Tíminn - 16.11.1972, Side 1

Tíminn - 16.11.1972, Side 1
IGNIS KÆLISKÁPAR RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐJAN SÍMI: 19294 H c 263. tölublað — Fimmtudagur 16. nóvember — 56. árgangur kæli- skápar XÍJxjöbbtct/MM^ÉJÍeLft, A/ RAFTÆKJADEILD Hafnarsiræti 23 Símar 18395 & 86500 Tillögur Hafrannsóknarstofnunar um nýtingu fiskimiðanna: Allar veiðar háðar leyfum nema línu- og handfæraveiðar Reistur hefur verið 4 metra hár veggur við endann á fangelsinu, svo að fangarnir geti fengið sér ferskt lolt, án þess að á þá sé horft. Timamynd: GE „Hóter'Síðumúli aftur í notkun — verður varðhalds- og kvennafangelsi eftir áramótin Klp—Reykjavík Pessa dagana er unnið af fuilum krafti við að lagfæra fanga- geymslu lögreglunnar við Siðu- múla, sem hætt var að nota fyrir tveim árum. Þar er unnið að þvi að setja upp kvennafangelsi og varðhaldsfangelsi, sem fyrir- hugað er að taka i notkun um næstu áramót. Að sögn Jóns Thors, deildar- stjóra i dómsmálaráðuneytinu, var ákveðið fyrir nokkru að taka þetta hús undir kvennafangelsi og varðhaldsfangelsi, Var það orðið mjög aðkallandi, því hér er ekkert fangelsi fyrir konur nema i nýju lögreglustöðinni við Hverfis- götu, þar sem örfáir klefar eru handa þeim, sem teknar eru úr umferð um stundarsakir. Einnig hefur mjög vantað varðhalds- fangelsi, en það er staður, þar sem menn eru geymdir i stuttan tima. Sem dæmi mætti nefna, að þeir, sem hljóta dóm fyrir ölvun við akstur.eru oft dæmdir i varð- hald, og þarna ættu þeir að taka hann út. Sama gildir einnig um þá, sem dæmdiryrðu i varðhald i stuttan tima einhverra hluta vegna. Við brugðum okkur i gær að skoða þennan stað, sem lengi bar nafnið Hótel Siðumúli og á sjálf- sagt eftir að halda þvi i næstu ár. Þegar okkur bar að garði, var verið að ljúka við smiði á 4 metra háum vegg, sem er við endann á húsinu. Er hann gerður til aö fangarnir geti verið úti undir beru lofti, en þeir, sem eru dæmdir i varðhald, eiga rétt á þvi. Húsið hefur verið málað i hólf og gólf. Frh. á bls. 15 ÞÓ—Reykjavik. Hafrannsóknarstofnunin hefur nú sent frá sér tillögur um nýtingu islenzkra fiskstofna. Til- lögur þessar eru mjög viða- miklar, enda er hér um langtima- áætlun að ræða, og allir vita hve tæpt íiskstofnarnir við Island standa um þessar mundir. 1 til- lögum Hafrannsóknarstofnunar- innar er gert ráð fyrir, að svo til allar veiðar verði háðar leyfum, nema linu- og handfæraveiðar. 1 inngangsorðum tillagnanna segir, að Hafrannsóknarstofnunin telji nauðsynlegt, að þær ráð- stafanir, sem gerðar verða til að hafa stjórn á fiskveiðum innan 50 sjómilna markanna, miði fyrst og fremst að þvi, að fiskstofn- arnir verði nýttir á sem hagkvæmastan hátt, án þess að viðkomu þeirra og viðgangi sé stefnt i hættu Almennt megi segja, að hagnýtingin verði bezt, ef veiðar á ungfiski eru tak- markaðar þannig, að fiskurinn fái frið til að vaxa og þyngjast áður en hann er veiddur. Til þess að tryggja viðkomu og viðgang fiskistofna þarf hins vegar að stilla fiskveiðum svo i hóf, að hrygningarstofn haldist tiltölulega stór og draga þar með úr likum fyrir þvi, að klak misfarist sökum smæðar hrygningarstonfsins. Stofnunin bendir á, að til þess að ná þvi tviþætta marki, sem um ræðir, hafi einkum verið beitt fimm mismunandi aðferðum: 1. Akvæði um lágmarksstærðir 2. Lokun eða friðun veiðisvæða, sem ýmist er timabundin, eða gildir allan ársins hring 3. Ákvæði um hámarksafla. 4. Ákvæði um gerð veiðarfæra. 5. Ákvæði um leyfis- veitingar til veiða. Hafnrann- sóknarstofnunin leggur til, að öllum þessum aðferðum verði beitt eftir þvi, sem við á,. I kaflanum um skipulag fisk- veiða segir að leggja verði rika áherzlu á, að hlutlausu visinda- legu efitrliti verði beitt i mun rikari mæli en hingað til, svo unnt verði að breyta gildandi reglum með stuttum fyrirvara i samræmi við ástand hverju sinni. Varðandi reglur, sem settar eru um hag- kvæma nýtingu fiskstofna okkar, vill llafnrannsóknarstofnunin taka fram, að eflirlit með veiöunum er i molum, auk þess sem alllof vægt er tekið á brotum á þeim. Segir, að ef ekki verði ráðin bót á þessum atriðum, verði skynsamlegri nýtingu aldrei náð. Til að auka aðhald með veiðum ____________Frh. á bls. 15 Tölvan ringluð Þessa daga rignir yfir fólk lögtakshótunum frá rikis- útvarpinu vegna vangreiddra afnotagjalda. Eitthvað virðist þó hafa skolazt til i sumum til- vikum, þvi að blaðið veit þess þó nokkur dæmi, að fólk, sem greiddi afnotagjaldið á réttum tima og á i fórum sinum kvittanir, hefur fengið þessar lög- takshótanir. Sökinni er kastað á tölvu, sem kvað vera eitthvað ringluð. EG AÐ ER FUS TIL GERA ALLT — sem embættisskylda mín leyfir, segir framkvæmdastjóri Loftferðaeftirlitsins Það liefur ekki strandaö á okk- ur hér, að piltarnir úr Hamrahliö- arskóla fái sinu framgengt og reyni loftfar sitt. ftg skil mætavcl löngun þeirra til þess að koma þessu i kring og met áhuga þcss- ara ungu manna. Og ég cr fús til þess að hjálpa þeim cins og ég get og gera það fyrir þá, sem emb- ætlisskylda min leyfir. Þannig fórust Sigurði Jóns- syni, framkvæmdastjóra loft- ferðaeftirlitsins,orð við Timann i gær. — Ég er ekki andvigur tilraun- inni eins og sjá má af þessu, þótt á hinn bóginn sé þess að gæta, að þetta er allra óheppilegasti árs- timinn til slikra tilrauna. En satt bezt að segja hefur ekki enn á þessari stundu, er ég segi þetta, verið formlega sótt um leyfi til þessarar flugferðar né fyrir mig Frh. á bls. 15 Bæði tuttugu og eins árs - og verða í vetur í athugunarstöðinni á brúnum Eyjafjarðardals Séð eftir ganginum i varðhaldsdeild fangelsisins við Siðumúla. Ung hjón úr Reykjavik, Guðrún Siguröardóttir og Hafsteinn Ingvarsson.bæöi tuttugu og cins árs, hafa verið ráðin til vetursetu i skálanum, sem reistur hefur vcrið á brúnum Eyjafjarðardals. Guðrún hefur unnið I Kjötbúð Vesturbæjar og Hafsteinn hjá Kassagerö Reykjavikur. — Þetta verða auðvitað tals- verð viðbrigði, sagði Guðrún, þegarTiminn átti tal við hana, en við gerum okkur beztu vonir um, að okkur liði vel þarna i fásinninu uppi á hálendisbrúninni i vetur, þó að þar sé sjálfsagt stormasamt. Jú — þetta verður dálitið annað en að spjalla viö húsmæöur, sem eru að kaupa handa sér i matinn, eða vigta lifur og lærissneiðar. Við förum með fulla kassa af bókum til þess að lesa, og við höfum ánægju af bóklestri. Nú getum við veitt okkur það. Og svo ætlum við kannski að stunda eitt- hvert tungumálanám inn á milli. Þau Guðrún og Hafsteinn voru valin úr fjölmennum hópi umsækjenda, þvi að sú er jafnan reyndin, að enginn hörgull er á fólki, sem vill hafa vetursetu i athugunarstöðvum af þessu tagi.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.