Tíminn - 06.12.1972, Síða 4
4
TÍMINN
Miftvikudagur (i. desember 1972
i
Þriburamóðir
lékk verðlaún
Sautján ára stúlka, Ingelise
Malmgren eignaðist fyrir
nokkru þribura á sjúkrahúsi i
Álaborg i Danmörku. Töldu
læknar, að hún hefði þar með
unnið til þriburaverðlauna, sem
kennd eru við Kristján fjórða og
veitt eru þriburamæðrum.
Þriburarnir vógu hver um sig
2500 grömm, og reyndist
fæðingin móðurinni svo erfið, að
hún lá meðvitundarlaus i fjóra
sólarhringa eftir fæðinguna Að
lokum raknaði hún þó við, og
fagnaði faðirinn henni þá með
þriburana i fanginu, og vár
meðfylgjandi mynd tekin við
það tækifæri. Maðurinn heitir
Ejnar Geisler, og sagði hann
sinni heittelskuðu, að þau ættu
að ganga i hjónaband nú i
desember. Faðirinn er 19 ára
gamall. Unga fólkið er búsett á
Grænlandi.en Ingelise ákvað að
i'ara til Danmerkur til þess að
eiga þriburana, og það var lika
eins gott fannst henni eftir á.þvi
trúlega hefði ýmislegt getað
farið öðru visi en ætlað var við
svo erfiða fæðingu á Grænlandi,
þar sem ekki er um aðstoð jafn-
margra og góðra lækna að ræða
og i Danmörku.
5)0
Kær konu
al' oigin kynþætti
Nú hefur Sammy Davis jr. valið
sér konu af eigin kynþætti, en
hún heitir Altavise Gore. Alta-
vise og Sammy kynntust i Lond-
on, og þar eyddu þau hveiti-
brauðsdögunum. Siðan fóru þau
til Parisar, þar sem Sammy
kom fram opinberlega og hlaut
mikið lof fyrir. Hér sjást hin
nýgiftu á veitingastað i Paris,
himinlifandi glöð og ánægð.
t-Misundir á veröi
fíegn mengun
Löggjöf gegn mengun er ágæt,
en árangurinn er undir því kom-
inn, að lögin séu haldin. t Rostov
við Don eru 450 manos ráðnir til
þess að fylgjast með þvi, að
reglunum sé fylgt. Er þessi borg
dæmigerð, varðandi afstöðu
manna i Sovétrikjunum til þess-
ara mála. I Rostov eru 800 þús-
und ibúar og heilbrigðisyfir-
völdin segja, að „mengunar-
eftirlitsmennirnir” 450 séu að-
eins byrjunin. 1 reynd eru þeir
ekki nógu margir til þess að
tryggja, að komið sé i veg fyrir
alla mengun. Þess vegna leitast
borgarstjórnin við að fá ai-
menning til samstarfs i þessum
efnum, og árangurinn er sá, að
hinir 450 föstu eftirlitsmenn
hafa þúsundir sjálfboðaliða sér
til aðstoðar.
Á hverjum einasta stórum
vinnustað i borginni hefur verið
komið upp hóp sjálfboðaliða,
sem stöðugt er á verði gegn
mengun. Steypustöð i borginni
hélt áfram starfsemi sinni, þótt
ryk- og reykhreinsunarkerfið
væri ónýtt, en mengunarvarð-
mennirnir gáfu skýrslu um það
þegar i stað, Sjálfboðaliðaeftir-
litið er ekki takmarkað ein-
göngu við skýrslugjafir. Sjálf-
boðaliðarnir hafa leyfi til að
snúa sér beint til borgarstjórn-
arinnar og krefjast ihlutunar
vegna brota á mengunarlögun-
um. Flest mál leysast þó áður
en nauðsynlegt er að ganga svo
langt.
— Maria, þctta er i þriðja sinn.
Ég skipa þér að fara tii augn-
læknis.
— Nú er ég búinn að sanna,
að sjóslöngur eru ekki til, svo þú
þarft ekki að sitja þarna og
glenna þig.
-----------V/
io-3
DENNI
DÆMALAUSI
Frú VVilson verður að heiman i
heila viku. llvað ætlarðu að gera i
sainbandi viö smákökuhallærið