Tíminn - 19.11.1972, Side 17
Sunnudagur 19. nóvember 1972
TÍMINN
17
Ólafur Gunnarsson, lénsskólasálfræðingur:
Hvað gerír lénsskólanefnd?
Nýi menntaskólinn sænski mun
ekki eiga neina hliðstæðu i ná-
grannalöndunum, og er enn sem
komið er nýung i sænsku fræðslu
kerfi. Allt fram á siðustu ár var
nemendur á menntaskólaaldri að
finna i þrennskonar skólum. 1)
Menntaskólum, sem nú hafa
hlotið heitið gamli menntaskól-
inn, til aðgreiningar frá hinum
nýja 2) Fagskólum (fackskolan),
sem einkum var ætlaður nemend-
um, sem að visu hugðu á fram-
haldsnám að skyldunámi loknu,
en voru ekki með langt og erfitt
háskólanám i huga.
Ég minnist þess, að fjöldi nem-
enda úr þessum skóla leituðu að-
stoðar skólasálfræðinga, oftast i
sambandi við sálræn vandamál,
sem nemendurnir sjálfir eða for-
eldrar þeirra höfðu skapað.
Þegar þetta er skrifað er ég með
góðu árin i huga, þegar allir, sem
höfðu hæfileika og vilja til lang-
skólanáms gátu fengið aðgang að
hverskonar langskólanámi og at-
vinnumöguleikarnir biðu við
dyrnar þegar út var komið úr hin-
um ýmsu deildum menntaskóla
eða háskóla.
Þessir timar eru nú að sinni
breyttir. Háskólamenntun er ekki
lengur óbrigðul hvað örugga leið
til vellaunaðrar atvinnu snertir,
og verður vikið að þvi siðar i
greininni.
Þriðji skólinn i gamla kerfinu
var yrkisskólinn (yrkesskolan) og
gengu i hann nemendur, sem ekki
kærðu sig um langvinnt bóknám,
en sem stefndu að hagnýtum
störfum, sem útheimtu sér-
menntun á einhverju sviði.
Siðan nýi menntaskólinn kom
eru allir þessir skólar sameinaðir
undir einu þaki a.m.k. i óbeinni
merkingu orðsins. Rektor ei
aðeins einn i þessum nýja skóla,
en yfirkennarar eru að jafnaði
fleiri en einn, oft 3-4 og starfar
hver þeirra i sérstakri deild skól-
ans.
Ég skal i þessari grein lýsa litil-
lega menntaskólanum i Falken-
berg, sem hóf starfssemi sina
haustið 1971 með 700 nemendum,
en rúmi fyrir 900. Námsgreinar
menntaskólans voru 15-16. Sama
haustið og nýi menntaskólinn i
Falkenberg tók til starfs hóf ég
starf sem lénsskólasálfræðingur i
Halllands léni. (Sjá greinina.
Hvað gerir lénsskólanefnd?
Falkenberg er litil borg við
vesturströnd Hallands, milli
Halmstad og Varberg. Ibúar
borgarinnar eru aðeins 13.000 en i
Falkenberghéraði öllu búa 30.000
manns. Nýi menntaskólinn i
Falkenberg er þannig skólamið-
stöð i heldur fámennara fræðslu-
héraði en velflestir nýju mennta-
skólarnir i Sviþjóð.
Gamalli leðurverksmiðju
breytt i menningarmiðstöð
Þegar inn er komið i nýja
menntaskólann i Falkenberg
dylst manni ekki, að hér er um
næsta nýstárlegt skólaumhverfi
að ræða. Á neðstu hæðinni er
3.500 fm. stór skáli, sem er mið-
depill skólans. Það sem fyrst
vakti athygli mina, þegar ég kom
þarna inn, var óvenjulega stórt
bókasafn, mjög vandað, bæði að
útlitiog gæðum. Stærð bókasafns-
ins byggðistá þvi, að hér var ekki
aðeins um venjulegt skólabóka-
safn að ræða, heldur var bóka-
safnið samtimis bæjarbókasafn
Falkenbergsbúa. Ég athugaði
mér til gamans hversu margir is-
lenzkir rithöfundar ættu bækur á
þessu glæsiiega safni og fann
strax margar bækur eftir Gunnar
Gunnarsson og Halldór Laxness.
Yngri höfundar voru sýnilega
ekki enn nógu þekktir til þess að
vera keyptir á safnið, þó minnir
mig ein bók vera þar eftir Guð-
mund Danielsson. Snorri Sturlu-
son var hinsvegar einn af uppá-
haldshöfundum bókavarðar eða
annarra sem völdu bækur i
safnið.
Það sem næst vakti athygli
mina var að mismunandi litir
voru á öllu i skálanum, en á þvi
fyrirbrigði fékk ég fljótlega skýr-
ingu þegar dr. theol. Jan Jansson
yfirkennari, hóf að skýra fyrir
gestum alla starfssemi skólans.
Litirnir i skólanum sýndu gest-
um i hvaða deild þeir væru stadd-
ir, þannig táknaði einn liturinn
stærðfræði, annar tungumál og
hin þriðji aðrar greinar sem
kenndar eru i menntaskólum og
sem einu nafni kallast „orienter-
ingsámnen” á sænsku. Sérstök-
um stofnunum innan skólans er
einnig skipt eftir litum og höfðu
þvi tæknifærði, fjárhagsfræði og
náttúrufræði sinn litinn hver. Svo
vel var þessi litaskipting skipu-
lögð, að sami litur var á öllu, sem
snerti sömu námsgrein og skipti
þá ekkimáli hvort um var að ræða
lit á skáp, vegg eða bréfi sem
nemendur nötuðu utan um náms-
bækur til þess að verja þær
hnjaski.
öllum námsgreinum, en þær
voru alls 15 eða 16 var samkvæmt
stundarskrá ætlað rúm i fag-
kennslustofum, þannig að aldrei
þurfti að nota stóra skálann fyrir
bekkjakennslu. Þetta vekur
væntanlega nokkra athygli hugs-
andi nemenda og kennara is-
lenzkra, að óbreyttum húsnæðis-
skorti islenzkra skóla.
Vinsældir námsgreina
Vinsældir námsgreina i skólum
fara alltaf allmikið eftir notagildi
þeirra fyrir nemendur. Siðustu
árin hafa fleiri sænskir nemendur
lokið námi i hinum fræðilega
hluta menntaskóla en átt hafa
eðlilega framhaldsnámsbraut i
háskólum. Hins vegar hefur
færra fólk kært sig um nám og
störf i hinum ýmsu greinum iðn-
aðar t.d. þungaiðnaðinum, en
þjóðfélagið hefur þurft á að
halda.
Úr iðnaðarmannaskortinum
undanfarin ár hefur verið bætt
með þvi að flytja inn tæknimennt-
aða útlendinga, einkum Finna og
Júgóslava. Nú hefur kreppt svo
mjög að á hinum háskólamennt-
aða vinnumarkaði, að allmargir
háskólagengnir menn hafa bein-
linis neyðst til að hefja störf i
verksmiðjum, þótt háskólanámið
hafi búið þá undir allt önnur störf.
Síðastliðið haust kom það fram
i námsvali nemenda mennta-
skólanema i Falkenberg, að fleiri
vildu komast á starfrænar náms-
brautir en áður t.d. sótti 81 nem-
andi um hjúkrunarbrautarnám,
en hún hafði aðeins rúm fyrir 16
nemendur. Hinar starfrænu
námsbrautir hafa þannig allt i
einu hafizt til meira álits og vin-
sælda en áður.
Þessu fylgja greinilegir ókostir.
Hver námsbraut hefur tilhneig-
ingu til að velja sér beztu nem-
endurna úr hópi umsækjenda i
sambandi við nám. Aíleiðingin
getur eins vel orðið sú að greindir
nemendur, sem flykkjast allt i
einu inn á starfrænar námsbraut-
ir ýti þeim óreindari og náms-
hæfileika-minni til hliðar. Þá
vaknar hin brennandi spurning.
Hvað eiga hæfileikanjinni nem-
endur að gera? Á að safna þeim
saman á 3ja ára fræðilegum
námsbrautum, aðeins vegna
þess, að ekki er rúm fyrir þá
annars staðar? Eða, á aftur að
veita þeim kennslu, sem þeir
þurfa á að halda og ráð við? Hin
fullkomna náms- og starfsfræðsla
Svia mun vafalaust veita skyn-
samlegt svar við þessari spurn-
ingu.
Tæknivædd þjóðfélög geta skapað
örbirgð hinna hæfileikaminnstu
Tæknivæddustu þjóðfélög
heimsins hafa þegar gert hlut
hinnahæfileikaminnstu slæman. 1
Bandarikjunum búa þeir milljón-
um saman við skort atvinnuleys-
isins. t Sviþjóð, sem er tæknilega
séð i fararbroddi i Evrópu, er hin-
um hæfileikaminnstu safnað
saman á vernduðum verkstæðum
(shyddade verkstáder) Þessir
hæfileikalitlu menn voru oft
niðursetningar i gamla islenzka
bændaþjóðfélaginu. Enn sem
komið er fá þeir flestir atvinnu i
einföldustu gerðum iðnaðar eða
fiskvinnu, sem islenzkur sjávar-
útvegur skapar. Framtiðin
verður að leiða i ljós hvað þeirra
kann að biða á tslandi Eitt er vist
að vinnumarkaður þeirra hlýtur
að þrengjast eftir þvi sem mennt-
unar- og kunnáttukröfur aukast.
Ef tslendingar skyldu halda inn
á jafn fullkomnar menntunar-
brautir og Sviar, sem raunar mun
langt undan, er mikilvægt, að þeir
geri það ekki þannig, að hinum
hæfileikaminnstu verði ýtt út i
stöðugt atvinnuleysi eða ómann-
lega örbirgð.
Allt skal frjálst, allt skal jafnt,
réttan skerf sinn og skammt.
á hvert skaparans barn, allt frá
vöggu að gröf.
Nýi menntaskólinn i Sviþjóð
reynir öðrum skólum fremur að
framkvæma þær göfugu hugsjón-
ir, sem Einar Benediktsson,
skáld, birti i öðrum flokki
Islandsljóðs.
Innan sinna vébanda á þessi
skóli nemendur, sem áður gengu i
skóla með mismunandi nöfnum,
eins og um er getið fyrr i grein-
inni. Fólkið er hinsvegar uppalið
við gömlu skiptinguna og það
tekur langan tima að venja sig við
að lita á alla nemendur , sem eina
órofa heild, en 91-92 prósent allra
nemenda á aldursskeiði gamla
menntaskólans ganga nú i þann
nýja, og þannig verður væntan-
lega skóli framtiðarinnar hér i
Sviþjóð.
1 nemandaráði nýja mennta-
skólans i Falkenberg eiga bæði
gamlir nemendur yrkisskólans og
fagskólans sæti, meiri hluti
nemendaráðsmanna er þó fólk,
sem gekk i gamla menntaskól-
ann. Einn þeirra nemenda segir
að aukið álit starfrænu náms-
brautanna sé að þakka eða
kenna aðstöðunni á vinnumark-
aðinum, fremur en hugarfars-
breytingu, sem nýi menntaskól-
inn skapi.
,,Menntaskólinn hefur alltaf
notið meira álits en yrkisskólinn,
segir annar menntaskólanemi.
,,Ég held, að það breytist tæplega
þótt við göngum öll i skóla undir
sama þaki” bætir hann hugsandi
við ,,Hitt er annað mál” segir
þriðji menntaskólaneminn, ,,að
einsog sendur þorir enginn óvit-
laus maður að leggja út i langt
háskólanám sökum öryggisleysis
á vinnumarkaði”.
Stúlka sem er formaður nem-
endaráðsins segir að nemendur
yrkis- og fagskólans verði alltaf
að koma til gömlu menntskæling-
anna. 1 þeim hluta skólans sem
menntskælingarnir hafa sinar
kennslustofur er lika matsalurinn
og iþróttasalirnir. ,,Við eigum
þannig aldrei neitt erindi yfir til
þeirra” segir formaðurinn i fullri
einlægni. ,,Viðgleymum meira að
segja að setja tilkynningar, sem
varða alla nemendur á tilkynn-
ingatöfluna i þeim hluta skólans
þar sem þessir nemendur eru
mest á ferðinni.”
Menningarmiöstöð héraðsins
Rektor skólans litur á skólann,
sem hann veitir forstöðu, sem
glæsilega menningarmiðstöð alls
héraðsins. Nú þegar er húsnæði
skólans notað frá klukkan 8 að
morgni þegar kennslustundir
menntaskólans hefjast, til klukk-
an 21-22 að kvöldi þegar siðustu
kvöldnámsskeiðakennslustund-
Hef opnað lækningastofu
i Domus Medica, Egilsgötu 3. — Timapantanir i sima 1-52-
15 frá kl. 9-18.
Sérgrein: Kvensjúkdómar og fæðingarhjálp.
Jón Hilmar Alfreðsson,
Læknir.
unum lýkur. Það eru ekki aðeins
nemendur skólans, sem mæta i
iþróttasölum og smiðastofum
skólans, fullorðnir iðka einnig
iþróttir leggja stund á smiðar og
handavinnu ásamt hverskonar
föndri. Oll fullorðinsfræðsla hér-
aðsins fer fram i skólanum og
gildir þá einu hvort um er að ræða
fullorðið fólk, sem býr sig undir
háskólanám, eða það stundar
nám t.d. i ABF ( Arbetarnas bild-
ingförbund) TBV (Tjánstemánn-
ens bildningsförbund) eða SV
(Studieförbundet vuxenskolan).
Rektor vonast eftir hverskonar
hljómleika- og fræðslustarfsemi
handa almenningi innan vébanda
skólans m.a. fyrirlesurum frá
hinum Norðurlöndunum.
Nú þegar má sjá fólk, sem fær
að lána hljómpl. úr hljómplötu-
safni skólans, sem er hluti af
bókasafninu, ennfremur segul-
bönd með hverskonar hljómlist.
Hvað allt þetta snertir er nýi
menntaskólinn i Falkenberg
raunveruleg menningarstofnun
og þannig má vona að nýju
menntaskólarnir verði um ger-
valla Sviþjóð.
Gamla leðurverksmiðjan sem
nærri hafði orðið eldsvoða að
bráð, hefur fengi nýtt og glæsilegt
hlutverk sem menningarmiðstöð i
héraðinu.
þ. 5.I1ÓV. 1972.
Ó.G.
Tilboð óskast í
Chevrolet Malibu fólksbifreið árgerð 1972, sjálfskipta
með vökvastýri og vökvahemlum — i núverandi ástandi
eftir veltu.
Bifreiðin verður til sýnis i Bifreiðaverkstæðinu Armi,
Skeifunni 5, Reykjavik.á morgun og þriðjudag .
Tilboð sendist til Samvinnutrygginga, Tjónadeild, fyrir kl.
17 miðvikudag 22. nóvember 1972.
it§)tring
teiknipennar
viðurkenndir úrvals pennar fyrir
atvinnumenn, kennara og námsfólk.
Rotring téiknipennar og teikniáhöld
fást í þægilegum einingum fyrir
skóla og teiknistofur.
PENNAVIÐGERÐIN
Ingólfsstræti 2 Sími 13271
hýður yður i ógleymanlega
ferð tii Nilar. Þar dveljist
þér meðal ævafornra forn-
ininja
og hinna heimsfrægu pýra-
mida.
Hafið samband við ferða-
skrifstofu yðar.
EevptíJir
linited Arab Airlines
Jernbanegade 5, DK 1608,
Köbenhavn V, Tlf.
(01)128746 >
BÆNDUR
Við seljum:
Fólksbila,
Vörubila,
Dráttarvélar,
og allar gerðir
búvéla.
BÍLA, BÁTA OG
VERÐBRÉF ASALAN.
Við Miklatorg.
Simar 18675 og 18677.