Tíminn - 12.12.1972, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 12. desember 1972
TÍMINN
17
Léleg mark-
varzla varð
Reykjavíkur-
meisturunum
að falli
— Islandsmeistarar Fram, sigruðu
Víking 21:18 í jöfnum leik. Tveir
leikmenn Fram voru teknir úr umferð
um tíma í síðari hdlfleik
Markvarzlan er mikill
höfuðverkur hjá Vikings-
liðinu i handknattleik —
liðið tapaði fyrir islands-
meisturunum Fram á
sunnugagskvöldið með
þriggja marka mun 21:18.
Rósmundur Jónsson,
markvörður iiðsins, lék
ekki með vegna veikinda
og háði það liðinu mikið,að
fyrirliðinn stóð ekki í mark
inu. Framliðið fékk mörg
ódýr mörk og má segja, að
það hafi riðið
baggamuninn. Það fór eins
og flesta grunaði. Víkingar
tóku Ingólf óskarsson úr
umferð — ólafur Friðriks-
son var látinn elta hann í
síðari hálfleik. Þá var Axel
Axelsson, einnig tekinn úr
umferð og Andrés Bridde
um tima. Leikaðferðin
heppnaðist ekki hjá Víking
og jöfnum leik lauk með
sigri Fram.
Vikingsliðið tók forustuna i
byrjun leiksins, er Stefán
Halldórsson skoraði tvö fyrstu
mörk leiksins. Á 4. min. jafnaði
Ingólfur Óskarsson úr vitakasti,
-2:2. Siðan mátti sjá tölur eins og
3:3, 4:4, 5:5. 6:6. 7:7. En þá
skora Páll Björgvinsson og
Sigfús Guðmundsson fyrir Viking,
og staðan er orðin 9:7 fyrir
Vjkingsliðið og tiu min. til leiks-
hlés.Axel Axelsson, skorar fyrir
Fram og Ingólfur jafnar 9:9 á 27.
min. Rétt fyrir leikshlé átti sér
stað ljótt brot. Björgvin Björg-
vinsson gaf Sigfúsi Guðmunds-
syni mikið högg i magann, svo að
Sigfús féll i gólfiö og það þurfti að
stöðva leikinn um tima. ,,Hvað
var annað hægt að gera, sagði
Björgvin eftir leikinn, maðurinn
var búinn að liggja á mér og lét
mig ekki i friði”.
Leikurinn hélzt jafn i byrjun
siðari hálfleiks, þegar 10 min.
voru liðnar af honum var staðan
11:11. „Þeir eru búnir”, kallaði
Axel þá, og stuttu siðar var
staðan orðin 14:11 fyrir Fram. Þá
var Viggó Sigurðsson látinn elta
Axel, en það dugði ekki, Fram-
arar skora tvö næstu mörk og
staðan er orðin 16:11.
Þá eru tveir Framarar teknir
úr umferð, þeir Axel og Andrés
Bridde, en Ólafur Friðriksson
látinn elta hann. Þegar 7 min.
voru til leiksloka og staðan 18:15.
kom Ingólfur Óskarsson, fyrirliði
Fram inn á og vár þá Ólafur
látinn elta hann. Vikingsliðinu
tókst að saxa á forskot Fram —
þegar ein min er til leiksloka, var
staðan orðin 19:18. Þegar 50 sek.
voru til leiksloka skoraði hinn
ungi leikmaður Fram Guð-
mundur Sveinsson 20:18 og stuttu
siðar skoraði hann aftur eftir að
Björgvin hafði gefið á hann á linu.
Ingólfur var mjög góður i
leiknum og stjórnaði hann leik-
mönnum Fram, mjög vel. Hann
skoraði átta mörk — sex úr vita-
köstum, en Ingólfur er mjög
örugg vitáskytta. Björgvin og
Sigurbergur Sigsteinsson áttu
góðan leik. Guðjón varði mjög vel
i leiknum, ef hann hefði verið i
Vikingsmarkinu hefðu úrslit
leiksins orðið önnur.
Mörk Fram skoruðu eftirtaldir
leikmenn: Ingólfur 8, Björgvin
og Sigurbergur 3 hvor, Guð-
mundur Sveinn og Axel, tvö hver
og Pétur eitt.
Sigfús Guðmundsson átti stór-
góðan leik með Vikingsliðinu,
hann var góður i sókn og vörn.
Sigfús skoraði fimm mörk af linu
og voru þau mjög falleg. Guðjón
Magnússon var daufur i leiknum,
hann skoraði ekkert mark og er
það mjög sjaldgæft. Stefán
Halldórsson og Páll Björgvinsson
eru komnir i mjög gott form —
þeir voru m jög góðir i leiknum og
byggðist allt spil liðsins á þeim.
Mörk liðsins skoruðu þessir
leikmenn: Sigfús 5, Einar 4 (3
viti), Páll 4, Stefán 3, Ólafur og
Viggó, eitt hvor.
Dómgæzla þeirra Vals Bene-
diktssonar og Eysteins Guð-
mundssonar, var mjög léleg.
SOS
Stefán Ilalldórsson, er hérbúinn aðbrjóta sér liðí gegnum Framvörnina og skorar mark fyrir Viking —
staðan var þá 11:10 fyrir Vikingsliðið. Axel Axelssyni, hinum kunna landsliðsmanni Fram, tókst ekki að
hindra Stefán.
Axel lék
með Fram
- hann er búinn að ná
sér eftir meiðsli,
sem hann hlaut í
Reykjavíkurmótinu
Axfel Axelsson, landsliðsmaður
úr Fram, lék sinn fyrsta leik með
félagi sinu á sunnudagskvöldið,
þegar Fram mætti Viking. Axel
hefur verið meiddur, er nú búinn
að ná sér,og sýndi hann góðan leik
gegn Viking. Hann skoraði tvö
mörk, með langskotum, sem
hann er frægur fyrir. t siðari
hálfleik var Viggó Sigurðsson,
látinn elta Axel út um allt, svo að
hann naut sin ekki undir lok
leiksins.
Óska eftir greiðslu í
bandarískum dollurum
Líklegt, að A-Þjóðverjar leiki hér í júlí n.k.
Alf—Reykjavík — Nú
mun vera nokkurn
veginn ákveöið, að
austur-þýzka landsliðið i
knattspyrnu komi
hingað til lands í júli-
mánuði n.k. og leiki tvo
landsleiki við Islendinga
á Laugardalsvellinum.
Hafa samningar við Austur-
Þjóðverja staðið yfir að
undanförnu og borið litið á
milli. Óskuðu Austur-Þjóð-
verjar eftir að fá 5 þúsund
dollara fyrir að leika, en
stjórn KSt vildi ekki fallast á
það, samkvæmt upplýsingum,
sem iþróttasiðan siðan hefur
aflað sér, en bauð á móti tals-
vert lægri upphæð, sem lik-
legt þykir, að Austur-Þjóð-
verjar sætti sig við.
Það verður vissulega mikill
fengur að fá Austur-Þjóðverja
til Islands. Þeir hafa löngum
verið i hópi betri knattspyrnu-
þjóða Evrópu, en ekki haft
tækifæri til(jið leika sem
skyldi vegna pólitiskra að-
stæðna. Með viðurkenningu á
Austur-Þýzkalandi opnast
möguleikar til meiri
iþróttasamskipta við Austur -
Þjóðverja en verið hefur ekki
aðeins fyrir okkur islendinga,
heldur og fyrir aðrar Evrópu-
þjóðir, sem nú eru að viður-
kenna Austur-Þýzkaland.
Félagsbúningar
í' 1 ' 1.
Félagsmerki, veifur og fónar
íslenzku og ensku félaganna
Myndir af öllum þekktustu
brezku knattspyrnumönnunum
og félögunum
*
Póstsendum
SPORTVAL
!
Hlemmtorgi — Simi 14390