Tíminn - 12.12.1972, Page 18
18
TÍMINN
Þriðjudagur 12. desember 1972
Margar geröir — Allar
stæröir
Póstsendum
Stúdentar komnir með gott lið
Fjórir leikir voru leiknir i
islandsmótinu í körfuknattieik
um helgina. A laugardaginn fóru
fram tveir leikir, þá sigruðu Stú-
dentar Þór léttilega og KR sigraði
Val. Það er greinilegt, að
Stúdentar eru að sækja i sig veör-
ið i körfuknattleik, liö þeirra hef-
ur aldrei verið eins gott og um
þessar mundir.
Orslit leikjanna á laugardag-
inn, urðu þessi:
IS—Þór 68:45
KR—Valur 90:66
Á sunnudagskvöldið fóru fram
tveir leikir, þá sigruðu Islands-
meistararnir IR — Þór og Kr
sigraði HSK. Úrslit urðu þessi:
IR—Þór 91:64
KR—HSK 83:66
Nánar verður sagt frá leikjun-
um á morgun.
Kristinn Jörundsson og Einar Sigfússon sjást hér i vörn i leiknum gegn
Þór.
ADIDAS
æfingaskór
„Vegna hvers komstu
ekki inn á?”
- sagði Hannes Þ. Sigurðsson, dómari við
Vilhjálm Sigurgeirsson. Tímavörður leiks
ÍR og Hauka, vísaði honum út af í 2 mín.
völlinn, en um leið flautar
Kristján og segir,að Vilhjálm-
ur hafi farið vitlaust inn á og
mátti þá Vilhjálmur yfirgefa
völlinn aftur i 2 min.
Mjög einkennilegt atvik átti
sér stað, þegar 1R og Haukar
léku i 1. deild á sunnudags-
kvöldið. Vilhjálmur Sigur-
geirsson, mátti bita i það sura
epli að vera fyrir utan völl i
fjórar minútur. Það var búið
að visa honum af leikvelli i 2
min. i siðari hálfleik — þegar
Vilhjálmur talaði við tima-
vörðinn, Kristján örn Ingi-
bergsson, og spurði hann,
hvenær hann mætti fara inn á,
sagði Kristján,ogiýtti lúm leií
á bakið á Vilhjálmi, „timinn
er kominn, þú mátt fara inn
á”. Vilhjálmur fer inn á leik-
Eftir leikinn sagði Hannes,
dómari, við Vilhjálm, að hann
hefði átt að koma inn á, þvi að
knötturinn var úr leik, þegar
hann kom inná eftir brott-
reksturinn. A þessu sést, að
timaverðir i handknattleik,
eru að verða stór númer i
handknattleiksiþróttinni —
þeir eru farnir að visa mönn-
um af leikvelli.
Veðurtepptur
á Akureyri
- þrír leikir í 2. deild
fóru fram s.l. viku
Hinn kunni handknatt-
leiksmaður, Gunnlaugur
Hjálmarsson gat ekki leikið
með liði sinu á sunnudaginn.
Gunnlaugur, sem er fyrirliöi
IR, komst ekki til Reykja-
vikur — hann var veöur-
tepptur á Akureyri, þar sem
hann var með lið sitt Þrótt,
en hann þjálfar liðiö. Þróttur
lék gegn Þór I iþrótta-
skemmunni á Akureyri og
var leikurinn liður i 2. deild-
arkeppninni. Honum lauk
með sigri Þórs 14:12 og er
Þór búinn að taka forustu i 2.
deild, liðið sigraöi KA I „inn-
byrðis ieiknum" á Akureyri
15:12. Sigur Þórs yfir Þrótti
kom nokkuö á óvart, þvi að
lið Þróttar hefur staðið sig
mjög vcl i vetur.
Keflvikingar sigruðu Fylki
á sunnudagskvöldið með
tveggja marka mun 22:20.
Liðið er nú komið mcð fjögur
stig eins og Þór. Þjálfari
Keflvikinga er hinn gamal-
kunni landsliðsfy rirliði,
Ragnar Jóhsson.
Brynjólfur Markússon. sýndi mjög góðan leik gegn Haukum, hann skoraði niu mörk. A myndinni sést
hann skor. eitt af mörkum sínum, úr hraðupphlaupi. Tlmamyndir Róbert)
Æfingaskór BRYNJÓLFUR ÁTTI
STJÖRNULEIK GEGN
STÆRÐIR 3-5
verö kr. 615,00
STÆRÐIR 7-10
verð kr. 780,00
HAUKUM
— hann var maðurinn á bak við
góðan sigur ÍR-liðsins
Brynjólfur Markússon
átti frábæran leik, þegar
IR sigraði Hauka í islands-
mótinu á sunnudagskvöld-
ið. Hann var óstöðvandi og
sýndi, að hann er okkar
bezti gegnumbrotsmaður
og frábæ i hraðupphlaup-
um. í byrjun siðari hálf-
leiks breytti Brynjólfur
stöðunni úr 10:7 i 14:7 —
þegar hann skoraði fjögur
mörká fimm minútum. iR-
liðið sem lék mjög góðan
varnarleik sigraði Hauka
22:20 — liðið hafði yfir nær
allan leikinn og sigurinn
var aldrei í mikilli hættu.
Haukar komast yfir i byrjun
2:0, en þeir voru ekki lengi með
forustuna, á 6. min. jafnar Agúst
Svavarsson 2:2 og IR-liðið kemst
yfir 4:2, með mörkum frá Ólafi
Tómassyni og Vilhjálmi Sigur-
geirssyni. Um miðjan fyrri hálf-
leik, er staðan 6:5 fyrir IR, sem
náði svo góðu forskoti, i hálfleik
var staðan orðin 10:7.
Eftir 5 min. i siðari hálfleik var
staðan orðin 14:7 fyrir 1R —
Brynjólfur var þá óstöövandi og
skoraði fjögur góð mörk. Fyrst
með langskoti, þá gegnumbroti
og siðan tvö úr hraðupphlaupi.
Haukar svara meö fjórum mörk-
um og eftir 9 min. er staðan 14:11
fyrir IR. Þegar fjórar minútur
voru til leiksloka, var staðan
20:18 og var þá nokkur spenna
komin i leikinn, en liðin skiptust á
að skora og leiknum lauk með
sigri IR, 22:20.
IR-liðið átti góðan leik, sérstak-
lega var vörnin góð og munaði
miklu, að Ólafur Tómasson er
byrjaður að leika með liðinu, eftir
meiðsli, sem hann hlaut á æfingu.
Brynjólfur var mjög góður og
sýndi hann, að hann á heima i
landsliðinu. Geir markvörður átti
góðan dag, það sama má segja
um alla leikmenn liðsins.
Haukaliðið náði sér aldrei á
strik i leiknum, leikmenn liðsins
fundu ekkert svar við sterkum
varnarleik IR. Þórður Sigurðs-
son átti þokkalegan leik og
sömuleiðis Ólafur Ólafsson, en
þessir leikmenn eru aðalmenn
liðsins.
Mörkin i leiknum skoruðu þess-
ir leikmenn: Haukar: ólafur 6
(5viti), Sigurgeir 3, Sturla, Þórð-
ur, Stefán og Frosti, tvö hver,
Guðmundur, Svavar og Sigurður
eitt hver. ÍR: Brynjólfur 9 (eitt
viti), Vilhjálmur 7 (4 viti), Agúst
3, Þórarinn, Jóhannes og Ólafur,
eitt hver.
Leikinn dæmdu þeir Karl
Jóhannsson og Hannes Þ.
Sigurðsson, og sluppu þeir vel frá
þvi. Þeir mættu kannski flauta
aðeins lægra. SOS.
Sportvöruverzlun
Ingólfs Óskarssonar
Klappmtlg 44 — Slml 11783 — Krykjavlk
Póstsendum
Sportvöruverzlun
Ingólfs Óskarssonar
Klapparstig 44 — Slml 11783 — Rcykjavlk
IfrSD^OG*!
Körfuknattleikur:
ÍR og KR sigr-
uðu um heigina