Tíminn - 24.11.1972, Síða 1

Tíminn - 24.11.1972, Síða 1
IGNIS KÆLISKÁPAR RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐJAN SlMI: 19294 kæli- skápar ' Xj/ttx é3bcUwAAé£ctfu A/ RAFTÆKJADEILD Hafnarslræti 23 Simar 18395 & 86500 __________________________ Óðinn halastýfði Grímsbæjartogara: BRETAR HENTU JÁRNARUSLI UM BORÐ í ÍSLENZKAN BÁT Þossi mynd verður á umslögunum tvö þúsund, sem fara munu með lolibelgnum i hið merka ferðalag. Kr það Halldór Pétursson, er teiknað hcfur myndina. Umslögin verða send frfmerkt (íl kr frímerki) og með áðurgrcindri mynd og verða siöan mðttökustimpluö á næsta pósthúsi við lcndingarstað loftbclgsins. Þá verður farið með þau til Reykja- vikur, þar scm prentað verður á þau dagsetning ásamt nokkrum upplýsingum um loftbelginn og ferðina. Þcgar hefur verið gengið frá umslögunum I vatnsheldum umbúðum, svo að ekki stendur á þeim. Belgurinn á loft í dag? Unnið var að gasá- fyllingunni í nótt ÞÓ-Reykjavik. Til átaka kom á miðunum við Vestfirði i gær, og enduðu þau með þvi, að varðskipið Óðinn klippti vörpuna frá brezka togaranum Vianova frá Grimsby. Eftir hádegi i gær barst Land- helgísgæzlunni kvörtun um að brezkir togarar væru að eyði- leggja veiðarfæri islenzkra báta, og sýndu þeim um leið mikinn ágang um 20 sjómilur norðaustur af Horni. Varðskipið Óðinn var þegar sent á staðinn, og er það kom þangað fyrirskipaði það brezku togurunum að halda þegar af veiðisvæðinu. Togararnir höfðu skipun varðskipsins að engu, og þegar hér var komið, settu skipsmenn Óðins klippurnar góðu útbyrðis og klipptu trollið frá Vianova GY 590. A þessum slóðum voru 30 brezkir togarar að veiðum, og þegar Óðinn hafði klippt á vira Vianova sigldu átta brezku togar- anna að togbátnum örvari HU 1 frá Skagaströnd, og varð örvar að hifa upp vörpuna hið bráðasta af þeim sökum. Á meðan skip- Rafvirkjar sýknaðir SB-Reykjavík Dómur var kveðinn upp á mið- vikudaginn i máii þvi sem raf- verktakar höfðuðu gegn Félagi isl. rafvirkja I sumar. Eins og fram hefur komið i fréttum af málinu, samþykktu rafvirkjar á fundi sinum 19. júlí, að vinna ekki að nýlögnum eða meiri háttar breytingum á raflögnum, nema i uppmælingu. Stefnendur fóru fram á, að samþykkt þessi yrði dæmd ólög- leg og félagiö yröi dæmt til að greiöa skaðabætur, vegna ólög- lcgra vinnustöðvana i þessu sam- bandi. ásamt sektum. Rafvirkjar voru sýknaðir af ákærunni. og er niðurstaöan byggð á þvi, að ekki er talinn hafa verið kominn á kjarasamningur milli aðilanna. verjar voru að þvi grýttu skip- verjará togaranum Wyre Victory P'D 181 áhöfnina á örvari með járnboltum og fleira lauslegu drasli, sem þeir höfðu við hend- ina. Óðinn birtist brátt á þessum slóðum og hypjuðu brezku togararnir sig þá brott. Ekki munu skipsverjar á örvari hafa orðið fyrir kastvopnum Bretanna, eftir þvi sem bezt er vitað. Þetta mun vera i niunda skipti, sem islenzkt varðskip klippir vörpuna frá Brezkum togara, sið- an fiskveiðilandhelgin var færð út i 50 sjómilur þann 1. september s.l. Togarinn Vianova hefur ekki áður komið verulega við sögu hjá Landhelgisgæzlunni, en það sama verður ekki sagt um Wyre Victory frá Fleetwood. Til dæmis heíur hann einu sinni fengið að finna fyrir klippum islenzks varð- skips úti fyrir Vestfjörðum. Togarinn Vianova GY 590 er i eigu eins stærsta útgerðarfélags i Bretlandi, og eigendurnir eru Northen Trawlers Ltd i Grimsby. Stp-Reykjavik Þesser að vænta, að Sandskeið verði sá staður, sem athygli manna beinist mest að i dag. Enda væri það ekki að ástæðu- lausu, þvi að þarna mun væntan- lega gerast sá atburöur, sem ekki á sér hliðstæðu i allri sögu ts- lands: flugtak mannaðs loftbelgs, með islenzkri áhöfn (þremur mönnum) og islenzkur að allri gerð. Það sem hér um ræðir er auðvitað hann Vindsvalur, sem svo margumtalaður hefur verið að undanförnu. Aðöllum likindum verður þó ekki lagt upp i sjálft ferðalagið i dag, en ef áfyllingin gengursamkvæmtóskum, verður belgurinn væntanlega prófaður, þ.e. látinn fara á loft með áhöfn og öllu saman. Kramhald á bls. 19 Dularfulla kúahvarfið: BÆNDUR LÁTA LÍTA í FJÓSIN HJÁ SÉR SB-Reykjavik. Ekkert hefur enn komiö i ljós, sem varpað gæti ljósi á hið dularfulla hvarf kúnna tveggja fyrir norðan, en nú eru um tveir mánuöir siðan sú fyrri hvarf. Þeirra var leitað skipulcga. sólarhringum sam- an. án árangurs. Mikið er um málið rætt manna á meðal á Akureyri og ýmsar getgátur uppi. Bændur i nágrcnninu hafa að líkindum lieyrt getgáturnar, þvi að þeir hafa boðið tilraunastjóra að koina og lita i fjós sina. Mistök geta hafa átt sér stað, þar sem kýr liafa hin siðari ár gerzt allmjög likar i útliti vegna ky nbótastarfsemi. En þá vcrður enn undarlcgra mcð hvarf scinni kýrinnar, þar sem hún var i hópi á afgirtu túni og gctur ekki hafa komizt út af sjálfsdáöum. Tryppi hverfur SB-Reykjavík. Viðar virðast skepnur hverfa á dularfulian hátt cn á Akureyri. Fyrir þremur vik- um hvarf frá Iðu i Biskupst- ungum vcturgömul hryssa, jörp með þrjá fætur hvíta, en vinstri framfót dökkan og hvitt tagl. Mikil leit hefur farið fram i nágrenninu. cn engan árangur borið. Ef einhverjir kynnu að verða varir við jarpskjónu þessa þarna i grennd, eru þeir vinsamlega beðnir að láta Iðu vita, eða hringja i sima 32529 i Reykjavik. Árekstur á Suðurlandsvegi: Ungbarn í körfu gegnum framrúðuna Klp-Reykjavik Um miðjan dag i gær, varð mjög harður árekstur á Suður- landsvegi, skammt fyrir vestan Hólm. Þar rákust saman tvær fólksbifreiðar, Volvo og Volkswagen, og skemmdust mikið. Fimm manns var i bifreið- unum, þar af eitt kornabarn, og var aílt flutt á slysavarðstofuna meira eða minna slasað, nema barnið, sem slapp ótrúlega vel. Áreksturinn varð með þeim hætti, að annarri bifreiðinni var ekið fram úr vörubifreið, sem var að strá sandi á nýja veginn. Kom þá hin bifreiðin beint á móti og var ekki hægt að forðast árekstur þvi nokkur hálka var á götunni. I Volvo-bilnum var tvennt full- orðið, sem sat i framsætinu, svo og tvennt fullorðið i hinum bflnum. Þar var einnig kornabarn i körfu i aftursætinu og tókst karfan á loft við áreksturinn og út um framrúðuna, sem hrökk i sundur við fyrsta höggið. Við það hrökk einnig upp farangurs- geymslulokið á Volksvagninum og lagðist fyrir framrúðuna, þannig að karfan með barninu fór ekki alla leið út og féll þvi ekki i götuna. Eins og fyrr segir, vár allt fólkið flutt á slysavarðstofuna, þar sem gert var að meiðslum þess, en það var viða skorið og skrámað, — alit nema litla barnið, sem slapp ómeitt þrátt fyrir ferðalagið i körfunni, enda mun það hafa verið vel dúðað i sæng. Loftbelgurinn varð fullgerður i gærkvöldi og eru piltarnir sem bjuggu hann tii aðbera hann út úr Tónabæ, en þaöan var honum ekiö upp á Sandskeið. Ventillinn, sem sóttur var til Bandarikjanna er á höfði Holbergs, sem er fremst á myndinni. Tímamynd Gunnar

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.