Tíminn - 21.11.1972, Page 4
4
TÍMINN
Þriðjudagur 21. nóvember 1972
Myndin sýnir Hilmar, afgrelbslumann i Kjöver/.lun Tómasar, með
lilula al' jólasendingunum.
Jólamatur frá
Tómasi til útlanda
SB-Reykjavik
Eiins og undanfarin dr sér
Kjötverzlun Tómasar um að
senda isienzkan jólamat til fólks
erlendis. Sama fyrirkomulag
verður á nú og var i fyrra, þannig
að sá sem ætlar að gleðja ættingja
eða vini erlendis með hangikjöti
og sviðum, auk alls hins, getur
komið i verzlunina, afhent
heimilisfang viðtakanda og sagt
l'yrir hve háa upphæð maturinn á
að vera. Siðan sér verzlunin al-
gjörlega um að pakka
sendingunni, útbúa viðeigandi
fylgiskjöl og tollskjöl og senda
pakkann. Sendandinn greiðir
siðan kostnaðinn af sendingunni.
bess má geta;að það er gott fleira
en hangikjöt og svið, sem sent er
úr landi fyrir jólin. Md nefna
harðfisk og súrmat og einnig alls
kyns dósamat af islenzkum
uppruna.
Ólafsf jörður:
LÆKNISLEYSIÐ
ISKYGGILEGT
BS—Ólafslirði
Hér er nú allt á kafi i snjó,
þótt aö visu muni fönn vera
meiri bæði inni i Eyjafirði og
vestur i Skagafirði, og allir
bátar i höfn vegna veðurs.
Nú sem stendur eru Ólafs-
lirðingar með öllu samgöngu-
lausir, bæði á sjó og landi, og
er það uggvamíegt, ef skjótt
þarf að ná læknis, þvi að eng-
inn læknir er hér hjá okkur.
Yfirlæknir sjúkrahússins á
Akureyri ætlaði að koma hing-
að úteftir á laugardag, og
hafði þá verið fært fyrir Ólafs-
fjarðarmúla i þrjá daga. En á
laugardaginn var vegurinn
orðinn, ófær, svo að læknirinn
komst ekki til okkar.
Hafa stolið átta bílum
— sd síðasti var keyrður í klessu
Klp-Reykjavik
Aðfaranótt sunnudagsins var
stolið volkswagenbifreið frá húsi i
Skaftahlið. Voru þar að verki
fimm unglingar á aldrinum 13 til
15 ára. Þegar þeir höfðu komið
bifreiðinni i gang var haldið af
stað út fyrir bæinn, en þeirri öku-
ferð lauk upp i Mosfellssveit, þar
sem bilnum var ekið á mikilli ferð
útaf veginum.
Engin slys urðu á fólkinu, utan
þess, að einn piltur hlaut smá
vegis meiðsli. En bifreiðin er
gjörónýtog ekki taliðborga sig að
gera hana upp aftur. Við yfir
heyrslur hjá rannsóknarlögregl-
unni viðurkenndi þessi hópur að
hafa á undanförnum vikum stolið
átta bilum og ekið þeim um bæinn
og næsta nágrenni. A þessum
bilum höfðu litlar sem engar
skemmdir orðið, en öðru máli
gildir um það siðasta. Þar verða
unglingarnir, eða foreldrar
þeirra, gerðir bótaskyldir og
getur sú upphæð numið tug-
þúsundum króna.
Bændur í Kjalarnesþingi
mótmæla mjólkurfrumvarpinu
Á aðalfundi Mjólkursamlags framkomið frumvarp Ellerts B.
Kjalarnesþings, sem haldinn var Schram og fleiri til umræðu, og
á föstudag i siðustu viku var
Tveir opinberir
háskólafyrirlestrar
Einhver kunnasti bókmennta-
fræðingur á Norðurlöndum, dr.
nhil. Sven Möller Kristensen,
prófessor i norrænum
bókmenntum við Kaupmanna-
hafnarháskola, flytur i boði
Heimspekideildar tvo opinbera
fyrirlestra við Háskóla islands.
h"yrri fyrirlesturinn nefnir
prófessor Kristensen Litteratur-
sociologiske problemer, en hinn
siðari (íeorg Brandes’ kritiske
principper.
Þeir verða fluttir i 1. kennslu-
stofu Háskólans þriðjudaginn 21.
nóv. og fimmtudaginn 23. nóv. og
hefjast báðir kl. 17.15.
öllum er heimill aðgangur að
fyrirlestrunum.
VINNAN
r
Málverkasýning Listasafns ASI
Stp-Iteykjavik
í dag klukkan niu verður opnuð
málverkasýning i Listasafni ASl
á efstu hæð i Alþýðubankahúsinu
að Laugavegi 31. Sýningin verður
opin virka daga frá 2 til 7 fram til
3. desember, en til 10 á kvöldin
um helgar.
Fréttamaður kom við i
sýningarsalnum i gær og hitti að
máli Hjörleif Sigurðsson málara
sem er forstöðumaður Listasafns
ASl. Safnið er sjálfseignar-
stofnun innan ASt og var stofnað
árið 1961, en Ragnar Jónsson i
Smára gaf til þess 120 myndir.
Mun hann hafa komizt svo að
orði, að þær væru bezt komnar i
höndum erfiðismanna. Siðan hafa
fleiri aðilar gefið myndir til
safnsins og á það nú alls um 200
myndir. Stjórn safnsins er skipuð
þrem mönnum tilnefndum af
Itagnari Jónssyni og þremur til-
nefndum af ASl.
Sýningin ber heitið Vinnan og
eru allar myndirnar, alls 42, af
vinnandi fólki. Það ber að geta
þess, að sýningin er i tengslum
við 32. þing Alþýðusambands ts-
lands, sem haldið er um þessar
mundir. Eru þær allar i einka-
eign. Af einstökum myndum má
nefna Verkamenn í Reykjavíkfrá
1918, eftir Asgrim Jónsson, i eigu
Ásgrimssafns, Ileybandslest frá
1935 eftir Gunnlaug Scheving, i
eigu dr. Gunnlaugs Þórðarsonar,
Þrir sjómenn, eftir Þorvald
Skúlason, i eigu Listasafns ASt og
Kyggingarvinna eftir Hring
Jóhannesson, i eigu Iðnaðar-
banka tslands.
Fyrsta tilraun Listasafns ASt
til að koma upp sýningu sama
eðlis og þessari sumarið 1971 var
mjög vel tekið og er að vonast til,
að svo verði einnig nú. I ávarpi i
sýningarskrá eftir Björn Jónsson
segir m.a. „Vinnan í fjölbreyti-
leik sinum er vissulega verðugt
viðfangsefni göfugrar listar.
Maðurinn og mannleg örlög
i striði við náttúruöflin, vinnan
uppspretta lifsgæða og valds yfir
umhverfinu — hver getur skynjað
og tjáð allt þetta betur — eða
einfaldar en myndlistar-
maðurinn, þegar honum tekst
bezt til, og gefið okkur á þvi nýja
sýn.
— Annars er heldur litið um
„social realisma” hér á landi,
eins og i Rússlandi og fleiri
Austur-Evrópulöndum, þar sem
fulltrúar hinna vinnandi stétta
eru gerðir að hetjum og málaðir
samkvæmt þvi, — segir Hjör-
leifur.
Hjörleifur Sigurösson forstöðumaður Listasafns ASt við málverkið
VINNUHLE, eftir Itörð Agústsson listmálara. Málverkið er frá 1948 og
er i eigu Reykjalundar.
(Timamynd: Róbert).
gerði aðalfundurinn svofellda
samþykkt i þvi sambandi:
Aðalfundur M jókursamlags
Kjalarnesþings haldinn 17.
nóvember 1972 mótmælir sam-
þykkt framkomins frumvarps á
Alþingi um breytingu á
Framleiðsluráðslögunum varð
andi dreifingu og sölu neyzlu-
mjólkur. Telur fundurinn, að
bændur geti ekki unað þvi, að
áhrif þeirra á meðferð og
dreifingu sölumjólkur verði i
nokkru skert.
Tillaga þessi var samþykkt
með atkvæðum allra fundar-
manna.
Nætur-
gisting í
Surtsey
Klp—Reykjavík
— Þetta er ekki I frásögur
færandi — það væri að gera
úlfalda úr mýflugu að snúa þessu
upp i rosafrétt, sagði Svavar
Garðarsson, ungur Vestmanna-
eyingur, er við náðum tali af
honum i gær lil þess að spyrjast
fyrir um ferð hans og félaga hans,
Ragnars Grétarssonar, út i
Surtsey á laugardaginn.
Þeir höfðu orðið að láta fyrir-
berast i eynni á sunnudags-
nóttina, en Svavar vildi sem fæst
um það tala. Annars staðar
fregnaði blaðið, að þeir félagar
hefðu fengið á sig sjó, er þeir voru
við eyna á gúmbát þeirra erinda
að sækja þangað pilta, er þar áttu
að vera við björgunaræfingar.
Þegar i eyna kom, var sveitin
ekki við æfingar þar, heldur uppi
á Landeyjasandi. Voru þeir að
fara frá eynni, er sjór reið yfir
bátinn.Syntu þeir gegn um brimið
til lands i Surtsey, þar sem þeir
leituðu siðan athvarfs i
skálanum, er þar er. Létu þeir
vita gegnum talstöðina i
skálanum, hvernig komið var, og
það með, að ekkert væri að óttast.
Daginn eftir sótti hafnsögumaður
þá, og voru þeir dregnir um borð i
bát hans á linu, sem skotið var á
land. Gúmbát sem sendur var frá
hafnsögubátnum, hvolfdi i
lendingu.
Piltarnir komust heim um
klukkan hálf þrjú og hafði ekkert
orðið meint af volkinu.
hankinii or linklijnrl
'BIINAÐARBANKINN
AUGLÝSINGA
símar Tímans
18300