Tíminn - 03.12.1972, Blaðsíða 1

Tíminn - 03.12.1972, Blaðsíða 1
I3NIS KÆLISKÁPAR RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐJAN SIMI: 19294 * ** | A/ RAFTÆKJADEILD Hafnarslræti 23 Símar 18395 & 86500 _ Riki Jóhönnu Ingólfsdóttur, matráðskonu Landspitalans: Nýja eldhúsið sem verður afkastamest allra cldhúsa landsinsog vélvæðing meiri cn á nokkrum öðrum matgerðarstað. Tvær hollenzkar flugáhafnir grunaðar - alþjóðalögreglan komin í málið Klp-Reykja vik (írunur ieikur á, að áhafnir tvcggja flugvéla, sem höfðu við- komu á Reykjavikurflugvcili i siðustu viku, hafi keypt hér vörur og borgað hótelkostnað, flug- vallargjöld og eldsneyti fyrir báðar áhafnirnar og vélarnar með fölsuðum 50 dollaraseðlum. Vélarnar voru farnar héðan áður en málið komst upp, og biða nú menn frá alþjóðalögreglunni eftir þvi að vélarnar lendi vestan hafs. t>að mun hafa verið starfsfólk Loftleiðahótelsins, sem fyrst tók eftir þvi að eitthvað var bogið við 50 dala seðilinn, sem greitt hafði verið með á hótelinu. Fannst þvi seðilinn vera ljósari en aðrir og einnig mun þykkari en ekta seðlar. Gerði það þegar lögregl- unni viðvart og var hún fljót að rekja seðilinn til áhafnar flug- vélanna tveggja, sem þá voru ný- farnar áleiðis til Kanada, en þær komu frá Hollandi, og var talið að fólkið, 6 karlmenn og 1 kona, væri allt Hollendingar. Við rannsókn kom i ljós að hópurinn hafði greitt viðar en á Loftleiðahótelinu með þessum sérkennilegu seðlum. Hafði einnig verið greitt með þeim i Rammagerðinni i Hafnarstræti, þar sem 10 slikir seðlar voru, og einnig greitt með þeim flug- vallargjöld og eldsneyti á báðar vélarnar. í allt var komið fram i gær 1250 Bandarikjadalir og bjóst Framhald á bls. 19 Eldhús, sem eitthvað kveður að: Þar verður dráttarvél beitt fyrir vagnatrossu Allt að tíu manns skammtað á mínútu hverri Mörg húsmóðirin i landinu er áreiðanlega hreykin af eldhúsinu sinu, cnda eru þau viöa falleg og húin miklum lækjakosti. Það er orðið breitt bil á milli hlóðaeld- húsanna gömlu og nútimacld- húsa. En hversu fullkomin sem mörg hinna nýju eldhúsa eru eða kunna að verða á næstu árum, vcröur væntanlega um nokkuð langt árabil aðeins eitt eldhús, þar sem dráttarvél verður til daglegra nota. Þar verða líka umsvif meiri og á fleiri diska að skammta en gengur og gerist. Það er sem sagt hið nýja eldhús Landspitalans, sem við erum að taia um. — Við væntum þess, að þetta nýja eldhús komizt i gagnið i janúar, sagði Georg Lúðviksson framkvæmdastjóri rikis- spitalanna og verða þá ýmsar breytingar á starfstilhöguninni eins og gefur að skilja. Meðal annars færist öll skömmtun, sem áður hefur farið fram á deildun- um, i eldhúsið. Þar verður heljar- mikið skömmtunarborð með færibandi er flytur bakkana, sem diskarnir eru á. Meðfram færi- bandinu verða svo matarborð, og við þau stendur starfsfólkið, sem lætur á hvern bakka og disk það, sem þar á að vera, hvort heldur er almennt fæði eða sérfæði, um leið og þeir renna hjá. A bökkum sjúklinga, sem þarfnast sérfæðis, verða upplýsingar um, hvað þeim er ætlað, svo að ekkert fari á milli mála. Með þessum hætti verður unnt að skammta á þrjátiu bakka á þrem til fjórum minútum, og þá tekur svona rifan hálftima að skammta þrjú hundruð manns. Og svo var það dráttarvélin, sem þið voruð að nefna, sagði Georg að lokum. Jú, það verður notuð dráttarvél i eldhúsinu. En talaðu annars betur um þetta við hana Jóhönnu Ingólfsdóttur, mat- ráðskonuna. I) r á 11 a r v é 1, 16 matvagnar og ncöanjaröargöng — Hér eru eins og stendur 350 sjúklingar i fjórtán deildum sagði Jóhanna, þegar við töluðum við hana. En hér er verið að auka við smám saman, svo að innan tiðar verða sjúklingarnir mun fleiri. Maturinn verður fluttur úr eld- húsinu á sextán vögnum, þetta þrjátiu bakkar og þaðan af fleiri á hverjum vagni. Dráttarvélinni verður beitt fyrir vagnana sem deilast svo á deildirnar. Við munum einnig sjá fæðingardeildinni fyrir mat og nú er verið að gera þangað neðan- jarðargöng sem verða tilbúin á næsta ári. Kull þjállun að svo sem ári liönu — Allur búnaður eldhússins verður eins og nú þekkist full- komnast á slikum stað, sagði Jó- hanna ennfremur, og við megum muna timana tvenna. Fullum af- köstum náum við auðvitað ekki fyrst i stað, þvi að þar þarf æfingu til. Kg býst ekki við, að full þjálfun fáist fyrr að svo sem ári liðnu. Jóhanna hefur verið matráðs- kona i Landspitalanum i sextán ár, og við spurðum hana, hvort hún hefði áður unnið, þar sem starfstilhögun væri með þeim hætti, er taka ætti upp i Lands- pitalanum. Hún kvað nei við þvi. — En það eru svo mörg vand- kvæði, sem við höfum orðið að yfirstiga á liðnum árum, að við ættum ekki siður að geta uppfyllt þær kröfur sem þessi nýskipan gerir til okkar, bætti hún við. -JH. Brúðhjón mónaðarins" i dag hefst birting brúð- hjónamynda þeirra, sem boðaðar voru á dögunum og verða þennan mánuðinn birtar myndir af brúðhjónum, sem gefin voru saman i nóvember eða desember. Þeim verður jafnframt sendur Timinn i hálfan mánuð ef þau vilja kynna sér blaðið, en að þeim tima ákveða aðilar, hvort þcir vilja gerast áskrif- endur. Að inánuði liönum verður dregið um það, hvaða brúð- lijón verða talin „brúðhjón mánaöarins", og geta þau er það liapp hreppa, fengið vöru (eða farmiöa) fyrir tuttugu og fiinm þúsund krónur hjá ein- hverju þeirra fyrirtækja sem mi verða talin: Rafiðjan — Raftorg, llúsgagnavcrzlunin Skeifan, llúsgagna ver/.lun Reykja- vikur Fcrðaskrifstofan S u n n a , Kaupfélag Reykjavikur og nágrennis. Gel'jun i Austurstræti, Dráttarvélar, SÍS rafbúð, Val- húsgögn, llúsgagnahöllin, Jón Loftsson, lðnverk. Sjá bls. 6 Falsaðir dollar- ar í umferð? Á að gizka 200 þúsund rúm- metrar aurs í Búrfellslón í fyrra — Það er erfitt að mæla nákvæmlega hversu mikill aur berst i Búrfellslóniö ár- lcga. En sennilega er það ósköp svipað og við bjuggumst við. Það var reynt að mæla aurburöinn i fyrra, og við gizkuöum á, að um tvö hundruö þúsund rúmmetrar af aur og sandi hefðu þá komið i það. Eitthvað á þessa leið svaraði Jóhann Már Marius- son, verkfræðingur hjá Lands- virkjun, spurningum okkar, cr við leituðum eftir þvi, hversu langan tima menn héldu að liði, þar til sandur hefði fyllt það. Minni aur og jakaburður seinna meir — I lóninu eru 1-2 gigalitrar vatns, hélt Jóhann Már áfram. — Tvö hundruð þúsund rúmmetra aurburður i fimm ár jafngildir einum gigalitra. En þess er að gæta, að við vitum I rauninni ekki með neinni vissu, hversu mikill aurburðurinn hefur verið, og svo mun draga úr honum, þegar virkjanir koma ofar. En það mun jafnframt draga úr öðru, sem er miklu isjár- verðara, en sandburðurinn: fsmyndun og jakaburði. Varabirgöir vatns að vetrarlagi Við höfum alltaf gert ráð fyrir þvi, að lónið fylltist af sandi með timanum, sagði Jó- hann Már enn fremur. Ain mun eftir sem áður halda far- vegi sinum og við höfum hugsað okkur að haga svo til, að við höfum fimm metra djúpt lón á vetrum, þegar mest þörf er á einhverjum varabirgðum vatns. Þessu er þannig varið, að áin ber svo til allan aurinn fram á sumrin, en á vetrum er vatnið nær þvi tært. Nú er lægsta vatnsborð lónsins 240 metra yfir sjávarmál, en hið mesta 245 metra. Ef vatns- borðinu er haldið i 240 metrum á sumrin, hleðst þar ekki meiri aur en þvi nemur, og sé það siðan hækkað á haustin i 245 metra, höfum við þarna fimm metra djúpt lón til af- nota að vetrinum. En liklegast er, að fjöldi ára liði áður en allt fyllist upp að 240 metra markinu, sagði Jóhann Már að lokum. -JH

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.