Tíminn - 19.11.1972, Side 2
2
TÍMINN
Sunnudagur 19. nóvember 1972
HBS
Verksmiojan Höttur, Borgarnesi
framleiðir margar gerðir og liti af
léttum, hlýjum loðhúfum úr íslenzk
um skinnum. Merkið tryggir gæðin.
••
Gleymið ekki HOFIJÐATRIÐIIVIJ
í kuldanum!
Útsölustaóir:kaupfélögin og sérverzlanirum land allt
Árelíus Níelsson:
Þjónustan
Félagasamtökin Vernd hafa
nýlega sent frá sér 11. árgang
timarits sins, sem ber sama nafn
og heitir Vernd.
Þetta hefur alltaf verið ágætt
rit og er þetta hefti ekki sizt fjöl-
breytt að efni og fallegt.
En raunalegt er, að svo má
virðast, að vegna f járhagsörðug-
leika þessara merku og fjöl-
mennu liknarsamtaka kom ritið
ekki út á siðasta ári.
Samt hafa þessi samtök
sannarlega markað spor i liknar-
málum þjóðarinnar hin siðari ár.
Og liklegt má teljast, að hinn
ötuli brautryðjandi og fram-
kvæmdarstjóri Verndar, frú Þóra
Einarsdóttir, verði talin meðal
skærustu ljósa kristninnar á
tslandi á þessari öld.
Samt mun sumum finnast, að
hún sé likt og rödd hrópandans i
auðninni meðal sinnar samtiðar.
Um það sjá tómlæti og tregða
fólks til þess, sem gott er annars
vegar og sú árátta múgsins hins
vegar, sem reynir að snúa við-
leitni sinna beztu vina á versta
veg með banvænum orðum bak-
mælgi og lasti, sem vakið er af
öfundarrótum.
En frú Þóra lætur ekkert á sig
fá. Og þannig verður hún vegljós
og verndari þeirra, sem i myrkur
hafa ratað. Þrátt fyrir stöðugan
fjárskort og óteljandi ljón á vegi,
hefur frú Þóru og félagasam-
tökum hennar, sem stundum eru
nú aðallega hún ein, tekizt að
vinna ómetanlegt brautryðjenda
starf fyrir þá, sem önnur kona
andlega skyld Þóru nefndi
„Aumastir allra".
Það eru ekki einungis fangar og
fyrrverandi fangar, sem hafa
notið góðs af starfi og hugsjónum
Verndar, þarhafa aðrir einnig að
unnið t.d. Oscar Clausen, sem á
þar fyrstu sporin og fágætt
fórnarstarf, heldur eru það ekki
siður drykkjumenn og afvega-
leiddar stúlkur, sem hafa leitað
til „Þóru i Vernd". Það eru orðin
algeng orð með vonarglampa i
augum hjá vesalingum bak við
tjöldin i Reykjavik.
Og á þeim tiltöiulega stutta
tima.sem félagasamtökin Vernd
eiga að baki hefur ótrúlega margt
áunnizt fyrir þetta bágstadda
fólk, „sem ekki megnar sjálfu sér
i sinni neyð að bjarga”.
Stundum er það Vernd ein, sem
á þar hlut að máli, stundum ein-
hvern hlut eða i samst. við aðra
svipaða liknarstarfsemi.
Fyrst skal hér minnt á jóla-
fagnað fyrir einstæðinga á jóla-
nótt, sem frú Sigriður Magnússon
hefur haft yfirumsjón, meö á
vegum Verndar. Þar hefur margt
gott fólk að unnið og stundum
hafa þar opnast hlið fyrir aðstoð
við þá, sem annars huldust i
skuggunum. Þá skal gétiö um
aöstoð og fylgd \ið ungar konur
og eldri, til að komast á erlend
hæli og hjálparstofnanir. En
mörgum er Þóra búin að fylgja
yfir hafið, hjálpa þeim og hug-
hreysta, unz i öruggar hendur var
komið.
Og nú er þar næsta skrefið, sem
ekki má fatast né gleymast, en
það er milliríkjamál og
samningar til handa þeim, sem
ekki eru sakhæfir en sekir þó,
vegna sjúkleika og þurfa aö
dvelja á sjúkrahúsi frekar en i
fangelsi. Slikar deildir fyrir geð-
veila afbrotamenn höfum við ekki
i okkar fæð og smæð. En alltaf
geta verið til og er til einn eða
fleiri, sem þurfa á slikri aðstoö að
halda hér.
Fangelsispresturog hjálp hans
við sálgæzlu og aðstoð hefur verið
hugsjón Verndar frá upphafi. Sú
hugsjón er nú orðin að veruleika.
Sr. Jón Bjarman er nú orðinn
hinn fyrsti sJdpaði fangelsis-
prestur. En sá, sem þetta ritar
vissi þess fulla þörf fyrir meira en
30 árum.
Lög um endurhæfingu fanga og
drykkjusjúkra hef'ur einnig vérið'
hugsjón og baráttumál Verndar.
Þar hefur verið stórt spor i áttina
stigið fyrir þolgæði og markvissa
baráttu þessara samtaka i sam-
starfi við fleiri liknar- og fræðslu-
samtök þjóðarinnar. Er nú verið
að opna hjálparstöð á Vífil-
stöðum fyrir fólk, sem þarfnast
endurhæfingar. Og mjór er mikils
visir.
Gistiskýli á fyrrverandi
Farsóttahúsi má einnig teljast
framkvæmd Verndar. En það var
mikil nauðsyn og bætti úr brýnni
þörf ótrúlega margra útigangs-
manna, sem hvergi áttu athvarf i
borginni, nema þá helzt i aflóga
skipsflökum eða opnum kjallara-
holum.
Samt er enn ótalið það, sem þó
er grunnur og hornsteinn þessa
alls, en það er vaka Verndar, ef
svo mætti segja,. leiðbeininga-
stöðin sjálf, skrifstofan i Grjóta-
götu 14A og 14B. En þar hefur
einnig verið gistiskýli, eða
nokkurs konar biðskýli, fyrir bæði
fanga og drykkjusjúka, meðan
þeir biðu eftir áthvarfi eða vinnu.
Og mikil væru launin, sem frú
Þóra ætti skilið fyrir allt starfið.
allar stundirnar þar jafnvel bæði
dag og nótt, ef nauðsyn ber til,
þrátt fyrir ágætt starf aðstoðar-
manna sinna.
En þau laun verða liklega ekki
goldin i peningum. Enda yfir það
hafin, eins og flest, sem bezt er
gert.
Liklega verða störf Verndar
aldrei til gulls metin, hvorki sem
dagvinna, eftirvinna eða nætur-
vinna.
Það væru sem betur fer ótrú-
lega margir auðmenn hjá þessari
þjóð, ef öll slik störf væru metin
og launuð að verðleikum. Og
meðal milljóneranna væri „Þóra
i Vernd” með þeim rikustu. Heill
þeirri þjóð, sem á slika þegna
sem „Þóru i Vernd”.
fSÖKK*K ''
KftFCEYNIt
þjónusta - saía - hleðsla - viðgerðir
Alhliða rafgeymaviðgerðir og hleðsla
Notum eingöngu og seijum járninnihaldslaust
kemiskt hreinsað rafgeymavatn
Næg bílastæði — Fljót og örugg þjónusta .
I 1=^ «S MED
^^^.augavegi 168 — Sími 33-1-55