Tíminn - 10.11.1972, Blaðsíða 6
6
TÍMINN
Föstudagur 10. nóvember 1972
Um þcssar mundir heldur Guöný Stefánsdóttir sina fyrstu málvcrka-
sýningu á Mokka á Skólavöróustfg. Er þarna um að ræöa 30 myndir,
fleslar oliumyndir. (íuðný starfar hjá Landsimanum og málar einungis
i fristundum. Hún hefur stundað nám um tveggja vetra skeið i
Myndlistarskólanum, en segist hafa haft myndlistaráhugan frá barn-
æsku. Myndirnar á sýningunni eru aðallcga málaðar á árunum 1968-’71
og llestar eru landslagsmyndir málaðar með ákveðna staði sem fyrir-
myndir. A myndinni er Guðný meðeitt af verkum sínum. Timamynd
(«un nar.
Blaðafulltrúi ráðinn hjá
Félagi fsl. iðnrekenda
ÞÓ—Reykjavik.
Félag islenzkra iðnrekenda
hefur ráðið Ólaf Sigurðsson, sem
blaðafulltrúa, en Ólafur var áður
blaðafulltrúi Upplýsingaþjónustu
Bandarikjanna. Jafnframt blaða-
fulltrúastarfinu mun Ólafur ann-
ast aðra fræðslu, upplýsinga- og
kynningarstarfsemi félagsins, og
verða ritstjóri rits félagsins
.Islenzkur iðnaður”.
Ólafur er 36 ára að aldri. Hann
lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Laugarvatni
árið 1956 og hóf nám i Háskóla Is-
lands. Hann fór siðan til Banda-
rikjanna og stundaði þar háskóla-
nám um tveggja ára skeið. Siðan
varö hann blaðamaður við dag-
blaðið Visi, fulitrúi hjá verzlunar-
ráði Islands, starfaði við ferða-
skrifstofu og skrifaði einnig um
kvikmyndir i Morgunblaðið.
Siðastliðin fimm ár hefur Ólaf-
ur starfað sem blaðafulltrúi hjá
Upplýsingaþjónustu Bandarikj-
anna.
I fréttatilkynningu frá Félagi
islenzkra iðnrekenda segir, að
félaginu hafi lengi verið ljós
nauðsyn á aukinni fræðslu og
kynningu á málefnum iðnaðarins.
Iðnaðurinn veitir nú fleira f'ólki
Ólafur Sigurðsson.
vinnu en nokkur annar atvinnu--
vegur i landinu og leggur stærri
skref til þjóðarframleiðslunnar
en bæði landbúnaður og sjávarút-
vegur. Jafnframt hefur iðnaður-
inn að staðaldri notið minni fyrir-
greiðslu og aðstoðar hins opin-
bera en aðrir atvinnuvegir. Fyrir-
sjáanlegt er aö iðnaðurinn verður
að taka við þeirri aukningu á
vinnuafli, sem hér verður á næstu
árum og veldur miklu um hvernig
til tekst, að almennur skilningur á
hlutverki og gildi iðnaðar vaxi.
=-25555
14444
yísm/fí
HVJSUFISGÖTU 103
VW Sendiferðabifreið-VW 5 manna-VWsvefnvagn
VW 9manna-Landrover 7manna
Nokkurt hlé hefir nú verið á
þætti þessum og stafar það
fyrst og fremst af langri dvöl
höfundar erlendis við nám og
á alþjóðaþingum frimerkja-
safnara og blaðamanna. Auk
þess er freistandi að taka sér
svo sumarfriið erlendis, þegar
yfir pollinn er komið á annað
borð. Siðan tók við islenzka
hálendið eða Sprengisandur,
þegar heim kom og svo annir 1
við nám og kennslu hér heima.
En nú skal um bæta og hefja
þættina að nýju eins oft og
pláss er fyrir þá i blaðinu.
Þing alþjóðasamtaka blaða-
manna.er fjalla um frimerkja-
fræði.stóð i júli i Bruxelles og
var fjölsótt. Var þar að venju
fjallað um það vandamál, er
menn gera sér litið fyrir og
ræna greinum hvers annars
og setja einfaldl. undir sin
eigin nöfn. Þetta er að visu
alltaf að verða erfiðara, með
þvi að söfn eins og i Mu’- ‘hen,
sem fá öll eða flest '.imarit og
bækur um þessi efni, geta gert
mönnum viðvart um slika
hluti. Ekki fékkst þó sam-
þykkt á þinginu að beita þeim
viðurlögum að reka menn úr
sambandinu yrðu þeir sannir
að sök um þetta.
Argjöld voru hækkuð að
mun og verður þvi fé varið til
að gefa út veglegt ársrit með
skrá allra meðlima, sem m.a.
verður dreift til póststjórna,
sem beðnar verða að senda
meðlimum fréttir um nýjar
útgáfur. Innan samtakanna
eru einnig rithöfundar, sem
aðeins skrifa bækur um fri-
merkjafræði og er ekki ætlazt
til að þeir fái slikar fréttir
sendar. Er greint á milli með-
lima með stöfum við númer
hvers og eins. A = Author, eða
rithöfundur. J = Journalist,
eða blaðamaður. Var ýmsum
póststjórnum þakkað sérstak-
lega fyrir að senda ekki aðeins
myndir frimerkja sinna til
birtingar, heldur og fri-
merkin sjálf, eins og t.d.
Þýzkaland og Sviþjóð.
Margt fleira var rætt á
þinginu og menn hvattir til að
auðkenna greinar sinar með
A.I.J.P. á eftir nafni, en gæta
þess þó, að fara ekki að skrifa
i nafni samtakanna, eða telja
sig sérstaka túlkendur
skoðana þeirra. Samtökin
gefa út sérstakt timarit og er
aðeins hægt að telja greinar
þær,er þar birtast, hina opin-
beru skoðun samtakanna. Er
þetta mjög viðkvæmt mál, þar
sem samtökin kveða oft upp úr
opinberlega um hvað séu út-
gáfur, sem rétt eiga á sér og
hvaða útgáfur ætti að banna á
alþjóðlegum sýningum.
Sigurður II. Þorsteinsson.
Fjórar nýjar bækur
fró Skugqsjá
Nýlega komu i bókaverzlanir
fjórar bækur frá Skuggsjá i
Hafnarfirði. Þær eru Sögn og
saga eftir Oscar Clausen,
Skrudda eftir Ragnar Ásgeirsson,
Heyrt en ekki séð eftir Skúla Guð-
jónsson á Ljótunnarstöðum og
loks Þrettán rifur ofan i hvatt
eftir Jón Helgason ritstjóra.
Skipt á
sendiherrum
Ákveðið hefur verið að, núver-
andi sendiherra i Washington,
Guðmundur 1. Guðmundsson.
flytjist til Stokkhólms og taki við
sendiherrastarfi i Sviþjóð.
Jafnframt hefur verið ákveðið,
að Haraldur Kröyer, sem undan-
farið hefur verið sendiherra i
Stokkhólmi, taki við sendiherra-
starfinu i Washington og verði
jafnframt fastafulltrúi Islands
hjá Sameinuðu þjóðunum.
Bók Oscars Clausen ber undir-
titilinn Fróðlegir þættir um ævi-
kjör og aldarfanog i henni er að
finna æviágrip ýmissa kunnra ts-
lendinga á liðnum öldumisvo sem
sr. Daði Halldórsson, elskhugi
Ragnheiðar biskupsdóttur, Arnes
útileguþjóf, sem frægur er úr
Fjalla-Eyvindi Jóhanns Sigur-
jónssonar, en alls eru i bókinni 18
þættir. Oscar Clausen er löngu
orðinn kunnur af bókum sinum
um þjóðlegan fróðleik.
Skrudda Ragnars Asgeirssonar
er safn þjóðlegra fræða i bundnu
máli og óbundnu, sem
höfundurinn hefur safnað saman
á ferðum sinum um landið, sem
ráðunautur Búnaðarfélags Is-
lands, og er þessi nýja útgáfa
Skruddu stóraukin og endurbætt.
Heyrt en ekki séð er ferðasaga
Skúla bónda á Ljótunnarstöðum
og greinir frá för hans til Kaup-
mannahafnar til lækninga við
augnveiki hans, en Skúli er
blindur eins og kunnugt er, en
blindan hefur ekki aftrað honum
frá skriftum, en þetta er þriðja
bókin, sem kemur frá hans hendi,
og auk þess liggur eftir hann
fjöldi greina i blöðum og timarit-
um.
Bók Jóns Helgasonar er ævi-
saga hins þekkta förumanns, Jó-
hanns bera. Jón er löngu kunnur
af ritstörfum sinum, en þetta er
fimmtánda bók hans.
Heiðmörkinni
lokað
Skógræktarfélag Reykjavikur
hefur lokað Heiðmörkinni fyrir
allri bilaumferð og mun hún
verða lokuð i allan vetur.
Astæðan er sú, að vegirnir um
Heiðmörk eru aðeins gerðir fyrir
sumarumferð, og þola ekki um-
ferð þann árstima sem frost og
þiðvirði skiptast á.
Hefur hliðunum við Jaðar.
Silungapoli og Vifilsstaðahlið
verið lokað. Þeir sem vilja
ferðast um Heiðmörk meðan
hliðin eru lokuð, verða þvi, ef þeir
eru akandi, að skilja bilinn eftir
fyrir utan hlið og nota
girðingarstigann (priluna) sem
næst er hliðinu til þess að komast
inn fyrir.
YFIRFORINGJAR ÚR HJÁLP-
RÆÐISHERNUM í HEIMSÓKN
A föstudaginn kemur
stjórnandi Iljálpræðishersins i
Noregi, islandi og Færeyjum,
Hákon Dahiström kommandör, i
heimsókn til islands, ásamt konu
sinni. Munu þau dveljast hér
fram yfir helgina, stjórna for-
ingjasa nikomu og tala á al-
mennum hópsamkomum á
kvöldin.
Norskir menn hafa oft gegnt
ábyrgðarstörfum innan Hjálp-
ræðishersins viða um heim. Samt
hefur aðeins einu sinni borið við
áður, aö norskættaður komman-
dör skipi æðstu stöðu i heimalandi
sinu.
Foreldrar Hákonar Dahlström
voru Hjálpræðishersforingjar og
áttu heima á ýmsum stöðum i
Noregi. Sjálfur telur hann Osló-
borg heimaborg sina.
Dahlström lauk foringjanámi i
herskóla i Lundúnum, starfaöi
siðan eitt ár i Bretlandi, en kom
heim árið 1932 og gerðist lúðra-
sveitarkennari og sinnti tónlistar-
málum. Hann dvaldist einnig eitt
ár i Færeyjum.
Kona hans heitir Eili og var
liknarsystir áður en hún giftist.
Þau voru trúboðar i Ghana i sex
ár, og árið 1962 voru þau send til
Nigeriu, þar sem þau urðu að
lokum æðstu foringjar Hjálp-
ræðishersins og komu meðal
annars við sögu i hjálparstarfi i
Biafrastriðinu.
Siðast liðinn vetur var Hákon
Dahlström skipaður yfirmaður
Hjálpræðishersins i Noregi, Fær-
eyjum og Islandi, en hafði áður
verið yfirmaður hans i Finnlandi i
þrjú ár.
Eili og Hákon Dahlström.