Tíminn - 29.11.1972, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 29. nóvember 1972
TÍMINN
7
Þegar loft-
belgurinn
sveif yfir
Austurbæinn
KJ—Reykjavík
Sunnudaginn 22. júni 1957, var
mikiðum að vera á Reykjavikur-
flugvclli. Þá efndi Flugmálafélag
islands til „flugdags” þar sem
hinar ýmsu greinar flugsins voru
kynntar, og flugvélar voru til
sýnis. Hápunktur hátiðahaldanna
á „flugdeginum” var flug
hollenzks loftbelgs, sem hollenzk
hjón flugu.
Flugferð þeirra hjóna varð að
visu ekki löng, en hún er þeim i
fersku minni, sem með henni
fylgdust. Loftbelgurinn var
griðarstór eða 27 metrar i
þvermál, þar sem hann var gild-
astur, og var belgurinn fylltur
vetni. Neðan i honum hékk bast-
karfa, sem varla rúmaði meira
en þau hjón og tiu kg af pósti.
Töluverðan tima tók að fylla
belginn, og voru miklar varúðar-
ráðstafanir viðhafðar, enda
þúsundir manna á flugvellinum i
sólskini og bliðu.
Að flugsýningunni lokinni, var
komið nægilegt vetni i belginn, og
var honum fyrst sleppt upp i loftið
i kaðli, en siðan stigu þau hjón
um borð. Sandpokar voru i körf-
unni, og eftir þvi sem pokunum
var sleppt, steig belgurinn hærra
i loft upp.
Eftir skamma stund barst
belgurinn i austanátt yfir bæinn,
jafnframt þvi sem hann steig
stöðugt hærra i loft upp.
Eins og áður segir, þá varð flug
belgsins ekki langt, enda ekki við
þvi búizt, og var lent á túninu á
Korpúlfsstöðum, þar sem fél. úr
Reynsluferð loftbelgsins
Hríseyingar
Spila- og myndakvöld verður að Hótel
Esju, fimmtudaginn 30. þm. Salurinn
opnaður kl. 8.30 eh.
Skemmtinefndin.
Mannfjöldinn fylgdist með þegar loftbelgurinn steig hægt og tigulega I loft úpp. Otlit bilanna og klæðn
aður kvenfólksins ber þess greinileg merki að myndin er orðin fimmtán ára gömul. (Timamyndir Kári)
Flugbjörgunarsveitinni voru til
taks. Lendingin gekk að óskum,
og jafnskjótt og karfan nam við
jörð, var póstpokinn tekinn úr
henni, og honum ekið i næsta
pósthús, sem var Brúarland i
Mosfellssveit.
Þar sem aðeins voru flutt tiu
kiló af pósti i þessari fyrstu loft-
belgsferð á fslandi, stigu um-
slögin strax mjög i verði, en
þegar frá leið lækkaði það, og
mun vera i kring um fimmtán
hundruð krónur i dag.
f dag ráðgera þeir Hamra-
hliðarofurhugar að fara á loft i
fyrsta islenzka loftbelgnum, og
fylgja þeim góðar óskir, er þeir
fara i kjölfar Hollendinganna i
loftbelg um loftin blá.
LUCAS-RAFGEYMAR
i flestar gerðir bifreiða og
vinnuvéla fyrirlíggjandí
Létt í spori
Þessi Singer saumavél kostar
aðeins kr. 18.669,00, en hefur
flesta kosti dýrari saumavéla
og þann kost fram yfir að hún
vegur aðeins 6 kíló og er þess
vegna mjög létt í meðförum.
Þegar þér saumið úr hinum
nýju tízkuefnum getið þér valið
úr mörgum teygjusaumum, m.
a. ,,overlock“, svo að engin
hætta er á að þráðurinn slitni
þó að togni á efninu.
Singer 438 hefur einnig: ^ innbyggðan, sjálfvirkan hnappagata-
saum tvöfalda nál, öryggishnapp (gott þar sem börn eru),
fjölbreyttan skrautsaum og marga fleiri kosti.
SÖLU- OG SÝNINGARSTAÐIR:
Liverpool, Laugavegi 18A, Domus, Laugavegi 91, Gefjun, Austurstræti,
Dráttarvélar, Hafnarstræti 23, Véladeild SlS, Ármúla 3 og Kaupfélögin um land ailt.
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
$ Véladeild
ARMULA 3 REYKJAVIK. SIMI 38900
Tökum gamlar vélar sem greiðslu upp í nýjar