Tíminn - 19.11.1972, Blaðsíða 19

Tíminn - 19.11.1972, Blaðsíða 19
# ý ‘ * Sunnudagur 19. nóvember 1972 TÍMINN 19 Blóma- og grænmetis- ræktun í hydrokultur i Hentar mjög vel á íslandi HYDROKULTUR — hvaö er nú það? mun margur spyrja. Orðið HYDROKULTUR finnst heldur ekki i neinni orðabók, en það er myndað af griska orðinu „hydor” (vatn) og latneska orðinu „cul- tura” (að rækta) og má þvi segja að hydrokultur þýði „ræktun i vatni”. Það var fyrir meira en öld sið- an, sem efnafræðingurinn Justus von Liebig upgötvaði, að plönt- urnar nærast alls ekki á sjálfri moldinni, heldur af þeim stein- efnum og snefilefnum, sem upp- leysast i rigningarvatni og vatni, sem vökvað er með. Sjálfa mold- ina nota plönturnar aðeins sem akkerisfesti fyrir rætur sina. En þar með vaknaði hugmyndin um það, hvort hægt væri að rækta plöntur algerlega án moldar. Til- raunir sýndu að það var hægt með þvi að útbúa sérstaka næringar- upplausn, sem sett var i vatn og plöntunni kpmið fyrir i þessari upplausn,en siðan var notað ólif- rænt fyllingarefni i stað moldar. Þessari ræktunaraðferð var gefið nafnið hydrokultur. Þótt tilraunir með hydrokultur færu fram i ýmsum löndum, var framþróunin hæg. Það var þó af hreinni tilviljun, að i seinni heimsstyrjöldinni komst hydro- kultur aftur á dagskrá. Bandarik- in höfðu sett upp herstöðvar á eyjum, sem liggja úti i miðju Suður-Atlantshafi, en eyjar þess- ar hafa myndazt af eldgosum, og þar er ekkert annað en hraun, sandur og vikur.en gróður enginn. Það skapaðist þvi fljótt það vandamál, hvernig ætti að sjá hermönnunum fyrir nýju græn- meti, en flutningaleiðin var óra- löng og skipakosturekkiof mikill. Þá minntust menn tilraúna, sem gerðar höfðu verið með hydrokul- tur i Bandarikjunum.og þar með var vandinn leystur. í staðinn fyri*«ö nota mikið skipsrými und- ir grænmeti, þurfti aðeins að senda plöntunæringu og fræ með flugvélum.og svo var grænmetið ræktað á staðnum i stórum flötum bökkum og vikurinn notaður i st;ið moldar. Grænmetið óx þarna betur en i venjulegum jarðvegi. Og þar með var fengin sönn- unfyrir þvi, að mold var alls ekki nauðsynleg við ræktun græn- metis. En nú á döeum er þó hydrokul- tur aðallega notað við blómarækt- ALLIR VEGIR FÆRIR Á Yokohama SNJÓBÖRÐUM KAUPFÉLAG PATREKSFJARÐAR un, og er það ævintýri likast, hver árangurhefurnáðsti þvi efni. Það gerðist I Sviss. Er það svissneska fyrirtækið Interhydro AG„ sem hefur fullkomnað tæknilega þá að- ferð, sem gerir moldarlausa blómaræktun auðvelda. Hefur Interhydro framleitt sérstaklega gerða blómapotta og blómabr, sérstaklega samansett næringar- efni með nákvæmlega útreiknuðu sýrustigi fyrir vatnsræktun. Fywiefnið, sem kemur i staðinn fyrir mold.er brenndur blásinn leir i smákúlum, algerlega ólif- rænt efni. Interhydro hefur fengið gullverðlaun fyrir hydrokultur- ræktun sina i Þýzkalandi og Sviþjóð, endahefurfyrtækið skrá- sett einkaleyfi' á uppfyndingu sinni i ýmsum löndum heims, einnig hér á Islandi. Blómaræktun með hydrokultur hefur fjölmarga kosti fram yfir moldarræktun. Blómin hafa betri lifsskilyrði, þvi að loft og súrefni kemst auðveldlega að rótinni. Blómin vaxa betur, eru heilbrigð- ari og ferskari, þvi að engin hætta er á rótarskemmdum, og engar skemmdir verða af völdum skor- dýra. Blóm i hydrokultur þurfa mjög litla umhirðu, og yfirleitt þarf ekki að vökva þau oftar en á þriggja til fjögurra vikna fresti. Og það þarf aldrei að skipta um fylliefnið eins og nauðsynlegt er að gera við moldina. Þess vegna henta blóm i hydrokultur sérstak- lega vel fyrir allar stórbyggingar og opinberar stofnanir, þvi að einmitt á þeim stöðum verður umhirðan oft handahófskennd, ýmist vökvað of litið eða of mikið. 1 mörgum Evrópulöndum sést nú ekki annað er hydrokultur blóm i stórbyggingum. HYDROKULTUR t LANDBON- AÐ Eins og áður er sagt, hafa til- raunir með ræktun grænmetis i hydrokultur gefið mjög góðan árangur. I Israel hafa einnig ver- ið gerðar tilraunir með ræktun tómata,og varð árangurinn sá,að með hydrokultur fengust 22 kg af hverjum fermetra á móti 4 1/2 kg i venjulegum jarðvegi. Melónur urðu einnig mun stærri og sætari. t Þýzkalandi hef»r einnig verið ræktað salat, gúrkur, baunir og tómatar með þessari aðferð. I Indiana-fylki i USA hafa verið gerðar tilraunir með að rækta bygg til grænfóðurs innanhúss allt árið og er þá notað rafmagns- ljós yfir dimmasta timann. Til- raunir þessar hafa gefizt vel,og er talið,að i húsi, sem er að flatar- máli á við venjulegan bilskúr, Eiturlyf Framhald af 13. siðu. gjarnan af lifrarbólgu (hepatit- is), banvænni blóðeitrun, auk annarra kvilla i lifur, heila og lungum. Eiturlyfjaneytandi nokkur viðurkenndi: „Lif okkar er slikt, að i fangelsi munum við helzt ná okkur.” Heróinneytandinn er i stöðugri lifshættu vegna daglegrar neyzlu sinnar eða vegna of stórra skammta. New York borg hefur raunar skýrt svo frá, að neyzla heróins sé nú höfuðdauðaorsök fólks á aldrinum fjórtán til þrjátiu og fimm ára. Barnaleg, en velviljuð stúlka spurði fyrrverandi eiturlyfja- neytanda: „En varð ekki reynsla þin til þess að vikka sjóndeildar- hring þinn?” Hann svaraði: „Ætla mætti, að ég hefði lært eitt hvað uppbyggjandi á þessum árum — en allt, sem mig rekur minni til, er harmleikur einn.” Áætlað er, að um 90 af hundraði þeirra, sem gangast undir læknis- hendi vegna neyzlu „sterkra” lyfja, hverfi á endanum aftur til fyrri vega sinna. Alls engin trygging er fyrir lækningu. Satt bezt að segja, er langtum meiri trygging fyrir andlegu og likam- legu skipbroti, já, jafnvel dauða. megi rækta grænfóður, sem nægi handa 40 kúm. AÐSTÆÐUR TIL HYDROKUL- TUR-RÆKTUNAR ERU SÉR- STAKLEGA GÓÐAR A ISLANDI 1 ýmsum Evrópulöndum er kalk-innihald vatnsins það mikið, að nauðsynlegt er að byrja á þvi að setja i það efni, sem eyðir kalkinu, áður en það er nothæft við vatnsræktun blóma. Hér á landi er kalk-innihald vatnsins það litið, að hægt er að nota það eins og þaðkemur úr krananum. I öðrum löndum þarfa að búa til fylliefnið, sem kemur i stað mold- ar og venjulega er það brennd- ur,blásinn leir. Þetta er að visu mjög ódýrt efni. En hér á landi er til nóg af jafngóðu fylliefni,en það er islenzki vikurinn. Hann er al- gerlega „dautt” efni, kalklaus og dregur mátulega vel i sig raka. A rannsóknarstofu i Sviss hafa ver- ið gerðar rannsóknir á ýmsum tegundum fylliefna við hydrokul- tur, þar á meðal á islenzkum vikri og fékk hann beztan dóm af þeim efnum, sem rannsökuð voru. Hydrokultur býður þannig upp á marga möguleika i ræktun, en enn sem komið er, hefur mestur árangur náðst við ræktun blóma. Leifur Þórhallson. JOLAKORT eflir filmum yöar pántió í líma qHWtWMWQHWQ) Áustiirsíræti, Akranes - Aðalbókari Starf aðalbókara á bæjarskrifstofunni á Akranesi er laus til umsóknar. Starfið veitist frá 1. janúar 1973. Umsóknir.er greini frá aldri, menntun og starfsreynslu, sendist undirrituðum fyrir 1. desember n.k. Nánari upplýsingar veitir bæjarritari. Bæjarstjóri. Enn fást tvær af átta úrvals bókum Félagsmálastofnunarinnar Lýðræðisleg félagsstörf eftir Hannes Jónsson, félagsfræðing, er grundvallarrit um félags- og fundarstarfsemi lýðræðisskipulagsins. Falleg bók i góðu bandi, 304 blaðsiður, rituð af skarpskyggni, þekkingu og fjöri fyrir alla þá, sem áhuga hafa á virkri þátttöku i félagsmálum. Efnið, andinn og eilifðarmálin eftir 8 þjóðkunna höfunda, er ein athyglisverðasta bókin. Fjallar á fróðlegan, djarfan og forvitnilegan hátt um dýpri gátur tilverunnar ljósi nútima þekkingar. Sigildar jólagjafir fyrir yngri sem eldri. Kynnið ykkur verð og gæði — Fást hjá bóksölum og beint frá útgef- anda. FELAGSMALASTOFNUNIN Pósthólf 31 — Reykjavík — Sími 40624 fyrir eftirtaldar bækur, sem óskast póstlagðar Pöntunarseðiíl Sendi hér með kr. strax: O Lýðræöisleg félagsstörf, innbundinn, kr. 500,00 O Efnið, andinn og eilifðarmálin, heft, kr. 200.00 Mun opna eftirfarandi stofutima til heimilislækninga i Domus Medica, Egilsgötu 3, frá 20. nóvember: Mánu- daga og föstudaga kl. 10,00 — 12.00. Miðvikudaga og fimmtudaga kl. 14,00 — 15.30. Þriðjudaga kl. 16.30 — 18.00. Simi stofu og vitjanabeiðna fyrirkl. 13.00: 1-16-84. Simaviðtalstími kl. 9.00-10.00 mánudaga til föstudaga, simi 1-60-88. Ólafur Mixa, læknir. Geymið auglýsinguna. Nýjung! penol SKIPTIBLÝANTINN • þarf aldrei að ydda • alltaf jafn langur • ótrúlega ódýr! Fæst í næstu ritfanga- og bókabúð HEILDSALA FÖNIX, REYKJAVÍK VIPPU - BllSKÚRSHURÐIN Lagerstærðir miðað við múrop: Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm 210 - x~ - 270 sm Aðrar slærðir. smittadar eftir beiðnl GLUGGAS MIÐJIAN Siðumúla 12 - Sími 38220 i»h; r TÍZKIIKNI? LAUGAVEGI 27 - SlMI.12303

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.