Tíminn - 17.11.1972, Blaðsíða 19
Föstudagur 17. nóvember 1972
TÍMINN
19
Gáfust upp
NTB— Katmandu
Brezkur leiöangur, sem á eftir
618 metra upp á tind Mount
Everest, tilkynnti i gær, að leið-
angursmenn hefðu gefizt upp við
að reyna að ná tindinum vegna
mikils hvassviðris og snjókomu.
Er þetta fjórða tilraun fjall-
göngumanna til að reyna að klifa
Everest suðaustanfrá,sem mis-
tekst. Everest hefur fimm sinn-
um verið sigrað siðan 1953, og
hafa allir þeir leiðangrar klifið
suðurhlið fjallsins, en það er sagt
hreinasti barnaleikur hjá suð-
austurhliðinni.
Á þriðjudaginn sögðu brezku
leiðangursmennirnir í skeyti, að
þeir ættu aðeins eftir 618 metra
upp, en ætluðu að slá upp tjöidum
og tveir leiðangursmanna siðan
að klifa siðasta spottann. En nú
hafa þeir sem sé hætt við það.
Að gefnu tilefni
óskar undirritaður að koma
eftirfarandi á framfæri. Ég hef
ekki á nokkurn hátt tekið þátt i
gerð fóðuruppskriftar fyrir
fóðurstöð minkabúanna
suðvestanlands né haft með
höndum eftirlit með minkafóðri i
þau u.þ.b. tvö ár, sem minkarækt
hefur verið stunduð hérlendis að
nýju. Ég var á þeim fundi með
Gunnari Jörgensen i ágúst 1971,
sem Þorvaldur G. Jónsson
minntist á i grein sinni i Mbl.
7.11. ’72. og vann að nokkurri
gagnasöfnun með Gunnari
Jörgensen i tvo daga. Það er allt
og sumt. Ég hef tjáð nokkrum
framámönnum i minkamálum
álit mitt á mikilvægi fóðurupp-
skriftar fyrir minka. Ég er
þeirrar skoðunar, að sérfræði-
þjónustu eigi að stunda á ráð-
gjafagrundvelli eingöngu.
Tilefni skrifa minna er það, að
ég hef verið bendlaður af
ókunnugum við margumrætt
afurðatjón minkabúanna á þessu
ári. Reykjavik, 15.11. ’72.
Jónas Bjarnason
Sauðfjáreigendur
Farið sem fyrst á vetrum að
gefa ánum lýsi, — það eykur
hreysti þeirra og mótstöðu gegri
sjúkdómum. Ullin vex og verður
betri. Þær verða frjósamari og
gefa meiri afurðir.
Rýið þær kindur, sem éru i
tveimur reyfum strax og fé er
tekið á gjöf, og látið snöggar ær
og þær, sem rýrar eru, fá sérstak-
lega góða aðhlynningu meðan ull-
in er að vaxa svolitið.
Allt fé i tveimur reyfum á skil-
yrðislaust að vera búið að rýja
fyrir jól. Sauðfjárverndin.
Vfðivangur
vanda verður að mæta. Um-
fram ailt þarf að leysa þann
vanda á þann hátt, að sá
árangur, sem náðst hefur i
bættum kjörum verkafólks
verði tryggður. Þeir, sem
halda, að það verði gert með
þvi að dansa eftir pipum
Jóhanns og Gylfa, hljóta að
liafa gengið i pólitiskum svefni
undanfarin 10 ár. — TK
Framhald
af bls. 8.
á alla framtið þess, en einkanlega
fagnaði hann þeirri komandi tið
þegar Italir gætu réttilega sagt
„Kaupmannahöfn min”. Nú geta
Italir sagt það!
öðruvisi er þessu farið með ís-
land. — Samtimis þvi, að stóð til i
Danmörku að greiða atkvæði um
inngöngu i Efnahagsbandalagið,
þá var Gullfoss, sem lengst hefur
siglt til Danmerkur, til sölu. Þetta
langvarandi samband milli Is-
lands og Danmerkur verður lik-
lega á enda fyrir áramót. Þar er
nú skorið á tengslin milli land-
anna, og geta Islendingar ekki
sagt „Kaupmannahöfn min”,
jafnvel þótt einhver islenzk skip
leggi leið sina til Hafnar enn um
tima, — sem að likindum verður
ekki mikið um i framtiðinni, þar
sem Danmörk er háð viðskipta-
Kýr til sölu
Til sölu kýr á ýmsum aldri. Upplýsingar i
simum 4-39-29 og 99-4271.
samningum Efnahagsbandalags
Evrópu frá næstkomandi áramót-
um, en Island er ekki meðlimur
þess sambands, og verða Is-
lendingar þá að greiða tollgjöld af
öllum viðskiptum við EBE-
þjóðirnar. Minnkar þá tilgangur
skipaferða Islendinga til Dan-
merkur, má vera að það hafi is-
lenzkir skipaeigendur nú þegar
séð fyrir.
Tilgangur Efnahagsbandalags-
ins er sá, að samræma viðskipti
EBE-þjóðanna, og vernda hags-
muni þeirra út á við.Er það gert
með þvi m.a. að halda öðrum
löndum frá markaðinum með
tollaálögum, ella með öðrum
kosti að græða það, sem tollgjöld-
in nema. Vitanlega er nú Dan-
mörk háð þeim samningum og
verður að vera samtaka öðrum
EBE-rikjum i efnahagsráðum, og
getur þá ekki haft frjálst sam-
band við ísland. Hætt er við að
úr þessu minnki samskipti þess-
ara tveggja Norðurlanda.
Þetta er hin raunverulegu áhrif
Efnahagsbandalagsins, og verða
nú tslendingar að fara að átta sig
á, hvar hagkvæmast er fyrir þá
að verzla, þvi að mikil verzlunar-
sambönd hafa verið milli Islands
og þjóða EBE. Ekki er það siður
alvarlegt til athugunar fyrir ís-
lendinga, með hverjuþeireiga að
greiða sinar vörur, þar sem ein-
mitt þessar sömu EBE-þjóðir
vilja nú reyta til sin þau einu auð-
æfi, sem tsland á til, en það er
fiskurinn af miðunum innan
fimmtiu milna landhelgi tslands.
Án auðæfa eða náttúruauðlinda
standa þjóðir höllum fæti i efna-
hagsviðskiptum, og munu Bretar
hafa áttað sig á þessu að ein-
hverju leyti, um það bil, er þeir
voru að gerast meðlimir EBE. En
snauðir eru Bretar án Kanada,
Ástraliu og Nýja Sjálands.
Þjóðir bandalagsins, einkum
Bretar, Þjóðverjar, Frakkar,
Hollendingar og ltalir, hafa ekki
um liðnar aldir verið þekktir að
þvi, að kaupa þau auðæfi, sem
þeir hafa getað haft undir sig á
annan hátt, eða getað kallað sin.
Nú eru allar þessar þjóðir háðar
efnahagsreglugerðum EBE, og er
nú eftir að vita hvernig verður
sambandið milli nýrra vina.
tsland er ekki eina landið, sem
hefur rika ástæðu til þess, að
reyna að átta sig á aðstöðu sinni
gagnvart Bretlandi og EBE, þvi
að nú nýlega gaf Heath yfir-
lýsingu um það, að 1. janúar
næstkomandi verði allir þegnar
Bretaveldis i Kanada, Ástraliu,
Nýja Sjálandi, HongKong og
ýmsum smálöndum i Afriku háðir
sömu viðskiptalögum og ibúar
landa utan brezka rikisins.
Þannig hefur Heath nú skyndi-
lega gert mikla breytingu á að-
stöðu margra milljóna brezkra
þegna. Ekki var til kosninga farið
með þetta, svo að búast má við að
ýmislegt verði það, sem geti
komið flatt upp á menn varðandi
EBE, og mun ekki enn ljóst, hver
verður stefna Efnahagsbanda-
lagsins. Nú er ibúum þessara
sambandsrikja Bretlands sópað
til eins og peðum af borði. Þó hafa
þessi riki lagt i sölurnar hundruð
þúsundir mannslifa og óteljandi
fjármagn Bretlandi til stuðnings i
tveimur heimsstyrjöldum, og
með þvi varnað þvi að Brétland
væri hernumið af hernaðarvaldi
Þjóðverja og Itala. Heath leiðir
nú Bretland inn i Efnahagssam-
band Evrópu — i samband við
þessar þjóðir. — Fer þá eins og
skáldið okkar, Stephan G.
Stephanson, orti forðum.
Samt er ekki allt komið enn i
ljós. Óséð er enn um það, hvort
þessar auðugu þjóðir ætlist til aö
þeirra auðæfi gangi jafnt til Bret-
lands, þótt ibúum þeirra sé leikið
til eins og peðum á skákborði.
Vera má, að Bretar telji sér auð-
æfi Kanada og annarra sam-
bandsrikja þeirra fornra sem sin
eigin, — eins og þeir vilja telja sér
auðæfi sjávarins við Island.
Hvort ætli tsland megi vænta
griða af þvi stórveldi, er jafn
köldum ráðum beitir sina eigin
þegna!?
Það er kominn timi til, að átta
sig betur á stöðunni i þessum ör-
lagaleik stórþjóða Efnahags-
bandalags Evrópu.
ALLIR VEGIR
FÆRIR Á
Yokohama
SNJÓBÖRÐUM
BÍLAVERKSTÆÐI
DALVÍKUR
JÓLAKORT
eftir filmum
yöar
pantió í tínia
mMWMWQiWQ)
Ausíiirstræti,
Áttþúhhtíí
banka?
Samvinnubankinn hefur ákveðið:
að auka hlutafé bankans úr tæpum 16 millj. króna
í allt að 100 milljónir,
að bjóða öllum samvinnumönnum að gerast hluthafar,
að gefa þér þannig kost á að gerast virkur
þátttakandi í starfsemi bankans.
Hlutafjárútboðið er hafið á 10 ára afmæli bankans.
Hlutabréfin eru að nafnverði 5 þús., 10 þús.
og 100 þús. krónur. Helmingur greiðist við áskrift, en
afgangurinn innan árs.
Upplýsingar og áskriftalistar í aðalbankanum,
útibúum hans og í kaupfélögunum um land allt.
Hér er tækifæri til að eignast hlut í banka.
Vilt þú vera með?
SAMVINNUBANKINN
BANKASTRÆTI 7, RVÍK. SÍMI: 20700