Tíminn - 19.11.1972, Blaðsíða 5
Sunnudagur 19. nóvember 1972
TÍMINN
5
Hjálparhella
Nokkrir stjórnarnianna Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra ásamt
starfsfólki æfingastöðvarinnar að Háaleitisbraut 13.
OPIÐ ALLAN
DAGINN
Kaupiö
jólagjafirnar
timanlega
Eigum jólakerti í
úrvali, ásamt
postulínsstyttum,
keramiki, skraut-
speglum og ýmsu
fleiru.
RAMMAIÐJAN
óöinsgötu 1
lamaðra og fatlaðra 20 ára um
þessar mundir
Klp—Reykjavík
A þessu ári eru liðin 20 ár
siðan Styrktarfélag lamaðra
og fatlaðra var stofnað.
Sunnudagurinn 2. marz 1952
telst vera stofndagur, en áður
hafði verið haldinn undir -
búningsfundur og þá tekin
ákvörðun um stofnun félags-
ins.
Fyrst i stað voru tekjur
félagsins aðeins félagsgjöld og
frjáls framlög, en árið 1953
fékkst leyfi fjármálaráðu-
neytisins að merkja sérstak-
lega hluta af eldspýtustokkum
og selja þá á hærra verði.
Þetta er eini fasti tekjustofn
félagsins, en á siðasta ári
námu tekjur af þessari sölu
1.821 þúsund kr. Önnur megin
fjáröflun félagsins hefur verið
ágóði af simahappdrættinu.
Agóði af þvi var á siðasta ári
1.253 þúsund kr. Um þessar
mundir er nýtt simahapp-
drætti i gangi og er rekið i
stærra og breyttu formi.
Standa vonir til.að ágóði af þvi
verði meiri en nokkru sinni
fyrr,og gáfu siðustu tölur svo
sannarlega visbendingu um
það, en þær sýndu.að ágóðinn
var kominn yfir tvær milljónir
króna.
Auk þessara tekjuliða hafa
félaginu borizt margar góðar
gjafir frá velunnurum þess, og
eru það bæði húseignir og pen-
ingagjafir.
Árið 1955 festi félagið kaup á
húsinu Sjafnargötu 14 og var
þvi breytt i æfingastöð. Fyrsta
árið,sem stöðin var starfrækt,
komu i hana 127 sjúklingar og
fengu 4.406 æfingameðferðir.
Aukin aðsókn var að stöðinni
næstu árin og siðasta starfsár
hennar, sem var árið 1968,
komu þar 526 sjúklingar og
fengu 11.653 æfingameðferðir.
Um haustið 1968 flutti stöðin i
nýtt húsnæði að Háaleitis-
braut 13, þar sem er mjög
fullkomin aðstaða, eins og t.d.
sundlaug, æfingaklefar með
góðum tækjum og margt
fleira. 1 nýju stöðina komu á
siðasta starfsári 762
sjúklingar og fengu 15.478
æfingameðferðir.
Auk æfingastöðvarinnar að
Háaleitisbraut 13 hefur félagið
rekið sumardvalarheimili
fyrir fötluð börn i Reykjadal i
Mosfellssveit. Þar hafa verið
gerðar miklar endurbætur,
m.a. byggð sundlaug og
búningsklefar, svefnskáli og
margt f 1. Nú siðustu þrjá
vetur hefur verið rekin þar
heimavistarskóli fyrir fötluð
börn og hafa 2 fastir kennarar
verið þar ásamt nokkrum
stundakennurum.
Frá stofnun félagsins hefur
Svavar Pálsson verið for-
maður þess, en á aðalfundi,
sem haldinn var fyrir
skömmu, baöst hann ein-
dregið undan endurkjöri. Á
þeim fundi var kosið fimmtán
manna framkvæmdarráð, og
var Friðfinnur Ólafsson
kosinn formaður þess. Þar
var einnig samþykkt að ráða
Eggert G. Þorsteinsson, fyrrv.
ráðherra, framkvæmdastjóra
félagsins, og mun hann starfa
á skrifstofu félagsins nokkra
tima á dag.
i sundlaug æfingastöðvarinnar að Háaleitisbraut 13. Kennarinn er þarna að þjálfa ungan lamaðan pilt,
sem er mjög ánægður með að vera þarna. (Tímamyndir Róbert)
Auglýsingastofa Timans er í Bankastræti 7
19523 ‘2'18300
Electrolux
li
s HRÆRIVÉL i
I
/^■'•ygga
FYLGIHLUTIR:
ALLTINNIFALID í VERÐI
☆ Timastillir
☆ Skál
☆ Hakkavél
☆ Hnetukvörn
☆ Mixari
☆ Dropateljari
☆ Sitrónupressa
☆ Grœnmetiskvörn
☆ Þeytari
☆ Pylsujárn
Vörumarkaðurinn hf.
ÁRMÚLA 1 A - SÍMI 86-112^1
3