Tíminn - 06.12.1972, Side 7
Miftvikiutagur (í. desember 1972
TÍMINN
7
Bókmenntafélagið
sendir frá sér
níu nýjar bækur
- Skírnir kemur nú út í 146. sinn
Eri—Reykjavik.
Fyrir nokkru boðuðu forráða-
menn Hins islenzka bókmennta-
félags fréttamenn á sinn fund til
aðkynna þeim útgáfubækur sinar
á þessu ári.
Skirnir kemur nú út i 146. sinn.
Honum fylgja auk þess bók-
menntaskrá, reikningar og
félagatal. Efni Skirnis er einkum
bundið við islenzka bókmennta-
og menningarsögu, og má af efni
þessa bindis nefna nokkrar grein-
ar um Halldór Laxness. 1 bók-
menntaskránni eru rakin bók-
menntafræðileg skrif, sem birzt
hafa áárinu 1971.
Þá kemur nú út siðasta hefti
islenzks fornbréfasafns, en
útgáfa þess hefur staðið i 115 ár.
Þetta hefti hefur að geyma
registur yfir 16. bindi.
Hjörn Þorsteinsson.hefur tekið
saman upp úr tslenzku forn-
bréfasafni helztu sáttmála, til-
skipanir og samþykktir konunga
og tslendinga um réttindi þeirra
og stöðu Islands innan norska og
danska rikisins 1020-1551. Er það
einkum ætlað sem handbók við
kennslu islenzkrar miðaldasögu.
Stærsta og merkasta útgáfu-
bókin þetta arið er bókin
Brynjólfur Pétursson, ævi og
sliirí.eftir Aðalgeir Kristjánsson,
skjalavörð. Brynjólfur er sá
Fjölnismanna, sem minnstur
gaumur hefur verið gefinn og
fallið i skugga félaga sinna og
Jóns Sigurðssonar. Bókin greinir
rækilega frá ævi og störfum
Brynjólfs og er að verulegu leyti
byggð á heimildum, sem ekki
hafa áður verið dregnar fram i
dagsljósið, þ.á.m. bréfasafni
Brynjólfs, sem fannst árið 1968.
óskar Ilalldórsson, prófessor
hefur skrifað bókina Bragur og
Ijóðslill, sem Bókmenntafélagið
gefur út i samvinnu við
Rannsóknarstofnun i bókmennta-
fræði við Heimspekideild H.l.
Hún fjallar um ljóðformið frá
bragfræðilegu og stilfræðilegu
sjónarmiði, og er einkum ætluð
sem handbók við bókmenntanám
i framhaldsskólum.
Þá koma á þessu ári út fjórar
bækur i safni lærdómsrita Bók-
menntafélagsins, en áður eru
komnar 5 bækur i þeim flokki.
Bækurnar, sem nú koma út eru:
obyggð og allsnægtir,eftir Frank
l-'raser Darlingi þýðingu Óskars
Ingimarssonar. Höfundurinn er
einn af frumkvöðlum vistfræðinn-
ar og segir bókina fjalla um þrjú
efni öðrum fremur- ,.fólksfjölda,
mengun og örlæti jarðar”. önnur
bókin i þessum flokki er Bera bý
eftir Karl von Frisch, i þýðingu
Jóns O. Edwald. Hún lýsir ein-
hverjum viðfrægustu tilraunum,
sem gerðar hafa verið á sviði al-
mennrar liffræði á þessari öld, en
með þeim fékkst skýring á einu
torræðasta fyrirbæri i dýrarikinu,
táknmáli býflugna. Bókin telst
eitt af höfuðritum um atferlis-
fræði dýra, auk þess sem hún vik-
ur að ýmsum vistfræðilegum við-
fangsefnum.
Þriðja bókin er Málsvörn
stærðl'ræðings eftir Godfrey
llarold llardy, i þýðingu Reynis
Axelssonar. Sú bók er ekki eigin-
legt lærdómsrit, heldur fremur
persónulegt varnarskjal eins af
fremstu stærðfræðingum heims á
fyrri hluta þessarar aldar. Samt
sem áður er hún talin veita
gleggri hugmynd um eðli og
markmið hreinnar stærðfræði en
flest eiginleg stærðfræðirit.
Fjórða bókin i þessum flokki er
svo Samræður um trúarbrögðin,
eftir David llume. Gunnar
Ragnarsson hefur þýtt hana, en
bókin kom fyrst út 1779. 1 henni
gerir Hume nákvæma úttekt á þvi
grundvallaratriði hefðbundinnar
kristinnar heimsskoðunar, að
heimurinnsé i einhverjum skiln-
ingi skipulagður.
Að öllum bókunum er ritaður
inngangur eða forspjall. Eyþór
Einarsson, ritar forspjall að bók-
inni Óbyggð og allsnægtir og
örnólfur Thorlacius að bókinni
Bera bý. Málsvörn stærðfræðings
er með inngangi eftir C.P. Snow,
en Páll S. Ardal hefur ritað inn-
gang að Samræðum um trúar-
brögðin.
Aður eru út komin i flokki lær-
dómsrita Bókmenntafélagsins 5
bækur og eru nú sumar þeirra á
þrotum. Enn eru fjölmargar af
fyrri útgáfubókum félagsins til og
má af þeim nefna tslenzkar ævi-
skrár Páls Eggerts Ólasonar og
tslenzkar gátur, skemmtanir,
vikivakar og þulur i samantekt
Jóns Árnasonar og Ólafs Daviðs-
sonar. Þá fundust og nýlega örfá
eintök af fornum hugvekjum og
hugvekjusálmum (Sturms Hug-
vekjum) og eru þau nú til sölu.
Einn í ólgusjó
- lífssigling Péturs sjómanns Péturssonar
SB-Reykjavik
„Einn i ólgusjó” heitir lifssigl-
ing Péturs sjómanns Péturssonar
og er nýkomin út hjá Setbergi.
Sveinn Sæmundsson skrásetti og
er þetta sjötta bók hans um sjó-
menn og sjómennsku, en. Sveinn
var sjálfur um árabil i siglingum.
Pétur Pétursson er sjómaður i
orðsins fyllstu merkingu. Hann
fer sina fyrstu ferð milli landa á
barnsaldri og kemst þá i kynni við
Bakkus konung. Ævintýri hans
eru með ólikindum. Hann siglir
um allan heim, fyrst á islenzkum
skipum og siðar með öðrum þjóð-
um. Kynni hans af fjarskyldustu
þjóðflokkum, löndum og borgum
er menntandi lif.
Þetta verður ógleymanleg lifs-
sigling, þar sem oft gefur á skút-
ana, en eins og Pétur sjómaður
Pétursson segir sjálfur i bókinni:
,,Maður siglir nú hvort sem er
ekki alltaf i logni”.
Einn i ólgusjó er frásögn is-
lenzks sjómanns og ævintýra-
manns, sem segir söguna, eins og
hún gengur og dregur ekkert und-
an.
Bókin er 272 blaðsiður, prýdd
mörgum myndum. Setberg
prentaði.
Svoinn Sæmundsson
Myndin er tekin, þegar dregið var i getrauniiini: Frú Anna Ingadóltir kona ólafs Sverrissonar kaup-
lélagsstjóra Borgarnesi dró vinningsmiöann. Aðrir á niyndinni eru talið frá vinstri: Steinþór Þorsteins-
son kaupfélagsstjóri Búðardal, Sigurður Markússon framkvæmdarstjóri Sambandinu, Hclgi Rafn
Traustason kaupfélagsstjóri Sauðárkróki, Kristján Ármannsson kaupfélagsstjóri Kópaskeri og Kúnar
Guðmundsson lögreglumaður Iteykjavik.
DREGIÐ í AFAAÆLISGET-
RAUN SAAABANDSINS
Þann 25. nóvember s.l. var
dregið í siðari hluta Afmælisget-
raunar Sambandsins um vinning-
inn ferð fyrir tvo með Sambands-
skipi til meginlands Evrópu.
Vinningin hlaut: Anna Sigur-
jónsdóttir, Bleikshlið 71, Eski-
firði.
Eins og allir viðskiptamenn
kaupfélagsbúða og Sambands-
búða muna fór fyrri hluli get-
raunarinnar fram i sumar þ. 21,-
24. júni, i lilefni 70 ára afmælis
Sambands islenzkra samvinnu-
lélaga og 90 ára afmælis elzta
kaupfélags landsins, þegar dregið
var i hverri búð um körfu fulla af
vörum úr getraunaseðlum þeirra.
Eins og lyrr segir fór dráttur-
inn i seinni hlutanum fram nú,
þegar dregið var úr vinnings-
miðunum um Evrópuferðirnar i
kvöldhóíi, sem Sambandið hélt
öllum kauplélagsstjórum og l'rúm
þeirra á Hótel Sögu að loknum
tveggja daga kaupl'élagsstjóra-
fundi hér i lteykjavik.
wn
bygging
Létt bygging M F dnáttarvélanna eykurgildi þeirra
MF
______jPA4££étt4yéf«/t> A/
-hinsígildadráttarvél SUÐURLANDSBRAUT 32 • REYKJAVlK • SlMI 86500 • SlMNEFNI ICETRACTORS
Massey Ferguson
ÁRMÚLA 7. REYKJAVÍK. SÍMI 30501
„ Afturmunstur
SOLU M; Frammunstur
Snjómunstur :