Tíminn - 12.12.1972, Side 5
Þriðjudagur 12. desember 1972
TÍMINN
5
VJYSendiferðabifreið-VW 5 manna-VWsvefnvagn
VW 9manna-Landrover 7manna
jimiT«uUi\
Út er komin ný bók hjá Helgafelli:
Ritsafn í bundnu og óbundnu máli,
eftir Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi
Stp—Reykjavik.
Út er komin hjá Helgafelli bók-
in RITSAFN i bundnu og óbundnu
máli eftir Jón Sigurðsson frá
Kaldaðarnesi. Kristján Alberts-
son hefur séð um útgáfu bókar-
innar. Formála hefur eiginkona
skáldsins, frú Anna Guðmunds-
dóttir, ritað, en Jón lézt árið 1957.
Framan við sjálfa útgáfuna eru
auk þess tvær greinar eftir
Kristján Albertsson og Sigurð
Nordal.
Á bókarkápu segir meðal ann-
ars: ,,Jón Sigurðsson frá Kaldað-
arnesi naut mikillar virðingar og
almennra vinsælda fyrir þýðing-
ar sinar, fyrst og fremst sögur
Hamsuns. Hann var reyndar ekki
sizt metinn af öðrum höfundum,
og þýðingar hans hafa haft áhrif á
islenzkt ritmál sem enn sér merki
i bókmenntum liðandi stundar.
011 verk hans, hvort sem er þýdd
eða frumsamin, bera vitni meist-
ara máls og stils — og óvenjulega
skemmtilegum manni.”
Á kápunni segir enn fremur, að
i bókmenntasögunni verði Jóns
frá Kaldaðarnesi getið sem
höfundar, er átti farsælan hlut að
endurnýjun islenzks ritmáls á
fyrrihluta þessarar aldar. t grein
sinni i bókinni segir Kristján
Albertsson meðal annars — ,,Ef
nokkur var fæddur stilisti, gagn-
kunnur öllum forða tungunnar,
jafnt mæltu máli sem rituðu, þá
var hann það. Smekkur hans var
hárfinn, smekkur snillings”.
Bókin hefur að geyma ljóð,
sögur og ritgerðir, sem Kristján
Albertsson hefur safnað saman,
og enn fremur valdar þýðingar
stuttra verka eftir ýmsa höfunda,
eins og Hamsun, Johannes V.
Jensen og Maxim Gorki. Bókin er
210 blaðsiður að stærð.
Flestir munu kannast við Jón
Sigurðsson frá Kaldaðarnesi. Um
40 ára skeið, eða frá árinu 1916 til
1957, starfaði hann i þjónustu al-
þingis og frá 1921 sem skrifstofu-
stjóri þeirrar stofnunar. Hann
varfæddur á Kirkjubæjarklaustri
18. febrúar 1886. Faðir hans var
Sigurður Ólafsson, sýslumaður
þar, en siðar sýslumaður i Árnes-
sýslu með aðsetri i Kaldaðarnesi,
sem Jón kenndi sig jafnan við.
Móðir Jóns var Sigriður Jónsdótt-
ir umboðsmanns i Vik i Mýrdal,
systir Halldórs kaupmanns i Vik,
sem margir kannast eflaust við.
Jón nam norrænu við Kaup-
mannahafnarháskóla. Vann hann
siðar á stjórnarskrifstofu íslands
i Höfn, unz hann kom heim og
gerðist sýsluritari hjá föður sin-
um um hrið. Arið 1916 hóf hann
störf á skrifstofu alþingis, eins og
áður segir. Hann lézt 31. október
árið 1957.
Tvær nýjar bækur eftir
Anne-Cath Vestly
Á undanförnum árum hefur
Iðunn gefið út f jórtán bækur eftir
hinn kunna norska barnabóka-
höfund Anne-Cath Vestly, þar á
meðal bækurnar um Óla
Alexander filibomm-bomm-
bomm. Nú eru komnar út tvær
nýjar bækur eftir þennan höfund.
Áróra og litli blái bíllinner þriðja
bókin um Áróru, sem býr i nýju
háhýsi ásamt foreldrum sinum og
hinum ársgamla bróður sinum,
Sókratesi. Móðir hennar vinnur
úti, en faðir hennar vinnur að
doktorsritgerð og annast heimilið
með góðri aðstoð Áróru, þótt ung
sé.
STÚFUR OG STEINVÖR er
þriðja bókin um Litla bróður og
Stúf. Litli bróðir á heima i nýju
húsi i úthverfi. Móðir hans verður
að vinna úti meðan verið er að
grynnka á skuldunum vegna
hússins. Faðir hans er jafnan
fjarverandi i ferðalögum vegna
atvinnu sinnar, en Stóri bróðir er i
gagnfræðaskólanum. Litla bróður
finnst þvi stundum dálitið ein-
manalegt, en hann hefur mikið
hugmyndaflug og kann ráð ti! að
sigrast á einmanaleikanum.
Báðar þessar bækur eru mjög
nútimalegar og gerast i um-
hverfi, sem flest börn þekkja.
Höfundurinn, Anne-Cath Vestly,
ioumn
Ef áætlunin
stenzt
ekki
er i hópi kunnustu barnabóka-
höfunda á Norðurlöndum og hefur
hvað eftir annað hlotið verðlaun
þau, er norska menntamálaráðu-
neytið veitir fyrir úrvals barna-
bækur. Slik verðlaun hafa einnig
verið veitt eiginmanni hennar,
Johan Vestly, sem teiknar mynd-
ir i allar bækur konu sinnar.
Stefán Sigurðsson þýddi báðar
bækurnar.
Óvænt útgjöld hafa oft gert náms-
mönnum leiðan grikk. Margir hafa orðið
að verða sér úti um starf jafnhliða nám-
inu, ef til vill á versta tíma námsársins.
Áætlanir geta brugðizt.
Nú eiga aðstandendur námsmanna
auðveldar með að veita þeim aðstoð, ef
þörf krefur. Með hinu nýja sparilánakerfi
Landsbankans er hægt að koma sér upp
varasjóði með reglubundnum sparnaði,
og eftir umsaminn tíma er hægt að taka
út innstæðuna, ásamt vöxtum, og fá lán
til viðbótar.
Varasjóðinn má geyma, því lántöku-
rétturinn er ótímabundinn. Þér getiö
gripið til innstæðunnar, og fengið lán á
einfaldan og fljótlegan hátt, þegar þér
þurfið á að halda.
Reglubundinn sparnaður og reglu-
semi í viðskiptum eru einu skilyrði
Landsbankans.
Kynnið yður sparilánakerfi Lands-
bankans. Biðjið bankann um bæklinginn
um Sparilán.
UÆSISSŒEíKESSl
UsaásaiÐS
Bíutki allra landsmanna
-=^—-25555
14444
wm/R'
BILALEIGA
KVJSRFISGÖTU 103
TIL ALLRA ATTA
NEW YORK
ALLA DAGA
OSLO STOKKHOLMUR kaupmannahöfn luxembourg
MANUDAGA MANUDAGA ÞRIÐJUDAGA FIMMTUDAGA ' ALLA DAGA
FOSTUDAGA FOSTUDAGA SUNNUDAGA