Tíminn - 10.11.1972, Qupperneq 1
IGNIS
KÆLISKAPAR
RAFTORG
SÍMI: 26660
RAFIÐJAN
SlMI: 19294
* #
jO/MctfwAvéfa/t A/
RAFTÆKJADEILD
Hafnarslræti 23
Simar 18395 & 86500
-
Tveir brezkir
á ísafirði
- tvísýnt um annann
bO-Reykjavik.
Brezka eftirlitskipið Ranger
Brisar kom til ísafjarðar i fyrri-
nótt með veikan skipverja af
brezka togaranum Peter Scott frá
Grimsby. Aður en eftirlitsskipið
fór til Isafjarðar bað það Land-
helgisgæzluna um leyfi, sem þeg-
ar var veitt. — Þess má geta að
Peter Scott var fyrsti togarinn,
sem fékk að finna fyrir klippum
islenzku varðskipanna.
Annar brezkur sjómaður liggur
á sjúkrahúsinu á fsafirði, er hann
af togaranum Macbeth frá Hull.
Er maðurinn þungt haldinn og er
tvisýnt um lif hans.
Þingeyingar
standa
fyrir sínu
Erl-Keykjavik
A miðvikudaginn fæddu fjórar
konur fimm börn i sjúkrahúsinu á
llúsavik. betta hlýtur að gleðja
þá, scm orðnir voru hræddir um
framtið bingeyinga. En til
samanburðar má geta þess, að
fyrstu fjóra mánuði ársins 11)70
fæddust þar aðeins þrjú börn.
Urðu þá margir uggandi um vöxt
og viðgang þessa cinstæða stofns.
Nú virðist sem sagt rofa heldur
til i þessum málum og stofninn
vera að sleppa úr þeirri úlfa-
kreppu, sem hann virtist kominn
i. Þingeyingar eru sennilega
hættir að flytja pilluglös heim til
sin úr apótekunum, og árangur-
inn lætur ekki á sér standa, svo
sem að ofan má sjá.
Raunar hafði fyrr á þessu ári
sannast, að Bárðdælir eru ekki
dauöir úr öllum æðum.
Stúlkan með
teninginn
í gær áskotnaðist okkur mynd
sem við getum ekki látið undir
hofuð leggjast að birta. Hún er af
Mariu litlu Jensdóttur, sem vann
hálft fjórða hundrað þúsund krón-
ur i getraunakeppninni á dögun-
um.
Eins og menn minnast trúlega
notaði hún tening, sem pabbi
hennar smiðaði handa henni, þeg-
ar til þess kom að ákvarða, hvaða
tolur ætti að skrifa á seðilinn
nennar.
Brezkur togari í nauðum
Afturkallaði hjálparbeiðniog sigldiáleiðis til Bretlands
með stórslasaðann skipverja þegar Ægir nálgaðist
, Þó—Reykjavik.
Brezki togarinn Ssafa FD 155,
er i nauðum staddur 150 sjómilur
suðaustur af Vestmannaeyjum.
Togarinn fékk ó sig brotsjó á
þessum slóðum eftir hádegi i gær,
og rak hann stjórnlaus um tima,
þar sem yfirbygging skipsins
laskaðist mjög og stýrið varð fyr-
ir skemmdum. Varðskip ótti að
koma til aðstoðar við togarann
klukkan 21.30 i gærkvöldi, en
ferðin sóttist seint, enda var veð-
urhæðin 11-12 vindstig.
Það var varðskipið Ægir, sem
sent var togaranum til aðstoðar.
En kl. 21.18 endurkallaði skip-
stjóri togarans hjálparbeiðnina.
Var þá annar brezkur logari
kominn upp að hlið Ssafa og voru
skipin komin á fulla ferð til Bret-
lands. Virtist sem skemmdirnar
væru ekki eins miklar og skip-
stjórinn hugði I fyrstu. Um borð
var slasaður maður. Er hann
handlegsbrotinn og rifbeins-
brotinn. Herkúlesflugvél frá
Keflavikurflugvelli sveimaði
lengi yfir togaranum, ef hann
þyrfti á skyndilegri aðstoð að
halda. Sjúkraliðinn i flugvélinni
leiðbeindi um meðferð slasaða
mannsins og gaf góð ráð um,
hvernig búa ætti um meðslin þar
til komið væri til hafnar. Flug-
vélin lenti á Keflavikurflugvelli
kl. rúmlega 22 i gærkvöldi.
bað er ekki óalgengt að send
eru út neyðarskeyti þegar skip
verða fyrir áföllum, þótt
siðar komi i ljós, að skemmdirnar
eru ekki eins miklar og haldiö var
i fyrstu. En hitt er ekki algengt,
að svona langur timi liði milli
þess að hjálparbeiðni er send út
og þar til hún er afturkölluð. Er
ekki óliklegt, að skipstjórinn hafi
heldur viljað sigla á löskuðu skipi
með stórslasaðan mann innan-
borðs, til Bretlands i vondu veðri,
heldur en láta islenzkt varðskip
aðstoða sig við að komast til hafn-
ar á Islandi.
Það var um klukkan 15.55 i gær-
dag, að Slysavarnarfélagi tslands
barst hjálparbeiðni frá Ssafa, en
Vestmannaeyjaradió hafði tekið
á móti kaíli togarans, en þá hafði
togarinn fengið á sig mikinn brot-
sjó á fyrrgreindum stað. Sagði
skipstjóri togarans, að hann væri
stjórnlaus og sjór væri kominn i
skipið.
Slysavarnarfélagið brá skjótt
við og hafði samband við Land-
helgisgæzluna, sem þegar sendi
varðskipið til aðstoðar hinum
nauöstadda togara. Ennfremur
var haft samband við Varnarliðið
og það beðið um að senda flugvél
á vettvang. Sendi það strax
Herkules björgunarvél af stað og
var flugvél komin að togaranum.
rétt fyrir klukkan 19 i gærkvöldi.
Þá var togarinn kominn á skriö
aftur og lónaði hann hægt undan
veðrinu.
Togarinn Ssafa FD 155 hefur
áöur komið við sögu i haust. bað
var úti fyrir Vestfjörðum, en þá
reyndi skipstjórinn á Ssafa að
koma i veg fyrir að Ægir gæti
klippt á vira eins landhelgis-
brjótsins.
Margrét drottning boð-
ar blaðamannafund!
Brezki togarinn Ssafa frá Fleetwood — landhelgisbrjótur, sem fékk á sig brotsjó fyrir sunnan land i gær.
Timamynd Gunnar.
Annan fimmtudag ber þaö til,
er mun þykja allmikil tiðindi i
Danmörku, að Margrét drottning
hcldur blaðamannafund.
Það er einsdæmi, að danskur
þjóðhöfðingi geri slikt, og al-
kunna er, að föður Margrétar,
Friðriki konungi, var meira en
litið i nöp við blaðamenn og
blaðaljósmyndara. Honum mis-
þóknaðist mjög, þegar dóttir hans
átti fyrr á árum tal við blaða-
menn erlendis. Danskir útflytj
endur voru aftur á móti ánægðir
með það uppátæki, þvi að þeir
töldu það greiða fyrir viðskiptum.
Ástæðan til þess, að drottningin
bregður nú út af venju feðra sinna
á veldisstóli er sú, að hún vill
auka vinsældir sinar. bær raddir
hafa heyrzt, aö eðlilegast væri að
gera Danmörku að lýðveldi. Þeir
eru að visu ekki margir, er telja
slikt einhverju varða, og hinir
margfalt fleiri, er ekki vilja
missa konung sinn eða drottningu
af veldisstóli, en eigi að siður mun
henni þykja rétt að koma til móts
við almenning til þess að þagga
niður raddir, sem eru konung-
dómi andvigar.
Ssafa er röskar 400 brúttólestir
að stærð, og var byggður árið 1958
i Goole.
SLÆMT VEDUR ÚTI
FYKIR VESTFJÖRÐUM
Fyrir Vesturlandi var slæmt
veöur i gærkvöldi, og var spáð
vaxandi veðri og isingu. Um 20
brezkir togarar voru þá komnir i
var undir Grænuhlið. Á þessum
slóðum voru einnig þýzka eftir
litsskipið Fridtjof og brezka efti'.
litsskipið Ranger Brisar. lslenzkt
varöskip var einnig statt undir
Grænuhlið.