
Naumur meirihluti innan
Alþýðuflokksins til samstarfs
og samvinnu i þessa átt eða
hina nægir ekki til árangurs” -
T.K.
Rafiðnaðarmenn vilja
meiri hraða í virkjunum
Um 65.000 fjár var
slátrað í Borgarnesi
Skagfirðingar
halda Flóamarkað
Við Hekluelda og
Með sjó fram