Tíminn - 21.11.1972, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 21. nóvember 1972
TÍMINN
lliaillimii
Verömætt krass.
Eins og margir aðrir hafði
John F. Kennedy, forseti, þann
ávana að rissa á blöð, þegar
hann sat við skrifborð sitt og,
talaði i sima eða hlustaði á
ráðunauta sina. Að vonum var
þetta riss ónýtt til allra hluta,og
henti forsetinn þvi oftast i
ruslakörfuna. Þó munu vera til
fimm litlar teikningar, sem
forsetinn gerði og gaf vinum
sinum og vandamönnum. En
ein teikninga forsetans, sem
lenti i pappirskörfunni.hefur þó
eftir krókaleiðum lent i höndum
listaverkasala, sem er kona að
nafni Holly Langhorne. Hún
skipti á rissi forsetans og
einhverju listaverki.
Frú Langhorne segist ekki
selja myndina, þótt henni væru
boðnir milljón dollarar fyrir
pappirssnepilinn. Á næsta ári,
en þá eru íiðin 10 ár frá morði
forsetans, ætlar hún að gefa út
eftirprentanir af myndinni i
takmörkuðu upplagi og selja
dýrt. Ágóðinn fer allur til góð-
gerðastarfsemi.
Myndin eftir forsetann er af
bátum og húsum og er sögð vera
frá Hyannishöfn i
Massaehusetts.
Lopi í tizku
fslandspeysur hafa lengi
verið vel þekktar flikur i Svi-
þjóð, en það eru sams konar
flikur og löngum hafa verið
kallaðar færeyskar peysur á
Islandi, en hafa hin siðari ár
verið sifellt meira prjónaðar
hérlendis til innanlandsbrúks og
útflutnings.
En nú virðist islenzki lopinn
vera að vinna sér þann sess
erlendis, sem hann á skilið. f
hinu viðlesna sænska blaði
Femina birtist nýlega greinar-
korn um islenzka lopann og
fylgdu prjónamynstur og
leiðbeiningar um.hvernig á að
meðhöndla hann. Þá geta les-
endur blaðsins pantað lopa og
leiðbeiningabækling hjá
blaðinu. Þess má geta, að i
blaðinu er notað islenza orðið
lopi, þar sem ekkert orð er til i
sænsku um fyrirbrigðið. Er
sagt, að á fslandi hafi lifað
sérstakt fjárkyn allt frá niundu
öld, og sé hið ullarlengsta i
heimi, háralengdin er sjö til tiu
sentimetrar. Tekið er fram, að
konur á fslandi hafi ekki
spunnið lopann heldur snúið
hann.
Maður kom til læknisins og
sagðist vist þurfa að fá sér gler-
augu. Læknirinn sýndi honum
töflu og spurði, hvað stæði þarna.
— Þara stendur tiu, svaraði
maðurinn.
—Já, þú þarft svo sannarlega að
fá gleraugu. Þetta er nefnilega
mynd af Helga Sæm og Guðmundi
Jónssyni.
★
—Komdu nú út. Það er allt of gott
veður til að hanga inni og horfa á
sjónvarp.
....og til að gera langa sögu
stutta..
★
Mannætan var i náttúrulækninga-
félaginu og borðaði bara
grasekkjur.
—Hvernig veiðir maður kengúru
—Fer til hennar og spyr, hvort
hún geti skipt hundraðkalli. Á
meðan hún leitar i pokanum,
rotar maður hana......
Hún veiktist svo i brúðkaups-
ferðinni, að kalla varð á lækni.
Iiann skoðaði hana vandlega, en
sagði siðan:
—Konan yðar litur sannariega
ekki vel út.
— Nei, en pabbi hennar á fullt af
peningum, svaraði brúðguminn.
*
-Segðumér. Vissirðu, að það er
koldimmt úti?
DENNI
DÆMALAUSI
Það cr bara góð lykt af ef maður
hefur i huga hvað hann ber á þær