Tíminn - 21.11.1972, Page 17
Þriðjudagur 21. nóvember 1972
TÍMINN
17
Toshack......knaUspyrnusnillingurinn frá Liverpool. Hann skorar mörk i nær hverjum leik, sem hann
leikur með Liverpool-liðinu. A laugardaginn skoraöi hann gegn Newcastle.
Enska knattspyrnan: 505:
Fmbærír leikmenn Leeds réðu
ekki við nýit C. Palace lið
— þeir höfðu tvö mörk undir í hálfleik, en í síðari hálfleik
sýndu þeir frábæran leik og jöfnuðu
Um 57 þúsund áhorfendur, sem
komu á leikvöll City, Maine Road,
uröu vitni að þvi, þegar
Manchester City sigraði
Manchester United örugglega
;t:0. Bell virðist vera óstöðvandi
um þessar mundir.
Hann skoraði tvö mörk á
laugardaginn og þriðja markið
skoraði Buchan (sjálfsmark).
I’ramkvæmdastjóri Leeds, Don
ltevie, var mjög undrandi á
latigai daginn, þegar lið hans lék
gegn Crystal Palace i Selhurst
Park — leikmenn Leeds sýndu
frábæran leik, en það dugði ekki
gegn nýju Palace liði, eins og
Reviesagði. Lundúnarliðið komst
i 2:0 i fyrri hálfleik, — mörkin
skoraði Craven. i siðari hálfleik
sýndu leikmenn Lceds, að þeir
kalla ekki alit ömmu sina, þeim
tókst að jafna 2:2 og þannig lauk
leiknum. Mörk Leeds skoruðu
þeir Mick Jones og Johnny Giles.
Áður en við höldum lengra, þá
skulum viðlita á úrslitin á siðasta getraunaseðli:
1 Arsenal-Everton 1:0
1 Coventry-Sheff.Utd. 3:0
X Crystal P.-Leeds 2:2
2 Leicester-Tottenham 0:1
1 Liverpool-Newcastle 3:2
1 Man.City-Man.Utd. 3:0
1 Norwich-WBA 2:0
1 Southampton-Chelsea 3:1
2 Stoke-Birmingham 1:2
2 West Ham-Derby 1:2
2 Wolves-Ipswich 0:1
2 Notts.F.-Preston 0:1
Leikur Arsenal og Everton var
frekar leiðinlegur á að horfa, liðin
leika kerfisbundna knattspyrnu,
sem áhorfendur eru ekki hrifnir
af Radford skoraði eina mark
leiksins á 35 min. Annað
Lundúnarlið sigraði einnig 1:0 um
helgina — það voru leikmenn
Tottenham sem skruppu til
Leicester og léku á Filbert Street.
Martin Chivers skoraði fyrir
Spurs, rétt fyrir leikslok.
Meistararnir sigruðu sinn
fyrsta útileik á keppnistima-
bilinu, þegar þeir heimsóttu
Upton Park i London og léku þar
gegn West Ham. L>að var Kevin
Hector, sem gerði út um leikinn
strax i byrjun, með þvi að skora
tvö mörk á fyrstu 15 min. „Pop”
Robson skoraði siðan fyrir West
Ham. Peter Osgood skoraði i
sinum fyrsta leik með Chelsea
eftir meiðslin, en þetta mark
dugði ekki til sigurs, þvi að
O’Neil, og welski landsliðs-
maðurinn Ron Davies, sem var
settur út úr landsliðinu, sýndi og
sannaði það gegn Chelsea, að
hann er einn stórhættulegasti
sóknarleikmaður i ensku knatt-
Giles skoraði jöfnunarmark
Leeds gegn Crystal Palace.
spyrnunni. — Davies sendi knött-
inn tvisvar i netið og innsiglaði
þar með góðan sigur Dýrling-
anna.
Þegar Liverpool leikur gegn
sterkum liðum, þá sést að það er
eitt bezta liðið á Bretlandseyjum.
Hinir knattspyrnuóðu Liverpool
búar fylltu nær leikvöll Liverpool,
Anfield Road, þar sem þeir fengu
að sjá spennandi leik. —
Cormack skoraði fyrsta mark
leiksins, en Tudor jafnaði fljót-
lega. Fyrir leikshlé tók Alec
Lindsay forustuna fyrir heima-
menn.Toshack skoraði 3:1 i siðari
hálfleik og þá skoraði McDonald
3=2. Siðustu min. leiksins urðu
æsispennandi og reyndu leikmenn
Newcastle að jafna, en þeim tókst
það ekki, þó að oft hafi munað
mjóu.
Coventry heldur áfram sigur-
göngu sinni — á laugardaginn fór
liðið létt með að sigra Sheffield
Utd. Alderson skoraði tvö mörk
og McGuire eitt. Þá sigruðu
nýliðarnir Norwich WBA á
heimavelli sinum Carrow Road
2:0. Paddon skoraði og siðara
markið varð sjálfsmark. Úlfarnir
máttu þola tap gegn Ipswich —
liðinu hefur ekki tekizt að sigra
Ipswich siðustu þrjú árin.
Burnley hefur örugga forustu i
2. deild, eftir að Aston Villa og
QPR, töpuðu leikjunum sinum á
laugardaginn — leikirnir i 2. deild
fóru þannig:
Aston Villa-Luton 0: 2
Blackpool-Bristol 3: :0
Brighton-Burnley 0: : 1
Carlisle-Oxford 2: : 1
Fulham-Portmouth 0: :0
Huddersfield-Cardiff 2: : 1
Notts. F.-Preston 0: : 1
QPR-Millwall 1: :3
Sheff.W.-Middlesb. 2: : 1
Sunderland-Hull 1: : 1
Swindon-Orient 3: : 1
Aqnar eltur
allan leikinn
— þrátt fyrir það skoraði hann 19 stig
í síðari leik ÍR gegn Real Madrid
ÍR lék siðari leik sinn i
Kvrópukeppni meistaraliða i
körfuknattleik i Madrid s.l.
fimmtudagskvöld. þar sem
liðið lék gegn spánska
meistaraliðinu Real Madrid.
Leiknum lauk með sigri Real
Madrid 93:37 og er liðið þar
með búið að tryggja sér þátt-
tiiku i annarri umfero.
Sagan frá fyrri leik liðanna,
sem var leikinn hér i Laugar-
dalshöllinni, endurtók sig —
IR-liðið tók forustuna i
Ieiknum og komst i 8:4, en
siðan hólu leikmenn Real
Madrid stórskotahri'ð að körf-
unni og náðu þeir fljótlega
góðri lorustu. i hálfleik var
staðan orðin 50:20. Loka-
tölurnar urðu 93:37, sem er
ekki sem verst fyrir ÍR-Iiðið,
sem lék án Birgis Jakobssonar
og Antons Bjarnasonar, þá lék
Kristinn Jörundsson veikur i
leiknum.
Leikmenn iteal Madrid
voru ekki búnir að gleyma
Agnari Friðrikssyni frá fyrri
leiknum. Þeir settu mann til
að gæta hans stöðugt. þrátt
fyrir það tókst honum að skora
19 stig með sinum frægu lang-
skotum. Spánverjarnir voru
mjög hrifnir af Agnari og
áhorfendur klöppuðu honum
oft lof i lófa i leiknum og sagt
Agnar Friðriksson.
var, að Agnar væri efstur á
lista yfir leikmenn, sem
forráðamenn Real Madrid,
hefðu áhuga á að fá i sinar
raðir.
Knattspyrnumenn
Vals fá rússnezkan
þjálfara
verða miklar breytingar á meist-
araflokki félagsins?
Knattspyrnufélagið Valur er
lyrsta félagið, sem á lið i I.
deild i knattspyrnu, og er búið
að ráða til sin þjálfara
fyrir næsta keppnistimabil—
Þjálfarinn er ekki af verri
endanum, nefnilcga sovézki
knattspy rnuþjálfarinn M.
Ilytchcv, sein er doktor i
iþróttum og hefur þjálfað viðs
vegarum heiminn mcð góðum
árangri.
Knattspyrnusamband
tslands hefur samþykkt
ráðningu M. Ilytchev, sem
mun fyrst og fremst þjálfa 1.
deildarlið Vals næsta sumar.
Einnig mun hann leiðbeina um
þjállun yngri flokka félagsins.
M. Ilylchev mun byrja að
þjálfa hjá Val um mánaða-
mótin janúar-febrúar n.k. Það
verður gaman að sjá, hvort
hann geti bundið leikmenn 1.
deildarliðs Vals saman, en
eins og menn vita, þá er efni-
viðurinn fyrir hendi — efni-
viður, sem ekki hefur náð
saman undanlarin ár. iþrótta-
siðan hefur frétt, að það standi
til hjá Val, að slokka upp
meistaraflokk félagsins —
enda segja Iróðir menn, að
timi sé kominn til þess.
Kolbeinn og Bjarni
leika ekki með KR
gegn GEISSEN
KR-liðið fer ekki með sina
sterkustu leikmenn til írlands
og V-Þýzkalands, þegar liðið
fer á föstudaginn til þessara
landa og leikur þar sjö leiki á
sjö dögum. Kolbeinn Pálsson
og Bjarni Jóhannesson
komast ekki með liðinu i þessa
keppnisferð. — i ferðinni
leikur KR tvo leiki i Evrópu-
bikarkeppni körfuknattleiks-
liða gegn v-þýzka liðinu
Geissen frá Frankfurt.
Leikirnir fara fram 28. og 30.
nóvember. n.k.
I'jarvera þessara tveggja
góðu leikmanna veikir KR-
liðið nokkuð, en eins og menn
vita, þá er Kolbeinn Pálsson
einn bezti körfuknattleiks-
maður landsins, og hefur hann
verið potturinn og pannan i
leik KR-liösins undanfarin ár.
Kolbeinn Pálsson.