Tíminn - 12.11.1972, Síða 1

Tíminn - 12.11.1972, Síða 1
IGNIS KÆLISKÁPAR A,/ RAFTÆKJADEILD Hafnarslræti 23 Símar 18395 & 86500 - Holberg reynir styrkleika körfugrindarinnar. Meö honum eru Eyjólfur Jóhannsson til vinstri og Halldór Axelsson til hægri. Körfugrindin er úr áli. —Timamynd Gunnar. Loftfararnir leggja nótt við dag Piltarnir úr Hamrahlfðarskóla vinna af miklu kappi að undir- búningi fyrirhugaðrar ferðar sinnar I hinu heimagerða loftfari sinu. Á þeim er ekki neinn bilbug- ur, þóttsumir aðrir hristi höfuðið og telji áform þeirra glæfraieg, þar sem hugsanlegt er, að loft- straumar beri þá út yfir hafið, svo að ekki reynist unnt að komast aftur inn yfir landið til lendingar og þeir verði að láta sig berast tii annars iands. Miklarkröfur hafa verið gerðar til þeirra um öryggisbúnað, svo sem að likum lætur, og nú er það næsta skrefið að fullnægja þess- um kröfum, svo að ferðin farist ekki fyrir af þeim sökum. En allt kostar þetta fé og fyrirhöfn, og þó að þessir áhugamenn séu ekki sparir á fyrirhöfnina, er pyngja þeirra ekki úttroðin af peningum. Frá þessu öllu segir Stein- grimur Pétursson blaðamaður, sem fylgdist með þeim félögum i gærog fyrradag, i rækilegri grein á 4. og 5. siðu. Enn á Mýrum í Dýrafirði á 8. degi ferðarinnar „Það var metið I fyrrahaust — þá komumst við ekki til tsafjarð- ar fyrr en á tiunda degi”, sagði Gunnar Pétursson — annar tveggja bifreiðastjóra, sem hefur nú verið á aðra viku að brjótast vestur. „Við vorum einmitt að tah-um það, ég og félagi minn, þegar þú hringdir, hvort við yrð- um enn lengur I þetta skipti.” Þeir Gunnar Pétursson frá Isafirði og Ármann Leifsson frá Bolungarvik eru bifreiðarstjórar flutningafyrirtækisins Gunnar og Ebeneser og engir viðvaningar i akstri á örðugum leiðum. Gunnar hefur ekið flutningabifreið milli Isafjarðar og Reykjavikur siðan þessar ferðir hófust haustið 1969, og i barningnum mikla i fyrra- haust, þegar sex bilar voru i ein- um flota, var Armann einn bil- stjóranna. — Erum hér á Mýrum i Dýra- firði núna, sagði Gunnar enn fremur, og það er ekki i kot visað hjá Gisla Vagnssyni og fólki hans. — Við erum með tvo þung- hlaðna bila, tólf lesta, hélt Gunnar áfram, og þetta er áttundi dagurinn siðan við lögð- um af stað úr Reykjavik. Þaðan fórum við á laugardaginn 4. nóvember og komumst þá i Bjarkarlund fyrirstöðulaust. Næstu nótt gistum við i Vatns- firði, þvi að við urðum að snúa við á Dynjandiheiði vegna veðurs. A mánudaginn komumst við svo klakklaust i Mjólkárvirkjun, þar sem við urðum að biða i tvo daga. Það var ekki fyrr en á fimmtudaginn, að við gátum fikr- að okkur lengra áfram — þá ruddi litil ýta frá Þingeyri Hrafnseyr- arheiði og loks komumst við svo hingað að Mýrum á fimmtudag- inn. Snjóflóð hafði farið yfir veg- inn innarlega i Dýrafirði norðan- verðum, og við það biðum við i fimm klukkutima, þar til veghef- ill, sem var úti á Gemlufalli, hafði greitt götu okkar. Það er ekki enn farið að ryðja Gemlufallsheiði, og það fer eftir veðri, hvenær það verður gert. Satt að segja hefur ekki viðrað svo afleitlega hér á sunnanverð- um Vestfjörðum þessa daga. Þetta hafa ekki verið nein sterk- viðri — öllu fremur þræsingur og éljagangur með talsverðri fann- komu eins og ráða má af þvi, hve seint okkur hefur gengið. Enn gengur á með éljum, en rofar þó svo til á milli, að annað veifið sér hér yfir fjörðinn til Þingeyrar. - JH Hjúkrunarkonurn- ar hjáiparheiiur — í læknisleysi og samgönguteppu TF—Flateyri. Hér á Flateyri er svo mikil atvinna, að okkur vantar fólk, og þeir þrir bátar af fjórum, sem stunda linuveiðar, hafa aflað dável — hinn aflahæsti, Torfi Ilalldórsson. 107 iestir i október- mánuði. En það veldur okkur miklum áhyggjum, að við erum læknislausir og höfum verið siðan i ársbyrjun 1971, enda þótt hér sé húsnæði handa lækni og sjúkra- skýli, sem er sæmiiega búið að tækjum I þokkabót er einnig læknislaust á Þingeyri. Héraðslæknirinn fór þaðan i haust, og siðan var þar roskinn læknir, Bjarni Guðmundsson, i mánaðartima, en er nú kominn i Búðardal. Þegar allt er á kafi i snjó eins og nú er, getur lika verið harðsótt að njóta læknishjálpar frá Þingeyri og oft raunar óhugsandi. Eini veghefillinn hér um slóðir er i Dýrafirði, og þegar verulega reynir á, eins til dæmis nú, eiga menn fullt i fangi meö að anna snjóruðningi i Dýrafirði með þessu eina tæki. Flugvöll höfum við hér i önundarfirði, og flugfélagið Vængir hefur þangað áætlunar- ferðir þrisvar i viku, þegar fært er. En þessi flugvöllur er i Holti, og þurfi skjótt til að taka i neyðartilviki i miklum fanna- lögum, getur orðið örlagarikt, að við höfum hér engin tæki til þess að ryðja veginn. Okkur er tjáð, að engin von sé til þess, að úr læknisleysinu rætist, enda þótt margsinnis hafi verið leitað til þeirra ráöamanna, er helzt ættu að geta liðsinnt okkur, og þaö er okkar eina lán, að hér i önundarfirði eru tvær hjúkrunarkonur, sem reynzt hafa okkur sannkallaðar hjálparhellur oft og tiðum — prestsfrúin i Holti, Sigurveig Georgsdóttir, og kona hér á Flateyri, Sigrún Gisladóttir, sem raunar er forfölluð eins og stendur og ekki hér heima. Þakka pólska smokkfisknum góðan afla ÞÓ—Keykjavik. Gæftir voru góðar og Hnuafli óvenjulega góður hjá Vest- fjarða*bátum I október, en að jafnaði fengu bátarnir 6-8 lestir I róðri, og hefur það ekki komið fyrir slðan á haustvertlð 1961. Útgerðarmenn og sjómenn á Vestfjörðum þakka þennan afla góðri beitu, sem keypt var til landsins i haust, en það var smokkfiskur, sem útgerðarmenn vestra keyptu frá Póllandi. Sjáifur smokkfi-skurinn er veiddur af póiskum verksmiðju- togurum við N vfundnaland,og er hann frystur um borð I þeim. Vegna þessa góða afla á smokkfiskinn, er von af meira magni af honum nú á næstunni. Kristján Benediktsson Kristinn Finnbogason úm þessa helgi verða fram kvæmdastjóraskipti við Timann. Kristján Benedikts- son, sem verið hefur framkvæmdastjóri blaðsins siðan I júnlbyrjun 1964, hverfur nú frá þvi eftir mikið og gott starf þau rúm átta ár, er hann hefur skipað þetta sæti. Kunna allir aðilar honum mikla þökk fyrir þá forsjá, sem hann hefur veitt blaðinu nú á niunda ár. Við fram- kvæmdastjórastarfinu tekur Kristinn Finnbogason fram- k væmdast jóri, sem gegnt hefur margvislegum störfum fyrir Framsóknarflokkinn á liðnum árum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.