Tíminn - 02.12.1972, Blaðsíða 5
Laugardagur 2. desember 1972
TÍMINN
5
Stendur útvarpsráð fyrir óhróðr
inum um kennarastéttina?
Nokkrar spurningar til útvarpsráðs og menntamálaráðherra að
gefnu tilefni frá fundi barnaskólastjóra í Reykjaneskjördæmi
Að undanförnu hafa verið á
dagskrá hljóðvarpsins þættir, er
nefnist „Bjallan hringir” og hafa
þeir verið kynntir sem þættir um
skyldunámsstigið. Af þvi má
draga þá ályktun, að þeir séu
ætlaðir til kynningar á þessu
skólastigi. Þætti þessa hafa
annazt þrjár ungar stúlkur, er
stunda nám við þjóðfélagsfræði-
deild Háskólans.
Ýmislegt má gott um þessa
þætti segja, en sem kynning á
skyldunámsstiginu hafa sumir
þeirra orðið afkáraleg skripa-
mynd. Meðferð efnisins hefur að
nokkru leyti verið sú, að stjórn-
endur hafa gefið sér forsendur,
siðan fengið utanaðkomendur til
þess að leika kennara og
nemendur og lagt þeim i munn
ýmislegt það, er færir rök að
þeim forsendum, sem stjórn-
endurnir i upphafi gáfu sér. Þetta
gildir um flesta þættina, en að
visu i misjöfnu mæli. Með þessu
hefur verið reynt að sýna fram á
áhugaleysi og þekkingarskort
kennara skyldunámsstigsins.
Atriði hafa verið kynnt þannig, að
þau séu tekin upp i kennslustund,
en augljóst er, fyrir þá sem til
þekkja, að þau hafa verið sett á
svið og leikin. Eitt gleggsta
dæmið var, þegar „islenzku-
kennarinn” var látinn leiðrétta
skakkt.
Nú viljum við spyrja útvarps-
ráð:
1. Fyrst staðið er fyrir kynn-
ingu á skólastarfi og þar með á
starfi kennarastéttarinnar, getur
það þá samrýmzt hlutleysis-
ákvæði Rikisútvarpsins að standa
að henni á þennan hátt?
2. Er það eitt af nýjum mark-
miðum útvarpsráðs að draga upp
afkáralega mynd af skólastarfinu
i landinu og koma þvi inn hjá al-
menningi,aðkennarastéttin vinni
starf sitt af litilli getu og enn
minni samvizkusemi?
Að siðustu viljum við spyrja
háttvirtan menntamálaráðherra:
Hefur það gleymzt að koma þvi
að i námsefni hinnar nýju þjóð-
félagsfræðideildar Háskólans,
hvernig standa beri að hlut-
lausum rannsóknum og hvernig
eigi að meta þær?
Það er ekki réttlætanlegt, að
dómi fundarins, að einn áhrifa-
mesti fjölmiðill landsins standi að
kynningu á skyldunámsstiginu á
þennan hátt.
Lionsklúbbur Neskaupstaðar:
Gaf hjartaritunartæki og ný sjúkrarúm
ÞÓ—tteykjavik
Siðastliðin tvö ár hefur verið
starfandi i Neskaupstað Lions-
klúbbur, sem ber nafnið Lions-
klúbbur Norðfjarðar. Starfsemi
klúbbsins hefur að mestu beinzt
að liknar- og mannúðarmálum,
eins og flestra Lionsklúbba, en
einnig hefur klúbburinn beitt sér
fyrir umhverfismálum og m.a.
hafa félagar hans sáð fræi og
dreift fræi og áburði i nágrenni
Neskaupstaðar og Norðfjarðar-
sveitar.
Núverandi formaður klúbbsins,
BirgirStefánsson, bæjargjaldkeri
i Neskaupstað, sagði i samtali við
blaðið, að stofnendur klúbbsins
hefðu verið 23 talsins, en um
þessar mundir væru klúbbfélagar
38.
Strax fyrsta veturinn, sem
klúbburinn starfaði, hófu félagar
Tíminner
peningar
Auglýátf
iTÍmanum
hans söfnun til kaupa á nýum
sjúkrarúmum fyrir Sjúkrahús
Neskaupstaðar, til endurnýjunar
á rúmkosti sjúkrahússins. Þann
vetur keypti klúbburinn 3 full-
komin sjúkrarúm með full-
komnum útbúnaði, og aðrir
aðilar i Neskaupstað keyptu fleiri
rúm. Siðastliðinn vetur söfnuðu
félagar klúbbsins fé til kaupa á
hjartalinuritunartækisem kostaði
hátt _á annað hundrað þúsund
krónur, og um þessar mundir er
unnið að kaupum á tveim barna-
sjúkrarúmum af mjög full-
kominni gerð. Eru þau m.a. búin
inngjafaútbúnaði og upp-
strekkjurum.
En málefni sjúkrahússins eru
ekki einu málin, sem þeir Lions-
félagar hafa látið til sin taka.
Birgir segir, að á milli jóla og
nýárs haldi þeir skemmtun fyrir
fólk i Neskaupstað, sem komið er
yfir 65 ára aldur. Á skemmtuninni
er gamla fólkinu gefið kaffi og
meðlæti, skemmtiatriði flutt,og
fólkið ræðir saman. Hafa þessar
skemmtanir ávallt verið vel
sóttar. Siðast liðið sumar fóru
lionsfélagar með gamla fólkið i
skemmtiferð um Fljótsdals-
hérað, fóru þeir á sinum eigin
bilum með fólkið, og var þátt-
takan mjög góð.
t Atlavik var veður mjög gott,
þegar fólkið bar að garði, og ein-
hver góður maður hafði haft með
sér harmóniku i ferðinni, og þar
af leiðandi þótti tilvalið að taka
nokkur dansspor á danspöllunum
i Atlavik.
Þá hefur Lionsklúbburinn
dreift fræi og áburði i fjöllin ofan
við Neskaupstað og Norðfjarðar-
sveit, en þar eru mörg ljót sár
sftir skriðuföll. Fræ og áburður
er fengið i gegnum Landvernd en
klúbburinn er aðili að þeim
samtökum. Fræið og áburðar-
dreifingin hefur verið gerð i sam-
ráði við náttiiruverndarráðið i
Neskaupstað og Norðfjarðar-
hrepp.
Klúbburinn hefur reynt ýmsar
leiðir til . fjáröflunar-
starfseminnar og hafa þær yfir-
leitt gefizt mjög vel, m.a. hafa
klúbbfélagar selt ljósaperur á
hverju hausti,og fyrir jólin hefur
verið selt jólasælgæti, sömuleiðis
hefur verið gefið út eitt
auglýsingablað, og annað er i
undirbúningi.
Ævintýragetraun Samvinnubankans
HÉR KEMUR
BJÖSSI BAUKUR
FRÁ BANGSALANDI
Samvinnubankinn efnir til
ævintýragetraunar og verð-
launin eru 100 talsins.
100 sigurvegarar fá Bjössa
Bauk í verðlaun:
Getraunin verður birt hér í
blaðinu frá þriðjudegi 5.
des. til laugardags 9. des.
og verður í því fólgin að
þekkja í hvaða ævintýri
Bjössi Baukur er staddur
hverju sinni.
Aðrir geta eignazt Bjössa
Bauk með því að stofna
sparisjóðsbók í Samvinnu-
bankanum með 500 króna
innleggi.
#SAMVINNUBANKINN
Bankastræti 7 — Reykjavík.
Fjölskyldu-
SKEMMTUN
i Súlnasal Hótel Sögu á morgun — sunnu-
daginn 3. desember — kl. 3 og 9 e.h.
IiAItNASKEMMTUN KL. 3 E.H.
Kynnir Pálmi Pétursson kennari.
Skemmtiatriði:
1. Telpnakór öldutúnsskóla.
2. Þórhallur Sigurðsson, skemmtir.
3. Halla Guðmundsdóttir og Hjalti
Rögnvaldsson, skemmtiþáttur.
4. Dans. Ragnar Bjarnason og hljómsveit
láta börnin dansa. Jólasveinar koma i
heimsókn með lukkupoka.
Á barnaskemmtun: Glæsilegt leikfanga-
happdrætti með 400 vinningum.
SKEMMTUN KL. 9 E.H.
Kynnir Gunnar Eyjólfsson.
Skemmtiatriði:
Ávarp: Frú Hulda Á Stefánsdóttir.
1. Sólskinsbræður syngja með undirleik
Áslaugar Helgadóttur.
2. Róbert Arnfinnsson og Valur Gislason
flytja samtalsþátt úr „Sjálfstæðu fólki”.
3. Maria Markan og Tage Möller rifja upp
gamla söngva.
Á kvöldskemmtun: 250 vinninga skyndi-
happdrætti. Margir glæsilegir munir, m.a.
Ilugferð til Kaupmannahafnar (Fí).
Aðgöngumiðar seldir laugardaginn kl. 2-4 og við inngang-
inn.
Borð tekin frá um leið. Verð aðgöngumiða fyrir börn kr.
50.00, fullorðna kr. 100.00. — Aðgangur kl. 9 er kr. 200.00.
Ath: Aðgöngumiði kvöldsins gildir sem
happdrættismiði. Dregið kl. 12. Vinning-
ur: Ferð til Mallorca með Ferðaskrifstof-
unni úrvali.
Húsið opnað kl. 7 fyrir matargesti. —
Dansað til kl. 1. — Hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar.
Öllum ágóða af skemmtununum verður
varið til kaupa á húsmunum, vinnu- og
leiktækjum til heimila félagsins.
Fjáröflunarnefnd
Styrktarfélags
VÁNGEFINNA.
ÁRMÚLA 7 - SÍMI 84450
OPIÐ
LAUGARDAGA
KLUKKAN
9-12
KONI
HÖGGDEYFAR
sem hægt er að
stilla og gera við
ef þeir bila.