Tíminn - 02.12.1972, Page 20

Tíminn - 02.12.1972, Page 20
Stuðningur frá Grænlandi Móses Olsen fulltrúi Grænlands á danska þinginu sendi eftirfar- andi kveftju til hátiöarsamkom- unnar i gær. „Grænlenzku fiskveiöisamtök- in og landsstjórnin grænlenzka styöja alls hugar útfærslu fisk- veiöilögsögu íslands i 50 sjómilur. Ég fylgist meö útfærslu Islands i 50 milur með fyllstu samúö og áhuga, þvi hún lýsir vilja þjóö ar til aö neyta tilveruréttar sins meö eigin ákvörðunum og vegna þess, að þessi útfærsla er i raun óbeinn stuöningur við okkar eigin baráttu, — stuðningur, sem við getum ekki verið án. Ég vil hvetja hina islenzku rik- isstjórn og islenzku þjóðina aö standa fast við ákvöröun sina i landhelgismálum. Ég vil gera ykkur ljóst, að ég styð ykkur heilshugar, og ég er viss um, aö þið eigið visan stuðning frá hinum grænlenzku sjómönnum, hinni grænlenzku þjóð. Það er von min að einhvern tima i framtiðinni opnist okkur leið til samvinnu innan fiskimál- anna.” Sæi og bless Moses Olsen. Stór sprengja í höfninni Fimm hundruð punda sprengja, þýzk, hefur fundizt i höfninni i Klakksvik, rétt sunnan bryggjunar, þar sem hafnarskrif- stofurnar eru. Lá hún þar á sjö metra dýpi, og var sprengiefnið i henni ekki minna en tvö hundruð pund að þyngd. Karl Guömundsson, oddviti og stjórnarformaður Hitaveitu Seltjarnarness styður á hnappinn, og setur i gang dælur hilaveitunnar i gær. (Tímamynd Hóbert) Stutt á „hnappinn" í gær — Hitaveita Seltjarnarness tekin formlega í notkun Erl—Reykjavik Kl. 15.48 i gær var hitaveita Sel- tjarnarness formlega tekin i notkun. Sveitarstjórinn, Sigur- geir Sigurðsson, bauð gesti vel- komna, en siðan flutti Karl Guð- mundsson oddviti/sem jafnframt er íormaður hitaveitustjórnar, stutt ávarp, og setti að þvi búnu i gang dælur hitaveitunnar, með þvi að styðja á „hnappinn”. Hin nýja hitaveita á sér nokk- urn aðdraganda. Boranir eftir heitu vatni hafa staðið yfir frá 1965, og það var fyrst 1970, sem öruggt þótti, að hitaveita með heima fengnu vatni, gæti komið. Allmargar holur hafa verið bor- aðar og er virkjanlegt vatnsmagn úr þeim holum, sem hagkvæmt er talið að virkja 85-90 sekúndulitrar af 110 stiga heitu vatni. Hitaveitan hefur nú verið lögð i öll hús sem að götum liggja, og nokkra bæi, svo að framkvæmd- um er nær alveg lokið. Fyrstu húsin voru tengd fyrir ári, og er sú reynsla, sem þegar er fengin, ágæt. Vatnið er ekki selt eftir mælum, heldur skammtara, en kostir þess fyrirkomulags eru margir, t.d. er álestur enginn, og húseigendur geta sjálfir skammtað sér hita- kostnað, og betri meðferð á hús- um er talin að hafa ávallt hita á ofnum. Verð á minútulitra er 600 kr á mánuði, og fer innheimta fram með Giró 6 sinnum á ári. Laugardagur 2. desember 1972 Færeyingar skoða flotbryggjur Sendinefnd frá Klakksvik i Færeyjum fór i haust til Svi- þjóðar til þess að kynna sér nýjar aðferðir við bryggjugerð þar i landi. Þetta eru flotabryggjur, sem settar eru þvert á land með sem næst þrjátiu og fimm metra millibili og festar við botn með keðjum. Þessar bryggjur eru tólf metra langar, en Klakksvikingar höfðu sér að skeyta saman fimm slikum bryggjun, svo að þeir fái sextiu metra lengd. Afgreiðslufrestur á þessum bryggjum er fjórir mánuðir og verð á hverri um sig nær þrjú hundruð þúsund krónur. Talið er fjórtán daga verk að ganga frá hverri bryggju, sögðu Fær- eyingarnir, er þeir komu heim. Happdrætti Framsóknar- flokksins Trúnaöarmenn og aðrir, sem eiga eftir aö gera skil, eru eindregið hvattir til að koma þeim á skrifstofuna Hringbraut 3, sem allra fyrst. útdráttur fer fram 9. des. n.k. Einnig má koma greiðslum fyrir miðanna i afgreiðslu Tímans, Banka- stræti 7 og á giróreikning happdrættisins nr. 3444 í Samvinnubanka Islands. FRIÐSAMLEG MOTMÆU VIÐ SENDIRÁÐ BANDARÍKJ ANN A Kostnáður við framkvæmdir er um 75 milljónir króna og stenzt hin upphaflega áætlun Vermis h.f. að mestu, en það fyrirtæki hannaði veituna og hafði umsjón með framkvæmdum. Hitaveitustjóri er Jón Hilmar Björnsson, vélstjóri. Erl—Reykjavik. Eftir samkomuna i Háskólabfói i gær gekk allstór hópur fólks þaðan i gegn um miðbæinn og að bandariska sendiráðinu við Laufásveg, þar sem hann mótmælti veru bandarisks hers á tslandi, og hafði á lofti fána og kröfuspjöld. Nokkur hópur lögregluþjóna var til staðar og skipuðu þeir sér fyrir dyrnar á sendiráðinu og bjuggust til varnar, ef til harðra aögerða kæmi. Svo varð þó ekki, þvi að mótmælin fóru mjög friðsamlega lram. Fyrir framan dyrnar var kveikt i bandariska fánanum, og brann hann þar til ösku, en Handuriski fáninn að engu orðinn fyrir framan sendiráöiö. Verða örlög herliösins á Keflavikurflugvelli hin sömu? Timamynd — Ounnar. Jólaglaðningi sjónvarps frestað fram í janúar reykjarbrælu lagði yfir svæðið um stund, svo að mörgum súrnaði sjáldur i auga. „Vonandi brenna ekki aðrir fánar með svona vondri lykt”, heyrðist einhver segja, og voru það ein hörðustu orðin, sem þarna heyrðust. Eftir nokkra dvöl við sendi- ráðið, þar sem Birna Þórðar- dóttir flutti stutt ávarp, dreifðist hópurinn niður um miðbæ, og var meiningin að taka menn tali á l'örnum vegi og ræða við þá afstöðu þeirra til hersetunnar. Um þetta leyti var útifundurinn um Bernhöftstorfuna lika að hefjast og hafa vafalaust flestir mótmælenda tekið þátt i þeim fundi. Erl—Reykjavik. F’yrir viku lauk hljóðsetningu Brekkukotsannáls hjá islenzka sjónvarpinu. Er þá lokið öllum þáttum myndarinnar, en eftir að klippa hana til. Það er mikið verk og seinlegt, en prófklippingu er lokið, og eru allir mjög ánægðir með útkomuna úr henni, einkum þjóðverjarnir, sem finnst myndin óvenjuleg og frumleg um margt, auk þess sem hún er fersk, sökum allra hinna nýju andlita, sem þar birtast. Þeir sem.textann flytja eru að langmestu leyti hinir sömu og léku i myndinni, t.d. allir aðal- leikendurnir. Löngu er fallið frá hinni upprunalegu áætlun, sem gerði ráð fyrir að myndin yrði sýnd hér um jólin. Kemur þar margt til, t.d. hin óhentuga veðrátta sem var til myndatöku i sumar, og öll þau slys, sem starfsfólkið henti á Framhald á bls. 19 EBE-þjóðaratkvæði í Sviss NTB—Bern Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram i Sviss um helgina um fri- verzlunarsamning þann, sem gerður var við EBE i sumar. Flestir telja, að samningurinn verði samþykktur, en ekki er bú- izt við að það verði með yfirgnæf- andi meirihluta. Til að samningurinn verði samþykktur, þarf bæði meiri hluti þjóðarinnar og meiri hluti kantónanna, að greiða honum at- kvæöi. Kosning hófst sums staðar i gær, en úrslit verða ekki kunn fyrr en siðdegis á morgun. Svissneska þingið hefur þegar samþykkt samninginn og fjórir stærstu stjórnmálaflokkarnir eru honum hlynntir, svo og stéttar- félagasambandið. og samband vinnuveitenda. Aðeins kommún- istaflokkurinn og hreyfing hægri- sinnaðra repúblikana hafa lýst yfir andstöðu við samninginn, á þeim forsendum, að hann leiði til aukinnar verðbólgu og stjórn- lausrar fólksfjölgunar i landinu. Verði samningurinn samþykkt- ur, gengur hann i gildi um áramótin, en Sviss verður eftir sem áður aðili að friverzlunar- bandalagi Evrópu, Efta. fyrir gúóun mui $ KJÖTIDNADARSTÖÐ SAMBANDSINS

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.