Tíminn - 25.11.1972, Page 4
4
TÍMINN
Laugardagur 25. nóvember 1972
★
Filliuii á myndinni er
pabbi minn.
Mignon litli er ekki nema
nokkurra mánaða gamall, en er
samt orðinn 150 kiló á þyngd. En
Mignon á eftir að þyngjast
mikið enn og verða stór. eins og
★
pabbinn á myndinni á veggnum,
og verða nokkur tonn. En ekki
er vfst,að litli ffJlinn eigi þægi-
lega ævi framundan, þvi hann
er i eigu manns i Banda-
rikjunum, sem elur upp dýr og
temur til að koma fram i
sirkusum.
Lifshættulegur
leikfélagi.
Þaðþarf sterkar taugar til að
vera góðkunningi tannhvalsins
Lolitu, en Mike karlinn Jax
hefur þann kunningsskap að
atvinnu. Lolita, sem er nær
fimm metrar að lengd og vegur
hálft annað tonn, er i sædýra-
safni á Miami, og nokkrum
sinnum á dag stingur Jax
hausnum inn i opið ginið á
hvalnum til að skemmta áhorf-
endum. Ef Lolitu dytti i hug að
skella saman skoltunum, þegar
Jax er með hausinn inni i kjafti
hennar, færi sýningin út um
þúfur, og yrði hún þá að fá sér
nýjan kunningja og samverka-
mann.
Oröin leið á slöngum.
Aðdáendur Linu langsokks
muna sjálfsagt eftir.þegar Lina
fór i sirkus, ásamt vinum
sinum, og lék þar allar hunda-
kúnstir eftir trúðum og krafta-
mönnum • Annika Fors hefur
dansað með slöngur sinar á
skemmtistöðum i Sviþjóð og
Danmörku, en er nú orðin leið á
kyrkislöngum og segist helzt
aldrei vilja sjá svoleiðis kvik-
indi meir. Er hún nú farin að
syngja og ætlar að hafa ofan af
fyrir sér með þvi að striplast á
skemmtistöðum með slöngur
einar fata.
— Auðvitað getur hann lika hafa
séð eftir þessu og farið heim.
Salernið hjá lækninum var
bilað og þess vegna var hringt i
viðgerðarmann. Hann leit á sal
ernið, fleygði nokkrum
magnýltöflum i skálina og sagði:
— Hringið til min á morgun, ef
þetta virkar ekki.
Þegar maðurinn kom heim,
fann hann konuna grátandi.
— Hundurinn át matinn, sem átti
að vera i kvöldmatinn.
— Það gerir ekkert til elskan
min. Við kaupum bara nýjan
hund.
Tvö hippi voru á gangi á
Strikinu. Þar sáu þau kaþólskan
munk, með handlegginn i fatla.
— Hvað kom fyrir, spurði annað
hippið munkinn.
— Ég datt i baðkerinu, svaraði
hann.
— Hvað er baðker? spurði annað
hippið hitt, þegar þau héldu
áfram göngunni.
— Það veit ég ekki, en ég er
heldur ekki kaþólskur.
— Eg lietd, að við höfum ekkert
hér að gera.
— Blessuð vertu ekki aö skoöa
eldhúsiö. Maöurinn minn er i
frii i nokkra daga.
DENNI
DÆMALAUSI
Ég er bara að horfa á „okkar
eftirsóttu gómsætu kökur.”