Tíminn - 29.11.1972, Page 8
8
TÍMINN
Miftvikudagur 29. nóvember 1972
ALÞINGI
U msjón:
Elias Snæland Jónsson
Umræður á alþingi um afnám vínveitinga í veizlum á vegum rikisins:
Ráðamenn þjóðarínnar gangi
á undan með góðu fordæmi
Vilhjálmur Hjálmarsson (F) mælti í gær I sameinuöu þingi fyrir til-
lögu til þingsályktunar, scm hann flytur ásamt fjórum öörum þing-
mönnum, um afnám vinveitinga á vegum rikisins. Eftir nokkrar um-
ræöur var umræöunni frestaö vegna fjarveru ráöherra, sem þá sátu á
rikisstjórnarfundi og veröur umræöunni þvi fram haldiö siöar.
Tillögu þessa flytja þingmenn
úr öllum stjórnmálaflokkum, en
þeir eru auk Vilhjálms.þeir Jón
'Arm. Héðinsson, (A), Karvel
Pálmason (SFV), Helgi F. Seljan
(Ab), og Oddur Ólafsson (S).
Vilhjálmur
sagöi m.a.
framsöguræðu
sinni, aö tillögu-
greinin væri
stutt eöa svo-
hljóöandi: Al-
þingi ályktar að
skora á rikis-
stjórnina
að hætta vinveitingum i veizlum
sinum.”
Greinargerðin er einnig fáorð,
þannig:
„Stöðugt sigur á ógæfuhlið i
áfengismálum tslendinga. And-
spyrna félaga og einstaklinga fær
ekki rönd við reist. Opinberar
skýrslur sanna almannaróm i
þessu efni.
Að dómi flutningsmanna
þessarar tillögu er fyllsta ástæða
til þess.að rikisvaldið gefi hér gott
fordæmi, i stað þess að kynna
Lína norður:
200MW-lína
kostar um
600 millj.
Ef gert er ráö fyrir linu
noröur, sem flytur 200 MW, þá
mun hún kosta um 000
milljónir króna. Eg tel, aö
stefna bcri aö slikri linu, cn
verið er aö kanna, hvort hún
verður lögö I einum eða
tveimur áföngum, — sagöi
Magnús Kjartansson,
iönaöarráöherra i saineinuöu
þingi i gær.
Ráðherra svaraði
fyrirspurn frá Braga
Sigurjónssyni (A) um
háspennulinu frá Sigöldu til
Akureyrar, kostnað við slika
linu, kostnaðarverð rafmagns
komnu til Akureyrar, og
jöfnun á raforkuverði.
Ráðherra sagði, að aðeins
væri hægt að gefa
bráðabirgðatölur, þvi könnun
á málinu stæði enn yfineins og
hann hefði nýlega skýrt
itarlega frá á alþingi.
Ef leggja ætti linu, sem
einungis flytti rafmagn til al-
mennra þarfa Norðlendinga
fyrir raforku, væri nóg að hafa
50 MW linu, sem myndi kosta
um 250 milljónir. Ef hins
vegar væri stefnt að
samtengingu orkusvæöanna
með stórvirkjun t.d. meö
Dettifoss i huga, þá yrði
linan að geta flutt 200 MW og
kostaði um 600 milljónir.
Varðandi orkuverðið, þá
sagði ráðherra það stefnu
rikisstjórnarinnar, að jafna
aðstöðu landsmanna á þessu
sviöi. Fyrsta skrefið væri að
hafa sama heildsöluverð raf-
orku um land allt. Frumfor-
senda þess væri samtenging
veitukerfanna á Suðurlandi og
Norðurlandi.
Bragi Sigurjónsson (A)
sagði svör ráðherra gefa til
kynna, að óljóst væri, hvernig
háspennulinan yrði. Varðandi
samtengingu taldi Bragi, að
enginn væri á móti henni sem
slikri, fremur væri deilt um
hvort hún ætti að eiga sér stað
nú eða siðar.
drykkjusiði viö margvisleg tæki-
færi.”
Siðan sagði Vilhjálmur: Þessi
greinargerð segir nálega allt,
sem ég kýs að taka fram, um leið
og ég fylgi tillögu okkar fimm
menninganna úr hlaði.
Til þess að fyrribyggja mis-
skilning vil ég þó geta þess, að frá
minni hendi a.m.k. er tillagan
ekki flutt i sparnaðarskyni. Ég
hef ekki kynnzt þvi i átthögum
minum né heldur annars staðar á
landinu, að gestgjafar spari við
gesti sina. Ætlast ég ekki heldur
til þess af rikisvaldinu, þegar
ráðamenn telja hæfilegt að halda
uppi risnu.
Ennfremur vil ég segja þetta:
Þrásiniiis hef ég heyrt fyrirliöa
þjóðarinnar lýsa ugg sinum út af
vaxandi vindrykkju ungmenna —
en engan lofa núverandi ástand á
þvi sviði. Þegar svo er komið
sýnist mér einboðið, að rikis-
valdiö taki upp þá hætti,sem til-
lagar) greinir, enda hef ég aldrei
heyrt dregið i efa,að gott fordæmi
sé góðra gjalda vert.
Þessi tillaga fjallar um tiltölu-
lega afmarkað atriði og ætti þvi
að vera fremur auðveld i með-
förum og afgreiðslu.
Helgi F. Seljan (AB) sagði, að
rikið hefði miklar beinar tekjur af
áfengissölu, en hins vegar einnig
mikil bein og óbein útgjold vegna
áfengisneyzlu. Hann taldi, að
skylda til aðgerða gegn þvi yfir-
þyrmandi vandamáli, sem
áfengisneyzlan væri, hvildi
þyngra á ráðamönnum þjóðar-
innar en öðrum. Færi þvi vel á
þvi, að þeir sköpuðu gott fordæmi
eins og tillagan gerði ráð fyrir
Hann ræddi siðan um opinberar
veizlur, sem sýndar væru i sjón-
varpi og i blöðum. Væri þetta eins
konar kennsla i drykkjusiðum, og
hefði þau áhrif, að ýmsir teldu
áfengisneyzlu eðlilegri en ella
myndi vera, þvi eftiröpun væri
rikjandi i þjóðfélaginu.
Þá taldi þingmaðurinn, að opin-
berar veizlur væru oft upphaf að
allsherjar fyllirii þeirra, sem þátt
i þeim taka.
Þingmaðurinn taldi, að yfir-
gnæfandi meirihluti fólks væri
fylgjandi tillögunni, og kæmi þar
til heilbrigð skynsemi og heil-
brigð lifsskoðun.
Karvel Pálmason (sfv) sagði að
sérhefði virzt sem ýmsir þing-
menn hefðu brosað eða hrist
höfuðið yfir þessari tillögu.
Vonandi teldu þessir þingmenn þó
ekki, að hér væri um gamanmál
að ræða, og flutningsmennirnir
svo fanatiskir og kreddufullir, að
engu tali tæki, þvi hér væri ekki
um neitt gamanmál að ræða.
Áfengisbölið væri það versta
vandamál.sem landsmenn ættu
við að striða. Þingmenn ættu þar
að sporna á móti.
Þá taldi. hann fylleri i veizlum
ýmissa samtaka hneyksli. Einnig
væri hneyksli, að ráðherrar byðu
til vindrykkju. Timi væri til
kominn.að ráðamenn sýndu gott
fordæmi, þvi það væri hneyksli, ef
hið opinbera hefði frumkvæði að
þvi að kynna drykkjusiði.
Oddur ólafsson
(S) taldi þetta l
merka tillögu.
Vandamál
vegna áfengis-
neyzlu væru
mjög stór, og
allt það, sem
legði þeim lið,
sem gegn á-
fengisbölinu
berj-
ast, væri af hinu góða. Það væri
tilgangur tillögunnar að veita
siðferðislegan stuðning þeim,
sem stæðu i baráttunni gegn
áfengisbölinu.
Hann taldi.að ef tillagan yröi
samþykkt, myndi af þvi leiða
heilbrigðari þegnar og bættir
Framhald á bls. 13
Mikill áhugi erlendra fyrirtækja á stóriðju hér:
Vandinn frekar að
velja en að leita
Viðræður við Alþjóðabankann um lán vegna Sigölduvirkjunar
Nokkur fyrirtæki hafa mikinn áhuga á því, að setja niður hér á landi
orkufrckaii iðnað í tengslum við Sigölduvirkjun, og er útlit fyrir, að
liægl verði að ganga frá viðunandi samningum við eitthvert slíkt fyrir-
tæki fyrir mitt næsta ár, — aö þvi er Steingrimur Hermannsson (F)
sagði á alþingi i gær.
Fyrir fundi i sameinuðu þingi lá
fyrirspurn frá Braga Sigurjóns-
syni (A) til iðnaðarráðherra um
Sigölduvirkjun. Var spurt, hvort
rikisstjórnin hefði tryggt sér lán
til þessarar virkjunar, hvað
áætlað væri, að virkjunin kostaði,
og fyrir hve mikinn hluta orku-
framleiðslunnar sé þegar
tryggður markaður.
Magnús
Kjartansson,
iðnaðarráð-
lieria. kvað
stjórn Lands-
virkjunar eiga i
viðræðum við
A 1 þj ó ð a -
bankann, og
væru likur á,að
lán fengist á
næsta ári.
Einnig væri fyrirhuguð lántaka
vegna kaupa á búnaði og vélum,
og litlar likur til annars en hún
fengist. Samtals væru þessar
lántökur eitthvað á 3ja milljarð
króna.
Þá myndi Landsvirkjun leita
lántöku á alþjóðlegum peninga-
markaði, en óvist væri hversu há
sú lántaka þyrfti að vera.
Aætlaðan kostnað við
virkjunina sagði ráðherra vera á
fjórða milljarð króna. Nánari
upplýsingar væri óvarlegt að gefa
vegna útboða, sem fyrir liggja
um þessar mundir.
Ráðherra sagði, að
Sigölduvirkjun myndi bæta 800
GWst af tryggðri orku við vinnslu
kerfi Landsvirkjunar, sem yrði
21!jfl GWst á næsta ári. Ef hins
vegar væri aðeins miðað við orku
fyrir hinn almenna markað, þá
yröi orkuaukningin minni, eða
um 700 GWst.
Ráðherra sagði það fyrst og
fremst hlutverk Sigölduvirkjunar
að fullnægja almennum markaði,
en miðaö við sama vöxt.yrði raf-
orkuþörfin árið 1980 um 255 GWst
á ári umfram núverandi kerfi
Landsvirkjunar.
Þá sagði ráðherra, að nefnd á
vegum iðnaðarráðuneytisins
hefði átt viðræður við erlend
fyrirtæki um orkufrekan iðnað á
Islandi, og væru likindi til, að
samningar um slikan iðnað gætu
tekizt á þeim grundvelli, sem
hann hefði oft áður lýst, að Is-
lendingar hefðu meirihlutavald i
hinu nýja fyrirtæki.
Bragi Sigurjónsson (S) sagði
svör ráðherra sýna, að lán væru
ekki tryggð, og markaður heldur
ekki tryggður.
Geir llallgrimssoii (S)sagði, að
tafir hefðu orðið á samningaum-
leitunum við Alþjóðabankann og
á hönnun virkjunarinnar.
Alþjóðabankinn drægi i efa fjár-
hagslegan grundvöll virkjunar-
innar án stóriðju. Likur væru á,
að 1. vél virkjunarinnar kæmist
ekki i gagnið 1. desember 1975,
heldur 1. april 1976. Slik töf myndi
valda orkuskorti i landinu
veturinn 1975-’76.
Þá sagði hann, að fyrirsjáanleg
væri 25% hækkun á heildsöluverði
rafmagns frá Landsvirkjun, ef
ekki fylgdi stóriðja Sigöldu-
virkjun. Raforkuverð til stóriðju
frá Sigöldu þyrfti að vera
helmingi hærra en frá Búrfelli til
Alversins.
Steingrimur Hermannsson (F)
kvaðst vera i nefnd þeirri, sem
iðnaðarráðherra nefndi,að ætti i
viðræðum við erlend fyrirtæki um
stóriðju hér á landi. Hefði orðið
vart við mikinn áhuga hjá er-
lendum fyrirtækjum að reisa hér
stóriðjuver, sem tslendingar
hefðu meirihlutaeign i og sem lyti
islenzkum lögum. Vandinn væri
fremur að velja úr en leita að
stóriðjuverkefnum. Væri von um
hagstæðan samning fyrir mitt
næsta ár.
Halldór Blöndal
Á fundi sameinaðs
gær var kjörbréf
Blöndals, kennara.
fyrir og samþykkt,
tók sæti á alþingi i
Ellerts B. Schrams
erlendis.
Illllllllll
á þing
alþingis i
Halldórs
(S) tekið
en hann
fjarveru
sem er
Húsnæðisleysi skólafólks
Lárus Jónsson (S) mælti i
gær fyrir þingsályktunartil-
lögu, sem hann flytur ásamt
Matthiasi Bjarnasyni (S) um
bætta aðstöðu nemenda lands-
byggðarinnar, sem sækja sér-
skóla á höfuðborgarsvæðinu.
Einnig tóku til máls um til-
löguna Vilhjálmur
Iljálmarsson (F). Helgi F.
Seljan (AB) og Ragnhildur
Helgadóttir (S).
Viðvörunarkerfi á hrað-
brautum
Oddur ólafsson (S) mælti
fyrir þingsályktunartillögu i
gær um, að sett verði upp við-
vörunarkerfi á hraðbrautum.
Er hér um að ræða tæki, sem
notuð hafa verið erlendis og
vara við hálku. Kom fram, að
tækiþessieru nokkuðdýr, en
flutningsmaður benti á, að
slys á hraðbrautum væru
þjóðfélaginu einnig mjög dýr.
Jarðarsölur
Gisli Guðmundsson
(F).Lárus Jónsson (S),Stefán
Valgeirsson (F) og Ingvar
Gislason (F)lögðu i gær fram
ineðrideild frumvarp til laga
um heimild fyrir rikisstjórn-
ina til að selja Grýtubakka-
hreppi jörðina Grenivik, eyði-
býlið Svæði og nábýlið Höfða-
brekku. Frumvarpið var flutt
samkvæmt ósk hreppsnefndar
Grýtubakkahrepps og i
samráði við þingmenn
Norðurlandskjördæmis eystra
i efri deild.
Laxárvirkjun III á
hilluna
Þvi hefur verið marglýst
yfir, að virkjun i Laxá um-
fram það, sem nú er unnið að,
er ekki á dagskrá hjá iðnaðar-
ráðuneytinu, og get ég endur-
tekið það hér, sagði Magntis
Kjartansson ^jðnaðarráðherra
i svari við fyrirspurn frá
Braga Sigurjónssyni (A)um
Framhald á bls. 13
Tillaga Ingvars Gislasonar(F) og fleiri:
Stofnaður verði
húsfriðunarsjóður
Ingvar Gislason (F) og
Þórarinn Þórarinsson (F) lögðu i
gær fram i neðri deild frumvarp
til laga uin Húsfriðunarsjóð, en
hlutverk sjóðsins skal vera að
styrkja með fjárframlögum
friðun, viðhald og endurbætur
húsa, húshluta og annarra mann-
virkja, seni hafa menningarsögu-
legt eða listrænt gildi. Heimilt er
að verja allt að 10% af árlegu ráð-
stöfunarfé sjóðsins til upplýsinga-
og kynningarstarfsemi i þágu
byggingaverndarmála.
I greinargerð með frumvarpinu
eru húsfriðunarmál rakin Itar-
lega og fjallað nánar um
sjóðsstofnunina. Þar segir m.a.:
„Eins og fram kemur I 1. gr.
þessa frv., er hlutverk Húsfrið-
unarsjóðs hugsað svo, að
sjóðurinn styrki friðun, viðhald
og endurbætur húsa og annarra
mannvirkja, sem hafa
menningarsögulegt eða listrænt
gildi. Einnig er svo fyrir mælt, að
heimilt sé að veita fé úr sjóðnum
að tilteknu marki (10% ráð-
söfnunarfjár) til upplýsinga- og
kynningarstarfsemi I þágu
byggingaverndarmála. 1 2. gr.
frv. er gert ráð fyrir, að árlegar
tekjur sjóðsins yrðu eigi minni en
8 millj. kr. á ári. Ef frumvarp
þetta næði fram að ganga, væri
stigið stórt spor fram á við I afar
mikilvægu menningarmáli. Það
mundi gerbreyta aðstöðu allri að
þvi,er varðar raunhæfar aðgerðir
i húsafriðunarmálum. Til þess
ber brýna nauðsyn.
Um land allt, næstum að segja i
hverri sveit, er að finna
byggingarsöguleg verðmæti,
sem gætu orðið skjótri eyðingu að
Framhald á bls. 13