Tíminn - 05.12.1972, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Priöjudagur 5 desember 1972
w Körfuknattleikur:
Ovænt úrslit í fyrstu
leikjum íslandsmótsins
- Njarðvíkingar sigruðu í fyrsta sinn á Akureyri
- íslandsmeistararnir áttu í erfiðleikum með nýtt lið stúdenta
- Guðmundur Birkir lék með HSK, sem sigraði Armann
islandsmótið i körfu-
knattleik hófst um helgina,
leiknir voru þrir leikir og
voru þeir mjög jafnir.
óvænt úrslit urðu í tveimur
leikjum, Njarðvík sigraði
Þór á Akureyri á laugar-
daginn og HSK sigraði Ár-
mann á sunnudagskvöldið í
iþróttahúsinu á Seltjarnar-
nesi, og þá átti IR í erfið-
leikum með iS. Mikið hefur
verið um félagsskipti hjá
körfuknattleiksliðunum og
gamlar kempur er aftur
komnar í sviðsljósið — sér-
staka athygli vakti Guð-
mundur Birkir Þorkelsson,
en hann er byrjaður að nýju
að leika með HSK, og hann
þjáifar einnig liðið.
Bandarikjamaðurinn
Barry Nettles er aftur
kominn í raðir Njarðvík-
inga, sem komu upp úr 2.
deild siðastliðið
keppnistimabil.
Kn nú skulum við lita á úrslit
lcikjanna um heigina:
l>ór UMFN
USK - Ármann
m- ís
3£: 40
72:66
88:82
lirslitin i leik Uórs og
Njarðvikur, sem leikinn var á
Akureyri, komu mjög á óvart —
sérstaklega hvað fá stig voru
skoruð i leiknum. Staðan i hálf-
leik var ,,aðeins” 20:10 fyrir
heimamenn, ótrúlegar tölur.
Ueikmenn l>órs héldu forustunni
framan af i siðari hálfleiknum, en
svo breyta Njarðvikingar stöð-
unni úr 31:22 i 31:36, þegar þeir
skoruðu 14 stig i röð, án þess að
Akureyringar gætu svarað
lyrir sig. Rétt fynr íok leiksins
var staðan jöfn 38:38, en þá skora
heimamenn úr viti 39:38, og rétt
fyrir leikslok ,,stelur” Gunnar
l>orvarðarson báðum stigunum
frá l>ór, þegar hann brunar fram
völlinn og sendir knöttinn i körl-
una.
l>að er greinilegt, að Guttormur
ólafsson, fyrrverandi þjálfari
l>órs og leikmaður, hefur skilið
eftir stórt skarð i liðinu — eins og
menn vita þá leikur hann nú með
KR. l>á hefur Albert Guð-
mundsson yfirgefið t>ór, — hann
leikur nú með stúdentum. Jón
Héðinsson og Uorleifur Björns-
son, léku ekki meö Þdr gegn
UMFK.
Þó að sigur Njarðvikinga hafi
komið á óvart, kom sigur HSK yf-
ir Ármanni enn meira á óvart.
Iiver bjóst viö,að HSK-liðið væri
eins liflegt og það var i leiknum
gegn Ármanni — eftir að liðið
hafði misst tvo sterkustu leik-
menn sina yfir i 1R? en eins og
hefur komið fram hér á siðunni,
þá leika þeir Anton Bjarnason og
Einar Sigfússon, með 1R.
Sigur HSK gegn Ármanni er
helzt að þakka gömlu kempunni,
Guðmundi Birki Þorkelssyni,
sem er kominn aftur á sjónar-
sviðið. — Hann stjórnaði leik-
mönnum sinum eins og hershöfð-
ingi og árangurinn varð sigur
72:66. Jón Sigurðsson, sem hefur
verið sterkasti ieikmaður Ár-
manns undanfarin ár, lék ekki
meö núna og veikti það liðið mik-
ið. Með Ármanni lék aftur á móti
gamla kempan Davið Helgason
og kom hann nokkuð á óvart, þvi
að hann sýndi nokkuð góðan leik.
Davið hefur ekki leikið með
Ármannsliðinu undanfarin ár.
Bjarni Gunnar Sveinsson var
heldur betur i keppnisskapi,þegar
Stúdentar stóðu i tslandsmeistur-
unum 1R. Hann skoraði 27 stig og
var maðurinn á bak við það, að
báðir miðverðir 1R voru reknir út
af með fimm villur. ÍR-liðið náði
sér aldrei á strik gegn ÍS, sem
leikur með mikið af nýliðum, en
með liðinu i ár leika þeir Stefán
Halldórsson (áður KR og Þór),
Albert Guðmundsson (áður Þór)
og Jón Indriðason (áður IR).
Anton Bjarnason, lék nú aftur
með sinum gömlu félögum i ÍR og
sýndi stórgóðan leik og virðist
hann vera einn af okkar allra
skemmtilegustu körfuknattleiks-
mönnum.
Afmælismót Vals:
„KONGURINN í
BADMINTON”
- Haraldur Kornelíusson sigraði
einliðaleik á núlli
llaraldur Korneliusson,
sannaði það enn einu sinni( að
hann er ..Kóngurinn i badniin-
lon” þegar hann sigraði Sig-
urð Haraldsson i einliða leik i
úrslitum á afmælismóti Vals i
badminton á sunnudag'nn.
Haraldur sigraöi með tölunum
15:0, 15:0, scm cru ótrúlegar
tölur i úrslitaleik i jafn sterku
inóti og þessu, þar sem allir
sterkustu badmintonleikarar
landsins tóku þátt i.
Haraldur sigraði einnig i
tviliöaleik, er hann lék með
Steinari Petersen gegn þeim
Sigurði og Garðari Alfonssyni.
Haraldur og Steinar sigruðu
örugglega 15:5 og 15:8.
Flokkaglíma
Flokkaglima Reykjavikur'
verður haldin laugardaginn 16.
desember n.k, i leikfimisal Mela-
skólans og hefst kl. 16.00.
Reykjavíkur
Þátttökutilkynningar skulu
berast Sigtryggi Sigurðssyni,
Melhaga 9 eigi siðar en 9. desem-
ber n.k.
Ilér á myndinni sést Anton
lijarnason skora körl'u hjá ÍR i is-
laudsmóliuu i fyrra. Þá lék hann
nteð IISK, en nú leikur liann með
ili. Anton átti góðan leik gegn ÍR.
ADIDAS
strigaskór
Stærðir 40-45 — Verð kr.
545,00
Póstsendum
Sportvöruverzlun
Ingólfg Óskarssonar
Klapparstig «4 — Slml 11783 — Rcykiavlk
VEUUM ÍSLENZKT-/WÍV
ÍSLENZKAN IÐNAÐ
A DÝNU
fimleikasýningunni i Laugardalshöllinni á sunnudaginn.
Bandariskur fimleikamaður sýnir æfingar á dýnu, sent er ný
kontin til landsins, — en svona dýnur hafa ekki fyrr verið notaðar
Itér á landi. Eins og hér sést, þá var Laugardalshöllin fullsetin og
þurftu ntargir frá að hverfa.
STAÐAN:
FH-liðið heldur áfram sínu
striki i 1. deildarkeppninni í hand-
knattleik, liðið sigrar leiki með
litlum mun og hefur hlotið átta
stig, markatalan er mjög góð. FH
er með sex mörk i plús. Annars er
staðan þessi:
Fll
Valur
■ R
Fram
lla ukar
\ ikingur
KR
Árniann
4 4 0 0 73-67 8
3 2 0 1 65-49 4
3 2 0 1 57-47 4
3201 57-50 !
3 1 0 2 55-55 2
2 10 1 36-42 2
3 0 0 3 44-57 0
3 0 0 3 42-62 0
Hér á siðunni á morgun verður
sagt frá markhæstu mönnum,
skotum þeirra, hvernig þeir hafa
skorað og svo framvegis.