Tíminn - 02.12.1972, Page 16
16
TÍMINN
Laugardagur 2. desember 1972
Hér á myndinni , sjást ungir piltar sem taka þátt i fimleikasýningunni á morgun i Laugardalshöllinni,
vera að æfa sig i húsi Jóns Þorsteinssonar á þriðjudagskvöldið s.l. (Timamynd Gunnar)'
STÓRKOSTLEG FIMLEIKASÝNING
í LAUGA R DALSHÖLLIN NI
- 750 þátttakendur taka þátt í sýningunni, sem hefst á morgun kl. 15
Á morgun efnir Fim-
leikasamband íslands og
Iþróttakennarafélagið til
mikillar iþróttasýningar í
Laugardalshöllinni. 750
þátttakendur úr félögum
og skólum, taka þátt i fim-
leikasyningunni og verða
þar á boðstóinum ýmsar
æfingar og þrautir. Þátt-
takendur verða að mestu
frá félögum og skólum í
Reykjavík, einnig koma
fram þátttakendur frá
Hafnarfirði, Hrútafirði og
Akranesi.
Samskonar sýning og þessi, var
haldin i fyrra og vakti hún mikla
hrifningu, iþróttahöllin. i
Laugardal fylltist þá og var
geysileg stemmning á áhorfenda-
pöllunum, meðan þátttakendur
sýndu listir sinar. Sýningin á
morgun sunnudaginn 3.
desember, hefst kl. 15 og verður
hún stórfenglegri heldur en sýn-
ingin i fyrra, sem heppnaðist svo
vel. Sýningin á sunnudaginn
verður litrikari — meira verður
um fána, borða og slæður i
ýmsum skærum litum og ýmiss
konar hópsýningar með tónlist,
áhaldaleikfimi !og gólfæfingar.
Heykjanesmeistarar H.K. I 3. fiokk 1972 og GMSK meistarar 1972: Aftari röð talið frá vinstri: Þor-
valdur A Eiriksson, formaður H.K., Sturla Frostason, Gissur Kristinsson, Hiimar Hilmarsson, Ragnar
Ólafsson, Einar Björnsson, Magnús Arnarsson og Sveinbjörn Björnsson, þjálfari. Fremri röð frá
vinstri: Arsæil Harðarson', Bergsveinn Þórarinsson, Lárus Asgeirsson, fyrirliði, Einar Þorvarðarson,
Jón G. Kristinsson og Vignir Baldursson. íþróttasiða Timans óskar hinu unga félagi og leikmönnum.
félagsins til hamingju með árangurinn og vonar að þeir haidi merki félagsins hátt á lofti i framtiðinni.
FRÁBÆR ÁRANGUR
HJÁ UNGU FÉLAGI
— HK hefur sigrað í þremur mótum á tveimur drum
Féiagsmenn selja jólasælgæti nú um helgina
Yngsta og efnilegasta hand-
knattleiksfélag landsins, er tvi-
mælalaust Handknattleiksfélag
Kópavogs. H.K. var stofnað i
janúar 1970 af 12 drengjum úr
Kársnesskóla i Kópavogi. Allt frá
stofnun félagsins hefur verið
mjög mikill áhugi og uppgangur
hjá félaginu og mörg gleðileg
markmið náðst. 90 piltar iðka nú
reglulega handknattleik hjá H.K.
sem hefur tekið þátt i flestum
opinberum mótum i handknatt-
leik, siðan félagið var stofnað.
Árangurinn hefur verið glæsileg-
ur og á félagið nú marga unga og
efnilega handknattleiksmenn inn-
an sinna vébanda, en árangur
þeirra hefur verið þessi i mótun-
um, sem þeir hafa tekið þátt i:
Nr. 2i Isl.móti 4 fl. 1971
UMSK meistarar i 4 fl. 1971
UMSK meistarar i 3 fl. 1972
Reykjanesmeist. i 3 fl. 1972
Nú'um helgina ætla félagar úr
H.K.aðganga i hús i Kópavogi og
selja jóla-sælgæti til styrktar
starfssemi félagsins og er það von
félagsmanna að Kópavogsbúar
taki vel á móti þeim.
Beztu frjálsíþróttaafrekin 1972:
BORGÞÓR BEZTUR
J' w
I BflÐUM GRINDAHL
ÖE—Reykjavík.
Grindahlaupin eru vanda-
samar, en jafnframt mjög
skemmtilegar greinar. Þvi
miður hefur þátttaka i þeim
ekki verið eins mikil hériendis,
og æskilegt væri. Að visu er
toppurinn allgóöur, þ.e.a.s. fjór-
ir til fimm beztu menn, en
„breiddin" er sáralitil. Þetta er
enn merkilegra fyrir þá sök, að
þessa grein er hægt að æfa allt
árið, a.m.k. hér i Reykjavik.
Næsta sumar fer fram ungl-
ingalandskeppni i Danmörku og
bezti timi næsta árs unglings i
110 m grindahlaupi er aðeins
19.5 sek. Þetta er lélegt og er
vonandi, að einhverjir taki sig
nú til og æfi þessa grein af krafti
i vetur, þannig að við eignumst
frambærilega unglingalands-
liðsmenn næsta sumar. Vil-
mundur Vilhjálmsson KR, er að
visu unglingur næsta ár og hann
verður vafalaust landsliðsmað-
ur i 400 m grindahlaupi og gæti
orðið það i stuttu grindinni lika.
En Vilhjálmur gæti bara orðið
landsliösmaöur i svo mörgum
greinum vegna fjölhæfni sinnar,
að hann kemst ekki yfir það allt.
Borgþór Magnússon, KR var
beztur i báðum grindahlaupun-
um i sumar, en Valbjörn Þor-
láksson, A.skipaði annað sæti i
110 m. Næsta ár verður Val-
björn 39 ára gamall og við skul-
um vona, að hann komi enn
friskur á hlaupabrautina þegar
vorar, en nú mun hann búinn að
vera á toppnum i frjálsum
iþróttum i 20 ár. Frábært og
óvenjulegt.
Boðhlaupin eru ekki góð. Eina
lilið verður að æfa meir, til þess
að árangur verði betri, þ.e.
skiptingar. Boðhlaup eru
skemmtilegar greinar, bæði
fyrir þátttakendur og áhorfend-
ur, en til þess þarf að æfa skipt-
inar. Enn einu sinni ætlum við
að hvetja spretthlaupara okkar
til að' leggja meiri rækt við
skiptingar.
Ilér koina afrekin:
llOm grindarhlaup: sek.
Borgþór Magnúss. KR 15,0
Valbjörn Þorlákss. Á. 15,2
Stefán Hallgrimss. KR 15,4
Hafsteinn Jóhanness.
UMSK 16,4
Stefán Jóhanness. A 16,5
Friðrik Þ. Óskarss. IR 16,5
Páll Dagbjartss. HSÞ 16,6
Jóhann Jónsson UMSE 17,5
Magnús G. Einarss. IR 19,5
Lárus Guðm .ss. USAH 19,7
Jóhannes Bjarnas. UMSE 19.8
Þorvaldur Þórss. UMSS 21,5
400 m grindarhlaup: sek.
Borgþór Magnúss. KR 55,1
Vilm. Vilhjálmss. KR 56,3
Halldór Guðbjörnss. KR 57,8
Hafst. Jóhanness. UMSK 57,9
Ágúst Ásgeirss. 1R 57,9
Stefán Jóhannss. Á 60,8
Magnús G. Einarss. IR 61,6
Kristján Magnúss. A 64,8
4x100 m boðhlaup: sek,
KR 43,5 UMSK 46,1
Landsveit Á 46,5
(ungl.) 45,0 UMSE
IR 45,6 (Bsveit) 47,5
UMSE 45,6 HSÞ 48,3
IR (ungl.)46,1 USAH 48,7
Borgþór Magnússon.
4x400 m boðhlaup: min.
Landssveit 3:19,7
KR 3:26,9
Landssveit (ungl.) 3:28,3
KR (B sveit) 3:33,3
ÍR 3:36,9
IR (drengir) 3:46,5
Á 4:01,5
1000 m boðhlaup: min.
KR 2:04,3
1R, (ungl.) 2:07,4
IR 2:08,9
KR (ungl.) 2:08,9
UMSK 2:09,1
UMSE 2:10,7
UMSE, (Bsveit) 2:12,5
UMSK (ungl.) 2:13,2
UMSK, (ungl.Bsveit) 2:19,7
HSÞ 2:22,7
Á 2:26.6
4x800 m boðhlaup: inin.
1R 8:09,5
UMSK 8:35,2
KR 8:41,1
Norræna sundkeppnin:
Stórsigu r
íslendinga
- hver íslendingur synti að meðaltali 5 sinnum
65 þús. íslendingar tóku þátt í glæsilegum sigri
islendingar sigruðu með
miklum yfirburðum i Norrænu
sundkeppninni, sem lauk um
siöustu mánaðamót.
islendingar hlutu 12.171.377
stig, en samtals var synt
1.072.363 sinnum á islandi en
margfelditala okkar var 11,35.
1 öðru sæti urðu Finnar með
3.017.404 stig (1.267.817 sund,
margfelditala 2,38), Sviþjóð
með 2.077,488 stig (2.007,288
sund, margfelditala 1,0),
Danmörk með 1.590,019 stig
(225,855 sund, margfelditala
7,04) og Noregur rak lestina
með 1.272,547 stig 523,682
sund, margfelditala 2,43).
Af sundstöðunum var oftast
synt i Sundlauginni i Laugar-
dal, eða rúmlega 245 þúsund
sinnum, en það er um 1/4 af
öllum sundum. Sundlaugin á
Ólafsfirði var hæst sundstað-
anna, ef miðað er við ibúa-
fjölda á staðnum. Þar voru
synt 10.64 sund á ibúa. Þá kom
Sundlaug Sauðárkróks, með
10.35 sund á ibúa á Sauðár-
króki.
Um 65 þúsund Islendingar
syntu 200 metrana að þessu
sinni og er það um % aukn-
ing frá þvi i keppninni 1969. En
þá syntu 45 þúsund
Islendingar.