Tíminn - 03.12.1972, Síða 19

Tíminn - 03.12.1972, Síða 19
Sunnudagur 3. desember 1972 TÍMINN 19 Vinningsnúmer í leikfanga- happdrætti Thorvaldsensfélagsins 1281 6471 1737 6595 1744 6612 1985 6707 2099 7190 2658 7238 2738 7514 2921 7668 3984 7897 4077 8108 10616 11209 11295 11322 11351 11472 11668 12605 13022 13174 16018 16226 16629 16682 17087 17122 17151 17152 17314 17689 22615 22616 23347 23361 23555 23556 23748 23779 24565 24818 4098 8392 4105 8646 4193 8882 4376 9372 4652 9384 4983 9630 5173 9764 5411 9765 646410490 22565 28548 13222 15022 15159 15182 15293 15572 15700 15906 15956 28578 18904 19187 19390 19802 19881 19995 20276 21509 22005 28733 24960 25044 25626 27100 27354 27762 28207 28457 28532 28946 Erlent Framhald af bls. 9. Sjónvarpsstofnun sam- bandsstjórnarinnar, ZDF, tók fyrir nokkrum árum upp á snjallri aðferð við að safna fé handa þessum samtökum. Gengst hún árlega fyrir skemmtilegum spurningaleik með þátttöku helztu stjórn- enda slikra þátta. Um leið og þátturinn er fluttur, er efnt til happdrættis i sjónvarpssal, og þar eru verðlaunin alls konar nauðsynjahlutir, sem fram- leiðendur gefa i þessum til- gangi. Þessi leikur hefur borið góðan árangur og árið 1970 söfnuðust til dæmis tvær milljónir marka með þessum hætti. „LEBENSHILFE” er til- tölulega ný samtök, eins og getið hefur verið, en þeim hefði örugglega ekki vegnað eins vel og raun ber vitni, ef þau hefðu ekki getað notið reynslu annarra mannúðar- samtaka, bæði þeirra sem starfa á vegum trúarfélaga og annarra. Einhver elztu hæli fyrir vangefna má þakka starfi séra Bodelschwingh á siðustu öld. Þau báru lengi vel nafn hans, en heita nú aðeins „Betel” eftir fyrsta hælinu af þessu tagi. Fyrstu stofnuninni af þessu tagi, sem hét löngu og óþjálu nafni — „Sjúkrahús mótmæl- enda til hjúkrunar og lækning- ar á flogaveiki i Rinarlöndum og Vestfalen” — var komið upp fyrir forgöngu séra Fried- richs von Bodelschwingh, sem var uppi 1831-1910. Hún varð athvarf óteljandi vangefinna og fatlaðra barna og fullorð- inna. Séra Bodleschwingh, sem lengstum gekk undir nafninu „faðir fátækra og snauðra”, hafði fengið rika samúð með olnbogabörnum þjóðfélagsins, meðan hann var við háskóla- nám. Þá kynntist hann hag barna i hælum fyrir fátækl- inga og daufdumba. Siðar gerðist hann trúboði i Paris meðal hinna útskúfuðu þar, og þá tók hann sér fyrir hendur að sjá munaðarlausum börn- um farborða. Þegar honum voru falin störf við Betel- stofnunina i Þýzkalandi, helg- aði hann sig einkum sjúkum börnum. Hann gerði sér grein fyrir þvi, löngu áður en lækn- ingamáttur starfsþjálfunarvar viðurkenndur af læknum, að skipuleg, heppileg vinna hafði mikil áhrif til bóta á sjúklinga hans. Vistmenn hælisins höfðu aðeins verið látnir fást við körfugerð og klossasmiði, störf, sem gerðu menn jafnvel enn sljórri en þeir voru fyrir, en hann fól sjúklingum sinum hvers konar vinnu, sem til féll i hælinu. BETEL JÓK mjög ört starf- semi sina undir handleiðslu séra Bodelschwinghs, og fyrir bragðið var hún sifellt i fjár- þröng, — eða hafði a.m.k. mikla þörf fyrir aukið fé. Honum tókst að draga litið eitt úr þessum vandræðum með þvi að láta vistmenn vinna að nokkru leyti fyrir uppihaldi sinu. Hann fékk jafnframt viðurnefnið „betlarinn hug- vitssami”, þvi að svo viða leitaði hann aðstoðar við þetta hjartans málefni sitt og á svo marga strengi sló hann, þegar hann bað menn að veita sér fjárhagsaðstoð. Hann efndi til söfnunar, sem var fljótlega nefnd „Brocken- sammlung” eða molasöfnun” og tiðkast enn i dag. Hún var i samræmi við vigorö hans, sem hljóðaði svo: „Engin gjöf er of litil handa okkur.” Söfnunin er raunar ekki einskorðuð við Þýzkaland, þvi að gjafir berast úr öllum heimsálfum, og ekki einungis peningafjafir heldur alls konar „skran”, sem margir munu kalla svo — gamall fatnaðar af öllu tagi og jafnvel gamlir pottar og pönnur, sem eigendur telja sig ekki geta notað lengur. Fatnaður, sem hentar ekki vistmönnum hjá samtökun- um, er þá notaður sem hráefni i vefstofu þeirra, sem fram- leiðir ábreiður af ýmsu tagi. Annars eru allir hlutir flokkaðir og gert við þá, sé þess þörf, og vinna vistmenn að slikum viðgerðum. Vinsælasti vinnustaðurinn er frimerkjadeildin. Betel berst ótrúlega mikill fjöldi fri- merkja á degi hverjum og þeim er öllum haldið til haga, þau flokkuð með venjulegum aðferðum og siðan seld. Loks má geta samtaka, sem heita „Pfennigverein” og gætu kallazt „Skildingafélagið” á islenzku, en það safnar einungis peningum og tekur við smæstu mynt jafnt og stórum seðlum. AÐALHÆLI BETEL-sam takanna er nú starfrækt i alls 400 byggingum og landssvæði það, sem það hefur yfir að ráða, nær allt frá mörkum borgarinnar Bielefeld til hins sögufræga Teutoborgar- skógar. Segja má að það sam- félag, sem þar starfar, sé sjálfstætt og sjálfbjarga. Auk spitala og hæla eru þar ibúðir starfsfólks, einkum hjúkrunarkenna og kennara, auk verkstæða af ýmsu tagi, verzlana og jafnvel stórrar kjörbúðar. Betel hefur, jafn- vel eigin byggingaskrifstofu, sem sér um nýbyggingar og viðhald mannvirkja, auk sér- staks slökkviliðs, sem er búið nýtizku tækjum i hvivetna. Vangefin börn eða fötluð sækja svonefndan „Patmos” skóla. Þar er fjöldi skólasotfa og eru gangar allir með mismunandi litum. Mynd er fest við hvern fatasnaga og börnin læra smám saman að þekkja „rósina mina” eða túlipanann minn,” sem þau geyma fötin sin við. Það er ein af ótal mörgum einföldum að- ferðum sem beitt er við kennslu barnanna, en auk þess fá þau einföld leikföng og eru látin stunda söng og tónlist i hópum, en allt horfir það til aukins þroska þeirra á ýmsum sviðum. Annars eru mörg barnanna svo illa haldin, þegar þau koma i stofnunina, að það tekur marga mánuði að fá frá þeim hin minnstu viðbrögð. Kennurum þeim, sem við þetta starfa, er fyrsta bros á vörum barns með heila- skemmd, mikill sigur. Það er sonarsonur séra Friedrichs von Bodelschwingh, sem er nú aðalforstjóri fyrir „Betel.” Á dyrunum á skrifstofu hans er sama skiltið og forðum, þegar afi hans var þar við stjórn og á það er letrað: „Gerið svo vel að ganga inn án þess að berja;” EIMSKIP 0PNAR SKRIFST0FU í N0RF0LK Aðalumboðsmenn Eimskips h/f i Kanada og Bandarikjunum A.L. Burbank & CO Ltd. mun opna skrifstofu i Norfolk þann 15. þ.m. til að afgreiða skip félagsins,sem þangað sigla. Hin nýja skrifstofa mun framvegis hafa með höndum alla afgreiðslu vöruflutninga með skipum félagsins frá Banda- rikjunum og Kanada og hafa með höndum flutningabókanir. Aðset- ur skrifstofunnar verður: Suite 622 Law Building Norfolk, Virgin- ia 23510. Tillag Framhald af bls. 20. skaparbragð þeirra Lang- nesinganna ætti að vera þeim, sem mest eiga i húsi, öflug brýning. Þvi að það eru þó þeir, sem ættu að róa rösklega fram i. -JH. D0LLARAR Frh. af bls. 1 lögreglan við, að enn ætti nokkuð eftir að koma i leitirnar. Eins og fyrr segir voru báðar vélarnar farnar á loft þegar lög< reglan fékk vitneskju um málið. Þá þegar var haft samand við dönsku lögregluna, ef vélarnar lentu i Grænlandi, og einnig við Interpol, sem þegar tók málið að sér. Ekki höfðu neinar fréttir borizt af handtöku fólksins i gær, en trúlega hefur þvi verið náð ein- hvers staðar i Bandarikjunum eða Kanada. Laxness Framhald af bls. 10. að bera við þvi búinn að litilræði sem manni bar óvart fyrir augu i snöggum svip gegnum glugga gángi tvielleft aftur eftir átján ár: og nú ekki leingur sem mark- laus tilviljun, heldur undir ófrá- visanlegu lögmáli þessarar ver- aldar, þar sem maður er seldur undir skyldur og ábyrgð, einnig af þvisem maður sá af tilviljun þeg- ar maður var úngur”. Þannig ánetjast sögumaður með nokkrum hætti þeirri veröld sem bókin lýsir, þótt hann standi raunar til hliðar við atburðina og sé á marga lund aðeins óvirkur áhorfandi. En heimur bókarinnar er ekki skýrlega afmarkaður eins og Innansveitarkroniku með sin- um fingerðu og föstu dráttum. 1 Guðsgjafaþulu teygir höfundur lopann, og heildarmynd verksins reynist óskýr og daufleg að þvi skapi sem viðar er leitað fanga i frásögninni. Mér blandast þvi ekki hugur um að þessi saga sé ein hinna léttvægustu verka Hall- dórs Laxness. Hún hefur þegar i ritdómi verið nefnd „endurnýjun- arverk” i sagnagerð höfundar: má vera að svo sé. En að minu viti skiptir formleg endurnýjun litlu máli ef höfundi auðnast ekki að kveikja i andrúmi verksins neista sem tendri lif i allri veröld þess. Þrátt fyrir frábæra stil- tækni og áreynslulausa iþrótt höf- undar, er þessi logi með daufasta móti i Guðsgjafaþulu. Tæknin er ekki einhlit til sigurs i skáldskap: meira þarf til. Gunnar Stefánsson. TRÚLOFUNAR- HRINGAR — afgreiddir samdægurs. Sendum um allf land. HA L L D Ó R Skólavörðustíg 2 Til sölu iniöstöövarketill 3 1/2 ferm. með öllu tilheyr- andi. Gott verð. Upplýsingar i sima 16851. FASTEIGMAVAL SkólavörBustlg SA. II. hseB. Slmar 22911 — 19258. FASTEIGNAKAUPENDUR Vantl yður fastelgn, þé hafiB samband viB skrifstofu vora. Fasteignir af öllum stœrBum og gerBum fullbúnar og I -smíðum. FASTEIGNASELJENDUlt Vlnsamlegast látiB skrá fastr eignlr yBar hjá okkur. Áherzla lögB á góða og ör- ugga þjónustu. LeitiB uppl. um verB og skilmála. Maka- skiptasamn. oft mögulegir. önnumst bvers konar samn- lngsgerB fyrlr yBur. Jón Arason, hdl. Málflutnlngur . fatteignaiala -t Höfum fyrirliggjandi hjól- tjakka G. HINRIKSSON Simi 24033 Flogið livern luugardag Verð (Cairo) frá kr. 26.347 SMfHH b.vður yður i ógleymanlega ferð lil Nilar. Þar dveljist þér meðal ævafornra forn- niiuja og liinna lieimsfrægn pýra- ni idu. Hafið samband við ferða- skrifstofu yðar. EbvptH/r United Arab Airlines Jernbanegade 5, DK 1608, Köbenhavn V, Tlf. (01)128746 Jólaskeiðin 1972 komin Kaffiskeið: Gyllt eða silfr- uð, verð kr. 495.00. Desertskeið: Gyllt eða silfruð, verð kr. 595.00. Hringið í sima 2-49-10 og pantið skeið i póstkröfu. Jón og Óskar Laugavegi 70. — Simi 2-49-10. fyrir góðun mai KJÖTIDNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.