Tíminn - 03.12.1972, Page 3
Sannudagur 3. desember 1*72
TÍMINN
J
Eigendur hinnar nýju snyrti- og hárgreiðslustofu GRESIKU, I hinum vistlegu húsakynnum stofunnar
GRESIKA - ný snyrti-
og hárgreiðslustofa
SB—Reykjavik
GRESIKA, heitir snyrti- og
hárgreiðslustofa, sem nýlega
opnaði i Austurstræti 6. Þar er
veitt öll snyrti- og hárgreiðsiu-
þjónusta fyrir unglinga. Lögð er
áherzia á, að hver kona fái
greiðslu og aðra þjónustu við sinn
persónuleika.
Á stofunni er einkum unnið með
snyrtivörur frá Coty, sem einnig
eru til sölu i miklu úrvali. Nefna
má sérstök krem, sem framleidd
eru úr avocados-ávextinum, og
laus við ilmefni. Þá er nýtt húð-
make-up, sem smitar ekki í föt og
er ætlað fyrir handleggi, fótleggi
og jafnvel herðar og bak.
Eftir áramótin er ráðgert að
halda stutt kvöldnámskeið I
snyrtingu. Stofan er opin frá kl. 9-
18 og eitthvað fram eftir á laugar-
dögum. Einnig mun hægt að fá
greiðslu og ýmsa þjónustu utan
þess tima i sérstökum tilfellum.
Eigendur GRESIKU eru Gréta
Gunnarsdóttir, fegrunarsér-
fræðingur, Sigurdís Sigurbergs-
dóttir, fegrunarsérfræðingur,
Katrin Friðriksdóttir, fegrunar-
sérfræðingur og Erna Guðmunds-
dóttir, hárgr. meistari, en einnig
starfar á stofunni Petra Gisla-
dóttir. Ef einhver er enn að velta
fyrir sér, hvað GRESIKA þýöir,
er bara að skoða nöfn fegrunar-
sérfræðinganna betur.
Fyrirlestur um norrænt löggjafarsamstarf
Þetta eru
úrin..
handa þeim sem
gera kröfur um
endingu,
nákvæmni
og fallegt
útlit.
FAVRE-
LEUBA
PIERPONT
ROAMER
OMEGA
Kven og karlmannsúr af mörgum
gerðum og verðum. Sendum gegn
póstkröfu hvert á land sem er.
Ér& Mtábur
Laugaveg 3.
Sími 13540
Óskar Kjartansson gullsmiður.
Valdimar Ingimarsson úrsmiður.
Mánudag 4. desember 1972 kl.
20.30 flytur dr. juris W.E. von
Eyben, prófessor i eignarrétti við
Kaupmannahafnarháskóla, fyrir-
lestur i Norræna húsinu um nor-
rænt löggjafarsamstarf 1872-1972.
Prófessor von Eyben er meðal
kunnustu lögfræðinga á Norður-
löndum, afkastamikill rithöfund-
ur og virkur þátttakandi i marg-
vislegu félagsstarfi norrænna
lögfræðinga. Islendingum er hann
einkum kunnur vegna ritstarfa
sinna og fyrirlestra-starfsemi á
norrænum lögfræðinga- og laga-
nemaþingum um langt árabil.auk
þess sem hann hefur starfað mik-
iö að dönsk- islenzkum menning-
arskiptum.
Norrænt löggjafarsamstarf
stendur I fleiri en einum skilningi
á timamótum, og er framtið þess
nú mjög rædd, Það er oft rakið til
fyrsta norræna lögfræðingaþings-
ins 1872, en meðal hvatamanna að
þvi þingi var Vilhjálmur Finsen
hæstaréttardómari. Fyrirlesar-
inn mun rekja upphaf, þróun og
framvindu starfs norrænu þjóð-
anna að samræmingu á löggjöf
sinni og gera grein fyrir árangri
þessa samstarfs, vali viðfangs-
efna, starfsháttum, rökum fyrir
samstarfinu og gildi þess fyrir
Norðurlönd. Þá mun hann ræða
sérstaklega hin nýju viðhorf, sem
myndazt hafa vegna aðildar Dan-
merkur að Efnahagsbandalagi
Evrópu. Fyrirlesarinn mun fjalla
um ýmsa örðugleika, sem i ljós
hafa komið á samstarfinu, og
taka til athugunar, hvar við
stöndum nú og hvernig horfur séu
á framhaldi þessa samstarfs og
ræða i þvi efni ýmis úrræði til um-
bóta i vinnubrögðum.
V baiikinn er buklijarl
BÚNAÐARBANKINN
ORÐSENDING
vegna umboðsmanna
skrifstofu í Norfoik
Það tilkynnist hér með, að aðalumboðs-
menn Eimskipafélagsins i Bandarikjun-
um og Kanada, A.L. Burbank & Co., Ltd.,
opna skrifstofu i Norfolk hinn 15. desem-
ber 1972, til þess að afgreiða skip félags-
ins, sem þangað sigla.
Aðsetur skrifstofunnar verður:
A.L. Burbank & CO. Ltd.,
General Steamship Agents
Suite (»22
Law Building
Norfolk, Virginia 23510
Simi (703) 625-1687
Hin nýja skrifstofa i Norfolk mun fram-
vegis afgreiða alla vöruflutninga með
skipum félagsins frá Bandarikjunum og
Kanada og hafa með höndum flutninga-
bókanir.
Nýir limmiðar „Shipping Instructions”
fyrir viðskiptavini félagsins, til þess að
senda með vörupötunum sinum, eru i
prentun og verða sendir út innan tiðar.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ISLANDS
yiB veljum runiaS
■' þoð borgar sig
■ \ nilH - OFNAR H/F.
Síðumúla 27 . Reykjavlk
Símar 3-55-55 og 3-42-00 r
6UNNU
í Lonaon
i\
iiaar
Flogið beint alla sunnudaga.
Verðfrá 14.900,-.
Dvöl á Hotel Kennedy, sem er 1. flokks
hótel, öll herbergin með einkabaði og
sjónvarpi. Verð 16.900,-.
Kynnið yður hinar fjölbreyttu
kynnis- og leikhúsferðir.
Útvegum 10% afslátt í ýmsum
góðum verzlunum og meðlimakort _ .
á skemmtistaði.
iiRBASKRIFSIOIAN SUNNA BANKASIRIHI7
SlHIAR 1B40012Q7R