Tíminn - 05.12.1972, Síða 1

Tíminn - 05.12.1972, Síða 1
i lr±K JIO i KÆLISKÁPAR RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐJAN SIMI: 19294 P&1: * * 279. tölublað —Þriðjudagur 5. desember—56. árgangur ■ TD/xöjbtctSiAAéjLcux, A/ RAFTÆKJADEILD Hafnarslræti 23 Simar 18395 & 86500 *- Á þcssu ári hafa tiöuni verið birtar myndir úr Laugardalshöliinni í Kcykjavik, óg þær hafa einkum verið af taflstööu á skákboröi og þeim, sein þar stýröu riddara og peði. Þessi mynd er einnig þaöan, en þó af allt iiöru tagi. llún er af drottningarefnum á leikboröi Iffsins: Hópi stúlkna, sem sýndu fimleika og á fimleikahátiðinni á sunnudaginn. —Timamynd: Gunnar. Margsinnis skotið á raflínur og spenni í Grundarfirði Krl-Keykjavik Kins og áður hefur verið greint frá hér i blaöinu hefur nokkuð borið á skemmdarvcrkum á raf- linum i Grundarfiröi og þar i grennd. A.m.k. þrisvar sinnum hefur vcrið skotiö á mannvirki rafmagnsveitnauna, bæöi á einangrunarkúlur á háspennu- linum og nú siöast á spenni inni i Grundarfjarðarþorpi. Rafmagnsveiturnar hafa kært þessi skemmdarverk til sýslu- manns, er hefur gert rannsókn i málunum og yfirheyrt menn, en engin játning liggur fyrir enn, og er ekkert hægt aö sanna fyrr en eitthvað nýtt kemur i ljós. Grunur hefur að visu beinzt að ákveðnum mönnum, en engar sannanir fengizt. Það, sem einkum styrkir grun manna, hverjir valdir kunna að vera að skemmdunum Eyrar- sveit, er,að þær hafa verið gerðar hjá sama bæ, en þar i grennd eru menn, sem vitað er að fara nokkuð með byssu. Um skotið inni i þorpinu er það að segja, að ekki á að þurfa að benda mönnum á þá hættu, sem stafar af meðferð skotvopna i þét- tbýli, og er það sannarlega hinn mesti stráksskapur og ábyrgðar- leysi að fremja slik verk sem þessi. Það er furðulegt, aö sumir Framhald á bls. 19 Afstaða ís- lendinga til úrskurðar al- þjóðadóm- stólsins ÞÓ-Reykjavik Kinar Ágústsson utanrikisráð- herra sendi dómsforseta Alþjóða- dómstólsins i Haag skeyti i gær vegna málshöfðunar Breta á hendur tslendingum l'yrir Alþjóðadómstólnum. t skeytinu segir ,,Herra dómforseti! Ég hefi þegar hai't þann heiður að skýra yður frá sjónarmiðum rikis- stjórnar tslands, svo sem þeim er lýst i orðsendingum til rikis- stjórnar Bretlands fyrir 14. april 1972. Var þar sagt, að samkomu- lag það, sem l'ólst i erindaskiptum frá 19(il og fram fóru við mjög erfiðar aðstæður, væri þegar brott fallið, að enginn grundvöllur væri l'yrir dómsögu dómsstólsins i máli þvi, sem rikisstjórn Bret- lands hefði reynt að visa til hans og að rikisstjórn islands mundi ekki hafa fulltrúa við málsmeð- ferðina.” Dómstólnum var einnig tilkynnt^að lifshagsmunir is- lenzku þjóöarinnar væru i veði og að rikisstjórn tslands myndi ekki samþykkja dómsögu dómstólsins i neinu máli, er varðar viðáttu fiskveiðitakmarkanna við lsland og sérstakiega ekki i máli þvi, sem rikisstjórn Bretlands hafi reynt að visa til dómstólsins hinn 14. april 1972. ,,Þrátt fyrir þetta kvað dóm- stóllinn upp úrskurði sina 17. og 18. ágúst 1972 og með hinum siðarnefnda úrskurði hróflaði dómstóllinn við þeirri stöðu, sem fyrir hendi var, og olli með þvi Kramhald á bls. 19 Norðursjórinn: 20 bátar seldu fyrir 15 millj. ÞÓ-Reykjavik Tuttugu islenzk sildveiðiskip seldu sildarafla i siðustu viku i Danmörku. Alls seldu skipin 827 lestir fyrir 15.1 milljón króna. Meðalverðið var sem fyrr, gott — eða 18.37 krónur fyrir kilóið. Vikuna á undan var veður slæmt á sildarmiðunum norð- vestur af Hjaltlandi, og gátu bátarnir þvi litið verið við veiðar. Um siðustu helgi gerði sæmilegt veður og fengu þá nokkrir bátar afla, en mjög misjafnan. Mestan afla fékk Guðmundur RE, en það er hinn nýi bátur þeirra Hrólfs Gunnarssonar og Páls Guð- mundssonar. Guðmundur fékk 99 lestir og aflinn var seldur fyrir 1.822.277 kr. Hæsta meðalverðið fékk Súlan EA kr. 20.06. Margir islenzku sildveiðibát- anna, sem hafa stundað veiðar i Norðursjó og á Hjaltlandsmiðum i haust, eru nú komnir heim, og upp úr næstu helgi má búast við, að þeir bátar, sem enn eru á sild- veiðum á þessum slóðum, fari að hugsa til heimferðar. íslenzku sjómennirnir þurfa ekki að vera óánægðir með úthaldið að þessu sinni, þvi að haustið hefur mikið bætt upp hið lága sildarverð sumarsins. Reyndar er það svo, að það eru nokkrir bátar, sem bera af, þeir hafa aflað mjög vel, og svo eru nokkrir bátar, sem litinn afla hafa fengið. En þannig hefur það alltaf verið á sjónum og verður alltaf. Sá bátur, sem hefur gert það bezt á sildveiðunum i haust, er Loftur Baldvinsson frá Dalvik, en fyrir afla hans hafa fengizt meira en 17 millj. kr. Undirskriftasöfnun í ytri hluta Rangárþings: Vetrarvegur milli Galta- lækiar og Búrfellslóns! — Landvegurinn nær upp aö Galtalæk, en þaöan er aöeins rudd leiö á tæplega tuttugu kilóinetra kafla aö brúnni á Þjórsá hjá Búrfelli, sagöi Guöni Kristinsson bóndi á Skaröi á Landi, er við áttum tal viö liann i gær. Þcssi kafli verður ófær jafnskjótt og eitt- hvaö snjóar, og nú viljum viö fá úr þessu bætt. Guðni á Skarði er aðeins einn af mörgum, sem hafa tekið höndum saman til þess að fá þessari torfæru rutt úr vegi. Um allan ytri hluta Rangárvallasýslu er nú verið að safna undirskriftum, þar sem heitiðerá stjórnarvöld að gera þarna upphækkaðan veg, sem akfær verði að vetrarlagi til jafns við aðra vegi á þess- um slóðum. Þessi vegagerð er héraðinu sem sagt mikið hagsmunamál. KRÓKURINN TUGIR KÍLÓMETRA — Hér uppi á öræfunum hafa verið mjög fjölmennar vinnu- stöðvar við Þórisós, Vatnsfell og Sigöldu, þar sem stórkost- legar framkvæmdir eru nú i aðsigi, sagði Guðni. Þarna upp frá vinnur fjöldi Rang- æinga, ekki sizt ungir menn úr þorpunum, Hvolsvelli og Hellu, og þegar vetrar, verða þessir menn að taka á sig krók, sem nemur mörgum tugum kilómetra, þegar þeir fara heim eða að heiman, vegna þessa spotta, sem verð- ur strax ófær. Þarna er sérstaklega auð- velt að gera upphækkaðan veg, og slikur vegur verður áreiðanlega gerður. En það er alveg fráleitt að fresta þvi, þar sem vegarins er hvað mest þörf einmitt nú og á næstu árum. EINHUGUR UM MÁL- IÐ i HÉRAÐINU — Eg er ekki nema eitt hjól- ið i vél, sem við erum að setja i gang til þess að fá þennan veg, sagði Guðni enn fremur — safna undirskriftum hér i kring um mig. Ég býst við, að svo til hver Rangæingur, sem til verður leitað, sextán ára og eldri, verði fljótur að gripa til pennans og skrifa nafnið sitt á skjölin. Þetta er lika meira mál en það kann að sýnast, þvi það getur haft áhrif á, hvar ungir menn, sem gera ráð fyrir að vinna við virkjunarfram- kvæmdir næsta ár, telja sér hagkvæmt að hafa búsetu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.