Tíminn - 02.12.1972, Qupperneq 13

Tíminn - 02.12.1972, Qupperneq 13
Laugardagur 2. desember 1972 TÍMINN 13 Fjórar listsýningar opnadar um helgina Cirimur M. Steindórsson. Ingiberg Mágnússon. Lízt vel á flugferðina, en ekki árstíðina - segir Sigurður Jónsson um loftbelgsflugið ÞÓ—Reykjavik. Litið hefur verið hægt að aðhaf- ast með loftbelginn „Vindsval” siðustu dægur, og er það veðrátt- unni um að kenna.Nú mun hins- vegar ákveðið, að loftbelgurinn verði fylltur vetni um leið og veð- urguðirnir sýna bliðu sína i verki. í fyrstu mun ekki verða dælt meira vetni i loftbelginn, en svo, að hann lyfti sér i tveggja metra hæð, en til þess mun þurfa um 200 rúmmetra af vetni. Þegar belgur- inn verður kominn i tveggja metra hæð, munu menn frá loft- ferðaeftirlitinu reyna öryggisloka loftbelgsins, og hleypa vetninu úr honum. Ef öryggislokinn reynist vera i fullkomnu lagi, þá er ekk- ert til fyrirstæðu með fyrstu flug- ferðina. Sigurður Jónsson', yfirmaður loftferðaeftirlitsins sagði i sam- tali við blaðið, að sér litist vel á þessa fyrirhuguðu ferð piltanna i loftbelgnum: — Þetta eru klárir piltar og hafa hugsað fyrir flestu, — en það er bara árstiðin, sem okkur hjá loftferðaeftirlitinu lýst ekki beint vel á sagði Sigurður. Sigurður sagði, að þetta væri eini þáttur flugsins, sem Islendingar hefðu ekki fengizt við, og þessvegna væri gaman að, ef þetta tækizt. Svona flug ætti að reyna yfir sumartímann, þegar veður væru góð, en við hjá loft- ferðaeftirlitinu gerum allt til þess að úr ferð piltanna geti orðið. Og ef ekki verður hægt að fljúga á næstunni, þá veit ég að Flug- málafélag Islands og flugmála- stjóri munu reynast piltunum hjálplegir. Meðal annars veit ég að flugmálastóri er reiðubúinn að veita loftbelgnum húsaskjól ef fresta verður fluginu í vetur. 19 brezkir og v-þýzkir sjó- menn á íslenzk Helga Weisshappel er löngu kunn fyrir list sina bæðiheimaog erlendis en siðast sýndi hún i Bogasalnum 1968. Að undanförnu hefur hún dvalizt i Banda- rikjunum og tekið þátt i sam- sýningum þar m.a. á vegum sam- takanna Art League of Northern Virginia (Listasamtökum norður Virginiurikis) en hún er með- limur i þeim. Einn gagnrýnandi kemst svo að orði um sýningu hennar i New York 1971 að meðferð hennar á vatnslitunum beri vott um mikla ögun og hóf- stillingu og tekursem dæmi mynd hennar „Sköpun” sem sýnir Surtseyjargosið eins og það kemur listakonunni fyrir sjónir. Myndirnar á þessari sýningu Helgu hafa ekki sézt hér áður en margar þeirra hafa verið á sýn- ingum erlendis Sýningin er opin daglega kl. 14-22 til 11. des. Sýning þeirra Margrétar og Steve Fairbairn hefur dálitla sérstöðu meðal þessara fjögurra, sem hér er getið um. Hér er um að ræða fyrstu sýningu hérlendis sem byggð er eingöngu upp á hreyfi- list , (kinetic). Hún byggist á þvi að litir geta breytt formi og formið litum. Verkið breytir um svip eftir þvi hvernig ljós fellur á það áhorfandinn sér það á ýmsa vegu ef hann litur á það frá mörgum sjónarhornum. Sjálf segja þau, að tækin sem þau nota sé meira sótt i eðlisfræðibækur en handbækur málara. Ætlun þeirra sé að skapa lifandi list, sem ekki er hægt að kalla fram með málningu einni saman. Þau Margrét og Steve hafa bæði stundað nám sitt i Englandi siðan 1968 hafa þau unnið saman að verkum sinum og tekið þátt i samsýningum þar ytra og i Reykjavik. Sýningin verður opin daglega kl. 14-22 til ellefta des- ember. Sýning Ingibergs Magnússonar er fyrsta einkasýning hans en hann hefur tekið þátt i sam- sýningum bæði heima og er- lendis. Nám * sitt hefur hann stundað i Handiða og myndlistar- skólanum. Á sýningu hans eru um tuttugu myndir. Grimur M. Steindórsson stundaði nám i skóla, sem sem kallaðist Fristundamálarar og var nokkurskonar fyrirrennari myndlistarskólans. Aðalkennari hans var Kjartan Guðjónsson en einnig stundaði hann um skeið nám hjá Ásmundi Sveinssyni. Hann hefur farið utan og kynnt sér myndlist bæði i Evrópu og Bandarikjunum. Verk hans eru til i einkasöfnum m.a. hjá Þjóð- leikhúsinu. Sýningin verður opin daglega kl. 14-22 til tiunda desember. Taivaljlirvi stendur hér við tvö málverk, sem hann hefur málað á ís- landi. Finnar með málverka- sýningu í Keflavík ÞÓ—Reykjavik. 1 gær var opnuð i Iðnaðar- mannahúsinu i Keflavik, sýning á 34 málverkum' fyrir tvo finnska listamenn. Listamennirnir heita Kalervo Konster og Juhani Taivaljárvi. Myndir Konsters eru 17 að tölu, allt oliumálverk. Allar eru þær blómamyndir. Myndir Konsters eru mjög vinsælar i heimaborg hans Vasa. Verk Taivaljárvi eru einnig 17, en Taivaljdrvi hefur áður sýnt þrisvar sinnum hér á landi og selt hér margar myndir. Málverkin hans eru öll upp- hleypt, og eru margar þeirra frá Islandi. Allar myndirnar eru til sölu. Sýningunni lýkur á morgun. sjúkrahús frá I. september ÞÓ—Reykjavik I gær voru liðnir þrir mánuðir frá þvi, að islenzka fiskveiðilög- sagan var færð út i 50 sjómilur. A þessum þrem mánuðum hafa 10 brezkir sjómenn meira og minna slasaðir verið lagðir inn á sjúkra- hús á tslandi, að auki var komið með einn látinn brezkan sjómann til Seyðisfjarðar. A sama tima hafa niu v-þýzkir sjómenn verið lagðir inn á islenzk sjúkrahús. Hafa Þv> alls 19 sjó- menn af lándhelgisbrjótum verið lagðir inn á islenzku sjúkrahúsin. Þeir mánuðir, sem liðnir eru frá útfærslu landhelginnar eru með meiri slysamánuðum á sjón- um og sömu mánuði undanfarin ár hafa verið lagðir meira en 100 brezkir og v-þýzkir sjómenn á is- lenzk sjúkrahús. Á þessu sést að hér er um mikla fækkun að ræða, og enda eru læknar um borð i öll- um eftirlitsskipunum, sem land- helgisbrjótunum til aðstoðar og hafa þeir gert að sárum flestra þeirra sjómanna, sem hafa slas- azt. Aðeins hafa verið fluttir i land þeir menn sem alvarleg meiðsli hafa hlotið. JGK—Reykjavik Fjórar listsýningar verða opn- aðar i Reykjavik um helgina. Helga Weisshappel opnar sýningu i Bogasal þjóðminjasafnsins og sýnir þar þrjátiu og tvær myndir, flestar vatnslitamyndir eða svo- kallaðar akrylic myndir. 1 norræna húsinu halda sýningu Margrét Jóelsdóttir og Stephen Fairbairn. Sú sýning hefur yfir- skriftina ,,Ljós og litir” og er ekki málverkasýning i venjulegum skilningi. sjálf kalla þau list sina hreyfilist. Á Laugavegi 21 sýnir Grimur M. Steindórsson sextiu oliumyndir og i Galleri Súm við Vatnsstig er á ferðinni ungur listamaður Ingiberg Magnússon með fyrstu einkasýningu sina. Margrét og Steve. Timamyndir Róbert. Helga Weisshappel. Myndin heitir Landsýn.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.