Tíminn - 10.11.1972, Síða 1

Tíminn - 10.11.1972, Síða 1
IGNIS KÆLISKAPAR RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐJAN SlMI: 19294 * # jO/MctfwAvéfa/t A/ RAFTÆKJADEILD Hafnarslræti 23 Simar 18395 & 86500 - Tveir brezkir á ísafirði - tvísýnt um annann bO-Reykjavik. Brezka eftirlitskipið Ranger Brisar kom til ísafjarðar i fyrri- nótt með veikan skipverja af brezka togaranum Peter Scott frá Grimsby. Aður en eftirlitsskipið fór til Isafjarðar bað það Land- helgisgæzluna um leyfi, sem þeg- ar var veitt. — Þess má geta að Peter Scott var fyrsti togarinn, sem fékk að finna fyrir klippum islenzku varðskipanna. Annar brezkur sjómaður liggur á sjúkrahúsinu á fsafirði, er hann af togaranum Macbeth frá Hull. Er maðurinn þungt haldinn og er tvisýnt um lif hans. Þingeyingar standa fyrir sínu Erl-Keykjavik A miðvikudaginn fæddu fjórar konur fimm börn i sjúkrahúsinu á llúsavik. betta hlýtur að gleðja þá, scm orðnir voru hræddir um framtið bingeyinga. En til samanburðar má geta þess, að fyrstu fjóra mánuði ársins 11)70 fæddust þar aðeins þrjú börn. Urðu þá margir uggandi um vöxt og viðgang þessa cinstæða stofns. Nú virðist sem sagt rofa heldur til i þessum málum og stofninn vera að sleppa úr þeirri úlfa- kreppu, sem hann virtist kominn i. Þingeyingar eru sennilega hættir að flytja pilluglös heim til sin úr apótekunum, og árangur- inn lætur ekki á sér standa, svo sem að ofan má sjá. Raunar hafði fyrr á þessu ári sannast, að Bárðdælir eru ekki dauöir úr öllum æðum. Stúlkan með teninginn í gær áskotnaðist okkur mynd sem við getum ekki látið undir hofuð leggjast að birta. Hún er af Mariu litlu Jensdóttur, sem vann hálft fjórða hundrað þúsund krón- ur i getraunakeppninni á dögun- um. Eins og menn minnast trúlega notaði hún tening, sem pabbi hennar smiðaði handa henni, þeg- ar til þess kom að ákvarða, hvaða tolur ætti að skrifa á seðilinn nennar. Brezkur togari í nauðum Afturkallaði hjálparbeiðniog sigldiáleiðis til Bretlands með stórslasaðann skipverja þegar Ægir nálgaðist , Þó—Reykjavik. Brezki togarinn Ssafa FD 155, er i nauðum staddur 150 sjómilur suðaustur af Vestmannaeyjum. Togarinn fékk ó sig brotsjó á þessum slóðum eftir hádegi i gær, og rak hann stjórnlaus um tima, þar sem yfirbygging skipsins laskaðist mjög og stýrið varð fyr- ir skemmdum. Varðskip ótti að koma til aðstoðar við togarann klukkan 21.30 i gærkvöldi, en ferðin sóttist seint, enda var veð- urhæðin 11-12 vindstig. Það var varðskipið Ægir, sem sent var togaranum til aðstoðar. En kl. 21.18 endurkallaði skip- stjóri togarans hjálparbeiðnina. Var þá annar brezkur logari kominn upp að hlið Ssafa og voru skipin komin á fulla ferð til Bret- lands. Virtist sem skemmdirnar væru ekki eins miklar og skip- stjórinn hugði I fyrstu. Um borð var slasaður maður. Er hann handlegsbrotinn og rifbeins- brotinn. Herkúlesflugvél frá Keflavikurflugvelli sveimaði lengi yfir togaranum, ef hann þyrfti á skyndilegri aðstoð að halda. Sjúkraliðinn i flugvélinni leiðbeindi um meðferð slasaða mannsins og gaf góð ráð um, hvernig búa ætti um meðslin þar til komið væri til hafnar. Flug- vélin lenti á Keflavikurflugvelli kl. rúmlega 22 i gærkvöldi. bað er ekki óalgengt að send eru út neyðarskeyti þegar skip verða fyrir áföllum, þótt siðar komi i ljós, að skemmdirnar eru ekki eins miklar og haldiö var i fyrstu. En hitt er ekki algengt, að svona langur timi liði milli þess að hjálparbeiðni er send út og þar til hún er afturkölluð. Er ekki óliklegt, að skipstjórinn hafi heldur viljað sigla á löskuðu skipi með stórslasaðan mann innan- borðs, til Bretlands i vondu veðri, heldur en láta islenzkt varðskip aðstoða sig við að komast til hafn- ar á Islandi. Það var um klukkan 15.55 i gær- dag, að Slysavarnarfélagi tslands barst hjálparbeiðni frá Ssafa, en Vestmannaeyjaradió hafði tekið á móti kaíli togarans, en þá hafði togarinn fengið á sig mikinn brot- sjó á fyrrgreindum stað. Sagði skipstjóri togarans, að hann væri stjórnlaus og sjór væri kominn i skipið. Slysavarnarfélagið brá skjótt við og hafði samband við Land- helgisgæzluna, sem þegar sendi varðskipið til aðstoðar hinum nauöstadda togara. Ennfremur var haft samband við Varnarliðið og það beðið um að senda flugvél á vettvang. Sendi það strax Herkules björgunarvél af stað og var flugvél komin að togaranum. rétt fyrir klukkan 19 i gærkvöldi. Þá var togarinn kominn á skriö aftur og lónaði hann hægt undan veðrinu. Togarinn Ssafa FD 155 hefur áöur komið við sögu i haust. bað var úti fyrir Vestfjörðum, en þá reyndi skipstjórinn á Ssafa að koma i veg fyrir að Ægir gæti klippt á vira eins landhelgis- brjótsins. Margrét drottning boð- ar blaðamannafund! Brezki togarinn Ssafa frá Fleetwood — landhelgisbrjótur, sem fékk á sig brotsjó fyrir sunnan land i gær. Timamynd Gunnar. Annan fimmtudag ber þaö til, er mun þykja allmikil tiðindi i Danmörku, að Margrét drottning hcldur blaðamannafund. Það er einsdæmi, að danskur þjóðhöfðingi geri slikt, og al- kunna er, að föður Margrétar, Friðriki konungi, var meira en litið i nöp við blaðamenn og blaðaljósmyndara. Honum mis- þóknaðist mjög, þegar dóttir hans átti fyrr á árum tal við blaða- menn erlendis. Danskir útflytj endur voru aftur á móti ánægðir með það uppátæki, þvi að þeir töldu það greiða fyrir viðskiptum. Ástæðan til þess, að drottningin bregður nú út af venju feðra sinna á veldisstóli er sú, að hún vill auka vinsældir sinar. bær raddir hafa heyrzt, aö eðlilegast væri að gera Danmörku að lýðveldi. Þeir eru að visu ekki margir, er telja slikt einhverju varða, og hinir margfalt fleiri, er ekki vilja missa konung sinn eða drottningu af veldisstóli, en eigi að siður mun henni þykja rétt að koma til móts við almenning til þess að þagga niður raddir, sem eru konung- dómi andvigar. Ssafa er röskar 400 brúttólestir að stærð, og var byggður árið 1958 i Goole. SLÆMT VEDUR ÚTI FYKIR VESTFJÖRÐUM Fyrir Vesturlandi var slæmt veöur i gærkvöldi, og var spáð vaxandi veðri og isingu. Um 20 brezkir togarar voru þá komnir i var undir Grænuhlið. Á þessum slóðum voru einnig þýzka eftir litsskipið Fridtjof og brezka efti'. litsskipið Ranger Brisar. lslenzkt varöskip var einnig statt undir Grænuhlið.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.