Fréttablaðið - 04.07.2004, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
SUNNUDAGUR
SPRENGING Í BORGARTÚNI
Fjórar rúður brotnuðu í húsi Ríkiskaupa
og lítill fólksbíll skemmdist þegar spreng-
ing byggingaverktaka við Borgartún fór
úrskeiðis. Sjá síðu 6.
METALLICA Í EGILSHÖLLINNI
Hin heimsfræga þungarokkhljómsveit
Metallica heldur stórtónleika í Egilshöll-
inni i Grafarvogi í kvöld. Búist er við átján
þúsund manns í höllina. Á meðal hljóm-
sveita sem hita upp eru Mínus og Brain
Police. Húsið opnar klukkan 17.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
4. júlí 2004 – 180. tölublað – 4. árgangur
Íslensk blaðaútgúfa hefur tekið miklum breytingum á síðustu
árum. Ungt fólk hefur verið iðið við kolann.
EINNA BEST AUSTANLANDS Ef
fer sem horfir verður bjart með köflum
austantil. Skýjað og skúrir vestantil á
landinu. Hiti 10-15 stig. Sjá síðu 6.
FERÐAHELGINNI AÐ LJÚKA Þús-
undir Íslendinga sóttu skipulagðar hátíðir
víða um land um helgina. Tíu þúsund
manns sóttu Landsmót hestamanna á Hellu.
Þúsundir gesta voru á Akureyri. Sjá síðu 4
SKÍFAN SELD Gengið var frá kaupum á
Skífunni í gær þegar félag í eigu Róberts
Melax keypti fyrirtækið af Norðurljósum.
Kaupin voru gerð eftir að forkaupsréttur
Jóns Ólafssonar rann út. Sjá síðu 2
FÉLL Í SJÓINN Maður féll í sjóinn af
Miðbakka í Reykjavíkurhöfn um fimmleytið í
gær. Lögregla kom fljótt á staðinn og stuttu
síðar köfunarsveit og tækjabíll slökkviliðsins
ásamt sjúkrabíl. Sjá síðu 2
SÍÐUR 12 &13
▲
Sextán ára stríðinu er lokið.
Ísfirska hörkutólið lék
slyngan leik við
sláttumanninn slæga.
Í minningu
Rabba
SÍÐA 16
Leiðist
hugmyndaleysi
▲
SÍÐUR 18 &19
Enn ríkir óvissa
Formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks reyna að ná samkomulagi um þátttökuskilyrði í
þjóðaratkvæðagreiðslu. Ríkisstjórnarfundur í dag. Þingmenn Framsóknar harðir á sínu.
Íslensk götublöð gömul og ný
▲
Knattspyrnuáhuga-
maðurinn Þorsteinn J.
ræðir um fótboltann,
þjóðfélagið og
framtíðina.
ÞJÓÐARATKVÆÐI Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra og Davíð
Oddsson forsætisráðherra fund-
uðu í gær til þess að freista þess
að ná samkomulagi um lagafrum-
varp um þjóðaratkvæðagreiðslur,
sem leggja á fyrir Alþingi á morg-
un.
Stefnt hafði verið að því að
leggja frumvarpið fram á ríkis-
stjórnarfundi í gær en ekkert
varð úr því þar sem stjórnarflokk-
arnir höfðu ekki enn náð saman
um lágmarks þátttökuskilyrði.
Framsóknarmenn vilja að lág-
markið miðist við að 25-30 prósent
kosningabærra kjósenda þurfi til
að fella lög úr gildi en sjálfstæðis-
menn hafa lýst því yfir að þeir
vilji að lágmarkið verði 44 pró-
sent.
Þeir stjórnarþingmenn sem
Fréttablaðið ræddi við telja lík-
legt að Davíð og Halldór nái sam-
komulagi um málið fyrir ríkis-
stjórnarfundinn í dag. Halldór
hefur umboð frá sínum þingflokki
um að semja um að hámarki 30
prósent. Þeir þingmenn Fram-
sóknarflokksins sem blaðið ræddi
við segja að verði niðurstaða for-
mannanna sú að meira en 30 pró-
sent þurfi til að fella lög úr gildi
telji þeir sig óbundna til að fallast
á frumvarpið. Þá ríkir óvissa um
afgreiðslu málsins á þingi.
Reiknað er með því að frum-
varpið, verði það tilbúið, verði
kynnt þingflokkum beggja stjórn-
arflokkanna annað hvort eftir rík-
isstjórnarfundinn í kvöld eða
snemma í fyrramálið.
Sjá nánar á síðu 2
trausti@frettabladid.is
Á HESTVAGNI Í HNAPPHELDUNA Þau geisluðu af hamingju, brúðhjónin sem mættu ljósmyndara Fréttablaðsins á mótum Miklu-
brautar og Lönguhlíðar í gærdag. Þau voru ekki á hraðferð úr kirkju til ljósmyndara og síðan í veislu eins og tíðkast oft á brúðkaupsdegi
heldur nutu augnabliksins í hestvagni.
AÐ FÁ MIKIÐ FYRIR LÍTIÐ
Maður í Ohio í Bandaríkjunum kaupir
miða í 290 milljón dollara Mega Million
lottódrættinum.
Bandarískt lóttó:
Vann 20
milljarða
ATLANTA,AP Lottómiði sem seldur
var í vínbúð í Lowell, Massachu-
setts í Bandaríkjunum er rúmlega
20 milljarða króna virði. Allur
potturinn í milliríkjalottóinu Mega
Million fór á þennan eina miða.
Vinningurinn er sá hæsti í sögu
lottósins. Fyrir dráttinn í lottóinu
mynduðust raðir á sölustöðum
lottómiðanna þar sem fólk kepptist
við ná sér í miða til að eiga mögu-
leika á stóra vinningnum. Sagt var
að fólk sem aldrei spilaði í lottóinu
hefði tekið þátt. Enn er ekki vitað
hver sé lukkunnar pamfíllinn sem
eigi vinningsmiðann. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
01 forsíða 3.7.2004 22:13 Page 1